Erlent

Hrekkjavakan innandyra vegna ísbjarna

„Ímyndið ykkur tólfhundruð börn að ganga á milli húsa og ísbirnir allt um kring," segir maður í bæjarstjórn kanadísks bæjar, sem er sagður umsetinn af ísbjörnum.

Erlent

Pistorius í fimm ára fangelsi

Oscar Pistorius, Suður Afríski spretthlauparinn sem skaut unnustu sína Reevu Steenkamp til bana var í morgun dæmdur í fimm ára fangelsi. Hann hafði áður verið fundinn sekur um manndráp af gáleysi. Þá fékk hann einnig þriggja ára fangelsisdóm fyrir brot á vopnalögum en sá dómur var skilorðsbundinn.

Erlent

Refsing Pistoriusar ákveðin í dag

Dómarinn í máli Suður afríska spretthlauparans Oscars Pistoriusar mun innan tíðar ákvarða refsingu hans fyrir að skjóta unnustu sína Reevu Steenkamp til bana.

Erlent

Oscar de la Renta er allur

Hinn heimsfrægi fatahönnuður, Oscar de la Renta er látinn, áttatíu og tveggja ára að aldri. De la Renta hannaði kjóla á margar heimsfrægar konur á borð við Jackie Kennedy og Hillary Clinton.

Erlent

Leitin skilar litlum árangri

Sænski herinn hélt í gær áfram að leita að óþekktu neðansjávarfarartæki í sænska skerjagarðinum úti fyrir Stokkhólmi. Grunur hefur beinst að Rússum, en engar staðfestingar fengist á neinu frekar en fyrri daginn.

Erlent

Vopnum varpað til Kúrdanna við Kobani

Tyrknesk stjórnvöld hafa snúið við blaðinu gagnvart Kúrdum, sem flúið hafa frá Írak undan öfgasveitum Íslamska ríkisins, og hjálpa þeim nú að fara yfir landamærin til Sýrlands til að berjast þar gegn vígasveitunum.

Erlent

Leung hótar fleiri handtökum

Ráðamenn í Hong Kong segja nú að „erlend öfl“ búi að baki mótmælum námsmanna sem staðið hafa yfir vikum saman. Námsmennirnir segja það tóma dellu.

Erlent

Reknir úr landi en fengu bætur

Bandaríkin, AP Tugir þýskra nasista, sem höfðu reynt að fara huldu höfði í Bandaríkjunum, voru reknir úr landi þaðan en fengu samt sem áður lífeyri frá Bandaríkjunum.

Erlent

Afhjúpuðu rasisma lögreglunnar

"Of margir saklausir einstaklingar eru stoppaðir og leitað á þeim á hverjum degi vegna þess hvernig þeir klæða sig eða vegna þess að þeir hafa ákveðinn húðlit.“

Erlent

Hættuástand á Havaíeyjum

Fellibylurinn hefur verið á fleygiferð suðvestur af eyjunum Oahu og Kauai og voru gerðar ýmsar varúðarráðstafanir í kjölfarið.

Erlent