Isavia
1 2 ›
Stórhættuleg eiturlyf flæða til landsins í sögulegu magni Aldrei hefur verið lagt hald á eins mikið magn örvandi fíkniefna á Keflavíkurflugvelli og í ár. Þá hafa stórfelld eiturlyfjamál á flugvellinum aldrei verið fleiri. Neysla á nýju afar hættulegu efni virðist vera að færast í aukanna. Yfirlögfræðingur Lögreglunnar á Suðurnesjum segir þetta benda til gríðarlegs framboðs og eftirspurnar. Innlent 24.11.2025 19:06
Kjaradeilu flugumferðarstjóra og Isavia vísað til gerðardóms Flugumferðarstjórar og Isavia hafa komist að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að vísa kjaradeilu sinni í gerðardóm. Er það gert í ljósi þess að lítið hefur þokast áfram í kjaraviðræðum og sjónarmið Félags íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) ítrekað verið hundsuð, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. Yfirvinnubanni sem boðað hafði verið frá og með 25. nóvember hefur verið aflýst. Innlent 20.11.2025 16:38
Flugumferðarstjórar boða til yfirvinnubanns Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur boðað yfirvinnubann sem hefst á miðnætti þann 25. nóvember næstkomandi. Enn hefur ekki náðst samkomulag í kjaradeilu félagsins og Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd Isavia. Félagið segir að ef ekki fæst fólk til að vinna yfirvinnu þurfi að skerða þjónustu og beina fleiri flugvélum fram hjá íslensku flugstjórnarsvæði. Innlent 18.11.2025 07:49
Flugvél lenti í Keflavík vegna bilunar Flugvél á vegum finnska flugfélagsins Finnair sem var á leið frá Helsinki til New York lenti á Keflavíkurflugvelli vegna bilunar í búnaði. Samhæfingarmiðstöð almannavarna var virkjuð, en þegar vélin hafði lent án vandræða var allt viðbragð afturkallað. Innlent 15.11.2025 22:03
Mun fljúga milli Keflavíkur og Montreal næsta sumar Kanadíska flugfélagið Air Transat hefur ákveðið að hefja flug til Íslands. Viðskipti innlent 14.11.2025 10:47
Ferðin á Keflavíkurflugvöll það erfiðasta við utanlandsferðina Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir Isavia einungis telja það hlutverk sitt að hámarka tekjur af samgöngum til og frá Keflavíkurflugvelli. Því sé svo dýrt að leggja þar og ferðast til og frá flugvellinum með almenningssamgöngum. Innlent 5.11.2025 11:12
Varaflugvallagjaldið og flugöryggi Í dag, 1.nóvember, eru liðin tvö ár síðan byrjað var að rukka varaflugvallagjald á nýjan leik. Gamla varaflugvallagjaldið var lagt af í maí 2011 og hafði það slæmar afleiðingar á flugvallakerfi landsins. Niðurlagning þess var mikið óheillaskref og varúðarorð þeirra sem best þekktu til voru að engu höfð. Skoðun 1.11.2025 10:02
Tekjur Isavia jukust um tæpa 1,2 milljarða króna milli ára Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á fyrri helmingi ársins 2025 var jákvæð um 4.245 milljónir króna samanborið við 3.213 milljónir króna fyrir sama tímabil á síðasta ári. Það er betri niðurstaða en upphaflegar áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir og nemur aukningin um 1.032 milljónum króna. Viðskipti innlent 24.10.2025 12:34
Play skuldi Isavia hálfan milljarð króna Hið gjaldþrota flugfélag Play er sagt skulda Isavia um hálfan milljarð króna. Þrátt fyrir það fengu kínverskir eigendur síðustu Play-vélarinnar á Keflavíkurflugvelli leyfi til að fljúga með vélina úr landi í dag. Innlent 5.10.2025 20:01
Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli Umfangsmikil flugslysaæfing verður haldin á Reykjavíkurflugvelli í dag. Helstu viðbragðsaðilar koma að æfingunni en gera má ráð fyrir að þátttakendurnir verði yfir þrjú hundruð. Innlent 4.10.2025 09:33
Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína Eina Play-flugvélin sem er eftir á Íslandi er í eigu kínversks félags en óljóst er hvort, og þá hvenær, eigendurnir geti sótt vélina til Íslands þar sem Play skuldar Isavia lendingargjöld. Innlent 2.10.2025 22:27
Isavia gefur strandaglópum engin grið Strandaglópar sem komast ekki til landsins vegna falls Play og eru með bíla sína á bílastæði Isavia við Keflavíkurflugvöll þurfa að greiða fyrir viðbótardaga í stæðunum. Viðskipti innlent 1.10.2025 10:41
Play með sex prósent flugsæta til og frá landinu Miðað við nýlega flugáætlun Play fyrir næsta árið hefði félagið verið með tæplega sex prósent af öllum flugsætum til og frá Keflavíkurflugvelli næsta árið hefði félagið ekki farið í þrot. Þrátt fyrir helmingi minna umfang hefði flugfélagið áfram verið næststærsti viðskiptavinur Isavia á eftir Icelandair sem er með 65 prósent flugsæta. Viðskipti innlent 30.9.2025 15:00
Verulegt högg fyrir ferðaþjónustuna Gjaldþrot Play er verulegt högg fyrir ferðaþjónustu hér á landi að minnsta kosti næstu mánuðina. Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar og jafnframt að því fylgi nokkur óvissa þegar kemur að bókunum hjá ferðaþjónustufyrirtækjum í vetur. Innlent 30.9.2025 11:58
„Þrisvar sinnum hefur mér verið hótað lífláti“ Leigubílstjórinn Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý hönter, segir það oft á tíðum hafa verið ömurlegt hlutskipti að birta opinberlega myndbönd af því sem er að gerast á leigubílamarkaðnum á Íslandi. Lífið 24.9.2025 10:05
Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Herrafataverslunin Kormákur og Skjöldur hverfur úr Leifsstöð síðustu mánaðamót eftir þriggja ára veru. Verslunin hefur verið með svokallað „pop-up“ á þremur ólíkum stöðum á flugstöðinni frá júlí 2022. Viðskipti innlent 10.9.2025 14:30
Sante fer í hart við Heinemann Sante ehf. sem heldur úti netverslun með áfengi hefur lagt fram lögreglukæru á hendur Heinemann Travel Retail Ice ehf. vegna smásölu félagsins í tollfrjálsri verslun á Keflavíkurflugvelli. Viðskipti innlent 19.8.2025 18:05
Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Bandaríska flugfélagið Alaska Airlines mun hefja beint flug á milli Keflavíkurflugvallar (KEF) og Seattle sumarið 2026. Viðskipti innlent 5.8.2025 12:24
Handtekinn með reipi um hálsinn eftir ofsaakstur á flugbraut undir áhrifum fíkniefna Landsréttur ógilti í dag gæsluvarðhald yfir manni sem er sakaður um glannaakstur á stolnum bíl um flugbraut Keflavíkurflugvallar. Ökuníðingurinn var að sögn lögreglu undir áhrifum fíkniefna og með reipi um hálsinn þegar hann var handtekinn. Þá hafði hann ekið á tvöföldum hámarkshraða á Reykjanesbraut og einnig reynt að komast inn í kyrrstæða flugvél. Innlent 1.8.2025 17:54
Isavia braut lög á Keflavíkurflugvelli Neytendastofa hefur sektað Isavia um hálfa milljón króna vegna brota á lögum um upplýsingagjöf og viðskiptahættir vegna gjaldskyldra svæða á Keflavíkurflugvelli voru ekki í samræmi við lög. Neytendur 17.7.2025 10:47
Leigubílstjórar ósáttir við lokun skúrsins: „Aumingjaskapur í þeim“ Leigubílstjórar eru ósáttir við ákvörðun Isavia um að loka umdeildum kaffiskúr á Keflavíkurflugvelli sem leigubílstjórar höfðu afnot af þar til hann var lagður undir bænahald. Þeir segja allt of langa göngufjarlægð milli leigubílastæðanna og flugstöðvarinnar þangað sem þeir eiga nú að sækja kaffisopa og komast á klósettið. Innlent 5.6.2025 12:14
Loka kaffiskúrnum umtalaða við Leifsstöð Keflavíkurflugvöllur hefur tekið ákvörðun um að loka fyrir aðgengi leigubílstjóra að geymsluskúr sem þeir hafa notað sem kaffiskúr um nokkurt skeið. Ástæðan er sögð bágborið ástand skúrsins vegna viðhaldsskorts. Innlent 4.6.2025 21:23
Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Tekjur Isavia af innheimtu bílastæðagjalda við innanlandsflugvelli námu 78 milljónum króna í fyrra og kostnaður af henni nam 74 milljónum. Inni í þeirri tölu er þó stofnkostnaður og Isavia segir innleiðingu gjaldtökunnar heilt á litið hafa gengið vel. Innlent 3.6.2025 21:03
Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta Flugfarþegi sem átti leið um Keflavíkurflugvöll í gær er hugsi eftir að neftóbak var hvergi að finna til sölu í fríhöfninni sem komin er undir nýjan rekstraraðila. Heinemann sé þegar farið að taka til hendinni, og líst honum illa á. Heinemann segir hins vegar að um tilfallandi skort á neftóbaki sé að ræða. Viðskipti innlent 3.6.2025 11:13
Reknir fyrir að vinna ekki nógu mikið Isavia ANS hefur sagt upp fimm flugumferðarstjórum og mun veita fimm öðrum áminningu vegna brota á reglum um skráningu á tímum um setu í vinnustöðu. Í stað þess að sitja við vinnu skráðu flugumferðarstjórar tíma á sig sem aðrir höfðu unnið. Innlent 30.5.2025 10:51
Sendir í leyfi fyrir að vinna ekki nógu mikið Fimm flugumferðarstjórar hafa verið sendir í leyfi frá störfum vegna gruns um að þeir hefðu ekki unnið tilskilinn fjölda vinnustunda til að halda réttindum sínum. Samgöngustofa rannsakar mál þeirra. Innlent 26.5.2025 18:18
Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni Isavia um áfrýjunarleyfi í máli flugumferðarstjóra á hendur félaginu. Landsréttur taldi Isavia ekki hafa mátt segja manninum upp af þeim sökum einum að hann væri orðinn 63 ára. Innlent 14.5.2025 20:22
Hömlulaus einokun á Keflavíkurflugvelli Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir fjármálaráðherra haldinn reginmisskilningi og segir íslenska ríkið hafa framselt Heinemann einokunarstöðu á Keflavíkurflugvelli. Viðskipti innlent 4.5.2025 15:59
„Í markaðshagkerfi þurfa menn bara að synda“ Fjármála- og efnahagsráðherra segist ekki hafa áhyggjur af íslenskum framleiðendum sem selja vörur til Fríhafnarinnar. Þeir hafa lýst miklum áhyggjum vegna nýs rekstraraðila, sem hefur krafið framleiðendur um að lækka vöruverð. Ráðherra segir að í markaðshagkerfi þurfi menn bara að synda. Viðskipti innlent 3.5.2025 18:33
„Þetta er ömurleg staða“ Íslenskir framleiðendur eru milli steins og sleggju vegna krafa nýs rekstraraðila Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli að sögn framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Rekstraraðilinn setji fyrirtækjum afarkosti um að lækka verð sitt gríðarlega. Viðskipti innlent 1.5.2025 19:06