Besta deild kvenna

Besta deild kvenna

Leikirnir




    Fréttir í tímaröð

    Fréttamynd

    „Þetta er bara ó­lýsan­legt”

    Elísa Viðarsdóttir lauk knattspyrnuferlinum sem Íslandsmeistari eftir sex marka sigur Breiðabliks gegn tveimur á FH í lokaumferð Bestu deildar kvenna. Hún lék sitt fyrsta og eina tímabil með Blikum í sumar og var tilfinningarík eftir lokaleikinn.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    Líf til­nefnd til tvennra verð­launa

    Íslandsmeistarar Blika eiga þrjá af fjórum bestu leikmönnum Bestu deildar kvenna í fótbolta í sumar en það má sjá á því að þrjár Blikakonur enduðu í hópi fjögurra bestu leikmanna í kosningu leikmanna deildarinnar.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    „Mark­mið að ná Íslandsmeistaratitli“

    Breiðablik sigraði Stjörnuna 1-0 í dag og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð. Blikar munu lyfta Íslandsmeistaraskildinum næsta föstudag þegar liðið tekur á móti FH á heimavelli í lokaumferð Bestu deildar kvenna.

    Sport
    Fréttamynd

    „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“

    Það hefur heldur betur verið viðburðarík vika hjá Líf Joostdóttir van Bommel en hún lék sinn fyrsta leik fyrir íslenska kvennalandsliðið á dögunum og kórónaði svo vikuna með því að skora markið sem tryggði Breiðabliki Íslandsmeistaratitilinn í kvöld.

    Sport
    Fréttamynd

    Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“

    Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, segir markmiðið skýrt fyrir leik liðsins við Stjörnuna í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag. Blikakonur geta orðið Íslandsmeistarar þriðja árið í röð nái þær í stig í Garðabænum í dag gegn Stjörnuliði sem hefur unnið Breiðablik tvisvar í sumar.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    „Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“

    FH mátti þola 0-4 tap gegn Þrótti á heimavelli í ansi þýðingarmiklum leik fyrir FH-inga þar sem liðið hefði geta tryggt sér úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í næstu umferð. Breiðablik á leik til góða og nægir stig til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.

    Sport
    Fréttamynd

    Upp­gjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum

    Þróttur vann 0-4 útisigur gegn FH. Gestirnir byrjuðu betur og komust tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik. Undir lok síðari hálfleiks bættu Þróttarar við tveimur mörkum og leikurinn endaði með stórsigri gestanna. Niðurstaðan var ansi súr fyrir FH-inga þar sem Blikum nægir stig á morgun til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. 

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    „Þetta er bara víti og rautt spjald“

    Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV í Bestu deild kvenna var afar ósáttur með að hans lið hafi ekki fengið vítaspyrnu í tapi gegn FH í Kaplakrika í dag. Sagði hann dómarana hafa tekið margar hörmulegar ákvarðanir en hann fékk að lokum rautt spjald vegna mótmæla í 5-0 tapi Eyjakvenna.

    Fótbolti