Erlent

Barnaníðingar stöðvaðir

Lögregla í Frakklandi og Belgíu hefur handtekið þrjá menn sem voru komnir á fremsta hlunn með að ræna belgískri telpu og misþyrma henni.

Erlent

Sýknaður af morði á Miðnesheiði

Herdómstóll í Bandaríkjunum sýknaði í gær hermann sem ákærður var fyrir morð á félaga sínum á varnarsvæðinu á Miðnesheiði í ágúst 2005, þrátt fyrir að sterkar vísbendingar væru fyrir sekt hans.

Erlent

Hamas hóta sjálfsmorðsárásum

Hamas samtökin hótuðu því í morgun að hefja aftur sjálfsmorðsárásir gegn Ísrael eftir að ísraelski herinn gerði loftárásir á einar af höfuðstöðvum Hamas á Gaza svæðinu í morgun. „Þetta er opinber stríðsyfirlýsing gegn Hamas. Allir möguleikar standa nú opnir og þar á meðal sjálfsmorðsárásir.“ sagði talsmaður Hamas, Abu Ubaida, í dag.

Erlent

Warhol verk fór á 4,5 milljarða

Málverk eftir Andy Warhol var selt á 71,7 milljónir dollara á uppboði hjá christie's í New York. Þetta er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir verk eftir Warhol. Í íslenskum krónum er upphæðin um 4,5 milljarðar.

Erlent

Ísraelar gerðu loftárásir á Gaza

Ísraelski herinn gerði í morgun loftárásir á Gaza. Fólk sem býr í nágrenni við húsið sem ráðist var sagði að Hamas samtökin hefðu þar aðstöðu. Talsmaður ísraelska hersins staðfesti árásina við fjölmiðla. Þá ákærðu yfirvöld í Ísrael í morgun Palestínumann fyrir að hafa lagt á ráðin um að myrða Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels.

Erlent

Eistar saka Rússa um netárásir

Eistar hafa sakað Rússa um að standa fyrir netárásum á vefþjóna ríkisstjórnarinnar og nokkura dagblaða í landinu. Ef rétt reynist, er þetta í fyrsta sinn sem að ríki ræðst gegn öðru með þessum hætti.

Erlent

Kosið til þings í Alsír

Þingkosningar fara fram í Alsír í dag. Talið er líklegt að stjórnin sem nú er við völd haldi meirihluta. Hún samanstendur af flokknum sem barðist fyrir sjálfstæði landsins, FLN, lýðræðisflokknum RND og hófsömum íslömskum flokki, MSP. Einum stærsta flokk landsins er þó bannað að bjóða fram en það er flokkur róttækra múslima.

Erlent

Verðbólga í Zimbabwe 3.713,9%

Verðbólga í Zimbabwe hefur náð nýjum hæðum en hún mældist í apríl 3.713,9%. Efnahagsástand í landinu er mjög ótryggt og má rekja hrun þess til aðgerða forseta landsins, Robert Mugabe, en hann ákvað árið 2000 að leyfa fólki að gera eignarnám á landi sem hvítir bændur áttu.

Erlent

Fillon verður forsætisráðherra

Nicolas Sarkozy hefur tilkynnt að Francois Fillon verði forsætisráðherra í fyrstu stjórn sinni. Fillon er einn af hægrihandarmönnum Sarkozy og búist er við því að hann taki við embætti síðar í dag. Sarkozy ætlar sér að útnefna afganginn af ríkisstjórn sinni á morgun. Hann hefur lofað að fækka ráðherrum í 15 og að um helmingur þeirra verði konur.

Erlent

25 féllu á Gaza í gær

25 féllu í átökum liðsmanna Hamas og Fatah á Gazaströndinni í gær og hafa því yfir 40 látið lífið í bardögum síðustu sex daga. Mahmoud Abbas forseti Palestínu og Ismael Haniyeh ætluðu að halda neyðarfund um stöðuna í dag en ekki er öruggt að af honum verði.

Erlent

Kyn fóstra greint eftir sex vikur

Hægt er að greina kyn fósturs eftir aðeins sex vikna meðgöngu með nýlegri tækni sem gagnrýnendur segja hafa í för með sér alvarlegar siðferðislegar spurningar.

Erlent

Járnbrautarlestir fóru á milli Norður- og Suður-Kóreu

Tvær járnbrautarlestir, önnur frá Norður-Kóreu með fimmtíu manns innanborðs, hin frá Suður-Kóreu með hundrað manns innanborðs, fóru yfir landamæri ríkjanna í morgun. Þetta eru fyrstu lestarsamgöngur á milli ríkjanna tveggja frá því að Kóreustríðið hófst árið 1950.

Erlent

Gordon Brown sjálfkjörinn leiðtogi Verkamannaflokksins

Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, verður sjálfkjörinn til leiðtogaembættis Verkamannaflokksins. Í gærkvöld rann út framboðsfresturinn en engum nema Brown tókst að safna þeim 45 þingmönnum á stuðningsmannalista sem tilskilinn er.

Erlent

Sýknaður af morðákæru

Herdómsstóll í Washington sýknaði í gær bandarískan hermann, Calvin Hill ákærum um að hafa myrt félaga sinn á varnarsvæðinu, hina tvítugu Ashley Turner, á Miðnesheiði 14. ágúst 2005. Morðið var framið átta dögum áður en Turner átti að bera vitni gegn Hill í þjófnaðarmáli, en honum var þar gefið að sök að hafa stolið af henni bankakorti og tekið út peninga.

Erlent

Sarkozy boðar Frökkum nýja tíma

Nicolas Sarkozy tók við embætti sem nýr forseti Frakklands við hátíðlega athöfn í Elysée-höll í París í gær. Hann kvaddi forverann Jacques Chirac og boðaði tafarlausar og djarfar aðgerðir til að búa Frakkland í stakk fyrir nýja tíma.

Erlent

Belgískt barn í dái eftir árás

Bæjarstjóri í belgískum bæ hyggst láta banna hættulega hunda eftir að ungur drengur slasaðist alvarlega þegar hundur réðist á hann. Hundurinn beit drenginn sex sinnum í hálsinn og er drengurinn nú í dái.

Erlent

Vilja komast út úr ógöngunum

Bandarísk stjórnvöld viðurkenndu í gær að deilurnar um Paul Wolfowitz, bankastjóra Alþjóðabankans, hafi orðið bankanum til skaða og nú þurfi að finna leið út úr ógöngunum.

Erlent

Salmond kjörinn í forsæti

Leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, Alex Salmond, var í gær kjörinn „fyrsti ráðherra“ skoska heimastjórnarþingsins. Salmond var kjörinn til að leiða minnihlutastjórn með 49 atkvæðum á móti 46 greiddum Verkamannaflokknum, sem hingað til hefur verið ráðandi flokkur í Skotlandi.

Erlent

Kýpur og Malta nálgast aðild

Kýpur og Malta færðust í gær nær því að ganga til liðs við evrusvæðið er framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Seðlabanki Evrópu lýstu stuðningi við aðildarumsóknir eyríkjanna tveggja, sem gengu í ESB fyrir þremur árum.

Erlent

fimmta franska lýðveldið

Núverandi stjórnmálakerfi Frakklands varð til árið 1958, þegar þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram um nýja stjórnarskrá, sem Charles de Gaulle var aðalhöfundurinn að.

Erlent

Harry prins fer ekki til Íraks

Harry prins, sonur Díönu og Karls Bretaprins, verður ekki sendur með breska hernum til Íraks, vegna hótana sem borist hafa. Þetta sagði Richard Dannatt, yfirmaður breska herráðsins í gær.

Erlent

Rússi tekinn til yfirheyrslu vegna Madeleine

Lögregla í Portúgal hefur tekið 22 ára rússa til yfirheyrslu vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Maðurinn er tölvunarfræðingur og kunningi Roberts Murat sem yfirheyrður var fyrr í vikunni. Hann hjálpaði Murat meðal annars við að setja upp internetsíðu. Sky fréttastofan greinir frá því að lögregla hafi leitað á heimili mannsins sem heitir Sergey Malinka. Hann býr í hverfi innan Praia de Luz, þaðan sem Madelein hvarf fyrir tveimur vikum.

Erlent

Blása af kenningu um ísöld í N-Evrópu

Loftslagsfræðingar sem óttast hafa að hlýnun loftslags gæti haft þau þverstæðu áhrif að loftslag í Norðvestur Evrópu yrði kaldara, eru nú hættir að hafa áhyggjur af því. Á tímabili var því haldið fram að möguleiki væri á lítill ísöld á svæðinu. Sú kenning hefur tekið bólfestu í huga almennings segir í New York Times í dag.

Erlent

Uppgötva gen sem örvar hárvöxt

Hingað til hefur því verið trúað að ekki væri hægt að laga skemmda hársekki sem hætt hafa að framleiða hár. Lið vísindamanna í Háskóla í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum hafa þróað nýjar hárfrumur í músum. Þeir segja að hægt sé að örva hárvöxt með einu geni.

Erlent

Stjórnarskrá ESB er brýnt verkefni

Nicolas Sarkosy forseti Frakklands sagði í dag að brýnt væri að koma Evrópusambandinu úr stjórnarskrárlegri „lömun.“ Ummælin lét hann falla á fundi með Angelu Merkel kanslara Þýskalands í Berlín. Þjóðverjar fara með formennsku í Evrópusambandinu og G8 hópnum.

Erlent

Gordon Brown verður næsti forsætisráðherra Breta

Sky sjónvarpsstöðin skýrði frá því fyrir stundu að Gordon Brown yrði næsti forsætisráðherra Bretlands og formaður Verkamannaflokksins. Þetta varð ljóst þegar Andrew MacKinlay, einn þingmanna flokksins, tilkynnti að hann styddi Brown. Fjármálaráðherrann hefur þá fengið 308 stuðningsatkvæði sem nægja til að tryggja honum sætið án þess að keppninautar hans hafi möguleika.

Erlent

Litla hafmeyjan máluð rauð

Enn einu sinni hefur Litla hafmeyjan í Kaupmannahöfn orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum. Þegar menn fóru á stjá í gær sáu þeir að rauðri málningu hafði verið slett á andlit, brjóst og kjöltu þessa frægasta kennileiti borgarinnar.

Erlent

Virginia Tech-skotleikur vekur upp reiði

Tölvuleikur sem notar skotárásirnar í Virginia Tech-háskólanum sem sögusvið hefur vakið mikla reiði í Bandaríkjunum. Höfundur leiksins segist munu taka hann af netinu gegn greiðslu.

Erlent

Sarkozy farinn til fundar við Merkel

Nicolas Sarkozy sór embættiseið sem forseti Frakklands í dag. Í innsetningarræðu sinni kvaðst hann ætla að efla þjóðareiningu og blása í glæður efnahagslífsins. Búist er við að nýi forsetinn skipi ríkisstjórn sína á morgun

Erlent

Búist við afsögn Wolfowitz í dag

Stjórn Alþjóðabankans leggur nú lokahönd á áætlun sem auðveldar Paul Wolfowitz bankastjóra að komast frá starfi sínu sem fyrst án þess að hljóta mikinn álitshnekki. Búist er við að Wolfowitz segi af sér seinna í dag vegna tilrauna hans til þess að fá stöðu- og launahækkun fyrir ástkonu sína sem vinnur hjá bankanum. Fréttastofa ABC greinir frá þessu.

Erlent