

Ferðaþjónustan hefur tekið hratt við sér eftir faraldurinn en Ísland er nánast upp bókað næstu mánuði. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir greinina þó standa frammi fyrir ýmsum áskorunum þar sem tryggja þurfi að framboð sé í takt við eftirspurn.
Húkkaraballið, sem er óformlegt upphaf Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum, fór nokkuð vel fram í gærkvöldi og áætlað er að aldrei hafi fleiri sótt ballið. Skipuleggjendur Einnar með öllu á Akureyri ætla ekki að láta möguleikann á vondu veðri skemma verslunarmannahelgina fyrir sér.
Ísland er víða uppbókað um þessar mundir að sögn formann samtaka ferðaþjónustunnar. Íslenskir ferðamenn verða á ferðinni líkt og þeir erlendu um verslunarmannahelgina. Mikil eftirspurn er eftir útivistavörum en að sögn deildarstjóra hjá Fjallakofanum leitar fólk ekki aðeins á útihátíðirnar.
Víkingaskip, sem smíðað var í Brasilíu eftir norska Gaukstaðaskipinu, hefur eftir skrautlegt ferðalag, meðal annars niður Jökulsá á Breiðamerkursandi, fengið dvalarstað undir Horni við Hornafjörð þar sem það verður hluti af víkingaþorpi.
Skömmu fyrir klukkan sjö í kvöld fann áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar látna manneskju og telur lögreglan að líkur séu á því að um ferðamanninn sem leitað var að fyrr í dag sé að ræða.
Við gerð síðustu kjarasamninga milli Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambands Íslands var gengið frá bókun um leigu húsnæðis í tengslum við ráðningarsamning starfsfólks í ferðaþjónustu. Ákvæðinu er ætlað að tryggja betur öryggi starfsmanna við þessar aðstæður, enda aðkallandi þörf.
Búið er að opna útsýnispallinn á Bolafjalli til bráðabirgða. Vegurinn sem liggur að útsýnispallinum, sem hefur verið í slæmu ásigkomulagi að undanförnu, var heflaður og rykbundinn í sumar svo aðkoman er orðin allt önnur.
Hjónin á bænum Völlum í Svarfaðardal kalla ekki allt ömmu sína þegar um verslun og viðskipti er að ræða því þau eru með litla sveitabúið á hlaðinu hjá sér þar sem hægt er að fá allskonar sælkeravörur úr ræktun þeirra. Bleikja er líka ræktuð í tjörn á bænum.
Hún er ekki nema tuttugu og tveggja ára en á og rekur einn vinsælasta veitingastað á Ströndum, Café Riis á Hólmavík. Hér erum við að tala um Guðrúnu Áslu Atladóttur, sem hefur auk þessa lokið BA-gráðu í arkitektúr.
Norðlendingar eru í skýjunum með það hvað ferðasumarið hefur gengið vel fram að þessu og þeir reikna með að það verði allt fullt af ferðamönnum á svæðinu fram á haust. „Það er allt vitlaust að gera“, segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.
Það er fallegt á Seyðisfirði og fossinn við bæinn, Búðarárfoss er ótrúlega flottur. Mjög mörg falleg hús er á staðnum, menningar og mannlíf er gott að bæjarandinn er til fyrirmyndar. Íbúar staðarins eru allavega mjög ánægðir með að búa á Seyðisfirði.
Ævintýraljósmyndarinn Chris Burkard hefur verið á heldur óhefðbundnu ferðalagi um suðurströnd landsins síðustu vikuna. Suðurströndina þræddi hann á fjallahjóli, frá Djúpavogi til Þorlákshafnar, milli þess að skella sér á uppblásinn kajak til að komast yfir ótal árnar sem renna í Atlantshafið. Chris segir ferðalagið eitt það erfiðasta sem hann hefur tekist á við hér á landi.
Það hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikið að gera hjá Kidda vídeóflugu eins og í sumar í sjálfsalanum hans fyrir ferðamenn, sem er staddur á milli Egilsstaða og Borgarfjarðar eystri. Ferðamenn eru líka duglegir að skilja eftir miða í sjálfsalanum og þakka Kidda fyrir framtakið.
Hótel víða um land eru uppbókuð vegna stríðs straums erlendra ferðamanna. Hótelstjóri á landsbyggðinni segir þetta vera eitt besta ferðamannasumar sem hann muni eftir.
Heilbrigðisstofnanir landsins hafa verið undir miklu álagi undanfarið, erfiðara hefur reynst að manna vaktir og ferðamannastraumur hefur bætt gráu ofan á svarta Covid-bylgju. Forsvarsmenn heilbrigðisstofnana eru sammála um að mjög þungt sé að sinna aðsókninni nú í sumar.
Tæplega 180 þúsund erlendir ferðamenn ferðuðust um Ísland í síðasta mánuði, nærri þrefalt fleiri en á sama tíma í fyrra. Hótelstjórar um land allt hafa tekið eftir aukningunni og segja nánast uppbókað í allt sumar.
Varaformaður félags leiðsögumanna segir sóðaskap á ferðamannastöðum hér á landi hafa aukist til muna. Hann segir það vera staðarhaldara að halda náttúruperlum hreinum.
Greinilegt er að margir þeirra evrópsku ferðamanna sem komnir eru hingað til lands eru fegnir að vera lausir undan ofurhitanum á meginlandinu og í Bretlandi. Við hittum nokkra þeirra fyrir í miðbæ Reykjavíkur í dag.
Mun færri Íslendingar hafa sést á tjaldsvæðum Austfjarða í ár en í fyrra og þar spyrja menn sig hvort sólarlandafrí hafi orðið ofan á hjá landsmönnum þetta sumarið. Tímabil erlendra ferðamanna virðist hins vegar vera að lengjast.
Kristján Hlynur Ingólfsson hefur undanfarin tvö ár tekið saman upplýsingar um dauðsföll ferðamanna á Íslandi og er núna búinn að búa til kortasjá sem sýnir hvar á landinu ferðamenn hafa dáið. Hann segir þrjá staði á Suður- og Suðvesturlandi vera stærstu álagssvæðin.
Fjallaböðin í Þjórsárdal eru á lokastigi hönnunar, en stefnt er að því að byggingarnar verði með þeim allra umhverfisvænstu í Evrópu. Heilt hverfi starfsmannaíbúða mun jafnframt rísa í Árnesi í Gnúpverjahreppi sem unnið er að með heimamönnum.
„Af hverju að skrifa núna?“ „Til hvers að segja frá og leiðrétta?“ „Nú þegar rykið er sest og umræðan fallin í gleymsku.“ Þetta sagði ég þegar ég var hvattur til að stíga fram og nota röddina sem við öll höfum. Svarið er þó ekki flókið. Á meðan árasir, ofbeldi, sögusagnir og lygar grassera í minn garð fæ ég ekki rými til að halda áfram með líf mitt. Og hingað erum við komin.
Sjóböðin í Hvammsvík í Hvalfirði voru formlega opnuð í dag en böðin eru byggð í kringum gömlu náttúrulaugina í fjöruborðinu í Hvammsvík og samanstanda af átta misheitum laugum.
Kári Jónasson, leiðsögumaður og fyrrverandi fréttamaður, segir að Icelandair þurfi samkeppni á innanlandsflugsmarkaði þar sem félagið hafi færst of mikið í fang. Samkeppni sé öllum til góðs.
Þrjú skemmtiferðaskip höfðu boðað komu sína á Akureyri í dag en aðeins var pláss fyrir tvö þeirra við bryggjuna. Því þurfti eitt skipið að kasta akkeri á Pollinum.
Göngum um Ísland er stórskemmtilegt átaksverkefni UMFÍ og Vísis í samstarfi við Optical studio. Átakið hefst 15. júlí og gengur út á að njóta íslenskrar náttúru í botn.
Þrátt fyrir mikla eftirspurn eftir gistingu hér á landi í sumar telur framkvæmdastjóri Edition hótelsins, Ísland samt ekki uppselt. Mjög erfiðlega gengur hins vegar að finna starfsfólk til að vinna í ferðaþjónustunni víðast hvar.
Ferðamenn streyma nú til landsins eftir kórónuveirufaraldurinn. Fréttastofa náði tali af nokkrum þeirra en íslenska náttúran virtist heilla þá hvað mest. Allir voru sammála um að vilja koma aftur, sumir fyrr en aðrir.
Ferðamönnum hér á landi fjölgar áfram en nær þó ekki sama fjölda og árin fyrir faraldur. Sérfræðingur hjá Ferðamálastofu segir að horfa þurfi til þess að ferðavenjur hafi breyst. Kortavelta hafi til að mynda aldrei verið meiri og fólk dvelji lengur hér á landi.
Kortavelta erlendra ferðamanna hér á landi var 28,3 milljarðar króna í júní. Það er aukning um 27,4 prósent á milli ára og hefur veltan aldrei mælst hærri í júnímánuði frá því mælingar hófust árið 2012.