

Marvel og Sony Pictures munu ráðast í tökur á næstu Spider-Man mynd næstkomandi júlí og er búið við því að tökur standi yfir fram í nóvember. Kvikmyndin ætti síðan að koma í kvikmyndahús í júlí 2021.
Hildur Guðnadóttir var rétt í þessu tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir tónlist sína í kvikmyndinni um Jókerinn.
Óskarsverðlaunahátíð ársins 2020 verður án hefðbundins kynnis, líkt og á síðasta ári. Hátíðin fer fram 9. febrúar næstkomandi.
Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, birti í dag færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann fjallar um það sem hann sjálfur kallar lúðaímynd landsbyggðarinnar í íslensku sjónvarpsefni.
Hildur Guðnadóttir tónskáld hlaut Golden Globe-verðlaunin fyrir tónlistina í kvikmyndinni Joker á sunnudagskvöldið.
Skapari bandaríska sjónvarpsþáttarins Ugly Betty, Silvio Horta, er látinn, 45 ára að aldri.
Héraðið, kvikmynd Gríms Hákonarsonar, verður á meðal átta mynda sem keppa um Drekaverðlaunin.
Hildur Guðnadóttir sellóleikari og tónskáld heldur áfram að slá í gegn á erlendum vettvangi en í dag var hún tilnefnd til hinna virtu bresku kvikmynda- og sjónvarpsþáttaakademíunnar BAFTA fyrir tónlist sína í Jókernum.
Stórleikarinn Tom Hanks fékk í nótt Cecil B. DeMille-verðlaunin á Golden Globe-hátíðinni en um er að ræða heiðursverðlaun hátíðarinnar.
Hildur Guðnadóttir tónskáld hlaut í nótt Golden Globe-verðlaunin fyrir tónlistina í kvikmyndinni Joker.
Heimildarmyndin Þrettándinn verður sýnd á Stöð 2 í kvöld klukkan 19:05.
Höfundur sjónvarpsþáttanna vinsælu Peaky Blinders um athafnir Shelby fjölskyldunnar hefur staðfest að handrit að sjöttu þáttaröðinni sé tilbúið.
Kvikmyndasöguheimur Marvel mun brátt fá sína fyrstu transofurhetju. Kevin Feige, yfirmaður kvikmyunda Marvel, sagði á fyrirlestri í New York í vikunni að það gerðist fljótt og tökur á myndinni væru þegar hafnar.
Netflix hefur gefið út hvað var vinsælasta efnið á veitunni árið 2019. Kvikmyndin Murder Mystery með Adam Sandler og Jennifer Aniston virðist hafa notið mikilla vinsælda á árinu.
Þar sem fólk getur nú lesið þúsundir dóma um Star Wars: Rise of Skywalker og næstum tvær vikur eru síðan hún kom út ákvað ég að taka aðeins víðari nálgun á Stjörnustríðsmyndirnar og bera nýja þríleikinn saman við hinn upprunlega og velta vöngum yfir þessu fyrirbæri sem er Stjörnustríð.
JJ Abrams, leikstjóri kvikmyndarinnar Star Wars: The Rise of Skywalker, er sagður hafa staðfest það við aðdáendur hvað Finn, annarri söguhetju myndarinnar, lá svo ógurlega á að segja við hina söguhetjuna, Rey, þegar þau höfðu komið sér í ógöngur í byrjun myndarinnar.
Undirbúningur fyrir Deadpool 3 er hafinn hjá Marvel Studios.
Myndverið Universal sendi tilkynningu á þúsundir kvikmyndahúsa í Bandaríkjunum á föstudag til að segja þeim frá því að von væri á uppfærðri útgáfu af söngvamyndinni Cats.
Í gær kom út ný stikla fyrir kvikmyndina Top Gun: Maverick, en það er framhaldsmynd hinnar sígildu kvikmyndar Top Gun sem kom út árið 1986.
Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona, handritshöfundur og kvikmyndaleikstjóri, var í morgun tilnefnd til verðlauna Norræna kvikmynda-og sjónvarpssjóðsins fyrir handritið að þáttaröðinni Pabbahelgum.
Heba Þórisdóttir er á lista yfir þá sem gætu unnið Óskarinn í byrjun næsta árs en hún fór fyrir förðunarteyminu í kvikmynd Quentin Tarantino, Once Upon a Time…in Hollywood.
Kvikmyndin End of Sentence, í leikstjórn Elfars Aðalsteins, fékk á dögunum sérstök dómnefndarverðlaun (Special Jury Awards) á 68. alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Mannheim-Heidelberg í Þýskalandi.
Hildur Guðnadóttir sellóleikari og tónskáld heldur áfram að slá í gegn á erlendum vettvangi en í dag var hún tilnefnd til hinna virtu kvikmyndaverðlauna Golden Globe fyrir tónlistina í kvikmyndinni Jókerinn.
Leikarinn Ingvar E. Sigurðsson laut í lægra haldi fyrir spænska stórleikaranum Antonio Banderas á evrópsku kvikmyndaverðlaununum í kvöld þegar sá síðarnefndi var valinn leikari ársins á hátíðinni.
Næsta Bond-mynd, sem verður sú 25. í röðinni, mun bera titilinn No Time to Die. Daniel Craig mun í sjötta sinn fara með hlutverk James Bond en í myndinni verður hann þó sestur í helgan stein.
Menningarvefur BBC hvetur fólk til að horfa á íslensku sjónvarpsþættina The Valhalla Murders eða Brot.
Afþreyingarrisinn Disney hefur orðið við ósk dauðvona ofur-aðdáanda Stjörnustríðsmyndanna (e. Star Wars), um að fá að sjá nýjustu myndina í kvikmyndaflokknum.
Þeir Casper Christensen og Frank Hvam voru hér á landi í byrjun október til að taka upp efni fyrir nýjustu Klovn myndina sem hefur fengið nafnið Klovn the Final.
Nýjasta Stjörnustríðs-myndin er ekki væntanleg í kvikmyndahús fyrr en 20. desember en nú þegar hafa nokkrir aðdáendur fengið að vita hvernig myndin endar. Eða svo vill leikstjóri myndarinnar meina.
Bandaríski tæknirisinn Apple tilkynnti skyndilega í gær að fyrsta kvikmyndin sem framleidd var fyrir Apple TV+ streymisveituna yrði ekki frumsýnd í kvöld, líkt og til stóð.