
Ferðaþjónusta

Íslensk ferðaþjónusta á tímamótum
Það hefur ekki farið fram hjá neinum að mikill vöxtur hefur verið í íslenskri ferðaþjónustu á undanförnum árum.

Stefnir í verkfallsaðgerðir hjá Bláa lóninu
Verkalýðsfélag Grindavíkur fundar annað kvöld um fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir. Félagið mun fylgja fordæmi Eflingar og VR og herja á ferðaþjónustuna.

Stórtækir vasaþjófar herja á ferðamenn
Varað við vasaþjófnaði á fjölsóttum ferðamannastöðum.

Amman í Jökulsárlóni lýsir hrakförunum: "Þá byrjaði hásætið að velta“
Judith Streng, bandarískur ferðamaður sem var stödd hér á landi í vikunni, lýsir því þegar hún komst í hann krappann við Jökulsárlón á þriðjudag í samtali við bandarísku fréttastofuna ABC í dag.

Starfsemi stærstu hótela og rútufyrirtækja myndi lamast
Starfsemi allra stærstu hótela landsins mun meira og minna lamast komi röð verkfalla starfsmanna Eflingar og VR sem félögin greindu frá í dag til framkvæmda.

Hræðast áhrif yfirvofandi verkfallsaðgerða
Ferðaþjónustuaðilar óttast að yfirvofandi verkfallsaðgerðir skaði samkeppnishæfni Íslands á alþjóðlegum markaði. Þegar hafa borist afbókanir á hótel og spurst út til ferðamanna að hætta sé á verkföllum á næstunni.

Svæðinu við Geysi varla viðbjargandi vegna ágangs ferðamanna
Umhverfisráðherra vill takmarka fjölda inn áákveðin svæði á meðan unnið er að uppbyggingu.

Steig línudans á brúnni við Jökulsárlón: „Síðasti hálfvitinn er sko ekki fæddur!“
Ferðamaður gerði sér að leik að ganga á milli kaplanna á brúnni við Jökulsárlón á öðrum tímanum í dag.

Alda bar ömmu frá Íslandsströndum
Bandarískur ferðamaður komst í hann krappan við Jökulsárlón á þriðjudag þegar ísjaki sem hann hafði sest á flaut út á sjó.

Gistinóttum fækkar milli ára
Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum í janúar síðastliðnum voru um 543.000, en þær voru um 566.000 í sama mánuði fyrra árs.

Island Aviation fær útgefið flugrekstrarleyfi
Félagið mun hefja flugrekstur í Reykjavík í útsýnisflugi.

Tilboðum í Icelandair Hotels skilað í vikulok
Fjárfestar sem fóru áfram í aðra umferð söluferlisins á Icelandair Hotels, dótturfélagi Icelandair Group, hafa frest fram til 1. mars næstkomandi til að skila inn skuldbindandi tilboðum í hótelkeðjuna, samkvæmt heimildum Markaðarins.

Ferðamálaráðherra segir fólk ekki nærast á verðbólgu og vaxtahækkunum
Ferðamálaráðherra segir fólk ekki borða óstöðugleika, verðbólgu og vaxtahækkanir frekar en meðaltöl í launahækkunum.

Fjaðrárgljúfur lokað næstu tvær vikurnar
Umhverfisstofnun mun loka Fjaðrárgljúfri í Skaftárhreppi fyrir umferð gesta klukkan níu í fyrramálið, miðvikudaginn 27. febrúar.

Veðurtepptir ljósmyndarar láta veðrið ekki á sig fá
Stór hópur erlendra ljósmyndara bíður nú af sér óveðrið sem gengur yfir landið á Sel Hóteli við Mývatn. Bálhvasst er í Mývatnssveit en ferðamennirnir eru hinir rólegustu að sögn hótelstjórans.

Ráðast í aðgerðir eftir svik Procar
Bílgreinasambandið mun innan tíðar opna fyrir aðgang að ökutækjaskrá þar sem hægt verður að kanna hvort tiltekinn bíll hafi verið til umráða hjá bílaleigu en í eigu fjármögnunarfyrirtækis.

