Erlent
Páfinn birtir playlistann sinn Dagblað Vatikansins birti í dag tíu laga listan yfir þær hljómplötur sem ritstjórnin þar á bæ, sem væntanlega lýtur valdi páfans, myndi taka með sér á eyðieyju. Á meðal verka sem komast á listann má nefna Thriller með Michael Jackson, The Dark Side of the Moon með Pink Floyd og Revolver Bítlanna. Erlent 13.2.2010 22:00
20 létust úr raflosti Að minnsta kosti tuttugu létust Nígeríu í dag þegar háspennustrengur féll ofan á strætisvagn með þeim afleingum að straumur hljóp í farþegana. Lögreglan í borginni Port Harcourt hefur staðfest að tuttugu hafi beðið bana en óttast er um líf fleiri. Erlent 13.2.2010 22:00
Tymoshenko gefst ekki upp og ætlar að kæra úrslitin Júlía Tymoshenko forsætisráðherra Úkraínu hefur heitið því að kæra niðurstöður forsetakosninganna þar í landi en hún tapaði í kosningunum fyrir Viktor Yanukovich. Tymoshenko hefur ekkert tjáð sig um kosningarnar fyrr en í dag og staðhæfir hún að brögð hafi verið í tafli. Erlent 13.2.2010 20:30
28 slasaðir og þrír látnir eftir rútuslys í Þýskalandi 19 börn eru slösuð og þrír fullorðnir léstust þegar rúta með dönskum skíðaferðalöngum lenti í árekstri nærri þýsku borginni Dessau í dag. Yngsta barnið er fjögurra ára gamalt. 12 barnanna munu hafa hlotið minniáttar áverka en sjö eru alvarlega slösuð að því er lögreglan í Dessau segir. Erlent 13.2.2010 17:41
Öflug sprenging á Indlandi - átta látnir Að minnsta kosti átta eru látnir og 33 særðir eftir sprengingu á veitingastað í vesturhluta Indlands í dag. Veitingastaðurinn er vinsæll á meðal ferðamanna á svæðinu en óljóst er hvort um sprengjutilræði hafi verið að ræða eða slys. Þó hefur innanríkisráðherra landsins sagt að líklegast hafi verið gerð árás á staðinn. Erlent 13.2.2010 16:28
Lögregla lagði hald á 500 þúsund tonn af fölsuðum vörum Ítalska lögreglan hefur lagt hald á gríðarlegt magn af fölsuðum varningi í átta vöruhúsum fyrir utan Róm. Varningurinn er af alls kyns toga, úr, fatnaður og handtöskur og allt eftirlíkingar af frægustu tískumerkjum Ítalíu. Erlent 13.2.2010 16:10
Sóknin í Afganistan gengur samkvæmt áætlun Stórsókn NATO herliðsins í Afganistan hefur staðið yfir í dag með fulltingi afganskra hermanna. Um er að ræða mestu hernaðaraðgerð frá því innrásin í Afganistan var gerð árið 2001 og þá fyrstu síðan Barack Obama bandaríkjaforseti fyrirskipaði um fjölgun hermanna í landinu í desember. Erlent 13.2.2010 14:33
Skotárásin í Alabama - kennari skaut samkennara sína Eins og greint var frá í gærkvöldi átti enn ein skotárásin sér stað í háskóla í Bandaríkjunum í gær. Þrír létu lífið og þrír slösuðust í háskólanum í Alabama. Þessi árás sker sig þó úr frá öðrum slíkum síðustu misserin því í þetta sinn var árásarmaðurinn kona, auk þess sem hún er aðstoðarprófessor við skólann. Erlent 13.2.2010 13:40
Nýnasistar safnast saman í Dresden - búist við átökum Mikill viðbúnaður er nú í þýsku borginni Dresden en þar hafa þúsundir mótmælenda safnast saman til þess að stöðva göngu Nýnasista um borgina. Nasistarnir minnast þess í dag að 65 ár eru liðin frá því að bandamenn gerðu loftárás á borgina á síðustu dögum Seinni heimstyrjaldarinnar en talið er að um 25 þúsund manns hafi látist, mest óbreyttir borgarar. Erlent 13.2.2010 11:50
