Óli Jóh og Sigurbjörn skrifa undir hjá Val í dag Tómas Þór Þóraðrson skrifar 9. október 2014 15:18 Ólafur Jóhannesson mætir á Hlíðarenda. vísir/vilhelm
Ólafur Jóhannesson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í knattspyrnu, verður næsti þjálfari Vals í Pepsi-deild karla, en hann skrifar undir samning við Hlíðarendafélagið í dag. Þetta hefur Vísir samkvæmt heimildum. Valsmenn eru án þjálfara eftir að MagnúsGylfason lét af störfum, en Magnús stýrði liðinu undanfarin tvö tímabil. Honum tókst ekki að ná markmiðum sínum í sumar sem var að skila liðinu í Evrópusæti. Þetta er í annað sinn á þjálfaraferli Ólafs sem hann tekur við af MagnúsiGylfasyni, en Ólafur tók við Haukaliðinu árið 2011 eftir að Magnús lét af störfum á Ásvöllum. Ólafi til halds og trausts verður SigurbjörnHreiðarsson, en saman stýrðu þeir Haukum í 1. deildinni 2012 og 2013. Sigurbjörn tók svo við af Ólafi og var aðalþjálfari Hauka í sumar en lét af störfum eftir tímabilið. Hann mun einnig skrifa undir samning við sitt gamla félag í dag samhliða Ólafi, en Sigurbjörn er leikjahæsti leikmaður í sögu Vals og var fyrirliði þess til margra ára. Hann fagnaði bikarmeistaratitli með liðinu árið 2005 og Íslandsmeistaratitli 2007. Sigurbjörn var einmitt í Valsliðinu sem batt enda á ævintýralega sigurgöngu FH-inga undir stjórn Ólafs Jóhannessonar árið 2007. Valur vann FH í 17. umferð Íslandsmótsins 2007, komst upp fyrir FH í töflunni og fagnaði Íslandsmeistaratitlinum eftir sigur á HK í lokaumferðinni. FH-liðið hafði þá verið á toppi Landsbankadeildarinnar eins og hún hét þá í 60 umferðir samfellt. Ólafur tók við íslenska landsliðinu árið 2007 og stýrði því til ársins 2011 þegar EyjólfurSverrisson tók við af honum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Enski boltinn Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira