Fréttir

Réttar­höldunum yfir Clancy lauk án niður­stöðu

Dómari hefur ómerkt réttarhöldin yfir Lindsay Clancy eftir að kviðdómi tókst ekki að komast að sameiginlegri niðurstöðu eftir ítrekaðar tilraunir. Hún er sökuð um að myrða þrjú ung börn sín. Ógilding málsins tafðist í dag eftir að dómari heimilaði verjanda Clancy að áfrýja niðurstöðunni.

Erlent

Kýld niður fjallið og hafi svo horft á for­manninn ljúga í fjöl­miðlum

Fráfarandi fagstjóri á Vík, meðferðarstöð SÁÁ, fordæmir vinnubrögð stjórnar SÁÁ og segir fullreynt að heilbrigðisþjónusta sem þessi sé á forræði félagasamtaka. Hún kallar eftir því að stjórnvöld grípi inn í og hefur miklar áhyggjur af framtíð meðferðarstarfsins. Þá segir hún að formaður SÁÁ hafi logið því opinberlega þegar hún sagðist ekki hafa frétt af uppsögn annars stjórnanda.

Innlent

Enginn and­vígur hval­veiðum

Atvinnuvegaráðherra boðar frumvarp um hvalveiðar í haust og hefur sagt óbreytta stöðu ekki inni í myndinni. Þingmenn sem mættu í Pallborðið í gær voru beðnir um að taka afstöðu til veiðanna og sagðist enginn þeirra vera andvígur þeim.

Innlent

Skor­dýr í súpu skóla­barna

Skordýr fundust í kjötsúpu sem Skólamatur sendi frá sér til sex leik- og grunnskóla í hádeginu í dag. Fyrirtækið segir um frávik í aðkeyptu hráefni frá fyrirtækinu Garra að ræða. 

Innlent

Segja ekkert um svörin við yfir­heyrslu Trumps

Utanríkisráðuneytið vill ekki veita upplýsingar um það hvort íslenska ríkið sé búið að svara sérstökum spurningalista sem ríkisstjórn Bandaríkjanna sendi á önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins og hvernig honum hafi verið svarað, ef svo er. Eðli umræddra upplýsinga og hagsmunir sem þær tengjast mæli gegn opinberun þeirra.

Erlent

Á­rás á höfuð­stöðvar Öryggis­stofnunar Úkraínu

Rússneskur sjálfsprengidróni hæfði í dag höfuðstöðvar úkraínsku leyniþjónustunnar sem kallast Öryggisstofnun Úkraínu (SBU). Forseti Úkraínu segir að drónanum hafi verið miðað á skrifstofu yfirmanns leyniþjónustunnar og að leiðtogum SBU hafi verið skipað að svara fyrir sig með sambærilegum hætti.

Erlent

Telja þjóðar­at­kvæða­greiðsluna hafa styrkt Sam­fylkinguna

Kratinn, upplýsingavettvangur þingflokks Samfylkingarinnar, telur að þjóðaratkvæðagreiðslan um aðildarviðræður við Evrópusambandið hafi styrkt stöðu flokksins. Í greiningu sem send var félagsmönnum er fylgistap nokkurra flokka sett í samhengi við afstöðu þeirra til viðræðnanna. Fylgisþróunin var þó ólík hjá flokkum sem stóðu sömu megin.

Innlent

Hugsi yfir fram­lagi Krist­rúnar

Annar hlaðvarpsstjórnanda breska hlaðvarpsins Rest is Politics veltir því upp hvort skortur á forystu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hafi orðið til þess að ekki tókst að fá meirihluta Íslendinga til þess að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslu síðustu helgi. Hinn stjórnandinn segir ljóst að um mikinn sigur sé að ræða fyrir Vladimír Pútín forseta Rússlands. 

Innlent

Kvið­dóm­endur fá enn eitt tæki­færi

Kviðdómendur í málinu gegn Lindsay Clancy munu fá enn einn daginn til að komast að sameiginlegri niðurstöðu í máli hennar. Þetta verður sjöundi dagurinn sem þau munu verja í að reyna að ljúka málinu.

Erlent

Næstum allar á­bendingarnar um Á­fram Ís­land

Næstum tuttugu ábendingar og kvartanir hafa borist til Persónuverndar vegna símhringinga og skilaboða í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Forstjóri Persónuverndar segir allar nema eina snúa að Áfram Íslandi. Á næstu dögum verði ákveðið hvort málin gefi tilefni til rannsóknar og mögulegra viðurlaga.

Innlent

Segir borgina vinda ofan af „lang­varandi rugli og vit­leysu“

Forstjóri ÞG Verks fagnar því að nýr meirihluti Reykjavíkurborgar hafi dregið úr kvöðum á íbúðauppbyggingu. Breytingarnar muni ekki hafa afgerandi áhrif á erfiðan byggingarmarkað til skemmri tíma en geti auðveldað verktökum að byggja minni og ódýrari íbúðir sem eftirspurn sé eftir.

Innlent

Mynd­band af banaslysinu í tölu­verðri dreifingu

Myndefni af banaslysi á Krýsuvíkurvegi þar sem þrjú ungmenni létust hefur farið eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum á milli ungmenna og barna. Verkefnastjóri hjá Barnaheillum segir um varhugaverða þróun að ræða sem þurfi að stöðva. 

Innlent

Langreyðarkvótinn mun tæp­lega nást

Hvalbátarnir tveir, Hvalur 8 og Hvalur 9, lönduðu fjórum langreyðum í fyrradag, tveimur hvölum hvor, til vinnslu í Hvalfirði. Þar með hafa samtals 72 langreyðar veiðst á vertíðinni en þeim fyrstu var landað í hvalstöðinni þann 26. júní síðastliðinn.

Innlent

Á­kærður fyrir að brjóta á börnum

Saksóknarar í Rúmeníu hafa formlega ákært Andrew Tate fyrir hafa selt ólögráða einstaklinga í mansal, fjárþvætti, kynmök við ólögráða einstakling og fyrir að hafa áhrif á vitni. Tristan bróðir hans hefur einnig verið ákærður fyrir að vera samverkamaður Andrews.

Erlent

Ey­vindur P. Ei­ríks­son látinn

Eyvindur P. Eiríksson, cand.mag., rithöfundur og Vestfjarðagoði Ásatrúarfélagsins, er fallinn frá. Greint er frá andláti hans í tilkynningu frá Ásatrúarfélaginu en hann var Vestfirðingagoði um árabil. Eyvindur fæddist þann 13. desember 1935 og var því níræður þegar hann lést. 

Innlent

Græn­lendingar fá fría læknis­þjónustu í Dan­mörku

Heilbrigðisráðherrar Danmerkur og Grænlands hafa komist að samkomulagi um að Grænlendingar geti nálgast fría læknisþjónustu í Danmörku. Hingað til hafa Grænlendingar þurft að sækja um sérstök leyfi til að nálgast læknisþjónustu í Danmörku en Grænlendingar hafa stýrt eigin heilbrigðismálum síðan árið 1992.

Erlent

Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunar­byrði

Dómarinn í morðmáli Lindsay Clancy hefur enn á ný biðlað til kviðdóms að reyna að ná samstöðu um niðurstöðu eftir mikla dramatík í dómsalnum í gær. Clancy er ákærð fyrir að hafa myrt þrjú börn sín á heimili fjölskyldunnar í Massachusetts í janúar árið 2023.

Erlent