Rio í ruglinu - hélt framhjá í steggjapartíinu sínu Rio Ferdinand, nýskipaður fyrirliði enska landsliðsins í fótbolta gæti átt stuttan fyrirliðaferil en hann var skipaður eftir að upp komst um framhjáhald Johns Terry. Breska blaðið The Daily Mail greinir frá því í dag að ísraelsk fyrirsæta hafi átt vingott við Ferdinand í Tel Aviv nokkrum vikum áður en hann gekk að eiga heitkonu sína til sjö ára. Að sögn blaðsins hittist parið á næturklúbbi en vinir Rio voru að steggja hann í borginni. Erlent 13.2.2010 11:42
Skorað á Natóher að hlífa borgurum Afganistan, AP Öldungar í þorpinu Marjah í Helmand-héraði í Afganistan skora á hersveitir Natóríkjanna að hlífa almennum borgurum þegar stór árás verður gerð á þorpið. Erlent 13.2.2010 04:00
Kaþólskir biðja með vúdúfólki Haítí, AP Leiðtogar beggja opinberu trúarbragðanna á Haítí, biskup kaþólskra og æðstiprestur vúdúmanna, báðir hvítklæddir, tóku þátt í sameiginlegri bænastund með prestum mótmælenda í höfuðborginni Port-au-Prince í gær. Erlent 13.2.2010 02:00
Jafnar sig eftir hjartaþræðingu Bandaríkin, AP Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður vera við góða heilsu eftir að hafa þurft að gangast undir hjartaþræðingu á sjúkrahúsi í New York. Erlent 13.2.2010 01:00
Þrír létust í skotárás í háskólanum í Alabama Þrír létust og einn særðist í skotárás sem gerð var í háskólanum í Alabama í Bandaríkjunum í kvöld. Þetta er enn ein skotárásin af þessum toga í landinu síðustu misserin en í þessu tilviki var árásarmaðurinn kona. Lögregla náði henni á lífi og er hún í varðhaldi að því er lögreglustjórinn í Huntsville borg segir. Ekki er ljóst hvað konunni gekk til. Erlent 12.2.2010 23:40
Kennedy veldið á enda runnið Ein frægasta og valdamesta fjölskylda Bandaríkjanna er ekki svipur hjá sjón frá því sem var en margir frægustu stjórnmálamenn landsins hafa verið af því slekkti og þar er frægastur John F. Kennedy fyrrverandi forseti sem myrtur var árið 1963. Patrick Kennedy, sonur Edwards Kennedys sem lést á dögunum, mun tilkynna á sunnudag að hann ætli sér ekki að sækjast eftir endurkjöri í fulltrúadeild Bandaríkjaþings þar sem hann hefur átt sæti. Erlent 12.2.2010 21:36
Stórsókn hafin í Afganistan Hermenn NATO ríkjanna hafa hafið stórsókn gegn Talíbönum í Afganistan. Sóknin er sú fyrsta sem fyrirskipuð er í landinu frá því Barack Obama Bandaríkjaforseti bætti 30 þúsund hermönnum við í landinu í desember í fyrra. Um 4500 landgönguliðar, 1500 afganskir hermenn og 300 bandarískir hermenn taka þátt í sókninni sem hófst í Marjah í Helmand héraði. Erlent 12.2.2010 20:53
Lést í sleðaslysi í Vancouver Keppandi frá Georgíu í sleðakeppni á Ólympíuleikunum í Vancouver sem hefjast í nótt lést á æfingu í dag. Erlent 12.2.2010 20:23
Kínverjar hundelta Dalai Lama Kínverjar hafa ítrekað andstöðu sína við að Barack Obama hitti Dalai Lama þegar trúarleiðtogi Tíbeta kemur til Bandaríkjanna í þessum mánuði. Erlent 12.2.2010 16:15
Nazistar undirbjuggu sprengjuárás á New York Árið 1944 voru Þjóðverjar við það að tapa stríðinu. Engu að síður var í fullum gangi undirbúningur undir sprengjuárás á Bandaríkin. Erlent 12.2.2010 15:31
