Erlent
Mörgæs slegin til riddara Erlent 15.8.2008 22:30 Fyrrverandi forseti Tsjad dæmdur til dauða Dómstóll í Afríkuríkinu Tsjad hefur úrskurðað fyrrverandi forseta landsins, Hissan Habre, til dauða fyrir valdaránstilraun. Var Habre dæmdur fyrir að skipuleggja árás á höfuðborg landsins, N‘Djamena, fyrr á árinu. Erlent 15.8.2008 20:38 Rússneskir hermenn misþyrmtu tyrkneskum blaðamönnum Blaðamenn hafa fengið óblíðar móttökur hjá Rússum í Georgíu. Það hefur verið skotið á þá og bílum þeirra og myndavélum rænt. Erlent 15.8.2008 19:19 Forseti Georgíu samþykkir vopnahlé Mikheil Saakashvili samþykkti í dag vopnahlé til þess að enda átök við Rússa vegna aðskilnaðarhéraðsins Suður-Ossetíu. Hann tilkynnti þetta fyrir utan forsetahöllina í Tbilisi, höfuðborg Georgíu við hlið Condoleezzu Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Erlent 15.8.2008 16:41 Slagsmál í háloftunum Leggja þurfti lykkju á leið írskrar flugvélar sem var á leið frá Dublin til Krítar í nótt þar sem slagsmál hófust um borð í vélinni. Var lent í Feneyjum þar sem flugdólgunum, fimm að tölu, var hent úr vélinni í hendur lögreglu. Erlent 15.8.2008 15:51 Maóisti verður forsætisráðherra í Nepal Þingmenn í Nepal hafa kosið leiðtoga Maóistaflokksins Prachanda til þess að vera næsti forsætisráðherra landsins. Hann vann andstæðing sinn úr Íhaldsflokknum Sher Bahadur Deuba. Erlent 15.8.2008 14:33 Bush fordæmir einelti Rússa George Bush Bandaríkjaforseti hefur fordæmt Rússa fyrir einelti og ógnun í samskiptum sínum við Georgíu. Hann ítrekaði í dag stuðning sinn við Georgíu og sagði að Rússar þyrftu að standa við loforð sitt um að draga her sinn frá Georgíu. Erlent 15.8.2008 13:46 Kanadískur barnaníðingur í fangelsi Kanadiskur barnaníðingur sem alþjóðalögreglan Interpol lýsti eftir á Netinu var dæmdur í Taílandi í dag. Erlent 15.8.2008 13:27 Biður Simbabve að leyfa matarhjálp Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna hefur kallað á Simbabve að aflétta banni við matarhjálp eða annarri hjálparstarfsemi í landinu. Sagði hann að ef Simbabvemenn myndu ekki aflétta banninu myndi verða hörmungarástand í landinu. Erlent 15.8.2008 12:34 « ‹ ›
Segja Rússa flytja skammdrægar flaugar til S-Ossetíu Dmítrí Medvedev, forseti Rússlands, hélt í dag til borgarinnar Vladikavkaz, nærri landamærum Suður-Ossetíu, til þess að veita rússneskum hermönnum viðurkenningar fyrir baráttu sína við Georgíumenn síðustu vikur. Erlent 18.8.2008 15:11
Vilja láta alla ökumenn sem stöðvaðir eru blása í áfengismæli Lögregluyfirvöld í Danmörku íhuga nú að láta alla ökumenn sem stöðvaðir eru blása í áfengismæli um leið og ökuskírteini þeirra eru skoðuð. Erlent 18.8.2008 14:59
Telur Bandaríkin meira ógnvekjandi en Ísrael Fyrrum ríkisstjóri Arkansas Mike Huckabee sem hefur verið orðaður við útnefningu sem varaforsetaefni John McCain sagði að sér fyndist hann vera óhultari í Ísrael en mörgum bandarískum borgum. Erlent 18.8.2008 14:38
„Bókavörðurinn" í barnaklámshring handtekinn Maður sem tók þátt í að reka barnaklámshring á veraldarvefnum frá heimili móður sinnar hefur verið handtekinn og fangelsaður. Maðurinn, sem heitir Philip Thomson var kallaður „bókavörður" hópsins sem náði til 33 landa. Erlent 18.8.2008 13:14
Rússar lofa sterkum viðbrögðum við árásum Dmitry Medvedev, forseti Rússlands hefur lofað sterkum viðbrögðum við öllum árásum á rússneska ríkisborgara í sambandi við átökin í Georgíu. Erlent 18.8.2008 11:19
Reyndu að ræna sama staðinn tvisvar Tveir átján ára piltar reyndu í tvígang að stela munum húsi í bæ á Norður-Jótlandi en án árangurs. Jótlandspósturinn segir frá sneypurför piltanna. Erlent 18.8.2008 09:47
Suður - Ossetíumenn vilja rússneska herinn áfram Leiðtogi Suður-Ossetíumanna, Eduard Kokoity, sagði í morgun að hann myndi fara fram á það við rússnesk stjórnvöld að þeir myndu hafa herstöð innan landamæra Suður-Ossetíu. Þjóðarleiðtogar á Vesturlöndum hafa þrýst mikið á Rússa að undanförnu um að þeir virði vopnahléssáttmála sem þeir gerðu í síðustu viku og dragi herlið sitt frá Georgíu. Erlent 18.8.2008 09:03
Þúsundir láta lífið vegna rangrar lyfjagjafar Hundrað þúsund Danir leggjast inn á spítala og um tvö þúsund láta lífið á ári hverju vegna rangrar lyfjagjafar, samkvæmt tölum sem Danska ríkisútvarpið hefur frá Lyfjaeftirlitinu þar í landi. Erlent 18.8.2008 08:45
Forsetaframbjóðendurnir verða að fara að finna varaforsetaefnin Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum segja að forsetaframbjóðendurnir í Bandaríkjunum, demókratinn Barack Obama og repúblikaninn John McCain geti ekki frestað því lengur að tilnefna varaforsetaefni sín. Erlent 18.8.2008 08:37
Musharraf hyggst hætta Pervez Musharraf hyggst segja af sér embætti. Þetta kom fram í ávarpi hans í morgun. Ávarpsins hefur verið beðið með talsverðri eftirvæntingu. Undanfarna daga hefur pakistanska stjórnin sakað Musharraf um embættisbrot. Því hefur verið mikill þrýstingur á hann að segja af sér embætti. Erlent 18.8.2008 08:10
Egypsk kona ól sjöbura Tuttugu og sjö ára gömul egypsk kona ól sjöbura um helgina. Börnin sjö, fjórir drengir og þrjár stelpur, voru öll tekin með keisaraskurði. Börnin fæddust fyrir tímann og vógu á bilinu 1450 grömm til 2800 grömm. Þeim var komið fyrir í hitakassa strax eftir fæðinguna. Líðan móður þeirra er eftir aðstæðum góð. Hún og eiginmaður hennar áttu þrjár dætur fyrir. Erlent 17.8.2008 16:17
Leynileg hátíðarhöld í Afganistan Stjórnvöld í Afganistan hafa ákveðið að halda þjóðhátíðardag sinn hátíðlegan á leynilegum stað. Þetta var ákveðið í ljósi þess að Talibanar reyndu að ráða Hamid Karzai forseta af dögum á hersýningu í apríl síðastliðnum. Erlent 17.8.2008 10:24
Viðræður um þjóðstjórn í Zimbabwe ganga vel Morgan Tsvangirai leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Zimbabwe sagði fréttamönnum í dag að viðræður um þjóðstjórn gengju mjög vel. Bæði Tsvangirai og Robert Mugabe forseti eru nú í Suður-Afríku þar sem þeir sitja fund þróunarsamtaka Afríkuríkja. Erlent 17.8.2008 10:13
Tvö hundruð palestínumenn úr fangelsi Ísraelska ríkisstjórnin samþykkti í dag að sleppa 200 palestínumönnum úr fangelsi. Meðal þeirra eru tveir menn sem voru fangelsaðir fyrir þrjátíu árum fyrir árásir á Ísrael. Erlent 17.8.2008 10:09
Tólf sinnum hættulegra að aka mótorhjóli en bíl Samkvæmt tölfræði í Noregi er tólf sinnum hættulegra að aka þar á mótorhjóli en á bíl. Banaslys á mótorhjólum eru það miklu tíðari. Yfirvöld hafa leitað til mótorhjólasamtaka í landinu til þess að vinna sameiginlega að lausn þessa vanda. Erlent 17.8.2008 09:47
Sjö létust í eldsvoða í Memphis Fimm börn, einn unglingur og einn fullorðinn fórust í eldsvoða á heimili í Memphis í dag. Slökkviliðsmenn segjast ekki vita nákvæman aldur eða kyn þeirra sem létust. Að auki voru tveir unglingar og ellefu ára drengur sendir á spítala með brunasár, en ástand þeirra var stöðugt. Slökkviliðsmenn segja að orsök eldsins sé ekki kunn. Erlent 16.8.2008 18:16
