Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Hollywood-stjarnan Tom Cruise ætlar að bjarga jörðinni enn einu sinni á stóra skjánum, núna sem aldraði milljarðamæringurinn Digger Rockwell í hamfaramyndinni Digger í leikstjórn hins mexíkóska Alejandro González Iñárritu. Fyrsta stiklan fyrir myndina er nýútkomin. Bíó og sjónvarp 14.7.2026 11:26
Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Nýsjálenski leikarinn Sam Neill er látinn, 78 ára að aldri, eftir að hafa nýverið jafnað sig af eitilfrumukrabbameini. Leiklistarferill Neill spannaði rúma hálfa öld, ógrynni kvikmynda og var hann talinn einn fjölhæfasti leikari sinnar kynslóðar. Vísir hefur tekið saman tíu bestu hlutverk leikarans. Bíó og sjónvarp 13.7.2026 16:02
Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Leikarinn Josh Grisetti, sem er best þekktur fyrir leik sinn í gamandramaþáttunum The Marvelous Mrs. Maisel, er látinn, aðeins 44 ára að aldri. Bíó og sjónvarp 13.7.2026 10:03
Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Síminn hefur til skoðunar að framleiða íslenska útgáfu af raunveruleikaþáttunum Love Island. Til skoðunar er að taka upp þættina á Möltu. Samtal er sagt vera í gangi á milli Símans, Sagafilm og bresku sjónvarpsstöðvarinnar ITV vegna þáttanna. Bíó og sjónvarp 1.7.2026 14:29
Michael Byrne er látinn Breski leikarinn Michael Byrne, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Braveheart, Indiana Jones and the Last Crusade og Tomorrow Never Dies, er látinn, 82 ára að aldri. Bíó og sjónvarp 1.7.2026 10:13
Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Fyrsta stiklan í fullri lengd úr kvikmyndinni Werwulf, nýjustu hryllingsmynd bandaríska leikstjórans Robert Eggers en leikstjórinn skrifaði handritið í samstarfi við íslenska rithöfundin Sjón. Bíó og sjónvarp 30.6.2026 12:56
James Burrows látinn Bandaríski leikstjórinn James Burrows er látinn 85 ára að aldri en hann leikstýrði meðal annars þáttum af Friends, Big Bang Theory, Staupasteini (Cheers), Frasier, Will & Grace og Taxi. Áhrif hans á grín- og gamanþætti voru gríðarleg. Bíó og sjónvarp 19.6.2026 21:17
Laufey Lín er mætt til Springfield Laufey Lín, íslensku tónlistarstórstjörnunni, hefur á síðastliðnum mánuðum brugðið fyrir í tölvuleiknum Fortnite, á rauða dregli tískuhátíðarinnar Met Gala og í leiknum God of War. Þá var hún einnig valin söngkona ársins og var sigursælust á íslensku tónlistarverðlaununum en nú hefur hún tekið sig til og birst í nýjasta þætti The Simpsons. Bíó og sjónvarp 19.6.2026 11:36
Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Jeremy Clarkson, þáttastjórnandi „Top Gear“ og annarra breskra sjónvarpsþátta, greindi frá því á dögunum að hann hefði verið greindur með krabbamein. Í síðustu tveimur þáttum fimmtu þáttaraðar „Clarkson's Farm“ sagði Clarkson meðleikurum sínum, Charlie Ireland og Kaleb Cooper, frá greiningunni. Bíó og sjónvarp 18.6.2026 10:36
Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Tyra Banks hefur kært Netflix fyrir ærumeiðingar vegna heimildarþátta sem þau gerðu um America‘s Next Top Model. Þættirnir voru frumsýndir fyrr á árinu og vöktu mikla athygli. Í málsókn sinni segir Tyra að framleiðendur hafi klippt margra klukkustunda viðtal við hana niður í nokkra stutta búta til að búa til „falska frásögn“. Bíó og sjónvarp 15.6.2026 13:07
Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Leikarinn Seth Rogen segist ekki hafa talað við sinn gamla vin, James Franco, í áraraðir og hann hafi ekki í hyggju að vinna með honum frekar. Þeir hófu ferilinn saman í sjónvarpsþáttunum Freaks and Geeks og unnu náið saman við fjölda mynda. Í MeToo-bylgjunni stigu fram fimm konur og sökuðu Franco um kynferðislega áreitni sem gerði út af við feril hans í Hollywood og greinilega einhver vinasambönd. Bíó og sjónvarp 15.6.2026 11:44
Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Leikstjórinn Þórður Pálsson hefur verið fenginn til liðs við teymi sem vinnur nú að kvikmynd sem byggð er á hrollvekju- og spennuleiknum Dead by Daylight. Hann vakti víða athygli fyrir hrollvekjuna „Hin fordæmdu“ (á ensku The Damned) sem var frumsýnd í janúar 2025. Hann hefur einnig skapað og leikstýrt fyrstu íslensku Netflix Original þáttaröðinni „Brot“ (á ensku The Valhalla Murders) sem var frumsýnd á streymisveitunni árið 2020. Bíó og sjónvarp 15.6.2026 09:06
Margaret Kerry er látin Margaret Kerry er látin, 97 ára að aldri. Kerry var fyrirmyndin að upprunalegu Skellibjöllu í kvikmyndinni Pétur Pan frá 1953. Á ferli sínum starfaði hún sem útvarpsmaður og lék meðal annars í tveimur þáttum af The Andy Griffith Show og þremur þáttum af The Little Rascals. Bíó og sjónvarp 14.6.2026 12:39
Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Írski leikarinn Barry Keoghan hefur fundið ástina á ný eftir að hafa gengið í gegnum opinber og erfið sambandsslit við poppstjörnuna Sabrinu Carpenter árið 2024. Sú nýja er snyrtifræðingur frá Staffordshire. Bíó og sjónvarp 12.6.2026 09:54
Harbour rýfur þögnina Leikarinn David Harbour hefur loksins tjáð sig um plötuna West End Girl eftir Lily Allen, fyrrverandi eiginkonu hans, en þar söng hún um skilnað þeirra og framhjáhald hans. Harbour segist bera virðingu fyrir því að Allen hafi unnið úr eigin reynslu á plötunni en upplifun hans af sambandi þeirra hafi verið önnur. Bíó og sjónvarp 11.6.2026 10:58
Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Sigurjón Sighvatsson, kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðandi, verður heiðraður með Raimondo Rezzonico-verðlaununum á Locarno-kvikmyndahátíðinni í Sviss í ágúst. Hátíðin er ein sú elsta og virtasta í Evrópu. Bíó og sjónvarp 9.6.2026 10:35
James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Leikarinn James Handy var stunginn til bana á heimili sínu Los Angeles á miðvikudag. Sonur kærustu Handy gaf sig fram á vettvangi glæpsins og var handtekinn vegna gruns um að hafa myrt leikarann. Leiklistarferill Handy spannaði hálfa öld og er hann þekktastur fyrir leik sinn í Jumanji, Arachnophobia og Top Gun: Maverick. Bíó og sjónvarp 5.6.2026 10:03
Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Leikarinn Ted Danson hefur aftur beðist afsökunar á því að hafa notað „blackface“ og farið ítrekað með kynþáttaníð í uppistandsgrilli á leikkonunni Whoopi Goldberg árið 1993. Goldberg, sem átti á þeim tíma í alræmdu ástarsambandi með Danson, hafði skrifað mikið af gríninu sem fór hins vegar öfugt ofan í áhorfendur. Bíó og sjónvarp 4.6.2026 10:47
Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Nýafstaðin bíóhelgi vestanhafs var söguleg. Hryllingsmyndirnar Backrooms og Obsession sem eru báðar eftir unga leikstjóra sem byrjuðu ferilinn á Youtube höfðu betur gegn stórmyndinni Mandalorian og Grogu. Stjörnustríð virðist vera að missa tak sitt á menningunni því aðsókn á Mandalorian og Grogu dróst saman um sjötíu prósent milli helga. Bíó og sjónvarp 1.6.2026 12:07
Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Marcia Lucas, sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir klippingu á einni af Stjörnustríðsmyndunum í leikstjórn fyrrverandi eiginmanns síns, George Lucas, lést á miðvikudaginn, þann 27. maí, í Rancho Mirage í Kaliforníu. Hún var áttatíu ára þegar hún lést og hefur bandaríski miðillinn Variety eftir lögmanni fjölskyldunnar sem staðfesti að hún hefði látist úr krabbameini. Bíó og sjónvarp 30.5.2026 00:01
Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni Ástin sem eftir er hlaut sjö verðlaun á Eddunni í kvöld en hún var valin kvikmynd árins, þrír leikarar hennar voru verðlaunaðir auk þess sem Hlynur Pálmason hlaut verðlaun fyrir leikstjórn, handrit og kvikmyndatöku. Sjónvarpsþáttaröðin Vigdís hlaut sex verðlaun sem og hamfaramyndin Eldarnir. Miðaldaþættirnir King and Conqueror sem hlutu ellefu tilnefningar fengu engin verðlaun. Bíó og sjónvarp 29.5.2026 22:12
„Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari segist ekki hafa átt von á því að hreppa hlutverkið í Hollywood mynd um He-Man þegar hann tók þátt í prufu fyrir hlutverkið. Hann segist alla tíð hafa verið mikill aðdáandi ævintýraheimsins og sjálfur átt He-Man leikföng þegar hann var lítill. Hann er farinn að eiga marga aðdáendur vestanhafs, meðal annars suma sem fara yfir strikið í skilaboðasendingum. Bíó og sjónvarp 26.5.2026 11:02
Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, hefst í nítjánda sinn á Patreksfirði föstudaginn næstkomandi. Sérhæfing hátíðarinnar eru frumsýningar íslenskra heimildarmynda og í ár eru sýndar myndir sem fjalla meðal annars um byggð í Grímsey, baráttu við fíkn, stöðu íslenskrar millistéttar, endómetríósu og æðavarp á Austfjörðum. Bíó og sjónvarp 21.5.2026 11:09
Rick og Morty á stóra skjáinn Teiknimyndaþættirnir Rick and Morty um geðvonda og brjálaða uppfinningamanninn Rick og taugaóstyrka afabarnið Morty eru á leið á stóra skjáinn. Framleiðsla kvikmyndar um félagana er í frumstigum. Þættirnir hófu göngu sína 2013 og fer níunda þáttaröðin í loftið um helgina. Bíó og sjónvarp 21.5.2026 09:54