Ekki reyna að stela kartöflum frá Alexander Rússneskur bóndi hefur verið dæmdur fyrir að vera einum of ákveðinn í að verja kartöflugarða sína fyrir þjófum. Erlent 12.2.2010 14:09
Klerkarnir reyna að loka Íran Stjórnvöld í Íran gera allt sem þau geta til þess að trufla fréttavefi á netinu sem og símasamband, til þess að koma í veg fyrir að fréttir um mótmæli berist útfyrir landamæri ríkisins. Erlent 12.2.2010 11:34
Fjórir menn skotnir í Kaupmannahöfn Mennirnir fjórir sem voru skotnir voru allir af erlendu bergi brotnir. Gengi þeirra og Vítisenglar hafa lengi borist á banaspjót og oft komið til skotbardaga. Erlent 12.2.2010 11:23
Holyfield færður á lögreglustöð Bandaríski hnefaleikakappinn Evander Holyfield var nýverið færður á lögreglustöð í Georgíuríki í Bandaríkjunum eftir að hann lagði hendur á Candi eiginkonu sína. Ástæðan var ágreiningur um fjárframlög hennar til sóknarkirkju þeirra. Hann var í kjölfarið settur í nálgunarbann og má hvorki hitta hana né börn þeirra. Erlent 12.2.2010 08:26
Kennari skaut skólastjóra Bandarískur grunnskólakennari á fimmtugsaldri er í haldi lögreglu í Knoxville í Tennessee eftir að hann skaut og særði skólastjórnendur grunnskóla í borginni. Maðurinn skaut skólastjórann og aðstoðarskólastjórann á skólalóðinni skömmu eftir að nemendum var hleypt fyrr heim vegna snjókomu. Skólastjórinn er lífshættulega slasaður. Erlent 12.2.2010 08:23
Obama með naumt forskot Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups í Bandaríkunum hefur Barack Obama, Bandaríkjaforseti, einungis tveggja prósenta forskot á frambjóðenda Repúblíkana þegar spurt er um forsetakosningarnar árið 2012. Erlent 12.2.2010 08:18
Bandarísku trúboðunum á Haítí sleppt Dómari á Haítí hefur sleppt tíu bandarískum trúboðum, fimm konum og fimm körlum, sem sakaðir eru um að hafa ætlað að smygla 33 börnum úr landi. Börnin eru á aldrinum tveggja mánaða til tólf ára. Rannsókn málsins verður framhaldið en fólkið neitar ásökunum. Erlent 12.2.2010 08:13
Vetrarólympíuleikarnir hefjast í dag Vetrarólympíuleikarnir í Vancouver í Kanada hefjast í dag. Langþráð snjókoma gladdi skipleggendur leikanna í gær. Erlent 12.2.2010 08:08
Clinton heilsast vel Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, var fluttur með hraði á sjúkrahús í New York í gærkvöld með verk fyrir brjósti. Þar fór hann í aðgerð þar sem kransæð var víkkuð. Hún heppnaðist vel og heilsast Clinton ágætlega. Erlent 12.2.2010 08:01
Íbúar Suður-Afríku fagna Suður-Afríkubúar fögnuðu í gær með Nelson Mandela, fyrrverandi forseta landsins, að rétt tuttugu ár voru liðin frá því hann var látinn laus eftir 27 ára fangavist. Þúsundir manna lögðu leið sína að fangelsinu í Höfðaborg, þar sem Mandela var hafður í haldi síðustu vikurnar. Erlent 12.2.2010 05:00
Giftingar í sögulegu lágmarki Sífellt færri Bretar virðast kjósa hjónabandið, en nú er svo komið að hjónabönd þar í landi hafa ekki verið hlutfallslega færri frá því skráningar hófust árið 1862. Í breska dagblaðinu Telegraph kemur fram að samkvæmt tölum frá árinu 2008 séu bæði konur og karlar þar í landi sífellt eldri þegar þau gifta sig í fyrsta sinn. Konurnar 29,9 ára og karlarnir 32,1 árs. Erlent 12.2.2010 04:00