Uppgjörið:Njarðvík - Tinda­stóll 88-87| Dramatískar lokasekúndur þegar Njarð­vík sópaði Tinda­stól

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Valur-Njarðvík Valur-Njarðvík bónus deild kvenna
Valur-Njarðvík Valur-Njarðvík bónus deild kvenna

Njarðvík tók á móti Tindastól í þriðja leik liðana í 8-liða úrslitum Bónus deild kvenna í IceMar-höllinni í kvöld. Njarðvík leiddi einvígið 2-0 fyrir leikinn í kvöld og voru því með sópinn á lofti á meðan Tindastóll varð að berjast með öllu sem þær áttu til að fara ekki í sumarfrí.

Það var heldur betur dramatík á síðustu andartökum leiksins og voru það Njarðvík sem fóru með sigur 88-87 eftir flautukörfu alveg í blálokin.

Leikurinn fór heldur fjörlega af stað fyrir Njarðvík þar sem þær skoruðu fyrstu fjórtán stig leiksins og leit út fyrir að þetta yrði bara nokkuð þægilegur dagur fyrir þær grænklæddu í kvöld.

Tindastóll svaraði þó með næstu ellefu stigum og komst ákveðið jafnræði á leikinn eftir það. Njarðvík leiddi þó eftir fyrsta leikhluta 26-19.

Það voru mikil jafnræði með liðunum í öðrum leikhluta og þau skiptust á áhlaupum. Þegar liðin fóru inn til búningsklefa í hálfleik var munurinn sá sami og eftir fyrsta leikhluta eða sjö stig 45-38.

Gestirnir frá Skagafirði mættu mun grimmari út í þriðja leikhluta og voru staðráðnar í að sækja sér leik fjögur með alvöru baráttu.

Tindastóll vann leikhlutann með tólf stigum og voru búnar að snúa leiknum sér í hag fyrir fjórða leikhluta 57-62.

Eins og við mátti búast var baráttan mikil í fjórða leikhluta og það leit allt út fyrir að Tindastóll myndi ná að sækja sér leik fjögur.

Njarðvík náði að komast í forystu en Tindastóll komst aftur yfir þegar Madison Sutton keyrði á körfuna og setti gott skot og fékk vítið að auki sem hún setti niður. Það skildi eftir 1.2 sekúndur á klukkunni og Tindastól tveimur stigum yfir.

Njarðvík tók leikhlé og Hulda María Agnarsdóttir kom boltanum svo á Brittany Dinkins úr innkasti sem nelgdi þristinn og vann leikinn um leið fyrir Njarðvík á eins dramatískan hátt og hugsast getur. Lokastaðan 88-87 og Njarðvík slær Tindastól úr leik.

Atvik leiksins 

Flautukarfan undir lokin frá Brittany Dinkins! Maður lifandi hvað þetta er nákvæmlega allt það fallega við þetta sport á sama tíma og það er allt það sára fyrir mótherjann.

Stjörnur og skúrkar

Brittany Dinkins skellti á sig skikkjunni í kvöld og innsiglaði sigurinn. Hún var einnig stigahæst á vellinum 31 stig og gaf sjö stoðsendingar að auki. Danielle Rodriguez var einnig öflug í liði Njarðvíkur og var með 25 stig. Gríðarlega öflugt tvíeyki hjá Njarðvík.

Hjá Tindastól var Madison Sutton með tvöfalda tvennu en hún var stigahæst í liði gestana með 29 stig og tók auk þess 11 fráköst.

Dómararnir

Jóhannes Páll, Jón Þór og Einar Valur sáu um flautuna í dag. Ég öfunda þá afskaplega lítið en þetta var þokkalega erfiður leikur að dæma. Tindastól fannst halla á sig í kvöld en hvort ég geti tekið undir það sérstaklega læt ég liggja á milli hluta. Þetta var ekki frábært en ekkert hræðilegt heldur að mínu mati.

Stemingin og umgjörð

Það var ágætlega mætt í IceMar-höllina í kvöld. Hefði verið skemmtilegra að sjá fleiri andlit í stúkunni en fullt hrós á þau sem mættu og studdu liðin áfram en að því sögðu var stemningin sem myndaðist mjög góð.

Viðtöl

Einar Árni Jóhannsson þjáflari NjarðvíkurAnton Brink/Vísir

„Fádæma gæði að klára þennan leik í ofboðslega erfiðri frammistöðu“

„Þetta er svona klassískt dæmi um hvað það er erfitt að loka seríu“ sagði Einar Árni Jóhannsson eftir sigurinn í kvöld.

„Tindastóls liðið á mikið hrós skilið. Þær byrjuðu illa en unnu sig vel inn í leikinn og voru komnar í svona alvöru ‘f**k it mode’ og settu niður fullt af stórum skotum og voru bara að valda okkur vandræðum“

„Við vorum ósátt með varnarleikinn okkar eiginlega í gegnum leikinn og á sama tíma þegar þú nærð ekki stoppum þá erum við ekki að fá hraðaupphlaup og vorum bara svolítið svona hægar á köflum í sóknarleiknum“

„Ég er líka búin að segja í einhverju viðtali í þessari úrslitakeppni að það skiptir ekki máli hvernig þú vinnur, hvort þú vinnir með þrjátíu eða vinnir með einu, þetta snýst um sigrana og fádæma gæði að klára þennan leik í ofboðslega erfiðri frammistöðu“ sagði Einar Árni Jóhannsson.

Israel Martin er þjálfari Tindastólskvenna.Vísir/Jón Gautur

„Mér fannst við vinna okkur inn virðingu“

„Auðvitað er þetta erfitt tap“ sagði Israel Martin þjálfari Tindastóls svekktur eftir tapið í kvöld.

„Stór sigur fyrir Njarðvík og svekkjandi tap fyrir okkur. Ég er vonsvikinn alveg hundrað prósent“

Israel Martin var þó ekki nógu sáttur með dómgæsluna í kvöld.

„Ég tala aldrei um dómara, aldrei í mínu lífi og aldrei síðustu 26 ár sem ég hef þjálfað en ég held að í kvöld hafi þetta verið bara of mikið fyrir okkur“

„Það voru nokkur köll á mikilvægum augnablikum, skref, villa dæmd og svo aftur skref á okkur. Marta [Hermida] keyrir svo á körfuna og fær ekkert. Við hefðum átt að fá 15-20 vítaskot og mér fannst það muna miklu. Við hefðum þurft að gera tvö eða þrefalt meira til þess að sækja sigurinn“

„Mér fannst við vinna okkur inn virðingu og fyrr heldur en seinna munum við vera berjast um titla“ sagði Israel Martin.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira