Besta deild karla
Pepsimörkin: Mörkin og tilþrifin úr 9. umferð Fimm leikir fóru fram í 9. umferð í Pepsideildinni i fótbolta karla í gær. Mörkin létu ekki á sér standa og í þessari samantekt úr þættinum Pepsimörkin frá því í gær eru öll mörkin sýnd og það er breska hljómsveitin Coldplay sem sér um undirleikinn. Íslenski boltinn 7.7.2011 08:05
Ólafur: Barnaskapur að spila svona varnarleik Ólafur Kristjánsson þjálfari Blika var sæmilega sáttur með leik sinna manna í samtali við blaðamann. Hann hafði hann áhyggjur af slælegum varnartilburðum sinna manna en er þó ekki farinn að örvænta þótt stigataflan sýni ekki eins mörg stig og margir Blikar höfðu vonast eftir. Íslenski boltinn 6.7.2011 23:07
Andri: Mjög sáttur með framlag minna manna Andri Marteinsson þjálfarin Víkinga var ánægður með leik sinna manna en að sama skapi var hann ekki eins sáttur með úrslit leiksins. Víkingar sem leiddu lengi vel gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks misstu leikinn niður í 2-2 jafntefli þegar skammt lifði leiks. Íslenski boltinn 6.7.2011 23:04
Viktor: Gaman að skora framhjá Ingvari Hinn 17 ára Viktor Jónsson sýndi góðan leik með Víkingum í kvöld og skoraði seinna mark sinna manna í leiknum og það gegn sínum gamla þjálfara. Íslenski boltinn 6.7.2011 23:01
Óli Þórðar: Vorum teknir í kennslustund „Frá fyrstu mínútu til síðustu var þetta kennslustund í fótbolta. Við komumst yfir þvert gegn gangi leiksins og það var engan vegin sanngjarnt en svona er þetta. Fótbolti getur farið á alla vegu en Stjörnumenn héldu áfram og stútuðu okkur,“ sagði þungur á brún Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis eftir ósigurinn gegn Stjörnunni í kvöld. Íslenski boltinn 6.7.2011 22:58
Bjarni: Spiluðum frábærlega Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar hitti svo sannarlega naglan á höfuðið þegar hann skipti varnarmanninum Tryggva Sveini Bjarnasyni inná í framlínuna þegar tæpur hálftími var eftir af leiknum gegn Fylki í kvöld. Tryggvi skoraði eftir mínútu og það lagði grunninn að 4-1 sigrinum. Íslenski boltinn 6.7.2011 22:56
Ómar: Þetta var stríð sem við unnum „Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur hjá okkur í kvöld,“ sagði Ómar Jóhannsson, leikmaður Keflvíkinga, eftir sigurinn í kvöld. Íslenski boltinn 6.7.2011 22:55
Haraldur: Vannst á návígjunum Haraldur Björnsson markmaður Vals segir að 3-0 sigurinn á Þór í kvöld hafi verið sanngjarn. Valsmenn komust á topp Pepsi-deildarinnar með sigrinum. Íslenski boltinn 6.7.2011 22:54
Þorsteinn: Þurfum að vera grimmari Þorsteinn Ingason fyrirliði Þórs var óánægður með dómara leiksins í kvöld. Hann sagði að þriðja mark Vals hefði ekki átt að standa og að dómgæslan í því hefði klárlega haft áhrif á spilamennsku liðsins. Íslenski boltinn 6.7.2011 22:52
Halldór: Viljinn og getan okkar megin Halldór Kristinn Halldórsson átti góðan leik fyrir Val í hjarta Valsvarnarinnar. Hann segir að viljinn hafi verið meiri Valsmegin en liðið lagði Þór 3-0 í kvöld. Íslenski boltinn 6.7.2011 22:51
Flösku kastað í höfuð Jóns Vilhelms Ungur stuðningsmaður Þórs var miður sín eftir að flaska sem hann kastaði inn á hlaupabrautina á Þórsvellinum hæfði Jón Vilhalm Ákason Valsmann í ennið. Það blæddi úr Jóni en Valsmenn voru að fagna 3-0 sigrinum á Þór þegar atvikið átti sér stað. Íslenski boltinn 6.7.2011 22:48
Arnar: Við erum í mikilli krísu "Við erum svo sannarlega komnir upp við vegg núna,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, leikmaður Fram, eftir tapið gegn Keflavík í kvöld. Íslenski boltinn 6.7.2011 22:46
Ólafur Örn: Menn fara að kenna öðrum um en sjálfum sér Ólafur Örn Bjarnason þjálfari Grindavíkur var afar ósáttur við spilamennsku sinna manna í kvöld. Hann sagði sína menn allt of gjafmilda við FH en Grindvíkingar lögðu upp tvö mörk Hafnfirðinga í leiknum. Íslenski boltinn 6.7.2011 22:43
Atli Viðar: Vonandi er krísan að baki Atli Viðar Björnsson skoraði þrennu í 7-2 sigri FH-inga gegn Grindavík í kvöld. Hann var skiljanlega ánægður með leik sinna manna. Íslenski boltinn 6.7.2011 22:40
Guðmundur: Ómar var frábær í kvöld „Þetta var rosalega mikilvægt og virkilega langþráður sigur,“ sagði Guðmundur Steinarsson, leikmaður Keflvíkinga, eftir sigur, 1-0, gegn Fram í kvöld. Íslenski boltinn 6.7.2011 22:36
Þorvaldur: Komum ekki boltanum yfir línuna „Þetta er alltaf jafnt svekkjandi,“ sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, eftir ósigurinn í kvöld. Fram tapaði enn einum leiknum gegn Keflvíkingum, 1-0, í Keflavík í kvöld og er sem fyrr í næsta sæti með tvö stig. Íslenski boltinn 6.7.2011 22:27
Willum: Berjumst fyrir lífi okkar í deildinni „Við erum búnir að vera í allskonar vandræðum í sumar og því var þetta sérstaklega mikilvægur sigur fyrir okkur,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, eftir sigurinn í kvöld. Íslenski boltinn 6.7.2011 22:21
Miðstöð Boltavaktarinnar - allt á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í Pepsi-deild karla samtímis. Íslenski boltinn 6.7.2011 15:26
Umfjöllun: Stjarnan valtaði yfir Fylki Stjarnan vann öruggan 4-1 sigur á Fylki á Stjörnuvelli í kvöld. Þó öll mörk Stjörnunnar hafi komið síðustu 25 mínútur leiksins virtist fátt benda til annars frá upphafi að Stjarnan myndi sigra því yfirburðir liðsins á vellinum voru miklir gegn Fylkisliði sem lék líklega sinn slakast leik í sumar. Íslenski boltinn 6.7.2011 15:19
Umfjöllun: Jafntefli í Víkinni Íslandsmeistarar Breiðabliks fóru í heimsókn í Fossvoginn í gærkvöldi og mættu Víkingum í Stjörnugrófinni í níundu umferð Pepsídeildar karla. Leikar fóru 2-2 í einum fjörugasta leik sumarsins. Bæði lið léku blússandi sóknarleik og skemmtu sér og þeim sem á horfðu. Íslenski boltinn 6.7.2011 15:02
Umfjöllun: Keflvíkingar höfðu betur í botnslagnum Keflvíkingar unnu langþráðan og mikilvægan sigur, 1-0, gegn botnliði Fram í Pepsi-deild karla suður með sjó í kvöld. Eina mark leiksins gerði Arnór Ingvi Traustason þegar um hálftími var eftir af leiknum. Íslenski boltinn 6.7.2011 14:59
Umfjöllun: Flugeldasýning hjá FH-ingum FH-ingar vöknuðu af værum svefni í kvöld er þeir völtuðu yfir Grindavík, 7-2, í hreint út sagt ótrúlegum knattspyrnuleik. Spilamennska FH minnti á gamla góða FH-liðið en Grindvíkingar voru andlega fjarverandi. Íslenski boltinn 6.7.2011 14:56
Umfjöllun: Valsmenn á toppinn Valsmenn tylltu sér á topp Pepsi-deildar karla í kvöld með góðum sigri á Þór norðan heiða. Lokatölur voru 3-0 fyrir Val sem gefur þó ekki rétta mynd af gangi leiksins. Umdeilt mark afgreiddi Þórsara. Íslenski boltinn 6.7.2011 14:36
Valsmenn geta tyllt sér í efsta sætið - fimm leikir í Pepsideildinni Fimm leikir fara fram í kvöld í Pepsi-deild karla í fótbolta þegar 9. umferð hefst. Umferðinni lýkur ekki fyrr en 21. júlí þegar KR tekur á móti ÍBV. Leikur Stjörnunnar gegn Fylki hefst kl. 20.00 í kvöld og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 sport. Samantektarþátturinn Pepsimörkin er á dagskrá kl. 22.00 á Stöð 2 sport þar sem farið verður yfir öll helstu atvikin úr leikjum kvöldsins. Íslenski boltinn 6.7.2011 09:49
Framarar sömdu við Skotann Scott Robertsson Skoski leikmaðurinn Scott Robertson hefur samið við Fram og mun hann leika með liðinu út leiktíðina í Pepsi-deild karla. Robertson er 23 ára gamall og kemur frá Stirling Albion en hann hefur verið á reynslu hjá Fram í vikutíma. Frá þessu er greint á vef BBC. Íslenski boltinn 5.7.2011 18:32
ÍBV skreið í undanúrslit - myndir Pepsi-deildarlið ÍBV vann nauman sigur á 1. deildarliði Fjölnis, 1-2, er liðin mættust í átta liða úrslitum Valitor-bikars karla í Grafarvoginum í gær. Íslenski boltinn 3.7.2011 21:07
Heimir: Við spiluðum aldrei sem lið í dag Heimi Hallgrímssyni, þjálfara ÍBV, var létt eftir sigurinn á Fjölni í dag í átta liða úrslitum Valitor-bikars karla. Hans menn voru ekki með hugann við verkefnið en sluppu með skrekkinn. Íslenski boltinn 3.7.2011 20:34
Ásmundur: Þeir fengu ódýrt víti Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, var ekki sáttur við vítið sem Þóroddur Hjaltalín dæmdi á hans menn í dag. Úr því komust Eyjamenn yfir og þeir unnu að lokum leikinn, 1-2. Íslenski boltinn 3.7.2011 20:30
KR komið í undanúrslit KR varð í kvöld síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum Valitor-bikars karla. KR lagði þá Keflavík, 3-2, í stórskemmtilegum leik vestur í bæ. Íslenski boltinn 3.7.2011 14:14
ÍBV komið í undanúrslit ÍBV er komið í undanúrslit Valitor-bikars karla eftir 1-2 sigur á Fjölni í Grafarvoginum. Leikurinn var hrútleiðinlegur og ekkert gerðist í honum fyrr en á síðustu 15 mínútunum. Íslenski boltinn 3.7.2011 14:07