Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

Í Evrópu­sam­bandinu eru réttindi verka­fólks á for­sendum markaðarins

Þess misskilnings gætir að Evrópusambandið sé hinn eini sanni boðberi mannréttinda, í breiðri merkingu þess orðs, í heiminum. Það er ekki svoleiðis. Í þessari grein er fjallað um hvernig Evrópusambandið gengur út á markaðsvæðingu samfélagsins í þágu þeirra sem eiga en á kostnað þeirra sem lítið eiga annað en sjálfa sig.

Skoðun
Fréttamynd

Vilja leiða þjóðina blinda til Brussel

Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, er lesendum Vísis að góðu kunnur enda notar hann þennan vettvang ítrekað þegar hann gefst upp á því að teygja og toga sannleikann á sinni eigin bloggsíðu.

Skoðun
Fréttamynd

„Má þetta til sanns vegar færa“

Hérlendir Evrópusambandssinnar, með forystumenn ríkisstjórnarinnar í broddi fylkingar, hafa í umræðunni að undanförnu þvertekið fyrir það að umsóknarferlið að Evrópusambandinu gangi út á aðlögun að regluverki þess. Einungis væri um einfaldar viðræður að ræða en ekki ferli sem fæli í sér slíka aðlögun. Þvert á gögn sambandsins sjálfs.

Skoðun
Fréttamynd

Er þetta boð­legt fyrir full­valda þjóð?

Byggt á minni fyrri reynslu úr sendiráðinu í Brussel og sem formaður samgöngunefndar EFTA/EES í mörg ár finnst mér viðeigandi, gagnlegt og vonandi fróðlegt fyrir einhverja að fara yfir aðkomu Íslands, Noregs og Liechtenstein (EES-ríkjanna) að löggjafarferli Evrópusambandsins (ESB) nú þegar þjóðin stendur líklega frammi fyrir ákvörðun um hvort hefja skuli aðildarviðræður að nýju síðar á þessu ári.

Skoðun
Fréttamynd

Ó­pólitískur fróð­leiks­moli um ESB

Frá sama Vísindavef Háskóla Íslands og færði okkur hér um árið ópólitískan fróðleiksmola prófessors í lífupplýsingafræði, þar sem skorið var úr um það með miklum vísindum að kyn mannsins væru í rauninni fleiri en tvö, fáum við nú ópólitískan fróðleiksmola um íslenska tungu og ESB.

Skoðun
Fréttamynd

Setjum lýð­ræðið framar flokkshagsmunum

Hugmyndafræði svokallaðrar lýðræðisjafnaðarstefnu er sú sem hefur nú verið ríkjandi á Norðurlöndum svo lengi sem elstu menn muna. Löndum sem eru almennt álitin bestu lönd í heimi hvað varðar lífsgæði, öryggi og hamingju þeirra sem þar búa. Norðurlandaþjóðirnar hafa enda byggt upp sín samfélög með áherslu á frjáls viðskipti, félagslegt réttlæti, öryggi og heiðarleika.

Skoðun
Fréttamynd

Hópurinn sem myndi hagnast mest

Minn ágæti vinur, Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, var með grein á Vísi um helgina þar sem hann hélt því fram að þrír hópar á Íslandi myndu hagnast mest á inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Íslenzkt atvinnulíf, fólk og fyrirtæki sem skuldi og fólk sem búi utan höfuðborgarsvæðisins. Rökin sem hann færði fram í þeim efnum standast hins vegar ekki skoðun. Þeir myndu í raun ekki hagnast á því frekar en flestir aðrir. Skoðum þetta aðeins nánar.

Skoðun
Fréttamynd

ESB og sjávar­út­vegurinn: Hver á að ráða hafinu við Ís­land?

Það er stundum talað um að opna sjávarútvegskafla í aðildarviðræðum við Evrópusambandið eins og um einhvers konar formsatriði sé að ræða, tæknilegt skref í langri stjórnsýsluferð. En það er blekking. Þegar kemur að sjávarútvegi snýst málið ekki um formsatriði heldur fullveldi, atvinnu, byggðir og stjórn á verðmætustu auðlind þjóðarinnar.

Skoðun
Fréttamynd

Kvótahopp og ESB

Í nýlegri grein hér á Vísi fjallar ágætur maður um sjávarauðlindina og hugsanlega ESB-aðild. Hann hafnar þeirri fullyrðingu að við inngöngu myndu erlendir aðilar kaupa upp íslensk skip, leggja niður sjávarpláss og flytja aflann óunninn úr landi. Hann segist hafa „aðeins“ kynnt sér málið og komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé einfaldlega ekki rétt. Því miður virðist rannsóknarvinna þessa ágæta manns hafa stoppað áður en komið er að raunverulegum kjarna málsins: Grunnsáttmálum Evrópusambandsins.

Skoðun
Fréttamynd

Já­kvæð á­hrif Kópavogsleiðarinnar

Umræða um leikskólamál hefur verið lífleg undanfarið og Kópavogsleiðin sérstaklega til umræðu. Skoðanir eru skiptar, eins og eðlilegt er þegar gerðar eru breytingar á mikilvægu samfélagskerfi.

Skoðun
Fréttamynd

Já eða Nei - Til­raun til að ramma inn um­ræðuna

Nú hefur ríkisstjórnin boðað að við Íslendingar fáum tækifæri til að greiða atkvæði um hvort við veitum henni heimild til að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið og þar með svara spurningum um hvað full aðild að sambandinu myndi fela í sér fyrir Ísland.

