Erlent
Vilja aðgerðir í loftslagsmálum Leiðtogar ríkja heims eru einhuga um að ná þurfi samkomulagi hið fyrsta um viðbrögð við loftslagsbreytingum. Þetta var niðurstaða fundar sem haldinn var í borginni Washington í Bandaríkjunum og lauk í gær. Lagt var til að þróunarlönd ættu einnig að takmarka útblástur skaðlegra efna rétt eins og ríkari lönd. Í lokayfirlýsingu fundarins var tekið fram að ekki væri lengur hægt að draga í efa áhrif mannsins á loftslagsbreytingar. Erlent 16.2.2007 08:00
Farþegar yfirbuguðu flugræningjann Farþegar og áhöfn máritanískrar farþegaþotu sem var rænt í gær náðu að yfirbuga flugræningjann. Hann var handtekinn stuttu eftir að vélin lenti á herflugvelli á Kanarí-eyjum. 71 farþegi og átta fluglilðar voru um borð í vélinni. 21 farþegi slasaðist í ráninu og þar á meðal barnshafandi kona. Erlent 16.2.2007 07:45
Kim Jong-il 65 ára í dag Forseti Norður-Kóreu, Kim Jong-il, er 65 ára í dag og verður matarskammtur til almennings aukinn af því tilefni í dag. Afmælisdagur leiðtogans er einn helsti hátíðisdagur Norður-Kóreu. Á þriðjudaginn náðist samkomulag um að draga úr kjarnorkuáætlun landsins og hefur það bætt lund margra landsmanna. Erlent 16.2.2007 07:00
Meintur forsprakki hryðjuverka neitar sök Egypti, sem sakaður er um að vera einn af höfuðpaurum lestarsprengjuárásanna í Madríd í mars 2004 sem bönuðu 191 manni og slösuðu 1.800, hélt því fram við yfirheyrslu í gær, á fyrsta degi réttarhalda yfir 29 sakborningum í málinu, að hann hefði þar hvergi komið nærri. Erlent 16.2.2007 06:15
Föngum fjölgar í 1,7 milljónir Föngum í bandarískum fangelsum fjölgar fram til ársins 2011 úr 1,5 milljónum í 1,7 milljónir. Lengri fangelsisdómar í samræmi við kröfu stjórnmálamanna um þyngri refsingar valda þessu samkvæmt nýrri skýrslu um fangelsismál vestra. Erlent 16.2.2007 06:00
Kýpur sækir um evruaðild Stjórnvöld á Kýpur sóttu á þriðjudag formlega um inngöngu í myntbandalag Evrópusambandsins. Gera þau sér vonir um að af aðildinni verði um næstu áramót. Erlent 16.2.2007 05:00
Sagður vera farinn til Írans Einn af ráðgjöfum forsætisráðherra Íraks sagði í gær að Muktada al-Sadr, herskár leiðtogi sjía í Bagdad, væri í Íran, en vísaði því á bug að hann væri á flótta til að forðast handtöku. Erlent 16.2.2007 04:45
Launavinna borgar sig ekki Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, segir í nýrri skýrslu að það borgi sig ekki að stunda launavinnu í Danmörku. Danska dagblaðið Politiken skýrir frá þessu á fréttavef sínum. Erlent 16.2.2007 04:15
Serbíuþing varar við sjálfstæði Kosovo Forsætisráðherra Serbíu, Vojislav Kostunica, varaði í gær við því að ef Kosovo-hérað fengi sjálfstæði frá Serbíu gæfi það „hættulegt fordæmi“ og leiddi til „ofbeldis gagnvart lýðræðisþjóðum í Evrópu“. Erlent 16.2.2007 04:15
Spillir fyrir tengslum við Rússa Eistneska þjóðþingið samþykkti í gær „Lög um bannaðar byggingar", en framfylgd þeirra mun þýða flutning á umdeildu minnismerki um sigur Rauða hersins í síðari heimsstyrjöld frá þeim áberandi stað sem það nú stendur á í miðborg Tallinn inn í kirkjugarð. Erlent 16.2.2007 03:45
Hefja tvíhliða viðræður á ný Fulltrúar ríkisstjórna Kóreuríkjanna tveggja hafa komið sér saman um að hefja á ný beinar tvíhliða samningaviðræður á ráðherrastigi síðar í mánuðinum. Ákvörðunin er fyrsta áþreifanlega merkið um slökun á spennunni í samskiptum Suður- og Norður-Kóreu, en sú spenna náði nýju hámarki er N-Kóreumenn sprengdu fyrstu tilraunakjarnorkusprengju sína í fyrra. Erlent 16.2.2007 03:30
Chavez hótar þjóðnýtingu Hugo Chavez, forseti Venesúela, sakar stjórmarkaði og matvælabirgja í landinu um að hamstra matvæli og þrýsta upp verði. Hefur hann hótað að þjóðnýta öll slík fyrirtæki í einkaeigu um leið og þau gefi honum tilefni til þess. Erlent 16.2.2007 03:00
Ellefu manns handteknir Sérsveit hryðjuverkavarnalögreglu í Frakklandi hefur handtekið ellefu manns sem grunaðir eru um aðild að al-Kaída-tengdum samtökum sem unnið hafa að því að fá herskáa múslima til liðs við skæruliða íslamista í Írak. Erlent 16.2.2007 03:00
Bush skortir heimild til að ráðast á Íran Nancy Pelosi, leiðtogi demókrata í fulltrúadeild bandaríska þingsins, sagði George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, ekki hafa heimild til þess að ráðast á Íran. Hún sagði að til þess þyrfti hann samþykki þingsins. Erlent 15.2.2007 23:19
Leiðtogi al-Kaída í Írak slasaður Leiðtogi al-Kaída í Írak, Abu Ayyub al-Masri, hefur slasast í bardögum í norðurhluta Bagdad. Al Arabiya sjónvarpsfréttastöðin sagði frá þessu í dag og hafði það eftir innanríkisráðuneytinu í Írak. Aðstoðarmaður al-Masri mun hafa látist í árásunum en engar frekari upplýsingar hafa fengist. Talsmaður Bandaríkjahers í Bagdad sagðist ekkert vita um atvikið. Erlent 15.2.2007 22:59
Verða að kunna skil á bandarískum gildum Nýtt próf verður nú lagt fyrir fólk sem ætlar sér að verða bandarískir ríkisborgarar. Það þarf að svara spurningum um bandarísk gildi og hugtök. Spurt verður um lýðræði, trúfrelsi, réttindi minnihlutahópa og af hverju ríkisvaldið í Bandaríkjunum er þrískipt. Gamla prófið sem innflytjendur áttu að taka snerist meira um dagsetningar og nöfn, einfaldar staðreyndir sem auðvelt var að leggja á minnið. Erlent 15.2.2007 22:53
Bandaríkin hafa sóað 10 milljörðum í Írak Sjálfstæðir endurskoðendur sem fengnir voru til þess að fylgjast með útgjöldum vegna stríðsins í Írak segja að Bandaríkin hafi sóað meira en 10 milljörðum dollara frá því það hófst. Þeir búast jafnframt við því talan eigi eftir að hækka enn meira. Erlent 15.2.2007 22:10
Fordæmdi árásirnar í Madríd Einn af þeim sem sakaður er um að skipuleggja sprengjuárásirnar í Madríd fordæmdi þær þegar hann var yfirheyrður í dag. 191 manns létu lífið í árásunum sem voru á meðal mannskæðustu hryðjuverka í sögu Spánar. Erlent 15.2.2007 21:43
Chavez ætlar að þjóðnýta matvöruverslanir Hugo Chavez, forseti Venesúela, sagði við stuðningsmenn sína í dag að hann ætlaði sér að þjóðnýta matvörumarkaði sem seldu kjöt á hærra verði en stjórnvöld samþykkja. Erlent 15.2.2007 21:00
Munu ekki styðja við uppreisnarhópa Viðræðum á milli stjórnvalda í Súdan, Tsjad og Mið-Afríkulýðveldinu lauk í dag með þeirri niðurstöðu að þau myndu ekki styðja við bakið á uppreisnarhópum sem ráðast inn á landsvæði þeirra. Utanríkisráðherra Súdans, Lam Akol, sagði frá þessu á fréttamannafundi eftir að viðræðunum lauk. Erlent 15.2.2007 20:30
Einn handtekinn vegna flugráns Spænsk yfirvöld sögðu frá því rétt í þessu að einn maður hefði verið handtekin eftir að flugvél sem var rænt lenti á flugvellinum á Kanaríueyjum. Lögregla á Kanaríeyjum hefur nú náð vélinni á sitt vald. Áður hafði verið sagt frá því að skothríð hefði átt sér stað í flugvélinni. Einhverjir slösuðust í henni en ekki var vitað hversu margir. Erlent 15.2.2007 20:17
Pútin styrkir tök sín í Téteníu Vladimir Pútín, forseti Rússlands, setti ríkisstjóra Téteníu, Alu Alkhanov, í nýtt starf. Búist er við því að Ramzan Kadyrov, fyrrum uppresinarmaður sem er dyggilega studdur af Kremlverjum, eigi eftir að taka við sem ríkisstjóri. Samkvæmt fréttum þá bað Alkhanov um að verða leystur undan störfum og var hann skipaður aðstoðardómsmálaráðherra Rússlands. Erlent 15.2.2007 20:15
Abbas veitir Haniyeh umboð til stjórnarmyndunar Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas, bað í dag Ismail Haniyeh, fyrrum forsætisráðherra Palestínu, um að mynda þjóðstjórn. Haniyeh hafði áður sagt af sér en það var fyrsta skrefið sem þurfti að taka svo hægt væri að mynda þjóðstjórnina. Abbas veitti Haniyeh umboðið á fréttamannafundi í Gaza í dag. Erlent 15.2.2007 20:00
Reyndu ákaft að komast til Bandaríkjanna Vera má að gyðingastúlkan Anna Frank væri enn á lífi ef bandarísk stjórnvöld hefðu veitt fjölskyldu hennar hæli á árum heimsstyrjaldarinnar síðari. Erlent 15.2.2007 19:45
Niðurlægðu vistmennina Starfsfólk, á stofnun fyrir andlega fatlað fólk í bænum Nyborg á Fjóni, hefur verið kært til lögreglu fyrir illa meðferð á skjólstæðingum sínum. Fréttamaður, á sjónvarpsstöðinni TV-2, fletti ofan af framkomu starfsfólksins. Erlent 15.2.2007 19:15
Flugrán framið í Máritaníu Máritanískri farþegaflugvél af gerðinni Boeing 737 var rænt í dag. Henni var flogið til Kanaríeyjanna og var að lenda þar rétt í þessu. Vélinni var áður flogið til Vestur-Sahara til þess að taka eldsneyti. Ekki er vitað hversu margir eru um borð í vélinni eða hvað flugræningjunum gengur til. Erlent 15.2.2007 19:14
Sigldi á varðskipið Danska varðskipið Hvítabjörninn hefur undanfarna tvo sólarhringa staðið í stappi við franska togarann Bruix sem grunaður er um ólöglegar skötuselsveiðar við miðlínuna á milli Færeyja og Bretlands. Hvítabjörninn hafði fyrst afskipti af togaranum í fyrradag. Erlent 15.2.2007 18:45
Vill engum spurningum svara Réttarhöld hófust í morgun yfir 29 mönnum sem sakaðir eru um að bera ábyrgð á hryðjuverkunum í Madríd á Spáni í mars 2004 sem kostuðu 191 mannslíf. Einn sakborninganna neitaði að svara spurningum réttarins í dag. Erlent 15.2.2007 18:30
Venesúela bætir eftirlit við olíustöðvar Varnarmálaráðherra Venesúela sagði í dag að varnir landsins yrðu styrktar vegna yfirlýsinga hryðjuverkahóps um að ráðast ætti á olíustöðvar þeirra landa sem sjá Bandaríkjunum fyrir olíu. 11 prósent af olíu sem flutt er inn til Bandaríkjanna kemur frá Venesúela. Erlent 15.2.2007 18:14
Putin býr í haginn Vladimir Putin, forseti Rússlands tilkynnti í dag að Sergei Ivanov, aðstoðar forsætisráðherra hefði verið hækkaður í tign upp í fyrsti aðstoðar forsætisráðherra. Ivanov er talinn manna líklegastur til þess að taka við af Putin, sem forseti, á næsta ári. Erlent 15.2.2007 16:50