Erlent

Steinaldarþorp í grennd við Stonehenge

Breskir fornleifafræðingar hafa fundið rústir af stóru þorpi í grennd við Stonehenge, sem talið er að hafi tengst hinum fornu steinhleðslum. Þorpið er þá um 4600 ára gamalt og það stærsta sem fundist hefur í Bretlandi, frá síðari hluta steinaldar. Fornleifafræðingarnir telja sig hafa fundið tuttugu og fimm húsastæði og telja að þau séu mun fleiri. Þá grunar að íbúarnir hafi unnið við að reisa Stonhenge.

Erlent

Reyktu lyfin þín

Bandarískt lyfjafyrirtæki er að þróa lyf sem hægt er að reykja, og hafa því áhrif þegar í stað, rétt eins og nikótín. Öll lyfjafyrirtæki leggja áherslu á að lyf þeirra hafi skjót áhrif, sérstaklega ef um er að ræða lyf við mígreni, verkjum eða ofsahræðslu. Staðreyndin er hinsvegar sú að lyfin taka frá fimmtán mínútum og upp í klukkustund, að virka.

Erlent

Fjórir látnir í fjölskylduharmleik í Stafangri

Tveir fullorðnir og tvö börn hafa fundist látin í íbúð í Storhaug í Stafangri í Noregi. Frá þessu er greint á vef Stavanger Aftenblad. Haft er eftir lögreglu, sem er nýkomin á staðinn að um fjölskylduharmleik sé að ræða.

Erlent

Olmert íhugar að víkka aðskilnaðarmúrinn

Forsætisráðherra Ísraels er að kanna hvort víkka eigi aðskilnaðarmúrinn á Vesturbakkanum, til þess að hann umljúki tvær landnemabyggðir Gyðinga, sem þar eru. Það myndi hafa í för með sér að tugþúsundir Palestínumanna yrðu girtir af, frá sinni heimabyggð. Hæstiréttur Ísraels hefur oft gripið í taumana þegar þetta hefur verið reynt.

Erlent

Kenndi börnunum að drekka og reykja

Lögreglan í Varsjá hefur yfirheyrt pólskan föður vegna grunsemda um að hann hafi kennt ungum sonum sínum að drekka og reykja. Eiginkona mannsins sýndi lögreglu myndskeið úr farsíma af manninum með fjórum sonum þeirra sem eru á aldrinum tveggja til átta ára. Mariuxz Lechniak, 35 ára frá Varsjá, mun hafa sagt lögreglu að hann vildi vera viss að synir hans yrðu “alvöru menn.”

Erlent

Dauðum gæludýrum umbreytt í demanta

Gæludýraeigendur geta nú breytt dauðum gæludýrum sínum í demanta. Demantarnir eru framleiddir úr kolefni frá ösku dýranna sem fengið er frá dýralíkbrennsluhúsi í Hertfordshire í Bretlandi. Líkbrennslan tekur fyrir frá tæplega þrjú hundruð þúsundum króna upp í tvær milljónir eftir stærð demantsins. Duncan Francis talsmaður fyrirtækisins sagði dagblaðinu Metro að demantur kæmi á eilífri tengingu við gæludýrið og sumum þætti mikil huggun í því.

Erlent

Aðildarviðræður frestist nema Mladic verði framseldur

Yfirsaksóknari glæpamannadómstóls Sameinuðu þjóðanna vegna stríðsglæpa í fyrrum Júgóslavíu skoraði á Evrópusambandið í dag að fresta aðildarviðræðum við Serbíu þar til eftirlýstir stríðsglæpamenn hafa verið framseldir.

Erlent

Nekt danska umferðarráðsins mest skoðuð á netinu

Nekt selur og netið er öflugur miðill. Þessar staðreyndir sönnuðust enn á ný í herferð danska umferðaröryggisráðsins (RFFS) í nóvember sl, þar sem notast var við nútímalegar en jafnframt djarfar aðferðir til að ná niður ökuhraða á dönskum vegum. Markmiðið var að ná til þeirra ökumanna sem mestum skaða valda með hraðakstri: ungra karlkyns bílstjóra. Útbúið var myndskeið með berbrjósta hraðaeftirlitsmönnum og sett í sjálfvirka dreifingu á netinu.

Erlent

Milljónum dollara sóað í Írak

Milljónir dollara sem bandaríkjamenn veittu til enduruppbyggingar í Írak hefur verið sóað, segja bandarískir endurskoðendur í skýrslu til Bandaríkjaþings sem varar við spillingu. Ónotaðar æfingabúðir fyrir lögreglumenn í Baghdad með risasundlaug er eitt af mannvirkjunum sem endurskoðendurnir benda á máli sínu til stuðnings. Milljarður íslenskra króna sem veittur hefur verið til uppbyggingar er enn ónotaður af íröskum stjórnvöldum.

