Sport

Teitur kominn í lokaúrslitin í þrettánda sinn á ferlinum

Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, hefur langmestu reynsluna af því að spila um Íslandsmeistaratitilinn af öllum þeim sem taka þátt í úrslitaeinvígi KR og Stjörnunnar. Fyrsti leikur liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla er klukkan 19.15 í DHL-höllinni í kvöld og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Körfubolti

Fannar þekkir ekkert annað en að vinna úrslitaeinvígi

Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, er nú kominn í úrslitaeinvígi í fimmta sinn á ferlinum og í hin fjögur skiptin hefur hann unnið Íslandsmeistaratitilinn þar af tvisvar sem fyrirliði KR-liðsins á undanförnum fjórum árum. Fyrsti leikur KR og Stjörnunnar í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla er klukkan 19.15 í DHL-höllinni í kvöld og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Körfubolti

Hrafn: Það er enginn þreyttur eða meiddur

"Við erum bara vel stemmdir og allir heilir í okkar liði. Við erum komnir áleiðis á þann stað sem við ætluðum okkur fyrir tímabilið og það er tilhlökkun í okkar liði,“ sagði Hrafn Kristjánsson þjálfari KR við visir.is í dag en í kvöld hefst úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla þegar Stjarnan úr Garðabæ kemur í heimsókn í DHL-höll KR-inga.

Körfubolti

Horner: Vettel er fullur sjálfstrausts

Christian Horner, yfirmaður Red Bull telur að Sebastian Vettel vaxi og þroskist með hverju mótinu sem hann keppir í. Vettel vann sitt annað Formúlu 1 mót á árinu í Malasíu í gær.

Formúla 1

Zlatan baðst afsökunar á rauða spjaldinu

Sænski landsliðsmaðurinn Zlatan Ibrahimovic baðst afsökunar á blaðamannfundi að hafa verið rekinn af leikvelli undir lok leiksins gegn Fiorentina í ítalska fótboltanum í gær. Zlatan, sem leikur með AC Milan, fékk sitt annað gula spjald rétt undir lok leiksins fyrir að mótmæla því að hafa ekki fengið innkast og sagði hann einhver vel valin orð við aðstoðardómarann.

Fótbolti

Guðjón Skúlason er hættur hjá Keflavík

Guðjón Skúlason er hættur sem þjálfari úrvalsdeildarlið s Keflavíku en liðið féll úr keppni í undanúrslitum Iceland Express deildar karla gegn KR s.l. fimmtudag. Á heimasíðu Keflavíkur er greint frá því að Guðjón hafi tekið þessa ákvörðun á eigin forsendum og árangur liðsins á tímabilinu hafi verið ástæðan fyrir því að hann vildi ekki halda áfram með liðið.

Körfubolti

Masters: Rory McIlroy ætlar að koma sterkari til baka

Norður-Írinn Roy McIlroy hefur eflaust átt erfitt með svefn í nótt eftir að hann klúðraði niður fjögurra högga forskoti sínu á lokadegi Mastersmótsins í golfi í gær. McIlroy lék á 80 höggum eða +8 en hann var samtals á -12 eftir þriðja keppnisdaginn og hann var efstur á mótinu í samtals 63 holur af alls 72. McIlroy bar sig vel í gær þrátt fyrir áfallið og hann lofar því að koma sterkari til baka.

Golf

Masters: Tiger var svekktur að hafa ekki nýtt tækifærið

Tiger Woods sýndi á lokakeppnisdeginum á Mastersmótinu í gær að hann er á réttri leið eftir erfiða 18 mánuði á atvinnumótaröðinni. Woods blandaði sér í baráttuna um sigurinn með því að leika á 67 höggum eða 5 höggum undir pari en bandaríski kylfingurinn var ósáttur við að hafa ekki nýtt tækifærið betur á síðari 9 holunum sem hann lék á pari eftir að hafa leikið fyrri 9 holurnar á 31 höggi.

Golf

Tíu lið í ensku úrvalsdeildinni eru í eigu útlendinga

Í gær bárust fregnir af því að Bandaríkjamaðurinn Stan Kroenke muni á næstunni eignast meirihluta í enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal. Kroenke hefur á undanförnum árum átt 29,9% hlut í félaginu og eftir að hann keypti 1% hlut til viðbótar myndast yfirtökuskylda á öðrum hlutabréfum. Nú er svo komið að helmingur liða í ensku úrvalsdeildinni eru í eigu erlendra aðila. Bandarískir auðjöfrar eru áberandi í þessum hópi en alls eru fimm úrvalsdeildarlið í eigu Bandaríkjamanna.

Enski boltinn

Hamilton tapaði 2 stigum vegna refsingar

Úrslitin í Formúlu 1 mótinu í Sepang brautinni í Malasíu í gær breyttust eftir að keppni lauk í gær, þar sem Lewis Hamilton og Fernando Alonso var refsað af dómurum mótsins eftir keppni. Tuttugu sekúndum var bætt við tíma þeirra og Hamilton féll niður um sæti vegna þess. Úr sjöunda í áttunda.

Formúla 1

Masters: Hver er Charl Schwartzel?

Charl Schwartzel frá Suður-Afríku kom mörgum á óvart í gær þegar hann fagnaði sigri á Mastersmótinu í golfi en hinn 25 ára gamli kylfingur fékk fjóra fugla í röð á síðustu fjórum holunum og tryggði sér sigur á -14 samtals.

Golf

Enski boltinn: Öll mörkin úr leikjum helgarinnar

Að venju var mikið um að vera í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina og spennan magnast fyrir lokakaflann. Öll mörkin úr leikjum helgarinnar eru nú aðgengileg á sjónvarpshlutanum á visir.is en Manchester United er efst í deildinni með 69 stig eftir 2-0 sigur gegn Fulham um helgina og Arsenal kemur þar á eftir með 62 stig en á leik til góða á Man Utd. Einn leikur fer fram í kvöld þar sem að Liverpool tekur á móti Manchester City og hefst leikurinn kl.19.00.

Enski boltinn

NBA: Meistaralið Lakers tapaði fimmta leiknum í röð

Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í gær en deildarkeppninni fer senn að ljúka og verða síðustu leikirnir á miðvikudag. Úslitakeppnin er handan við hornið og liðin sem þangað eru komin keppast nú við að sýna andlegan styrk sinn á lokasprettinum. Chicago lagði Orlando á útivelli i gær 102-99, Miami átti ekki í vandræðum með Boston á heimavelli 100-77, og það vekur kannski mesta athygli að Oklahoma rúllaði meistaraliði Lakers upp á útivelli 120-106 – en þetta er fimmti tapleikur Lakers í röð.

Körfubolti

Teitur: Skrítið að fara í svona langt frí

Stjarnan gerði sér lítið fyrir og sópaði Íslandsmeisturum Snæfells í frí á lokadegi síðasta mánaðar. Síðan þá hafa Teitur Örlygsson og lærisveinar hans fylgst með rimmu KR og Keflavíkur af hliðarlínunni og beðið eftir því að fá að spila á nýjan leik. Biðinni löngu er lokið því KR tekur á móti Stjörnunni klukkan 19.15 í kvöld í fyrsta leik liðanna um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn.

Körfubolti

Guðný fór á kostum gegn Fram - myndir

Guðný Jenný Ásmundsdóttir, markvörður Vals, er á góðri leið með að tryggja sínu liði Íslandsmeistaratitilinn í handbolta en hún hefur farið algjörlega á kostum í fyrstu leikjum úrslitaeinvígisins gegn Fram.

Handbolti

Nú losar Sky sig við Rooney

Vafasöm hegðun Wayne Rooney heldur áfram að draga dilk á eftir sér. Coca-Cola hefur þegar sagt skilið við Rooney og nú hefur Sky-sjónvarpsstöðin gert slíkt hið sama.

Enski boltinn

Masters: Charl Schwartzel sigraði á ótrúlegum lokadegi

Það er óhætt að segja að Mastersmótið 2011 fari í sögubækurnar fyrir einn mest spennandi lokahring sögunnar. Charl Schwartzel frá Suður-Afríku kom öllum á óvart með því að landa sigri á þessu fyrsta risamóti ársins en hann hefur aldrei sigrað á PGA-móti á ferlinum. Lokarhringurinn var ótrúlegur en um tíma virtust 9-10 kylfingar eiga möguleika á því að klæðast græna jakkanum.

Golf

Kroenke að eignast Arsenal

Samkvæmt heimildum Sky Sports þá er Bandaríkjamaðurinn Stan Kroenke við það að ná yfirtökum í Arsenal. Kroenke er fyrir stærsti einstaki hluthafi félagsins. Kroenke á 29,9 prósent í félaginu og ef hann kaupir tæpt prósent í viðbót þá hefur myndast yfirtökuskylda.

Enski boltinn

Einar: Lykilmenn þurfa að stíga upp

Fram tapaði, 20-19, í dag gegn Val í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í N1-deild kvenna. Staðan er því 2-0 í einvíginu og útlitið orðið virkilega dökkt fyrir Safamýrastúlkur.

Handbolti

Jenný: Þetta er langt frá því að vera búið

„Ég er ofboðslega fegin að hafa náð að landa þessu í lokin,“ Guðný Jenný Ásmundsdóttir, markvörður Vals, eftir sigurinn í dag. Guðný gerði sér lítið fyrir og varði 28 skot í leiknum í dag. Valsstúlkur unnu leikinn 20-19 og leiða einvígið um Íslandsmeistaratitilinn 2-0.

Handbolti