Upp­gjör: Stjarnan - KR 104-80 | Stjarnan setti KR á grillið í seinni hálf­leik

Árni Jóhannsson skrifar
Frá leik tvö í einvígi KR og Stjörnunnar
Frá leik tvö í einvígi KR og Stjörnunnar Vísir / Diego

Eftir fantagóðan og jafnan fyrri hálfleik í leik þrjú hjá Stjörnunni og KR á átta liða úrslitum Bónus deildarinnar þá var eins og heimamönnum væri nóg boðið. Hitinn var skrúfaður í botn og KR grillað. Leikurinn endaði 108-80 og ásamt því að senda skilaboð þá leiða Stjörnumenn 2-1 í einvíginu.

Það virtist vera eins og bæði liðin ætluðu að sækja eins á hvort annað í byrjun leiks en leikmenn voru óhræddir við að keyra inn í teig og reyna að koma boltanum í körfuna. KR tók smá frumkvæði en Stjarnan var fljót að komast yfir og leiddu þeir lungan úr fyrri hálfleik. Sóknarleikurinn í fyrirrúmi hjá báðum liðum og stigaskor dreifðist vel. Leikhlutinn endaði 32-29 og ekki mikill úrslitakeppnisbragur á leiknum og sérstaklega varnarleiknum.

Varnarleikurinn harðnaði í öðrum leikhluta. Annað kom ekki til greina. Liðin skiptust á körfum en voru mikið að missa boltann og hitta illa. KR gekk betur og náði að komast yfir 37-38 þegar fimm mínútur voru liðnar af leikhlutanum eftir að Rinaldas setti niður þrist. Liðin náðu engum áhlaupum í raun og veru í fyrri hálfleik og héldu áfram að skiptast á körfum. Stjarnan náði að skora síðustu körfu hálfleiksins og leiddu með tveimur stigum 53-51.

Að mati blaðamanns þá gat það verið að fyrsta áhlaup seinni hálfleiksins gæti farið langt með leikinn. Stjörnumenn byrjuðu betur og þurfti KR að brenna leikhlé þegar 1:02 var liðin af hálfleiknum en Jakobi þjálfara leist ekki á blikuna og reyndi að kveikja á sínum mönnum eftir að Stjarnan skoraði fyrstu fimm stig seinni hálfleiks. KR svaraði og minnkaði muninn í 59-56. Lengra komust KR ekki í leiknum í raun og veru. Stjarnan skellti varnarleiknum í lás og keyrðu fyrst muninn upp í 10 stig og héld KR ca. 10-14 stigum fyrir aftan sig út hálfleikinn og leiddu 78-64 fyrir lokaleikhlutann. 

KR virtist ekki ætla að gera atlögu að því að ná í skottið á heimamönnum. Skotin utan af velli hættu að fara ofan í og vítaskotin sem KR er duglegt að ná í hættu einnig að fara ofan í. Stjarnan greip gæsina og eftir að hafa skipst á körfum í byrjun leikhlutans þá komu 10 stig í röð frá Stjörnunni og var hver karfan meira stemmningsaukandi en fyrri. Staðan varð 90-66 þegar fimm mínútur eftir og hinar svokölluðu rusl mínútur tóku við. Allir leikmenn nema einn fengu að koma inn á gólfið og Stjarnan sigldi leik númer þrjú í höfn og hafa tekið forystu í einvíginu.

KR skoraði ekki nema 29 stig í seinni hálfleik og er það til marks um það hve ákafinn jókst í varnarleik heimamanna og hvernig KR var ekki tilbúið í verkefnið í seinni hálfleik. KR þarf að líta í eigin barm  og reyna að vekja sig fyrir næsta leik.

Atvik leiksins

Hilmar Smári Henningsson negldi niður þrist til að koma muninum í 88-66 þegar um þrjár mínútur voru liðnar af fjórða leikhluta. Hann var með KR-ing alveg ofan í sér og desilbilin fóru yfir hættumörk í stúkunni á þessum tímapunkti. Þarna lauk leiknum eiginlega.

Stjörnur og skúrkar

Gæðin í liði Stjörnunnar skein í gegn í kvöld. Tveir leikmenn skoruðu 18 stig, tveir leikmenn 17 stig og einn leikmaður skor 13 stig. Þetta voru byrjunarliðsmennirnir. Svo fengur Stjörnumenn 20 stig af bekknum þar sem Pablo og Bjarni Guðmann skoruðu níu stig hver. Svo voru varnarframmistöður allra til algjörrar fyrirmyndar. Mjög sterk frammistaða sem ætti að skjóta andstæðingum skelk í bringu.

