Erlent
Flóð mannskæðustu hamfarirnar Flóð eru mannskæðustu náttúruhamfarirnar. Spáð er fimm til sjö fellibyljum á Mexíkóflóa á næstu þremur mánuðum. Hiti sjávar og lega loftstrauma í Atlanshafi bjóða ekki upp á að íbúar við Mexíkóflóa geti verið rólegir. Erlent 14.10.2005 06:41
Breskur bannlisti Stjórnvöld í Bretlandi hafa sett saman lista yfir hundrað menn, sem verður meinað að koma til Bretlands í nánustu framtíð. Listinn er unninn í samráði við sendiráð Bretlands víða um heim, sem hafa bent á menn sem tengjast hryðjuverkasamtökum, eða hafa hvatt til hryðjuverka. Erlent 14.10.2005 06:41
Launalækkun á meðgöngu Það er ekki kynjamisrétti að konur lækki í launum ef þær eru mikið frá vinnu vegna veikinda á meðgöngu. Þetta er niðurstaða Evrópudómstólsins. Írsk kona, Margaret McKenna, notaði allt sitt launaða veikindaleyfi erfiðri meðgöngu árið 2000 og þegar hún tók frí fram yfir það, þá voru laun hennar lækkuð um helming. Erlent 14.10.2005 06:41
Ríkisstjórnin rekin frá völdum Viktor Júshcenko, forseti Úkraínu, hefur vikið forsætisráðherra landins, Tímótsjenkó, og allri ríkisstjórn hennar frá völdum. Erlent 14.10.2005 06:41
Deilt um dauða Arafats Arafat lést vegna hjartaáfalls á síðasta ári, en sérfræðinga greinir á um hvað olli því. Bæði bandaríska dagblaðið New York Times og ísraelsk dagblöð hafa látið sérfræðinga yfirfara læknaskýrslur Arafats, en fram til þessa hafa aðstandendur hans ekki viljað gera þær opinberar. Erlent 14.10.2005 06:41
Meint kosningasvindl í Egyptalandi Ásakanir um kosningasvindl varpa skugga á fyrstu lýðræðislegu forsetakosingarnar í Egyptalandi, sem fram fóru í gær. Úrslitin munu væntanlega ekki liggja fyrir fyrr en á morgun, en andstæðingar Hoznis Mubarak, núverandi forseta, segja starfsmenn á kjörstöðum ýmist hafa skipað fólki að kjósa hann eða mútað því. Erlent 14.10.2005 06:41
Norskir kjósendur snúast til hægri Niðurstöður nýrra fylgiskannana í Noregi benda til þess að borgaraflokkarnir haldi meirihluta á norska þinginu. Mestu munar um að Vinstriflokkurinn, lítill frjálslyndur hægriflokkur, nær fjögurra prósenta markinu í tveimur nýjum könnunum og fengi allt að tíu þingsæti í stað tveggja. Erlent 14.10.2005 06:41
Schröder og Pútín semja um gas Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, og Vladimír Pútín Rússlandsforseti handsöluðu í gær samning um að lögð verði jarðgasleiðsla beint frá Rússlandi til Þýskalands, frá Viborg við botn Finnska flóa, 1.200 km eftir botni Eystrasalts til norður-þýsku borgarinnar Greifswald. Erlent 14.10.2005 06:41
Spilling í Úkraínu Tveir hátt settir menn innan ríkisstjórnar Úkraínu hafa sagt störfum sínum lausum. Yfirmaður öryggismála í Úkraínu bauðst í gærkvöldi til að hætta, í kjölfar ásakana um spillingu. Erlent 14.10.2005 06:41
i-Pod með farsíma Hlutabréf í Apple-fyrirtækinu tóku góðan kipp upp á við í dag, eftir að forstjóri fyrirtækisins kynnti til sögunnar iPod-farsíma og nýjan og enn minni spilara. Með I-pod spilaranum er hægt að hlaða niður tónlist af tölvu. Nýji síminn hefur alla þá tæknimöguleika sem i-pod spilarinn hefur, getur geymt og spilað 100 lög, er með litaskjá og innbyggðri myndavél. Erlent 14.10.2005 06:41
Þögn í erlendum miðlum Þegar meira en sólarhringur var liðinn eftir að Davíð Oddsson tilkynnti formlega um að hann myndi draga sig í hlé frá stjórnmálum þann 27. september næstkomandi var enn engar fréttir um þessi tímamót í íslenskum stjórnmálum að finna í erlendum fréttamiðlum. Að færeyskum miðlum undanskildum. Erlent 14.10.2005 06:41
Mubarak endurkjörinn Hosni Mubarak Egyptalandsforseti vann sigur í fyrstu forsetakosningunum í landinu þar sem fleiri en einn frambjóðandi var í boði, ef marka má fyrstu talningu allra atkvæða. Erlent 14.10.2005 06:41
Sýklamagn langt yfir hættumörkum Sýklamagnið í vatninu í New Orleans er tíu sinnum meira en hættumörk segja til um, samkvæmt fyrstu niðurstöðum úr efnagreiningu. Sýnin voru tekin úr íbúðahverfum og talið er að talsvert meira af sýklum og eiturefnum sé í vatninu í verksmiðjuhverfum borgarinnar. Erlent 14.10.2005 06:41
25 þúsund líkpokar Yfirvöld í New Orleans hafa haft til reiðu 25 þúsund líkpoka fyrir fórnarlömb fellibyljarins og flóðanna í borginni. Hjálparstarfsmenn búa sig undir að hreinsa líkin af götum borgarinnar um leið og allir íbúar hafa verið fluttir á brott. Erlent 14.10.2005 06:41
Aðgerðir gegn fuglaflensu Til að koma í veg fyrir að fuglaflensa smitist frá farfuglum í alifugla hafa sveitarstjórnir í tveimur þýskum héruðum gefið bændum fyrirskipanir um að hafa fiðurfénað sinn í búrum. Þetta eru héruð í Neðra Saxlandi og Norður Rín Vestfalen en þar eru vetrarstöðvar farfugla sem koma bæði frá Rússlandi og Asíu, þar sem flensunnar hefur orðið vart. Erlent 14.10.2005 06:41
Kalla eftir endurbótum á SÞ Ítarleg rannsókn á svonefndri olíu-fyrir-mat-áætlun Sameinuðu þjóðanna í Írak hefur leitt í ljós að samtökin eru hreinlega ekki fær um að annast svo umfangsmikil verkefni með skilvirkum hætti nema til komi róttækar endurbætur á stjórnsýslu þeirra. Þetta sagði Paul Volcker, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sem stýrði rannsókninni. Erlent 14.10.2005 06:41
Flutt með valdi frá New Orleans Bandarísk yfirvöld hafa nú misst þolinmæðina við þá sem neita að yfirgefa New Orleans, og eru að byrja að flytja þá á brott með valdi. Mikil hætta er talin á farsóttum í borginni. Erlent 14.10.2005 06:41
Fordæmi stuðning við hryðjuverk Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segist ætla að hvetja leiðtoga ríkja Sameinuðu þjóðanna, á fundi sem fyrirhugaður er í næstu viku, til þess að fordæma harðlega alla þá sem hvetja til hryðjuverka. Hann segir löngu tímabært að það verði gert. Erlent 14.10.2005 06:41
Handtók sjálfan sig Lögreglunemi í Nýja Sjálandi átti þátt í eigin handtöku vegna óupplýstrar líkamsárásar. Erlent 14.10.2005 06:41
Saddam hafi gengist við morðum Saddam Hussein hefur gengist við því að hafa líflátið fólk að sögn Jalals Talabanis, núverandi forseta Íraks. Í viðtali á írakskri sjónvarpsstöð í nótt sagðist Talabani hafa þetta eftir saksóknurum sem hefðu yfirheyrt Saddam. Í kjölfarið sagði Talabani að Saddam ætti skilið að vera hengdur tuttugu sinnum fyrir voðaverk sín sem gæfu hundrað ástæður til að dæma hann til dauða. Erlent 14.10.2005 06:40
Hagvöxtur minnkar ekki barnadauða Þrátt fyrir að hagvöxtur hafi aukist verulega í Kína og Indlandi er barnadauði enn hár meðal fátækra Kínverja og indverskra stúlkna, að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum. Erlent 14.10.2005 06:41
Talabani til Washington George Bush Bandaríkjaforseti tekur í næstu viku á móti Jalal Talabani, forseta Íraks, í Washington þar sem þeir munu ræða stöðu nýrrar stjórnarskrár í Írak og stríðið gegn hryðjuverkum. Nokkur styrr hefur staðið um íröksku stjórnarskrána sem samþykkt var á írakska þinginu síðasta mánuði og hafa súnnítar heitið því að vinna gegn því að hún verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu 15. október. Erlent 14.10.2005 06:41
Bilið milli fylkinga minnkar Heldur hefur dregið saman með kristilegum demókrötum og jafnaðarmönnum í Þýskalandi eftir sjónvarpskappræður leiðtoga flokkanna á sunnudagskvöld. Gerhard Schröder, núverandi kanslari, var almennt talinn hafa staðið sig heldur betur í kappræðunum en á móti kemur að Angela Merkel stóð sig samt betur en flestir höfðu átt von á. Erlent 14.10.2005 06:41
Ætti að vera líflátinn Saddam Hussein hefur játað að hafa framið morð og aðra glæpi á valdatíma sínum, að því er forseti Íraks, Jalal Talabani, skýrir frá. Meðal þeirra glæpa sem Saddam hefur játað á sig eru fjöldamorð á Kúrdum á síðari hluta níunda áratugarins. Erlent 14.10.2005 06:41
Heimilar brottflutning með valdi Enn eru um tíu þúsund manns í New Orleans og allt kapp er lagt á að koma þeim burt úr borginni. Her- og lögreglumenn gengu hús úr húsi í gærkvöldi og í nótt til að hafa uppi á fólki og hvetja það til að fara burt. Borgarstjóri New Orleans, Ray Nagin, hefur nú heimilað brottflutning með valdi, en hann segir það algera fásinnu að fólki sem ekki yfirgefi borgina sé meinað um mat og vatn, eins og haldið var fram í gær. Erlent 14.10.2005 06:40
Fórnarlömg flugslyss jörðuð Hundruð syrgjenda komu saman þegar fórnarlömb flugslyssins í Indónesíu voru borin til grafar í gær. Alls létust 148 manns í slysinu, um 101 farþegi í vélinni og 47 á jörðu niðri, en þotan, sem var af gerðinni Boeing 737-200 brotlenti í íbúðabyggð í borginni Medan. Erlent 14.10.2005 06:41
Líklegri til að missa sjónina Það er helmingi líklegra að reykingamenn missi sjónina en þeir sem ekki reykja. Nokkrar nýlegar rannsóknir benda til þess að tengsl reykinga við ótímabæra sjóndepru séu jafnsterk og við lungnakrabbamein. Stofnun blindra í Bretlandi ætlar að fara þess á leit að viðvörunum vegna þessa verði bætt við aðrar viðvaranir á sígarettupökkum. Erlent 14.10.2005 06:40
Beita hörku í New Orleans Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa nú ákveðið að beita hörku til þess að fjarlægja þá sem enn þrjóskast við að yfirgefa New Orleans. Erlent 14.10.2005 06:40
Moussa Arafat skotinn til bana Moussa Arafat, fyrrverandi yfirmaður öryggismála í Palestínu, var myrtur í morgun. Tugir byssumanna skutu úr sprengjuvörpum á heimili Arafats og réðust síðan inn og skutu hann til bana að sögn vitna. Ekki er ljóst hvort sonur hans, sem einnig var heima, náði að flýja eða hvort honum var rænt. Erlent 14.10.2005 06:40
Forsetakosningar í Egyptalandi Í morgun opnuðu kjörstaðir í Egyptalandi, en þar fara í dag fram fyrstu lýðræðislegu forsetakosningarnar. Mjög fáir hafa nýtt atkvæðisrétt sinn á fyrstu klukkutímunum, en fastlega er búist við að Hosni Mubarak nái kjöri og hefji í kjölfarið sitt fimmta kjörtímabil. Erlent 14.10.2005 06:40