Erlent

Ísraelskur ráðherra sakfelldur

Ísraelskur dómstóll sakfelldi í dag dómsmálaráðherrann fyrrverandi Haim Ramon fyrir kynferðislega áreitni við konu í ísraelska hernum. Ramon sagði af sér í ágúst eftir að ákæra var gefin út á hendur honum. Sakir hans voru að hafa þröngvað konu í hernum til að kyssa sig eftir að hún bað hann um að mynd af þeim saman.

Erlent

Ísraelar ráðast gegn Heilögu stríði

Ísraelsher ætlar að ráðast gegn palestínsku andspyrnu og hryðjuverkasamtökunum Heilögu stríði, eða Islamic Jihad. Þetta var ákveðið í gærkvöldi eftir samráðsfund forsætis- og varnarmálaráðherra landsins með yfirmönnum hersins.

Erlent

Hálf milljón flugsæta á útsölu

British Airways ætlar að selja hálfa milljón flugsæta á útsölu til þess að vinna upp almenningsálit á fyrirtækinu eftir að verkfalli flugliða var frestað á síðustu stundu í vikunni. Hunduðum fluga var aflýst strax í síðustu viku en þau síðan sett aftur á áætlun með litlum fyrirvara eftir að samningar náðust.

Erlent

Skelfingu lostinn köttur á lyfjum

Breskur köttur hefur verið settur á þunglyndislyf vegna eineltis sem hann er lagður í af öðrum köttum. Sérfræðingar segja að kötturinn Twiglet, 12 ára, þurfi einnig skapofsameðferð, en í reiði sinni bítur hann eigandann reglulega. Og hinn stutthærði, gráleiti Twiglet bætir á sig kílóum, af því að hann er of skelkaður til að fara út. Hann er orðinn rúm sjö kiló, en meðalþyngd katta eru fimm kiló.

Erlent

Hluti kjörstjórnar Bangladess segir af sér

Fimm embættismenn úr kjörstjórn fyrir þingkosningar í Bangladess sögðu af sér í morgun, að því er talsmaður forsetaembættisins segir. Afsögn þessara fimm hefur verið ein aðalkrafa stjórnarandstöðunnar sem hefur staðið fyrir mótmælum og mannskæðum óeirðum í Dakka, höfuðborg landsins frá því fyrir jól.

Erlent

Ætluðu að hálshöggva hermann

Átta manns sem handteknir voru í Birmingham í Bretlandi í morgun lögðu á ráðin um að ræna, pynta og hálshöggva hermann, eftir því sem SKY-fréttastofan segir frá. Hryðjuverkadeild bresku lögreglunnar hafði fylgst með fólkinu í hálft ár. Nánari upplýsinga er að vænta frá bresku lögreglunni sem er þessa stundina með blaðamannafund.

Erlent

Náðist ekki að safna í friðargæslu fyrir Sómalíu

Leiðtogar Afríkusambandsins náðu ekki að fylla 8.000 manna friðargæslulið fyrir Sómalíu eins og til stóð. Helming vantar enn upp á, aðeins er vilyrði fyrir um 4.000 mönnum. Tveggja daga leiðtogafundi Afríkusambandsins lauk í gærkvöldi og skilaði hann litlum árangri í málefnum Sómalíu.

Erlent

26 þúsund fölsuð vegabréf

Íraska sendiráðið í Stokkhólmi hefur gefið út 26 þúsund vegabréf á röngum forsendum til hælisleitenda í Svíþjóð og Noregi, að því er fram kemur í sænska blaðinu Metro. Málið komst upp þegar lögreglan í Osló afhjúpaði vegabréfafalsara.

Erlent

Hvarf fegurðardrottningar rannsakað

Breskir rannsóknarlögreglumenn byrjuðu í gær að leita að vísbendingum um fyrrverandi fegurðardrottningu frá Brasilíu. Taiza Thomsen hringdi í foreldra sína fyrir fimm mánuðum síðan og sagðist þá vera í London. Þegar foreldrar hennar höfðu ekki heyrt frá henni mánuðum saman létu þeir brasilísku lögregluna vita, sem síðan gerði bresku lögreglunni viðvart.