Danir gagnrýna nafnlaus sms Danir gagnrýna harðlega GSM símaþjónustu sem gerir fólki kleyft að senda nafnlaus sms. Erlent 16.8.2008 17:11
Tíu prósent danskra ungmenna hafa selt blíðu sína Borgaryfirvöld í Árósum í Danmörku eru slegin yfir skoðanakönnun sem sýnir að eitt af hverjum tíu ungmennum borgarinnar hefur þegið greiðslur fyrir kynlíf. Erlent 16.8.2008 16:31
Tími Musharrafs að renna út Utanríkisráðherra Pakistan, Shah Mahmood Qureshi, segir að Pervez Musharraf forseti landsins verði að stíga af stóli á næstu tveimur dögum, annars muni hann eiga yfir höfði sér ákærur fyrir brot í starfi. Erlent 16.8.2008 14:59
Georgíumenn hafa undirritað vopnahléssáttmála Rússum hefur borist undirritaður vopnahléssáttmáli frá Georgíu. Rússneska utanríkisráðuneytið segir að sáttmálinn hafi borist með faxi frá Bandaríkjunum. Hann sé samhljóða þeim sem leiðtogar Suður-Ossetíu og Abkasíu hafi undirritað í Moskvu. Erlent 16.8.2008 10:21
Enn eitt unglingamorð í Bretlandi Enn einn unglingurinn var stunginn til bana í Bretlandi í nótt. Það var sextán ára drengur sem ekki hefur verið nafngreindur. Hann hafði verið stunginn einni djúpri hnífsstungu og lést í sjúkrabíl á leiðinni á sjúkrahús. Bretar eru felmtri slegnir yfir tíðum unglingamorðum í landinu. Flestir eru drepnir með hnífum en skotvopnum hefur einnig verið beitt. Erlent 16.8.2008 10:06
Fyrrverandi forseti Tsjad dæmdur til dauða Dómstóll í Afríkuríkinu Tsjad hefur úrskurðað fyrrverandi forseta landsins, Hissan Habre, til dauða fyrir valdaránstilraun. Var Habre dæmdur fyrir að skipuleggja árás á höfuðborg landsins, N‘Djamena, fyrr á árinu. Erlent 15.8.2008 20:38
Rússneskir hermenn misþyrmtu tyrkneskum blaðamönnum Blaðamenn hafa fengið óblíðar móttökur hjá Rússum í Georgíu. Það hefur verið skotið á þá og bílum þeirra og myndavélum rænt. Erlent 15.8.2008 19:19
Forseti Georgíu samþykkir vopnahlé Mikheil Saakashvili samþykkti í dag vopnahlé til þess að enda átök við Rússa vegna aðskilnaðarhéraðsins Suður-Ossetíu. Hann tilkynnti þetta fyrir utan forsetahöllina í Tbilisi, höfuðborg Georgíu við hlið Condoleezzu Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Erlent 15.8.2008 16:41
Slagsmál í háloftunum Leggja þurfti lykkju á leið írskrar flugvélar sem var á leið frá Dublin til Krítar í nótt þar sem slagsmál hófust um borð í vélinni. Var lent í Feneyjum þar sem flugdólgunum, fimm að tölu, var hent úr vélinni í hendur lögreglu. Erlent 15.8.2008 15:51
Maóisti verður forsætisráðherra í Nepal Þingmenn í Nepal hafa kosið leiðtoga Maóistaflokksins Prachanda til þess að vera næsti forsætisráðherra landsins. Hann vann andstæðing sinn úr Íhaldsflokknum Sher Bahadur Deuba. Erlent 15.8.2008 14:33
Bush fordæmir einelti Rússa George Bush Bandaríkjaforseti hefur fordæmt Rússa fyrir einelti og ógnun í samskiptum sínum við Georgíu. Hann ítrekaði í dag stuðning sinn við Georgíu og sagði að Rússar þyrftu að standa við loforð sitt um að draga her sinn frá Georgíu. Erlent 15.8.2008 13:46
Kanadískur barnaníðingur í fangelsi Kanadiskur barnaníðingur sem alþjóðalögreglan Interpol lýsti eftir á Netinu var dæmdur í Taílandi í dag. Erlent 15.8.2008 13:27
Biður Simbabve að leyfa matarhjálp Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna hefur kallað á Simbabve að aflétta banni við matarhjálp eða annarri hjálparstarfsemi í landinu. Sagði hann að ef Simbabvemenn myndu ekki aflétta banninu myndi verða hörmungarástand í landinu. Erlent 15.8.2008 12:34