Valur - Keflavík 79-78 | Sturluð sigurkarfa Kára Pálmi Þórsson skrifar 11. apríl 2026 21:15 Kári Jónsson sýndi og sannaði hve stórkostlegur hann er. Paweł/Vísir Kári Jónsson skoraði hreint ótrúlega þriggja stiga sigurkörfu fyrir Val í kvöld, þegar liðið hafði aðeins 0,4 sekúndur í lokasókn sína gegn Keflavík, í þriðja leik í 8-liða úrslitum Bónus-deildarinnar í körfubolta. Remy Martin virtist hafa tryggt Keflavík sigur þegar hann skoraði á lokasekúndu leiksins en Valsmenn fengu 0,4 sekúndur og það dugði til að koma boltanum í hendur Kára sem kastaði samstundis og setti niður þrist. Valsmenn unnu því 79-78 og eru komnir í 2-1 í einvíginu. Leikurinn fór nokkuð hægt af stað. Bæði lið skutu frekar illa utan af velli en Keflavík skoraði ekki körfu utan af velli fyrstu fjórar mínútur leiksins. En það kom ekki að sök því Valsmönnum gekk illa að koma boltanum í körfuna. Mirza Bulic sá svolítið um að draga vagninn fyrir Keflavík og skoraði hann fyrstu 10 stigin fyrir liðið. Hjá Valsmönnum dreifðist þetta mun meira. Þegar á leið í fyrsta leikhluta fóru liðin aðeins að skiptast á körfum og endaði fyrsti leikhluti 16-18. Annar leikhluti spilaðist svipað en liðin skiptust á körfum jafnt og þétt, þó var Keflavík einu skrefi á undan. Remy Martin fór að liðkast til. Fór að búa mikið til fyrir sig og sína samherja en hann átti hlut í síðustu 10 stigunum sem Keflvíkingar skoruðu fyrir lok fyrri hálfleiks. Staðan í hálfleik var 33-40 og allt leit mjög vel út fyrir Keflavík. Byrjunin á seinni hálfleik var svipað hæg og restin af leiknum en þar litu Valsmenn mun betur út. Fóru að hitta svolítið utan af velli og náðu að hlaupa aðeins á Keflvíkinga. Það skilaði því að þeir fóru með forystu í lokaleikhlutann en staðan var 55-52. Þá var komið að aðalmínútum leiksins. Bæði lið fóru að hitta betur, hlaupa hraðar og það fór heldur betur að hitna í kolunum. Valsmenn náðu einhvern vegin að vera skrefi á undan og fór Keyshawn Woods þar fremstur í flokki. Eiginlega alltaf þegar Val vantaði körfu þá steig hann upp og skoraði eina af sínum körfum af millifærinu eftir eitt drippl. Þegar um fjórar mínútur voru eftir af leiknum náðu Valsmenn sér í 7 stiga forskot. En Keflvíkingar breyttu því á tveimur mínútum og komu því niður í 1 stig. Staðan því 72-71 og 2:11 eftir á klukkunni. Þá hófust einhverjar ótrúlegustu lokamínútur sem hafa lengi sést. Frank Aron Booker byrjaði á því að setja niður sniðskot til að koma Val í þriggja stiga forystu en Craig Moller svaraði strax með þrist og jafnaði. Þá fór Keyshawn Woods hinum megin og kom Val yfir. Kelfvíkingar jafna síðan og ná boltanum aftur til þess að eiga lokaskotið. Þeir gera hárrétt og láta Remy Martin hafa boltann með fimm sekúndur á klukkunni. Hann sækir á körfuna og setur niður gríðarlega erfitt skot sem allir í húsinu héldu að hefði unnið leikinn. Það var svo aldeilis ekki því það voru 0,4 sekúndur eftir af leiknum. Valsmenn teikna eitthvað upp. Boltinn endar hjá Kára Jónssyni sem nær skoti og beint ofan í. Lokatölur 79-78 og Valsmenn verja heimavöllinn með þessu töfraskoti. Atvik leiksins Atvik leiksins er hreint út sagt ótrúlegt. Þetta skot hjá Kára Jónssyni er eitthvað það stórkostlegasta sem sést hefur lengi í íslenskum körfubolta. En þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kári setur niður töfraskot á móti Keflavík í úrslitakeppni. Stjörnur og skúrkar Remy Martin var stjarnan í smá stund þegar hann hélt hann hefði klárað leikinn fyrir Keflavík en svo kom Kári Jónsson og kláraði þá. Dómarar Jóhannes Páll, Gunnlaugur Briem og Eggert Þór voru saman í dag. Þeir stóðu sig bara fínt. Þurftu að róa bekkinn sitthvoru megin með tæknivillum en svo þurftu þeir að taka heldur betur stóra ákvörðun þegar þeir dæmdu skotið hans Kára sem körfu. Stemming og umgjörð Það var gríðarleg stemning á Hlíðarenda. Mikil fagnaðarlæti við hverja körfuna og þá sérstaklega við síðustu tvær körfurnar. Bónus-deild karla Valur Keflavík ÍF