Uppgjörið:Keflavík-KR 101-65: Keflavíkurkonur tryggðu sér oddaleik Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 13. apríl 2026 21:09 Emelía Ósk Gunnarsdóttir átti frábæran leik hjá Keflavík í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Bikarmeistarar Keflavíkur héldu sér á lífi í úrslitakeppni Bónusdeildar kvenna í körfubolta í kvöld og tryggðu sér jafnframt oddaleik í einvígi sínu á móti KR í átta liða úrslitum. Keflavík vann 36 stiga stórsigur á KR-konum, 101-65, eftir að hafa unnið þriðja leikhlutann 30-9. KR vann fyrsta leikhlutann 22-18 en þá vöknuðu heimakonur og sýndu af hverju það var búist við þeim í titilbaráttuna í ár. Emelía Ósk Gunnarsdóttir átti frábæran leik hjá Keflavík en var án efa kona kvöldsins. Keishana Washington var líka mjög góð með 19 stig, 9 fráköst og 12 stoðsendingar. Haukar, Njarðvík og Grindavík eru komin áfram en vita ekki um mótherja sína fyrr en eftir oddaleikinn í Vesturbænum á fimmtudagskvöldið. Leikurinn fór nokkuð fjörlega af stað og byrjaði KR mjög sterkt og fyrstu körfur þeirra í leiknum voru allar fyrir aftan þriggja stiga línuna sem bjó til örlítið andrými fyrir gestina úr Vesturbænum. Keflavík gaf þó ekkert eftir og elti þær eins og skugginn og fékk tækifærin til þess að sækja forystu en náðu ekki að nýta sér. KR leiddi eftir fyrsta leikhluta 18-22. Leikurinn sveiflaðist algjörlega í öðrum leikhluta og var Keflavík mun grimmari og voru fljótar að snúa leiknum sér í hag og rúmlega það. Á meðan ekkert gekk upp hjá gestunum í KR sem voru virkilega staðar sóknarlega var allt að falla fyrir Keflavík og litu þær út fyrir að ætla inn í hálfleikinn með örugga forystu. KR átti frábært svar undir lok leikhlutans þegar þær skoruði síðustu sjö stig fyrri hálfleiks og náði að minnka forystu Keflavíkur niður í eitt stig. Anna María Magnúsdóttir stal boltanum og náði að hlaupa upp völlinn og setja þriggja stiga flautukörfu. Keflavík leiddi í hálfleik 37-36. Keflavík gekk frá leiknum meira og minna í þriðja leikhluta þar sem þær leiddu KR liðið hreinlega til slátrunnar. Keflavík skoraði þrjátíu stig gegn níu og leiddi Keflavík með 22 stigum farandi inn í fjórða leikhluta 67-45. Það var löngu orðið ljóst í hvað stefndi í fjórða leikhluta en Keflavík steig þó ekkert af bensíngjöfinni og hélt bara áfram að berja á lánlausu liði KR. Keflavík fór að lokum með 36 stiga sigur 101-65 og tryggði sér oddaleik á Meistaravöllum á fimmtudaginn. Atvik leiksins Punkturinn á i-ið var líklega bara þristurinn frá Sofie Tryggedsson Preetzmann sem lokaði þriðja leikhlutanum með þrist fyrir Keflavík og um leið kláraði 30-9 leikhluta. Stjörnur og skúrkarAngelina Turmel var frábær í liði Keflavíkur í kvöld. KR átti fá svör við henni undir körfunni. Emelía Ósk Gunnarsdóttir var einnig öflug í liði Keflavíkur og setti 17 stig. Keishana Washington var stigahæst með 19 stig.Hjá KR var Molly Kaiser að reyna en fékk takmarkaða hjálp. Hún endaði leikinn með 16 stig.DómararnirBjarki Þór, Jakob Árni og Sófus Máni sáu um dómgæsluna í kvöld. Mér fannst þeir stundum full fljótir á sér að flauta villur og voru bæði lið með lykilmenn í villu vandræðum snemma.Stemingin og umgjörðÞað var fínasta mæting í Blue höllina í kvöld. Hefði viljað fá meiri hávaða og læti fyrr upp á stemningu að gera en það lét aðeins bíða eftir sér. Ef við tökum það út fyrir sviga var allt upp á rúmlega tíu. ViðtölHörður Axel Vilhjálmsson er þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta. Vísir/Pawel„Stór sigur en telur samt bara sem einn sigur“„Við spilum bara mjög vel og sérstaklega í seinni hálfleik“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson þjálfari Keflavíkur eftir sigurinn í kvöld.„Mér fannst takturinn í leiknum í raun mest allan tímann góður og eins og við viljum hafa hann“„Þetta var stór sigur en telur samt bara sem einn sigur þannig það er bara áfram gakk“Keflavík stakk af í seinni hálfleik í kvöld og valtaði yfir KR. „Það var bara þriðji leikhluti sem að var mjög góður hjá okkur og svo héldum við áfram. Það er eitthvað sem að við viljum vera og það er það sem mun koma okkur eins langt og við getum í þessari keppni“„Samheldnin og liðsheildin, hún var frábær í kvöld og eitthvað til að byggja á“Sigurinn í kvöld gefur Keflavík mikið sjálfstraust fyrir oddaleikinn á fimmtudaginn.„Þetta gefur okkur allavega það að við eigum leik á fimmtudaginn og næsti leikur er nýr leikur“„Hver leikur hefur sitt líf og auðvitað tökum við eitthvað út úr þessum leik sem að við gerðum vel og eitthvað sem að við getum bætt en að sama skapi byrjar þetta 0-0 á fimmtudaginn“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson. Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR.Vísir/Anton Brink„Að megninu til bara aumingjaskapur hjá okkur í kringum körfuna“„Það er allavega einn leikur inni“ sagði Daníel Andri Halldórsson þjálfari KR eftir tapið í kvöld.„Keflavík augljóslega að spila með bakið upp við vegg og þær fundu sinn takt bara nokkuð þægilega á móti mjög slökum varnarleik okkar“„Þetta var að megninu til bara aumingjaskapur hjá okkur í kringum körfuna aðalega og á öllum róteringum út í frábærar skyttur“Hvað var það sem kom Keflavík svona langt fram úr KR liðinu? „Mér finnst annar leikhluti bara eðlilegur, það hægist á leiknum og bæði lið skora minna og við erum ennþá bara að þreifa á hvor öðru“„Þriðji leikhlutinn og að mæta svona flatar til leiks í hálfleik einu stigi undir verður bara aldrei vænlegt til árangurs“„Að spila svo heilann hálfleik svona aumar, við tökum þrjú vítaskot í seinni hálfleik og það er bara ekki það sem við gerum. Við erum að fara sterkt á körfuna og það vantaði það bara í seinni hálfleik“„Önnur tilfelli þar sem við erum bara að spila fyrir sjálfar okkur og erum ekki að sjá opnanir á varnarleiknum þeirra“ sagði Daníel Andri Halldórsson. Bónus-deild kvenna KR Keflavík ÍF