Toms Elvis Leimanis komst loksins á skrið og skoraði 20 stig í leiknum. Því miður þá náðu aðrir KR-ingar ekki að fylgja eftir góðum leik nr. tvö. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skoraði ekki nema þrjú stig en náði að gefa átta stoðsendingar. Linards var heillum horfinn, meiddi sig í fyrri hálfleik, og náði ekki sínum vopnum og skoraði 12 stig en tapaði fimm boltum.

Umgjörð og stemmning

Fínasta umgjörð. Miklu til tjaldað en stemmningin var gjörsamlega frábær. Báðar stuðningsmannagrúbbur voru mjög háværar og sungu alveg þangað til í lokin. KR missti stemmninguna eins og liðið sjálft.

Dómarar

Þetta var svipuð frammistaða og hefur verið í þessu einvígi. Miklu sleppt og stundum mikið dæmt. Stjörnumenn eru fastari fyrir og fengu fleiri villur dæmdar á sig og KR fékk fleiri víti. Hafði ekki mikið um úrslit leiksins að segja en KR-ingar hittu vítunum sínum mjög illa.

Jakob: Þetta má alls ekki gerast á móti Stjörnunni

„Góð spurning“, sagði Jakob Sigurðsson þjálfari KR þegar hann var spurður að því hvað gerðist hjá hans mönnum í seinni hálfleik.

„Augljóslega frá byrjun vorum við ekki eins tengdir og í fyrri hálfleik. Ég fann það strax, tók leikhlé strax og reyndi að kveikja á þeim. Það kom eitthvað smá en við vorum og linir og á eftir í öllum aðgerðum sem við vorum að gera. Svo fórum við að flýta okkur sóknarlega.“

Hefur Jakob einhverjar útskýringar á reiðum höndum afhverju KR-ingar voru svona linir?

„Það er eitt af því sem ég þarf að kanna fyrir næsta leik. Klárlega. Ég veit ekki nákvæmlega hvað það var. Við gerðum ekki risa breytingar í leikskipulaginu þannig að þetta er eitthvað sem við þurfum klárlega að skoða. Þetta má alls ekki gerast á móti Stjörnunni. Þeir eru þannig lið. Um leið og þú slakar á þá kviknar á þeim. Það er þeirra stíll að vera á fullu allan tímann og ef þú nærð að höndla það þá áttu góða möguleika á að vinna en ef ekki þá lendir þú í vandræðum.“

Fannst Jakobi leikmenn sínir gefast upp of fljótt?

„Kannski ekki gefast upp of fljótt. Ég var ekki sáttur við vonleysið og einstaklingsframtakið sem var í seinni hálfleik.“

Að lokum var Jakob spurður að því hvort hann teldi að harka Stjörnumanna hafi komið hans mönnum á óvart.

„Hún ætti ekki að gera það. Þetta er þriðji leikurinn í seríunni og þeir ættu að vera tilbúnir í það.“

Baldur: Áhyggjur hvort ég sofni

Baldur Þór Ragnarsson gat verið mjög ánægður með að hafa tekið forystuna í einvíginu gegn KR í kvöld. Hvað breytti Stjarnan hjá sér í hálfleik til að keyra yfir KR-inga í seinni hálfleik?

„Varnarleikurinn hélt bara betur en í fyrri hálfleik og það var líka bara frábær frammistaða á sóknarhelmingnum. Strákarnir spiluðu hrikalega vel saman, það var ákefð og bara flottur leikur.“

Baldur var spurður að því hvort það hafi verið með ráðum gert að keyra meira á hringinn í byrjun en blaðamanni fannst það meira gert en í fyrri hálfleik.

„Ég meina það þýðir ekkert að vera ragur þegar þú ert kominn í úrslitakeppnina. Þú verður að nýta þína hæfileika og það þýðir ekkert að vera hikandi. Það gengur ekki.“

Heldur Baldur að þessi góði sigur sendi einhver skilaboð? Er hann kominn með lykilinn að KR?

„Bara alls ekki. Þetta er bara einn leikur. Þeir eru hrikalega góðir en við getum unnið þá þegar við spilum vel. Það er bara staðan. Þetta er bara sería og KR er frábært lið. Alvöru barátta í þessu.“ 

Hvaða áhyggjur sér Baldur fyrir sér að þurfa að hafa fyrir næsta leik?

„Alltaf einhverjar áhyggjur skilur þú. Það er eins og það er. Maður er með þetta í hausnum allan sólarhringinn. Fyrstu áhyggjur er bara að fara að sofa.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira