Erlent

Sjö létust í sprengingu á hóteli í Bagdad

Sjö létust og átta særðust þegar sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp í anddyri hótels í miðborg Bagdad í morgun. Hótelið sækja margir útlendingar og írakskir embættismenn. Það er ekki langt frá Græna svæðinu og var talið eitt það öruggasta í allri borginni.

Erlent

Bíómynd gerð um ævi Hugh Hefner

Universal Pictures ætlar sér að gera kvikmynd byggða á ævi stofnanda tímaritsins Playboy, Hugh Hefner. Myndin mun bæði taka á þeim félagslegu málum sem hann hefur barist fyrir og frægari kynlífstengslum hans. Leikstjóri myndarinnar verður Brett Ratner en hann leikstýrði „Rush Hour“ myndunum. Enn hefur ekki verið ákveðið hver muni leika Hefner sjálfan.

Erlent

18 látnir eftir sjálfsmorðsárás í Írak

18 manns létust og að minnsta kosti 40 særðust þegar sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp við lögreglustöð í borginni Baiji í norðurhluta Íraks í morgun. Lögregla á staðnum skýrði frá þessu.

Erlent

Hóta að sprengja Johnston í loft upp

Hryðjuverkamennirnir sem halda Alan Johnston, fréttamanni BBC, í gíslingu, settu í gær myndband af honum á internetið. á myndbandinu er Johnston íklæddur sprengjuvesti.

Erlent

Kjarreldar brenna 150 hús til grunna

Kjarreldar í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum hafa brennt rúmlega 150 heimili til grunna og sviðið tæplega átta hundruð hús um helgina. Enginn hefur þó látið lífið í eldunum. Slökkviliðsmönnum hefur reynst erfitt að ná stjórn á eldinum en rúmlega 500 hús til viðbótar eru á svæðinu sem hann stefnir á.

Erlent

Norður-Kórea hefur afvopnun

Embættismenn í Norður-Kóreu staðfestu í nótt að þeir hefðu fengið fjármunina sem Bandaríkjamenn frystu fyrr á árinu. Þá sögðu þeir að nú myndu þeir hefja vinnu við að loka kjarnaofni sínum.

Erlent

Nýr leiðtogi lofar umbótum

Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, tók við sem leiðtogi Verkamannaflokksins af Tony Blair í gær. Brown lofaði nýrri utanríkisstefnu og umbótum heima fyrir. Harriet Harman var kjörin varaleiðtogi.

Erlent

Brown er maður sígildra gilda

„Stemningin er ansi góð, þeir eru náttúrlega að horfa yfir tíu ára valdaskeið flokksins,“ segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, sem staddur er á fundi breska Verkamannaflokksins.

Erlent

Fimm friðargæsluliðar létust

Fimm spænskir friðargæsluliðar frá Sameinuðu þjóðunum fórust í sprengingu í gær í suðurhluta Líbanon. Þrír aðrir særðust. Bráðabirgðaherlið Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, UNIFIL, staðfesti að sprengingin hefði verið af mannavöldum. Jarðsprengja eða hryðjuverk eru talin líklegustu orsakirnar.

Erlent

Þjóðernisráðuneyti mótmælt

Nærri 200 prófessorar, listamenn og fleiri þekktir einstaklingar, sumir við háskóla í Bandaríkjunum, Bretlandi og Japan, hafa skrifað undir áskorun til Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta, þar sem stofnun nýs ráðuneytis innflytjenda- og þjóðernismála er mótmælt.

Erlent

Veiran fannst í dauðum fuglum

Sjö dauðir fuglar greindust með fuglaflensuveiruna H5N1 í Bæjaralandi um helgina og hafa þýsk yfirvöld varað fólk við því að hleypa hundunum sínum lausum. Þetta er í fyrsta skipti á þessu ári sem veiran greinist í landinu. Í fyrra greindist fuglaflensa í þrettán Evrópulöndum og fyrr í þessum mánuði greindist hún á bóndabæ í Tékklandi og var sex þúsund kalkúnum slátrað þar.

Erlent

Var dæmdur til dauða

Ali Hassan al-Majid eða „Efnavopna-Ali“ eins og hann er kallaður hefur verið dæmdur til dauða af íröskum dómstóli fyrir stríðsglæpi.

Erlent

Hundruð látnir í Pakistan

Yfir tvö hundruð og þrjátíu manns höfðu fundist látnir eftir ofsaveður og miklar rigningar í Pakistan í gær. Stormurinn rústaði hús og felldi niður rafmagnslínur í borginni Karachi.

Erlent

Meirihluti vill greiða atkvæði

Mikill meirihluti Dana vill að ákvörðun um nýjan sáttmála Evrópusambandsins verði tekin með þjóðaratkvæðagreiðslu. Sjötíu prósent Dana voru á þessari skoðun, nítján prósent töldu ekki þörf á atkvæðagreiðslu og hlutlausir voru ellefu prósent.

Erlent

Segir trúnni hafa verið rænt

Barack Obama, einn frambjóðenda demókrata til forsetaembættis, gagnrýnir hægrisinnaða evangelíska kristna leiðtoga fyrir að nýta sér ólíkar trúarlegar skoðanir í þeim tilgangi að valda deilum og klofningu í samfélaginu.

Erlent

Bjartsýni á lokun

Christopher Hill, aðalerindreki Bandaríkjastjórnar í málefnum Norður-Kóreu, sagði á föstudag að Norður-Kóreustjórn væri tilbúin til að hrinda hratt í framkvæmd fyrirheiti um að loka meginkjarnakljúf landsins, sem notaður hefur verið til að framleiða efni í kjarnorkusprengjur. Hill varaði þó við því að það yrði ekki auðvelt að „af-kjarnorkuvæða“ landið.

Erlent

Á þriðja hundrað manns lést

Hús hrundu, rafmagnslínur slitnuðu og 228 manns fórust í stormviðri í hafnarborginni Karachi í Pakistan á laugardag. Fjöldi fórnarlambanna bjó í hverfinu Gadab Town, þar sem moldkofar og önnur veikbyggð skýli hýsa íbúana.

Erlent

Johnston með sprengjubelti um sig miðjan

Ismail Haniya, leiðtogi Hamas, segir að mannræningjarnir sem halda breska blaðamanninum Alan Johnston hafi gert nýtt myndband þar sem Johnston sést íklæddur belti sem er hlaðið sprengiefnum. Myndbandið hefur enn ekki verið gert opinbert.

Erlent

Varnarmálaráðherra Spánar segir árásina hafa verið skipulagða

Fimm friðargæsluliðar biðu bana í dag þegar sprengja sprakk við bíl þeirra í suðurhluta Líbanons í dag. Þrír hinna látnu voru frá Kólombíu en tveir frá Spáni. Þrír spánverjar slösuðust í sprengingunni. Enginn hefur lýst ábyrgð árásarinnar á hendur sér en varnarmálaráðherra Spánar segir að um skipulagða árás hafi verið að ræða.

Erlent

Brown lofar breytingum á Bretlandi

Gordon Brown tók við embætti leiðtoga Verkamannaflokksins á fundi í Manchester í dag. Hann lofar breytingum í Bretlandi, bættu heilbrigðiskerfi og ætlar að berjast gegn fátækt. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra var á fundinum og sagði spennuna hafa verið gífurlega áður en tilkynnt var að Harriet Harmann dómsmálaráðherra yrði næsti varaformaður.

Erlent

Tala fallinna friðargæsluliða hækkar

Nú er komið í ljós að fjórir spænskur friðargæsluliðar létu lífið þegar farartæki þeirra óku á jarðsprengju í suðurhluta Líbanons í dag. Sex eru slasaðir. Brynvarinn bíll þeirra brann til ösku og annar skemmdist mikið í sprengingunni. Sprengjan sprakk nálægt bænum Khiyam.

Erlent

Gordon Brown orðinn leiðtogi Verkamannaflokksins

Gordon Brown tók nú á þriðja tímanum við embætti leiðtoga Verkamannaflokksins á fundi sem enn stendur yfir í Manchester. Harriet Harman var kosin varaformaður flokksins, en sex sóttust eftir embættinu. Brown sagðist vilja réttlæta hvern dag í embættinu sem flokkurinnn hefur treyst honum fyrir.

Erlent

Einn látinn á Glastonbury tónlistarhátíðinni

Breskur karlmaður lést vegna ofneyslu eiturlyfja á Glastonbury tónlistarátíðinni í gær. Þrátt fyrir dauðsfallið segir lögregla minna um glæpi á hátíðinni í ár en í fyrra þrátt fyrir að gestum hafi fjölgað um 30 þúsund.

Erlent

Dauðir svanir voru sýktir af H5N1

Tveir dauðir svanir í Þýskalandi reyndust vera sýktir af H5N1 abrigði fuglaflensunnar. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í dag. Rannsóknarniðurstöður hafa staðfest að um H5N1 er að ræða en fuglarnir fundust í Bæjaralandi.

Erlent

Brown ætlar að leyfa mótmæli við þinghúsið

Gordon Brown, sem tekur við embætti forsætisráðherra Bretlands á miðvikudag, ætlar að leyfa mótmælaaðgerðir fyrir framan þinghúsið í London. Strangar reglur eru í gildi varðandi mótmælaðgerðir fyrir framan bygginguna en forsætisráðherran tilvonandi ætlar að fella þær úr gildi.

Erlent

228 létust í ofsaveðri í Pakistan

Rúmlega 220 manns hafa látið lífið í höfuðborg Pakistans, Karachi í kjölfar ofsaveðurs í gær. Fjöldi manns lést úr raflosti þegar rafmagnslínur féllu, tré rifnuðu upp með rótum, veggur féll á hóp fólks og fjöldi lét lífið þegar þök á heimilum þeirra hrundu. Ofsarok og hellirigning var í borginni í gær og segja hjálparstarfsmenn á staðnum að mikil flóð hafi orsakað hrun húsa.

Erlent

Brown tekur við Verkamannaflokknum af Blair

Gordon Brown tekur við leiðtogahlutverki Verkamannaflokksins í Bretlandi af Tony Blair í dag. Brown verður þó ekki forsætisráðherra fyrr en á miðvikudag. Leiðtogaskiptin fara fram á aukaflokksfundi í Manchester. Þá verður einnig tilkynnt niðurstaða í varaformannskjöri, en sex manns tóku þátt í því.

Erlent