Gengið vel að ná til erlendra starfsmanna
Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun starfsmanna Eflingar sem starfa við þrif og hreingerningar á hótelum og gistihúsum hófst í gær. Samtök atvinnulífsins telja atkvæðagreiðsluna ekki standast lög og hvetja Eflingu til að stöðva hana.

Áhyggjur innan hótelgeirans
Þungt hljóð í rekstraraðilum innan hótelgeirans. Framkvæmdastjóri Hótel Sögu segir launakostnað víða um helming útgjalda. Framkvæmdastjóri Íslandshótela segir svigrúm til launahækkana, en ekki mikilla.

Krefjast tíðari moksturs á Dettifossvegi
Stjórn Markaðstofu Norðurland segir að þjónusta Vegagerðarinnar við Dettifossveg að vetrarlagi sé óásættanleg. Ekki sé boðlegt að vegurinn að einni helsti náttúruperlu landsins sé aðeins mokaður tvisvar sinnum á ári að vetrarlagi

SAF ósátt við hvalveiðar
Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) lýsir í ályktun yfir vonbrigðum með þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra að heimila veiðar á langreyði og hrefnu til næstu fimm ára. Verið sé að fórna meiri hagsmunum fyrir minni.

Afmörkuð aðgerð utan við móðurplan stéttarfélaganna
Hótelstjóri og stjórnarmaður í Samtökum ferðaþjónustunnar hefur miklar áhyggjur af áhrifum mögulegra verkfallsaðgerða á starfsemi hótela og gistihúsa.

„Ekkert fyrirtæki í neinu landi“ gæti staðið undir kröfum verkalýðsforystunnar
Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir skýrt að verkalýðsforystan ætli að valda sem mestu tjóni til að ná fram kröfum sínum.

Loka svæði við Skógafoss
Umhverfisstofnun hefur lokað svæði við Skógafoss vegna mikilla leysingja og ágangs ferðamanna.

Dettifoss: Lokað!
Ferðamaður vill komast að Dettifossi að vetri til. Ekki furða, hann vill fá að sjá aflmesta foss Evrópu og einstaka náttúruperlu.

Ísland ekki rústir einar eftir ferðamenn
Ísland er ekki rústir einar líkt og skilja má á viðbrögðum fólks við frétt þess efnis að Færeyingar ætli að loka eyjunum sínum vegna viðhalds eina helgi í apríl næstkomandi.

Bílaleigurnar þrjár ekki í SAF
Bílaleigur sem fjallað var um í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær, vegna breytinga á kílómetrastöðu bíla, eru ekki í Samtökum ferðaþjónustunnar. Framkvæmdastjóri samtakanna segir að þeim hafi borist ábendingar um bílaleigur þar sem grunur leikur á að átt hafi verið við mæla í bílum. Málið sé erfitt fyrir allar bílaleigur á Íslandi.

Ljósmyndarar hræddust ekki ölduganginn í Reynisfjöru
Mjög hvasst og ölduhæð mikil í morgun.

Forskoða ferðamenn
Ferðamenn á leið til Íslands utan Schengen-svæðisins munu þurfa að fylla út sérstakt eyðublað áður en þeir koma til landsins, svokallaða ETIAS-forskráningu.

Gætu hafa stofnað öryggi farþega í hættu með mælasvindlinu
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir að það sé grafalvarlegt mál að eiga við kílómetramæli bíls. Það sé ekki aðeins fjárhagslegt tjón sem gæti hlotist af svindli Procar heldur snerti málið einnig öryggi farþega.

Svarið við ófærð að fá vélsleðamenn á hótelið
Hótel Djúpavík er orðinn stærsti vinnustaður Árneshrepps en líður fyrir það að vegurinn þangað er ófær yfir háveturinn. Svar ráðamanna hótelsins er að gera út á vélsleðamenn.