Skoðun
Fréttamynd

ESB-umræðan leysir ekki efna­hags­vandann

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur sett aðildarviðræður við Evrópusambandið á dagskrá, þvert á það sem hún lofaði fyrir síðustu kosningar. Nú hertekur sú umræða allt, en mjög heppilega fyrir ríkisstjórnina á sama tíma og staða efnahagsmála hér á landi er erfið. Ríkisstjórninni gengur ekkert í baráttunni við vexti og verðbólgu út af eigin ákvörðunum og atvinnuleysi þýtur upp.

Skoðun
Fréttamynd

Ó­virðing við sveitarstjórnarstigið

Sveitarstjórnarkosningar fara fram eftir rétt rúmlega níu vikur, þar sem páskavikan er inni í tímabilinu. Framboð eru að mótast og stefnumál þeirra verða smám saman sýnileg. Fyrir öll sveitarfélög skipta þessar kosningar miklu máli, enda marka þær upphaf næstu fjögurra ára í rekstri og uppbyggingu nærsamfélaga.

Skoðun
Fréttamynd

Fólk sem treystir ekki þjóð til að hafa vit fyrir sjálfri sér

Nú liggur fyrir að ríkisstjórn Íslands ætlar að fela íslenskri þjóð að ákveða eigin örlög og hefur efnt til þjóðaratkvæðis um hvort landið eigi að fara í viðræður um aðild að Evrópusambandinu. Þar er ekki verið að spyrja hvort Ísland eigi að ganga inn, heldur hvort það eigi að fara í viðræður á ný.

Skoðun
Fréttamynd

Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til for­sætis­ráð­herra Ís­lands

Kæra Kristrún Frostadóttir.Við vonum að þú hugleiðir vandlega efni þessa bréfs og svarir því.Ríkisstjórn þín hefur upplýst að Alþingi muni boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB þann 29. ágúst næstkomandi. Flestir virðast því hlyntir og það er almennt til fyrirmyndar að kalla fram vilja kjósenda í mikilvægustu málefnum samfélagsins. Ef heiðarlega er að verki staðið styrkir það lýðræði og traust, ekki síst milli stjórnvalda og borgara landsins.

Skoðun
Fréttamynd

ESB-pakkinn er gal­opinn

Börn eiga oft erfitt síðustu dagana og klukkustundirnar áður en jólahátíðin gengur í garð. Fallega innpakkaðar gjafir bíða þess að vera opnaðar eftir að klukkan slær sex á aðfangadag. Við þekkjum öll þessa barnslegu og fallegu eftirvæntingu. Eitthvað óráðið í loftinu, allt getur gerst.

Skoðun
Fréttamynd

Inga Sæ­land og sjálf­stæðið

Ég á marga vini og kunningja sem spyrja nú: af hverju ekki að leyfa þjóðinni að ráða? Er hún ekki best til þess fallin? Ef meirihlutinn segir já, eigum við þá ekki að kíkja í pakkann? Ef okkur lýst ekki á innihaldið þá bara segjum við nei. Lýðræðisveisla! Eins og sumir kalla það. Þetta er afstaða sem horfir framhjá sögu okkar. Og lýsir um leið vantrú á getu okkar sjálfra til að stjórna okkar eigin málum.

Skoðun
Fréttamynd

Flott em­bætti í boði fyrir ESB ríki

Samfylking, Viðreisn og Flokkur fólksins hafa sett ESB aðild rækilega á dagskrá á ný með fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðild Íslands að ESB var síðast á dagskrá vinstristjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur sem stóð fyrir umsókn að ESB árið 2009. Sama ríkisstjórn ákvað síðan að gera „hlé“ á viðræðunum árið 2013.

Skoðun
Fréttamynd

Evrópusambandssinnar - það er bannað að plata!

Það muna allir eftir fleygum orðum núverandi forsætisráðherra í aðdraganda síðustu kosninga, þegar hún lýsti því yfir að Evrópusambandsumsókn væri ekki á teikniborðinu og bætti svo við að það væri "bannað að plata".

Skoðun
Fréttamynd

Að „kíkja í pakkann“ sem er nú þegar opinn

Nú á að blása til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi samningaviðræður við Evrópusambandið til að „kíkja í pakkann“ og gefa þjóðinni færi á að taka upplýsta ákvörðun um inngöngu í kjölfarið.

Skoðun
Fréttamynd

Það sem koma skal?

Fyrir Alþingi liggur tillaga utanríkisráðherra um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu þann 29. ágúst næstkomandi.

Skoðun
Fréttamynd

„Þið vitið full­kom­lega hvað er í pakkanum“

„Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum,“ sagði Uffe heitinn Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, við mbl.is í marz 2017 en hann var mikill hvatamaður þess að Ísland gengi í Evrópusambandið, var hér oft í veiði og þekkti umræðuna hér vel.

Skoðun
Fréttamynd

Sjávarauðlindin í ESB

Á næsta hálfa ári munum við örugglega sjá ansi marga segja þetta, eða eitthvað álíka: “... skipin væru í erlendri eign og með erlendri áhöfn. Sjávarplássin á Íslandi myndu leggjast af og allur fiskur fluttur óunninn úr land”.

Skoðun
Fréttamynd

Þjóðin kölluð að borðinu

Hugsanleg aðild Íslands að Evrópusambandinu er stórmál og aðild kemur ekki til greina án beinnar þátttöku þjóðarinnar. Stefna ríkisstjórnarinnar í málinu er skýr og um hana er einhugur meðal stjórnarflokkanna. Þjóðin á að ráða för.

Skoðun