Lengjudeild karla

Lögreglan rannsaknar fögnuð Vals og Leiknis
Fagnaðarlæti Vals og Leiknis R. eru á borði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna brota á sóttvarnareglum.

Bæði Kópavogsfélögin mæta með nýja þjálfara til leiks næsta sumar
Kvennalið HK vann sér sæti í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu og mætir með nýjan þjálfara til leiks næsta sumar. Sömu sögu er að segja af Augnablik sem leikur í sömu deild.

Fram og Magni taka undir með KR
Stjórnir knattspyrnudeilda Fram og Magna hafa sent frá sér yfirlýsingu og líst yfir óánægju með ákvörðun KSÍ frá því í gær um að aflýsa mótinu.

Fyrirliða ÍBV sagt að hann sé ekki í framtíðarplönum liðsins
Víðir Þorvarðarson, einn reynslumesti leikmaður ÍBV, fékk þau skilaboð í gær að krafta hans væri ekki lengur óskað hjá liðinu.

„Auðvitað munu alltaf einhverjir sitja eftir með sárt ennið“
KSÍ tók þá erfiðu ákvörðun í gær að flauta af Íslandsmótið í knattspyrnu og láta núverandi stöðutöflur gilda. Sú ákvörðun kemur sér misvel fyrir knattspyrnulið á Íslandi, sum þeirra njóta góðs af á meðan önnur sem sáu fram á að bæta stöðu sína með góðum lokaspretti sitja eftir í súpunni.

Framarar segja þetta „sorgardag í sögu fótboltans á Íslandi“
Fram situr eftir með sárt ennið í Lengjudeild karla eftir að KSÍ tilkynnti í dag að allt mótahald yrði blásið af vegna kórónuveirunnar.

Magnamenn ætla að leita réttar síns
Sveinn Þór Steingrímsson, þjálfari Magna Grenivíkur í Lengjudeild karla var eðlilega manna ósáttastur með ákvörðun KSÍ. Magni fellur úr Lengjudeildinni á markatölu, einu marki munar á liði Magna og Þrótti Reykjavíkur.

„Auðvitað er þetta ákveðinn léttir“
Þórir Hákonarson, íþróttafulltrúi Þróttar, segir að það sé ákveðinn léttir að niðurstaða sé komin í hvað verður um Íslandsmótin og bikarkeppnina í knattspyrnu.

Keppni á Íslandsmótinu í knattspyrnu hætt
Knattspyrnusamband Íslands greindi frá því nú rétt í þessu að keppni á Íslandsmótinu í knattspyrnu yrði hætt. Var þetta samþykkt á fundi sambandsins nú í dag.

Úr Pepsi Max Mörkunum á hliðarlínuna á Kópavogsvelli
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir mun stýra liði Augnabliks í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu næsta sumar. Hún hefur verið hluti af teyminu sem fjallar um Pepsi Max deild kvenna á Stöð 2 Sport í sumar.

KSÍ frestar leikjum helgarinnar
Knattspyrnusamband Íslands hefur frestað þeim tveimur leikjum sem fara áttu fram um helgina, í Lengjudeild karla og 2. deild kvenna.

Tveir fyrstu íslensku leikirnir á laugardaginn
Það styttist vonandi í það að íslenski fótboltinn, íslenski handboltinn og íslenski körfuboltinn geti farið að spila leiki aftur og íslenskt íþróttaáhugafólk fær smá forskot á sæluna um helgina.

Leikmaður Þórs með kórónuveiruna
Smit hefur greinst í leikmannahópi Þórs sem leikur í Lengjudeild karla.

Vestramenn búnir að ráða eftirmann Bjarna Jó
Lengjudeildarlið Vestra er búið að ráða nýjan þjálfara sem mun taka við liðinu þegar yfirstandandi leiktíð lýkur.

Velgengni fótboltastelpnanna á Sauðárkróki kallar á stúkubyggingu
Stúka verður byggð við fótboltavöllinn á Sauðárkróki eftir að Tindastólskonur tryggðu sér sæti í Pepsi Max-deild kvenna.

