KR

Hilmar Árni með tvennu í flottum sigri á KR
Stjörnumenn virðast koma afar vel út úr kórónuveiruhléinu en þeir unnu flottan 3-0 sigur á KR í Vesturbænum í kvöld í fyrsta æfingaleik liðanna eftir hléið frá því í mars.

Rúnar um ungu leikmennina í KR: „Eftir hverju ertu að leita sem félagsmaður?“
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, segir að það sé ekki vonbrigði fyrir félagið hversu fáir leikmenn hafi komið í gegnum yngri flokka starf félagsins síðustu árin en hann segir að þegar krafan sé á titil á hverju ári þurfi hann að spila bestu fótboltamönnunum.

„Hefði sennilega ekki spilað mínútu hjá mér miðað við hvernig hann hegðaði sér á þeim æfingum sem hann var hjá mér þennan veturinn“
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, segir að það besta sem hafi komið fyrir sóknarmanninn Guðmund Andra Tryggvason hafi verið að semja við Start í lok ársins 2017 en Rúnar var ekki ánægður með framlag Guðmundar á æfingum KR-liðsins þar á undan.

Neitar því að erfiðlega hafi gengið að semja við Darra
Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, segir að sá orðrómur um að erfiðlega hafi gengið að semja við Darra Frey Atlason, nýráðinn þjálfara KR, séu ekki réttar.

Margar sögur í gangi og kannski einhverjir að reyna að sundra okkur
„Það hafa verið margar sögur í gangi og ég veit ekki alveg forsendur þess hvað það fóru margar sögur í gang. Kannski er það bara af því að þetta er KR,“ segir formaður körfuknattleiksdeildar KR um sögusagnir varðandi framtíðarhorfur kvennaliðs félagsins.

Grunar að Jón Arnór eigi hinsta dansinn eftir
Jón Arnór Stefánsson og Helgi Már Magnússon gætu vel átt eftir að spila með KR á næstu leiktíð og freista þess að tryggja liðinu sjöunda Íslandsmeistaratitilinn í röð í körfubolta.

„Það er bara hægt að klúðra þessu“
„Þetta er þannig að það er bara hægt að klúðra þessu, og ég átta mig alveg á þeirri aðstöðu,“ segir Darri Freyr Atlason, nýráðinn þjálfari Íslandsmeistara KR í körfubolta karla.

KR bað leikmenn um þolinmæði: „Tilboðið sem ég bauð Hildi ekki nálægt því sem Valsmenn buðu“
Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, segir að á þeim óvissutímum sem nú ríki hafi félagið ekki getað boðið Hildi Björgu Kjartansdóttur nálægt því eins góðan samning og hún hafi fengið hjá meisturum Vals.

Formaður körfuknattleiksdeildar KR bað Inga Þór afsökunar
Formaður körfuknattleiksdeildar KR segist hafa misst atburðarrásina í tengslum við uppsögn Inga Þórs Steinþórssonar úr höndunum.

Darri Freyr og Francisco Garcia taka við KR-liðunum
Darri Freyr Atlason og Spánverjinn Francisco Garcia verða þjálfarar meistaraflokka KR í Domino´s deildum karla og kvenna í körfubolta á næsta tímabili. Brynjar Þór Björnsson skrifaði undir tvo samninga.

Formaður knattspyrnudeildar KR vill að KSÍ aðstoði félögin í landinu
Páll Kristjánsson tók við sem formaður knattspyrnudeildar KR rétt áður en kórónufaraldurinn skall á.

24 dagar í Pepsi Max: Meirihluti þjálfara deildarinnar hafa spilað fyrir KR
Sumarið 1997 var heldur betur dramatískt sumar í Vesturbænum en þá voru líka fjórir af núverandi þjálfarar Pepsi Max deildar karla liðsfélagar í KR-liðinu.

„Var kominn í þá stöðu í KR að gera raun og veru allt og ég fæ það í bakið“
Ingi Þór Steinþórsson, sem var ráðinn aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í gær, segir að hann hafi fengið það í bakið hjá KR að vera gera allt hjá félaginu en Ingi var sem kunnugt er sagt upp störfum hjá KR í síðustu viku.

Pálmi segir markmið KR einfalt: „Það er alltaf stefnt á titil hér“
Pálmi Rafn Pálmason segir að KR stefni á titilinn líkt og hvert einasta ár.

Henry Birgir og Kjartan Atli rifjuðu upp þegar þyrla kom með Íslandsmeistaratitilinn í Frostaskjólið
KR-ingar nær og fjær eru eflaust ánægðir með þessa upprifjun.

28 dagar í Pepsi Max: Óskar getur bætt leikjamet Birkis í 13. umferð
Vísir heldur áfram að telja niður í Pepsi Max-deild karla.

Hildur fékk ekkert á hreint hjá KR og leitaði annað
Vegna óvissunnar sem ríkir hjá körfuknattleiksdeild KR og vegna þess að félagið kom ekki með klárt tilboð á borð til hennar, ákvað Hildur Björg Kjartansdóttir að róa á ný mið.

Willum um 7-0 tapið gegn FH: „Veit ekki hvað ég á eiginlega að segja um þennan leik“
Willum Þór Þórsson segir að 7-0 tapið með KR gegn FH í lokaleik Íslandsmótsins 2003, þegar KR hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn, sé ótrúlegur leikur. Hann segir KR-liðið ekki hafa spilað illa en allt hafi farið í netið.

Kanóna til Vals frá KR
Valskonur hafa fengið mikinn liðsstyrk fyrir næstu körfuboltaleiktíð því Hildur Björg Kjartansdóttir hefur skrifað undir samning við Hlíðarendafélagið.

Enginn Benni, Ingi eða Finnur að þjálfa hjá KR í fyrsta sinn í þrjá áratugi
Ingi Þór Steinþórsson og Benedikt Guðmundsson verða ekki áfram þjálfarar meistaraflokks KR næsta vetur og það þýða stór tímamót hjá Vesturbæjarfélaginu.

Benedikt kveður KR líka
Benedikt Guðmundsson er hættur sem þjálfari kvennaliðs KR í körfubolta en hann greindi frá þessu sjálfur á Facebook.

Þögnin í Vesturbænum ekkert annað en vandræðaleg
Eftir þriggja áratuga feril sem körfuboltaþjálfari var Inga Þór Steinþórssyni sagt upp störfum í fyrsta sinn þegar KR ákvað að láta hann fara í síðustu viku. Henry Birgir og Kjartan Atli fóru yfir málið í Sportinu í dag.

Ingi Þór um tímasetninguna: Er í sömu stöðu og Heimir Guðjóns
Ingi Þór Steinþórsson, sem í dag var rekinn frá KR, upplifir sig í svipaðri stöðu og knattspyrnuþjálfarinn Heimir Guðjónsson þegar hann var látinn fara frá FH haustið 2017.

Ingi Þór um brottreksturinn frá KR: Er ekkert sáttur
Ingi Þór Steinþórsson kveðst svekktur yfir að hafa verið látinn fara frá KR og ætlar sér ekki að hætta í þjálfun.

Staðfesta brottrekstur Inga: Bauðst annað starf sem hann hafnaði
KR er búið að reka Inga Þór Steinþórsson, þjálfara liðsins í Dominos-deild karla. Þetta staðfestir Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, í yfirlýsingu sem var send fjölmiðlum fyrr í dag.

„Finnst KR hafa siglt undarlega mikið undir radar í vetur“
Fyrrum Íslandsmeistarinn og markahrókurinn, Atli Viðar Björnsson, finnst Íslandsmeistarar KR hafa siglt undir radarinn í vetur er rætt hefur verið um mögulega Íslandsmeistara í Pepsi Max-deild karla.

Þjálfaramál KR skýrast á morgun
Körfuknattleiksdeild KR mun gefa út yfirlýsingu vegna þjálfaramála félagsins á morgun.

KR-ingar sagðir búnir að reka Inga Þór og ráða Darra í staðinn
KR-ingar ætla að skipta um þjálfara meistaraflokks karla hjá sér og yngja þar upp um 22 ár. KR-ingur tekur þar við af KR-ing.

Veðurbarinn Rúnar: „Æfingar eins og þegar ég var ungur“
Það blés verulega á Rúnar Kristinsson, þjálfara KR, er Rikki G kíkti á æfingu KR í gær en Íslandsmeistararnir voru þá að undirbúa sig undir sína fyrstu æfingu sem lið í tæpa tvo mánuði, eftir að aflétt hafði verið á samkomubanninu.

Anna Björk í viðræðum við KR: „Rómantík að fara í uppeldisfélagið“
Anna Björk Kristjánsdóttir, sem lék í vetur með PSV í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, mun að öllum líkindum leika í Pepsi Max-deild kvenna í sumar en þetta staðfesti hún í Sportinu í dag.