Upp­gjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum

Andri Már Eggertsson skrifar
Gísli Eyjólfsson skoraði mark Skagamanna í dag
Gísli Eyjólfsson skoraði mark Skagamanna í dag Vísir/Anton

ÍA og FH gerðu 1-1 jafntefli í 20. umferð Bestu deildar karla. Gestirnir komust yfir í fyrri hálfleik en Gísli Eyjólfsson jafnaði metin í síðari hálfleik með skalla. Fleiri urðu mörkin ekki og jafntefli niðurstaðan. 

Fyrri hálfleikur var tíðindalítill. Leikurinn var lokaður og bæði lið sköpuðu fá færi. Gestirnir reyndu ítrekað að koma boltanum inn fyrir á hinn eldfljóta Gils Gíslason með misjöfnum árangri.

Markús Páll Ellertsson, leikmaður ÍA, fékk dauðafæri um miðjan fyrri hálfleik þar sem hann komst einn í gegn og vippaði yfir Jökul Andrésson en boltinn endaði rétt framhjá. Á 44. mínútu brutu gestirnir ísinn. Kjartan Kári átti sendingu fyrir markið á Erling Agnarsson sem hitti boltann mjög illa en fór af Baldvin Þór Berndsen sem gerði sjálfsmark.

Staðan í hálfleik var 0-1.

Seinni hálfleikur var framhald af því sama og í þeim fyrri. Leikurinn var lokaður og bæði lið gerðu lítið á síðasta þriðjungi.

Skagamenn jöfnuðu á 64. mínútu. Jón Gísli Eyland Gíslason tók aukaspyrnu þar sem hann vippaði boltanum vinstra megin í teiginn beint á Gísla Eyjólfsson sem átti frábæran skalla í markið. Skemmtileg flétta sem hefur komið beint af æfingasvæðinu.

Heimamenn voru betri aðilinn eftir að þeir jöfnuðu og fengu færi til að klára leikinn en allt kom fyrir ekki og niðurstaðan 1-1 jafntefli.

Atvik leiksins

Erik Tobias Sandberg skallaði boltann beint í höndina á Baldvin Kára Helgasyni og þar hefðu Skagamenn átt að fá vítaspyrnu en fengu ekki. Atvik sem hefði líklega breytt ansi miklu.

Stjörnur og skúrkar

Gísli Eyjólfsson skoraði frábært skallamark úr ansi erfiðari stöðu og var heilt yfir mjög góður í leiknum.

Baldvin Þór Berndsen var skúrkur leiksins fyrir ansi klaufalegt sjálfsmark sem kom FH-ingum yfir í lokuðum fyrri hálfleik.

Dómarinn [3]

Sigurður Hjörtur Þrastarson var á flautunni í dag. Sigurður var ansi spjaldaglaður í fyrri hálfleik og spjaldaði heimamenn þrisvar í leik sem var langt frá því að vera grófur. 

Skagamenn voru ekki sáttir að hafa ekki fengið vítaspyrnu þegar Erik Sandberg skallaði boltann í hendina á Baldvin Kára Helgasyni.

Stemning og umgjörð

Aðstæður voru til fyrirmyndar á Skaganum í dag. Sólin skein og grasvöllurinn var iða grænn. Umgjörðin var upp á tíu eins og alltaf þegar maður mætir á Elkem-völlinn. Það var fjölmennt á leiknum en flestir áhorfendur kusu að vera í sólinni og sátu í grasinu á móti stúkunni.

Fyrir leik var Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, heiðraður fyrir allt það sem hann hefur gert fyrir ÍA bæði sem leikmaður og þjálfari. Jóhannes Karl fékk að launum veglega mynd og standandi lófaklapp frá öllum á vellinum.

„Ánægður með karakterinn og vinnusemina í fyrri hálfleik“

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var nokkuð ánægður með stigið gegn ÍA

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var nokkuð brattur eftir 1-1 jafntefli gegn ÍA. 

„Mér fannst við sterkari í fyrri hálfleik en Skagamenn voru sterkari í seinni hálfleik. Það var erfitt fyrir okkur að halda í boltann í seinni hálfleik en vallarhelmingurinn sem við spiluðum á er mjög þungur og það sást því við náðum ekki halda eins vel í boltann í seinni hálfleik en ég tel þetta hafi verið sanngjörn úrslit,“ sagði Jóhannes Karl eftir leik.

Jóhannes var ánægður með liðið sitt í fyrri hálfleik sem skilaði einu marki.

„Völlurinn var blautur og það var hægt að halda í boltann. Við komumst í góðar stöður þó það hafi ekki verið mikið um dauðafæri. Ég var mjög ánægður með karakterinn og vinnusemina í fyrri hálfleik.“

„Í seinni hálfleik voru þeir grimmir og pressuðu okkur vel. Við komumst ekki oft í gegnum fyrstu pressuna og við vorum klaufar þegar það komu upp möguleikar fyrir okkur,“ sagði Jóhannes Karl að lokum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira