Finnur Freyr komst loksins fram úr Friðriki Inga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2026 12:32 Finnur Freyr Stefánsson er fyrsti þjálfarinn til að vinna 75 leiki í úrslitakeppni karla. Vísir/Vilhelm Finnur Freyr Stefánsson vann í gær sinn 75. leik í úrslitakeppni úrvalsdeildar karla í körfubolta og varð þar með sá þjálfari sem hefur unnið flesta leiki í úrslitakeppninni frá upphafi. Finnur og lærisveinar hans fóru þá til Keflavíkur og náðu að jafna einvígið sitt í átta liða úrslitum Bónusdeildar karla með fimm stiga sigri, 87-82. Finnur var búinn að bíða nokkuð lengi eftir þessum metsigri því Valsliðið var búið að tapa fjórum leikjum í röð í úrslitakeppni frá því að hann jafnaði við Friðrik Inga Rúnarsson með sigri á Grindavík í fyrsta leik átta liða úrslitanna í fyrra. Grindavík vann næstu þrjá leiki og sendi Val í sumarfrí. Valsmenn töpuðu svo á heimavelli í fyrsta leiknum í einvíginu á móti Keflavík. Friðrik Ingi vann á sínum tíma 74 leiki í úrslitakeppni í þeim 132 leikjum sem hann stýrði en það gerir 56 prósenta sigurhlutfall. Friðrik vann leikina 74 með þremur félögum eða Njarðvík (35), Grindavík (33) og Keflavík (6). 75. sigurleikur Finns kom í leik númer 108 og hann er því með 69 prósent sigurhlutfall sem þjálfari í úrslitakeppni. Hann hefur unnið þessa leiki sem þjálfari KR (45) og þjálfari Vals (30). Finnur Freyr á þegar metið yfir flesta Íslandsmeistaratitla í úrslitakeppni en þeir eru sjö talsins, fimm með KR og tveir með Val. Friðrik Ingi gerði þrjú félög að Íslandsmeisturum, Njarðvík 1991 og 1998 og svo Grindavík 1996. Sigurður Ingimundarson er í öðru sæti í titlum með fimm Íslandsmeistaratitla sem þjálfari Keflavíkurliðsins en hann er í þriðja sæti í sigurleikjum með 68 talsins í 116 leikjum sem gerir 59 prósenta sigurhlutfall. Flestir sigurleikir þjálfara í úrslitakeppni karla: 1. Finnur Freyr Stefánsson 75 sigurleikir 2. Friðrik Ingi Rúnarsson 74 3. Sigurður Ingimundarson 68 4. Benedikt Guðmundsson 49 5. Ingi Þór Steinþórsson 37 6. Valur Ingimundarson 35 7. Friðrik Ragnarsson 34 8. Jón Kr. Gíslason 30 8. Teitur Örlygsson 30 10. Einar Árni Jóhannsson 25 11. Jóhann Þór Ólafsson 23 12. Baldur Þór Ragnarsson 22 13. Ívar Ásgrímsson 20 14. Guðjón Skúlason 19 14. Hrafn Kristjánsson 19 14. Lárus Jónsson 19 Bónus-deild karla Valur Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Stjarnan játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Fleiri fréttir Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Sjá meira
Finnur og lærisveinar hans fóru þá til Keflavíkur og náðu að jafna einvígið sitt í átta liða úrslitum Bónusdeildar karla með fimm stiga sigri, 87-82. Finnur var búinn að bíða nokkuð lengi eftir þessum metsigri því Valsliðið var búið að tapa fjórum leikjum í röð í úrslitakeppni frá því að hann jafnaði við Friðrik Inga Rúnarsson með sigri á Grindavík í fyrsta leik átta liða úrslitanna í fyrra. Grindavík vann næstu þrjá leiki og sendi Val í sumarfrí. Valsmenn töpuðu svo á heimavelli í fyrsta leiknum í einvíginu á móti Keflavík. Friðrik Ingi vann á sínum tíma 74 leiki í úrslitakeppni í þeim 132 leikjum sem hann stýrði en það gerir 56 prósenta sigurhlutfall. Friðrik vann leikina 74 með þremur félögum eða Njarðvík (35), Grindavík (33) og Keflavík (6). 75. sigurleikur Finns kom í leik númer 108 og hann er því með 69 prósent sigurhlutfall sem þjálfari í úrslitakeppni. Hann hefur unnið þessa leiki sem þjálfari KR (45) og þjálfari Vals (30). Finnur Freyr á þegar metið yfir flesta Íslandsmeistaratitla í úrslitakeppni en þeir eru sjö talsins, fimm með KR og tveir með Val. Friðrik Ingi gerði þrjú félög að Íslandsmeisturum, Njarðvík 1991 og 1998 og svo Grindavík 1996. Sigurður Ingimundarson er í öðru sæti í titlum með fimm Íslandsmeistaratitla sem þjálfari Keflavíkurliðsins en hann er í þriðja sæti í sigurleikjum með 68 talsins í 116 leikjum sem gerir 59 prósenta sigurhlutfall. Flestir sigurleikir þjálfara í úrslitakeppni karla: 1. Finnur Freyr Stefánsson 75 sigurleikir 2. Friðrik Ingi Rúnarsson 74 3. Sigurður Ingimundarson 68 4. Benedikt Guðmundsson 49 5. Ingi Þór Steinþórsson 37 6. Valur Ingimundarson 35 7. Friðrik Ragnarsson 34 8. Jón Kr. Gíslason 30 8. Teitur Örlygsson 30 10. Einar Árni Jóhannsson 25 11. Jóhann Þór Ólafsson 23 12. Baldur Þór Ragnarsson 22 13. Ívar Ásgrímsson 20 14. Guðjón Skúlason 19 14. Hrafn Kristjánsson 19 14. Lárus Jónsson 19
Flestir sigurleikir þjálfara í úrslitakeppni karla: 1. Finnur Freyr Stefánsson 75 sigurleikir 2. Friðrik Ingi Rúnarsson 74 3. Sigurður Ingimundarson 68 4. Benedikt Guðmundsson 49 5. Ingi Þór Steinþórsson 37 6. Valur Ingimundarson 35 7. Friðrik Ragnarsson 34 8. Jón Kr. Gíslason 30 8. Teitur Örlygsson 30 10. Einar Árni Jóhannsson 25 11. Jóhann Þór Ólafsson 23 12. Baldur Þór Ragnarsson 22 13. Ívar Ásgrímsson 20 14. Guðjón Skúlason 19 14. Hrafn Kristjánsson 19 14. Lárus Jónsson 19
Bónus-deild karla Valur Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Stjarnan játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið Fótbolti Fleiri fréttir Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn