Sport

Umfjöllun: Albanía - Ísland 1-2 | Gylfi skoraði sigurmarkið

Ísland vann sögulegan sigur, 1-2, á Albaníu við fáranlegar aðstæður í Tírana í kvöld. Þetta var fyrsti sigur íslenska liðsins á Balkanskaganum. Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Íslandi sigurinn með algjöru gullmarki. Seinka varð seinni hálfleik vegna þrumuveðurs og völlurinn var á floti allan leikinn.

Fótbolti

Aron Einar biðst afsökunar

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson hefur beðist auðmjúklega afsökunar á óviðeigandi ummælum sem hann lét falla um Albana á vefsíðunni fótbolti.net.

Fótbolti

Red Bull-bílarnir fljótastir á æfingum í Kóreu

Þeir Sebastian Vettel og Mark Webber hjá Red Bull í Formúlu 1 voru lang fljótastir á seinni æfingum keppnisliða fyrir kóreska kappaksturinn sem fram fór í nótt. Þeir óku þremur hundruðustu úr sekúntu hraðar en Fernando Alonso á Ferrari.

Formúla 1

Framlínusveit Liverpool orðin þunnskipuð

Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, hefur ekki úr miklu að velja þegar kemur að sóknarmönnum liðsins því eftir að Fabio Borini meiddist á æfingu með 21 árs landsliði Ítala þá er Luis Suarez eini þekkti framherji liðsins.

Enski boltinn

Úttekt hjá VG: Langfæst mörk innan íslenska landsliðshópsins

Norska blaðið VG hefur gert úttekt á því hversu mörg landsliðsmörk leikmenn liðanna í riðli Noregs (og Íslands) hafa skorað á sínum landsliðsferli. Blaðið fer yfir landsliðshópa þjóðanna fyrir leikina í undankeppni HM í kvöld og þar má sjá að leikmenn í íslenska landsliðshópnum hafa skorað langfæst mörk.

Fótbolti

Frá Barcelona til Barnet

Hollendingurinn Edgar Davids er búinn að taka skóna af hillunni en þessi 39 ára gamli leikmaður ætlar að vera spilandi þjálfari hjá enska d-deildarliðinu Barnet það sem eftir lifir þessa tímabils. Liðið þarf á liðstyrk að halda enda í hættu að falla úr ensku deildarkeppninni.

Enski boltinn

Rooney: Steven Gerrard hefur haft mikil áhrif á mig

Wayne Rooney lofar því að hafa stjórn á skapi sínu inn á vellinum en í kvöld verður hann í fyrsta sinn fyrirliði enska landsliðsins í alvörulandsleik. Englendingar taka þá á móti San Marinó á Wembley og er leikurinn í beinni í Stöð 2 Sport.

Enski boltinn

Aron Einar: Við viljum kvitta fyrir Kýpurleikinn

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson segir að það sé gott að fá leik gegn Albaníu skömmu eftir tapið gegn Kýpur svo þeir geti hætt að grenja út af honum. Strákarnir búast við átakaleik á erfiðum útivelli en segjast vera klárir í slaginn gegn sterkum

Fótbolti

Brassarnir skoruðu sex gegn Írak

Þó svo að Kaka hafi lítið fengið að spila með Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni var hann engu að síður á skotskónum með brasilíska landsliðinu í kvöld.

Fótbolti

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 23-23

Valur og Fram skildu jöfn 23-23 í einvígi Reykjavíkurliðanna að Hlíðarenda í kvöld í spennandi og jöfnun leik. Valsmenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik 13-10 en þriggja mínútna leik kafli í seinni hálfleik þar sem Fram mest þremur leikmönnum fleiri á vellinum kom Fram aftur inn í leikinn.

Handbolti

Agger með Liverpool-húðflúr á hnúunum

Danski landsliðsfyrirliðinn Daniel Agger hefur lýst yfir tryggð við Liverpool með táknrænum hætti. Það er ekki nóg með að hann skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning við félagið á dögunum þá fékk hann sér einnig Liverpool-húðflúr á hnúana.

Enski boltinn

Alonso segist geta aukið forystuna í Kóreu

Spánverjinn Fernando Alonso hjá Ferrari í Formúlu 1 er sjálfsöruggur og segist eiga góða möguleika á því að vinna heimsmeistaratitilinn, þrátt fyrir að keppinautar hans saxi jafnt og þétt á forskot hans í stigabaráttunni.

Formúla 1

Umfjöllun og viðtöl: KR - Tindastóll 90-69

KR sigraði Tindastól örugglega 90-69 í DHL-höllinni í kvöld. Heimamenn voru grimmari allan leikinn og unnu að lokum mjög sanngjarnan sigur. Varnarleikur KR var sterkur lengstum í leiknum og lagði grunninn að sigrinum.

Körfubolti

Nikola Karabatic: Þetta er algjör martröð

Franski landsliðsmaðurinn Nikola Karabatic segist ekki skilja af hverju hann er sakborningur í stóra hneykslismálinu í frönskum handbolta. Leikmenn Montpellier-liðsins eru sakaðir um að hafa hagrætt úrslitum svo þeir eða fjölskyldur þeirra græddu pening á því að veðja á liðið.

Handbolti