KR-ingar bikar­meistarar eftir stjörnu­hrap í Smáranum

Ísak Orri Schjetne skrifar
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, fyrirliði KR, lyftir hér bikarnum í Smáranum í dag.
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, fyrirliði KR, lyftir hér bikarnum í Smáranum í dag. Vísir/Anton

KR-ingar urðu í dag bikarmeistarar karla í körfubolta eftir sextán stiga sigur á Íslandsmeisturum Stjörnunnar, 100-84, í úrslitaleik VÍS-bikarsins í Smáranum.

KR-ingar töpuðu bikarúrslitaleiknum í fyrra en komu reynslunni ríkari í dag. Þetta er fimmtándi bikarmeistaratitill KR-inga sem er bæting á eigin meti en um leið fyrsti stóri titill félagsins í sjö ár.

Linards Jaunzems var frábær með 26 stig og 13 fráköst fyrir KR, Kenneth Jamar Doucet Jr skoraði 23 stig og Toms Leimanis var með 19 stig. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var síðan með 17 stig og 9 stoðsendingar.

KR-liðið tók frumkvæðið í upphafi leiks og hélt því allt til enda. Sprettir Stjörnumanna voru bara of fáir og of stuttir til að setja alvöru pressu á Vesturbæjarliðið.

Stjörnumenn mættu í Smárann í dag á ellefu leikja sigurgöngu og voru sigurstranglegra liðið fyrir leikinn.

KR-ingar voru á allt öðru máli og voru komnir ellefu stigum yfir strax í fyrsta leikhlutanum. Í hálfleik munaði síðan þrettán stigum á liðunum, KR var 59-46 yfir. Stjörnumenn skoruðu fyrstu sex stig seinni hálfleiks en KR-ingar stóðu það af sér og það munaði enn níu stigum, 65-74, fyrir lokaleikhlutann.

KR var komið nítján stigum yfir um miðjan fjórða leikhlutann, 91-72. Stjörnumenn gáfust ekki upp og voru búnir að koma muninn niður í átta stig þegar tæpar tvær mínútur voru eftir en nær komust þeir ekki.

Viðtöl koma inn á Vísi seinna í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira