Fótbolti
Sepp Blatter: Spænska deildin er sú besta í heimi Sepp Blatter, forseti FIFA, er þeirrar skoðunar að spænska deildin sé sú besta í heimi og að enska úrvalsdeildin geti lært mikið af kollegum sínum í suðri. Blattar rökstuddi þetta með því að átta leikmenn úr spænsku deildinni voru valdir í úrvalslið ársins hjá FIFA og að Spánn sé heimsmeistari í fótbolta. Enski boltinn 12.1.2011 23:45
Messi hélt upp á Gullboltann með því að skora þrennu Lionel Messi skoraði þrennu í 5-0 sigri Barcelona á b-deildarliðinu Real Betis í kvöld í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum spænska Konungsbikarnum. Messi sýndi stuðningsmönnum Barcelona Gullboltann fyrir leik og sýndi af hverju hann fékk hann í leiknum sjálfum. Fótbolti 12.1.2011 23:19
King gæti þurft að fara í aðgerð vegna nárameiðslanna Ledley King gæti þurft að fara í aðgerð vegna nárameiðsla en meiðsli hafa plagað þennan þrítuga varnarmann nánast allan hans feril. Enski boltinn 12.1.2011 23:15
Samuel Eto’o skoraði tvö í bikarsigri Inter á Genoa Kamerúnmaðurinn Samuel Eto’o skoraði tvö mörk í ítalska bikarnum í kvöld þegar Inter vann 3-2 sigur á Genoa í 16 liða úrslitum keppninnar. Eto’o er búinn að skora 21 mark í öllum keppnum á tímabilinu. Fótbolti 12.1.2011 22:51
McParland: Ég er búinn að gera mitt Ian McParland, stjórnaði Ipswich í 1-0 sigrinum á Arsenal í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildarbikarnum í kvöld en hann fær ekki tækifæri til að stjórna liðinu í seinni leiknum því þá verður Paul Jewell tekinn við. Enski boltinn 12.1.2011 22:36
Arsene Wenger: Það vantaði allan neista í liðið í kvöld Arsene Wenger, stjóri Arsenal, þurfti á horfa upp á sitt lið tapa 0-1 á móti b-deildarliðinu Ipswich í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildarbikarsins. Arsenal fær tækifæri til að bæta fyrir tapiða á heimavelli eftir tæpar tvær vikur. Enski boltinn 12.1.2011 22:28
Blackpool vann Liverpool öðru sinni á tímabilinu Nýliðar Blackpool eru með fullt hús á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í vetur eftir 2-1 sigur í leik liðanna á Bloomfield Road í kvöld. Liverpool hefur því tapað tveimur fyrstu leikjum sínum undir stjórn Kenny Dalglish og alls þremur leikjum í röð. Enski boltinn 12.1.2011 21:53
Ipswich vann fyrri leikinn á móti Arsenal Enska b-deildarliðið Ipswich vann óvæntan 1-0 sigur á Arsenal í fyrri leik undanúrslitaleik liðanna í enska deildarbikarnum á Portman Road í kvöld. Ipswich hafði tapað 7-0 á móti Chelsea í enska bikarnum um síðustu helgi og er aðeins í 19. sæti í ensku b-deildinni með 8 sigra í fyrstu 24 leikjunum. Enski boltinn 12.1.2011 21:39
Bentley kominn til Birmingham Birmingham er búið að fá David Bentley á láni frá Tottenham og mun þessi 26 ára miðjumaður klára tímabilið með liðinu. Bentley tókst ekki að vinna sér fast sæti í liði Tottenham síðan að félagið keypti hann á 15 milljónr punda í júlí 2008. Enski boltinn 12.1.2011 20:15
Pique ætlar að binda enda á Meistaradeildarvonir Arsenal Gerard Pique, leikmaður Barcelona, segir að liðið ætli sér að slá Arsenal úr leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 12.1.2011 19:45
Craig Bellamy handtekinn grunaður um líkamsárás Velski knattspyrnumaðurinn Craig Bellamy er enn á ný kominn í vandræði því hann var handtekinn í dag grunaður um líkamsárás snemma á sunnudagsmorguninn. Tveir menn enduðu á sjúkrahúsi eftir samskipti við Bellamy sem er mikill skaphundur. Enski boltinn 12.1.2011 18:15
Pulis bauð í Noble Tony Pulis, stjóri Stoke, hefur boðið West Ham fjórar milljónir punda fyrir miðvallarleikmanninn Mark Noble. Enski boltinn 12.1.2011 17:30
Liverpool sagt reiðubúið að greiða 10 milljónir punda fyrir táning Enska blaðið The Guardian heldur því fram í dag að Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, sé byrjaður að horfa til framtíðar og að félagið sé að undirbúa tíu milljóna punda í sautján ára táning, Alex Oxlade-Chamberlain að nafni. Enski boltinn 12.1.2011 16:45
Charlie Adam orðaður við Liverpool Liverpool hefur bæst í hóp þeirra liða sem hafa áhuga á að fá miðvallarleikmann Blackpool, hinn skoska Charlie Adam, í sínar raðir samkvæmt heimildum fréttavefs Sky Sports. Enski boltinn 12.1.2011 15:45
Vilja að Pearce þjálfi Ólympíulið Breta Knattspyrnusamband Englands vill að Stuart Pearce, þjálfari U-21 landsliðs Englands, verði þjálfari Ólympíuliðs Breta á leikunum í Lundúnum árið 2012. Enski boltinn 12.1.2011 14:45
Beckham myndi ekki spila gegn United Harry Redknapp, stjóri Tottenham, útilokar að David Beckham muni spila með liðinu gegn Manchester United um næstu helgi þó svo að Beckham fengi heimild til að spila með Tottenham fyrir þann tíma. Enski boltinn 12.1.2011 14:15
Ferguson tekur öðru sinni við Peterborough Darren Ferguson var í dag endurráðinn knattspyrnustjóri enska B-deilarliðsins Peterborough aðeins fjórtán mánuðum eftir hann hætti hjá félaginu. Enski boltinn 12.1.2011 12:30
Ísland féll í 113. sæti Ísland er nú í 113.-114. sæti á styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, sem gefinn var út í dag. Fótbolti 12.1.2011 11:15
Rutgers líklega ekki áfram hjá KR Ólíklegt er að Mark Rutgers verði áfram í herbúðum KR eftir því sem umboðsmaður hans segir í samtali við Fótbolta.net. Íslenski boltinn 12.1.2011 10:45
Lennon í sex leikja bann Skoska knattspyrnusambandið hefur dæmt Neil Lennon, stjóra Celtic, í sex leikja bann fyrir hegðun gagnvart dómurum í tapleik gegn Hearts í nóvember síðastliðnum. Fótbolti 12.1.2011 10:15
Balotelli frá í mánuð Mario Balotelli verður frá keppni með Manchester City næsta mánuðinn þar sem hann er meiddur á hné. Enski boltinn 12.1.2011 09:45
Ásgeir Gunnar með FH næsta sumar Knattspyrnudeild FH hefur gengið frá samningum við Ásgeir Gunnar Ásgeirsson sem mun áfram leika með liðinu næsta sumar. Íslenski boltinn 12.1.2011 09:16
Tottenham búið að semja við Pienaar - kemur líklega ekki fyrr en í sumar Tottenham er búið að semja við Suður-Afríkumanninn Steven Pienaar sem hefur spilað undanfarin þrjú ár með Everton. Internazionale og Atlético Madrid voru líka áhugasöm um leikmanninn sem kemur líklega á frjálsri sölu næsta sumar. Enski boltinn 11.1.2011 23:45
Ronaldinho ætlar að spila sig inn á HM með Flamengo Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Ronaldinho er kominn til Brasilíu þar sem hann mun spila með Flamengo sem er eitt allra vinsælasta félag Brasilíu. Ronaldinho hefur spilað undanfarin tíu ár í Evrópu nú síðast með AC Milan á Ítalíu en ákvað að snúa aftur heim. Fótbolti 11.1.2011 23:15
Íslandsbaninn að leggja skónna á hilluna aðeins 20 ára gömul Norska landsliðskonan Cecilie Pedersen vakti mikla athygli þegar hún var valin í norska landsliðshópinn á EM 2009 þrátt fyrir að spila í neðri deildum í Noregi. Hún kom síðan mikið við sögu í leiknum á móti Íslandi. Pedersen sem nú er aðeins tvítug íhugar nú að leggja skónna á hilluna. Fótbolti 11.1.2011 22:45
Wenger ætlar að kaupa nýjan miðvörð í janúar Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist ætla að kaupa nýjan miðvörð til félagsins eftir að í ljós kom að Thomas Vermaelen verður enn lengur frá vegna meiðsla. Vermaelen hefur ekki leikið með Arsenal síðan 28. ágúst en hann meiddist á hásin í landsleik með Belgum. Enski boltinn 11.1.2011 22:15
Avram Grant: Leikmennirnir mínir gáfust ekki upp Avram Grant, stjóri West Ham, var ánægður með 2-1 sigur liðsins á Birmingham í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildarbikarsins í kvöld en leikurinn fór fram á heimavelli liðsins á Upton Park. Enski boltinn 11.1.2011 22:01
Tíu West Ham menn unnu fyrri leikinn á móti Birmingham Carlton Cole kom inn á sem varamaður og tryggði West Ham 2-1 sigur á Birmingham í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildarbikarnum á Upton Park í kvöld. West Ham tókst að tryggja sér sigurinn þrátt fyrir að vera aðeins með tíu menn inn á vellinum síðasta hálftímann í leiknum. Enski boltinn 11.1.2011 21:38
Shaun Wright-Phillips á leiðinni á láni til Fulham Shaun Wright-Phillips er líklega á leiðinni til Fulham frá Manchester City en félögin eru að reyna að semja um sex mánaða lánsamning. Wright-Phillips myndi hitta fyrir Mark Hughes hjá Fulham en Hughes var áður stjóri hans hjá bæði Blackburn og Manchester City. Enski boltinn 11.1.2011 21:15
Dzeko: Flestir í Manchester halda með Manchester City Edin Dzeko, nýi leikmaðurinn í herbúðum Manchester City, er búinn að slá í gegn hjá stuðningmönnum félagsins þrátt fyrir að hann sé ekki búinn að spila eina einustu mínútu í búningi félagsins. Dzeko skaut nefnilega á nágrannanna í United í blaðamannafundi í dag. Enski boltinn 11.1.2011 20:45