Erlent

Lyfjafyrirtæki vill framleiða bóluefni gegn fuglaflensu

Stærsta lyfjafyrirtæki Ástralíu, CSL, sótti í gær um leyfi til að framleiða bóluefni gegn fuglaflensu. Fyrirtækið hefur gert tilraunir með bóluefni á fullorðnum Áströlum og segir niðurstöðurnar lofa góðu. Ef leyfið fæst væri hægt að byrja að framleiða bóluefnið innan sex vikna og framleiðslan yrði nógu hröð til þess að hægt væri að bólusetja alla áströlsku þjóðina, rúmar tuttugu milljónir, innan 6 mánuða.

Erlent

Bush sakaður um að leyna skjölum um loftslagsbreytingar

Formaður þingnefndar í neðri deild Bandaríkjaþings sakaði í gær Bush Bandaríkjaforseta um að leyna skjölum um loftslagsbreytingar. Þá sakaði hann forsetann og samstarfsmenn hans í Hvíta húsinu um að afvegaleiða umræðuna um hlýnun andrúmsloftsins.

Erlent

Fídel Kastró hressari

Fídel Kastró Kúbuforseta fer batnandi. Á fyrstu myndbandsupptökunni sem birtist af honum í þrjá mánuði virðist hann vera að ná kröftum hægt og bítandi. Upptakan er frá fundi hans og Hugo Chavez, forseta Venesúela, á mánudag, þar sem vinirnir ræddu saman í tvo tíma.

Erlent

Kjúklingur með andarfit

Kólumbískur bóndi keypti sér egg á dögunum, sem er ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að kjúklingurinn sem kom úr egginu skartar sundfitjum að hætti anda. Líklega er að um stökkbreytingu sé að ræða.

Erlent

Microsoft kynnir nýtt stýrikerfi

Microsoft-hugbúnaðarfyrirtækið kynnti í gær nýjustu kynslóð Windows-stýrikerfisins og hefur kerfinu verið gefið nafnið Vista. Búist er við að innan árs hafi yfir eitt hundrað milljónir tölvunotenda um allan heim tekið kerfið í sína notkun.

Erlent

Vopnahléið að mestu virt

Allt hefur verið með kyrrum kjörum á Gaza-ströndinni í dag eftir að samkomulag náðist á milli stríðandi fylkinga um vopnahlé. Verslanir og skólar voru opnaðir á nýjan leik en starfsemi þeirra hefur legið niðri síðan á fimmtudaginn þegar sló í alvarlega brýnu á milli liðsmanna Hamas-samtakanna og Fatah-hreyfingar Mahmoud Abbas forseta.

Erlent

Á fimmta tug pílagríma liggur í valnum

Á fimmta tug pílagríma lét lífið í fjölmörgum árásum í nágrenni Bagdad í dag, um það leyti sem Ashura-trúarhátíð sjía stóð sem hæst. Þar af voru sjö skotnir til bana þegar þeir voru á leið með rútu frá hinni helgu borg Karbala.

Erlent

55 nunnur á flótta undan löggunni

Fimmtíu og fimm grískar nunnur, úr tveimur klaustrum, eru farnar í felur eftir að prjónaverksmiðja sem þær stofnuðu, fór á hausinn. Klaustur þeirra, eru nú auð og yfirgefin og enginn veit hvar hinar skuldugu þernur Krists eru niðurkomnar.

Erlent

DNA til að finna skellinöðruþjóf

Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægri manna í frönsku forsetakosningunum liggur undir ámæli fyrir það að lögreglan notaði bæði DNA prufur og fingraför til þess að hafa hendur í hári þjófa sem stálu skellinöðru frá einum sona hans. Sarkozy er innanríkisráðherra Frakklands og lögreglan heyrir undir hann.

Erlent

Grænlendingar vilja eiga olíuna einir

Grænlendingar vilja eiga sína olíu óskipt, þegar og ef hún byrjar að streyma. Þeir telja ekki Dani eiga neitt tilkall til tekna af henni. Danir og Grænlendingar funda nú í hinni svokölluðu heimastjórnarnefnd, þar sem meðal annars er fjallað um efnahagsmál. Talið er að mikla olíu og önnur auðævi sé að finna á grænlenska landgrunninu.

Erlent

Vill girða Egyptaland af

Varnarmálaráðherra Ísraels vill reisa girðingu á landamærunum við Egyptaland, til þess að koma í veg fyrir að palestinskir hryðjuverkamenn komist til Ísraels yfir Sínaí eyðimörkina. Aðstoðarmaður Amirs Peretz segir að hann hafi vakið máls á þessu eftir að þrír Gyðingar fórust í sprengjutilræði í hafnarborginni Eilat.

Erlent