Gary og Bjarni Ólafur klára ekki tímabilið með ÍBV
Eyjamenn hafa kvatt þrjá leikmenn, í bili að minnsta kosti, en þetta staðfestir Fótbolti.net í kvöld.

Ný Gróttunýlenda hjá fótboltafélaginu Apulia Trani á Suður-Ítalíu
Íslenskar knattspyrnukonur af Seltjarnarnesi streyma þessa dagana til Suður-Ítalíu til að spila fótbolta.

KSÍ búið að endurskipuleggja mótin: Pepsi Max deild karla lýkur á mánudegi
KSÍ hefur gefið út leikjaniðurröðin fyrir nóvembermánuð en eins og flestir knattspyrnuáhugamenn vita hefur deildin verið á pásu vegna kórónuveirunnar.

Langflest félög vildu klára mótið en miklar áhyggjur vegna æfingabanns
Langflest knattspyrnufélaganna í efstu deildum karla voru sammála ákvörðun stjórnar KSÍ um að freista þess að klára Íslandsmótið 2020 innan vallar. Miklar áhyggjur eru þó vegna æfingabanns sem verið hefur á höfuðborgarsvæðinu.

KSÍ ætlar að klára Íslandsmótið
Svo lengi sem takmarkanir á æfingum og keppni verði afnumdar eigi síðar en 3. nóvember ætlar KSÍ að klára Íslandsmótið í fótbolta.

Magnús Már: Fótbolti frá morgni til kvölds og mikið að gera
Gaupi ræddi við Magnús Má Einarsson, ritstjóra Fótbolta.net, fyrir Sportpakka kvöldsins á Stöð 2. Magnús Már hefur starfað lengi í bransanum og er nú í rauninni báðum megin við borðið.

Níu félög skora á KSÍ að klára Íslandsmótið
Níu félög hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau hvetja KSÍ til að klára Íslandsmótið í fótbolta.

Magnamenn vilja klára mótið og ætla ekki að senda útlendingana heim
Magni er í harðri fallbaráttu í Lengjudeild karla. Þar á bæ vilja menn ólmir klára Íslandsmótið.

„Ekki sanngjarnara að klára mótið en að blása það af“
„Þetta er farið að verða eitthvað annað en mótið sem við byrjuðum á,“ segir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis Reykjavík. Hann dregur í efa að sanngjarnara sé að klára Íslandsmótið í fótbolta en að blása það af núna.

Vestri nær varla að manna lið í síðustu leikjunum | Bjarni Jó hættir eftir tímabilið
Lið Vestra mun varla geta mannað lið sitt ef Lengjudeild karla í knattspyrnu verður kláruð. Erlendir leikmenn liðsins fara nær allir heim á næstu dögum og óvíst hvað gerist ef deildin verður kláruð undir lok mánaðar.

KSÍ frestar öllum leikjum til og með 19. október
Engir leikir verða á vegum Knattspyrnusambands Íslands fyrr en í fyrsta lagi 20. október.

Formaður knd. Hauka segir ummæli Þorsteins grafa undan uppbyggingu annarra félaga
Halldór Jón Garðarsson, formaður knattspyrnudeildar Hauka, vandar Þorsteini Halldórssyni, þjálfara Breiðabliks, ekki kveðjurnar í pistli sem hann skrifar á fésbókarsíðu Hauka.

Lokastaðan ef ekki verður meira spilað: Blikar sleppa inn í Evrópukeppni
Valur verður Íslandsmeistari karla og Breiðablik Íslandsmeistari kvenna í fótbolta ef að ekki verða spilaðir fleiri leikir í Pepsi Max-deildunum á leiktíðinni.

Dagskráin: Pepsi Max Stúkan og Lengjudeild kvenna
Eftir ótrúlega helgi er heldur rólegt um að litast hjá okkur í dag. Við bjóðum samt upp á leik í Lengjudeild kvenna, Gummi Ben mætir með Pepsi Max Stúkuna, hver veit hvaða slúður bíður upp á í dag.

Dramatík og mörk fyrir norðan þegar Þór sigraði Magna
Þór vann Magna 4-3 í Eyjafjarðarslagnum í Lengjudeildinni í dag.