Innlent

Fréttamynd

Heldur áfram baráttunni

Stjórnarmeirihlutinn samþykkti að afgreiða frumvarp um að kynferðisafbrot gegn börnum fyrntust ekki úr nefndinni með þeirri breytingu að kynferðisafbrot gegn börnum byrjuðu nú að fyrnast er þau ná 18 ára aldri en áður var miðað við 14 ár. Þingmaður Samfylkingar ætlar að halda áfram baráttunni því honum finnst ekki verið að veita börnum landsins nægilega réttarvernd með breytingartillögu meirihlutans.

Innlent
Fréttamynd

Maðurinn var heilsuhraustur

Karlmaður á sjötugsaldri er talinn hafa fengið aðsvif undir stýri á Breiðholtsbrautinni í morgun en hann missti stjórn á bílnum og ók út af veginum. Maðurinn lést og segir sonur hans föður sinn hafa verið heilsuhraustan, en ekki hjartveikan, eins og haft var eftir lækni á Landspítalanum í fréttum í dag.

Innlent
Fréttamynd

Shadows trylltu lýðinn

Hinar öldnu hetjur í Shadows trylltu íslenska tónlistaraðdáendur á ýmsum aldri í Kaplakrika í gærkvöldi. Hljómsveitin, sem verið hefur við lýði frá því á sjötta áratugnum, lék lög frá ýmsum tímum ferilsins.

Lífið
Fréttamynd

Lést eftir aðsvif undir stýri

Karlmaður á sjötugsaldri fékk aðsvif undir stýri á Breiðholtsbraut í morgun, missti stjórn á bílnum og ók út af veginum. Hann var úrskurðaður látinn skömmu síðar á slysadeild Landspítalans í Fossvogi.

Innlent
Fréttamynd

Tekinn á 160

Bifhjólamaður gerði tilraun til að stinga lögregluna af þegar hún reyndi að stöðva hann þar sem hann ók á 118 kílómetra hraða eftir Reykjanesbrautinni. Ók hann á meira en 160 kílometra hraða þegar eltingaleikurinn stóð sem hæst.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt hús vígt í haust

Hornsteinn var lagður að nýrri byggingu Íþróttaakademíu Reykjanesbæjar við hátíðlega athöfn í gær. Fyrsta skóflustungan var tekin í haust og hafa framkvæmdir gengið vel.

Innlent
Fréttamynd

Fyrningarfrumvarp klauf nefnd

Allsherjarnefnd klofnaði í afstöðu sinni til fyrningarfrumvarpsins svonefnda í gær og mun skila tveimur álitsgerðum. Jónína Bjartmarz studdi álit meiri hlutans með fyrirvara. Ágúst Ólafur Ágústsson segist ætla að berjast áfram. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Landverndarmenn sáttir

Á aðalfundi Landverndar nýverið var fjallað nokkuð um ferðamálaáætlun samgönguráðherra til næstu 10 ára. Lýsti fundurinn yfir mikilli ánægju með áætlunina. Sérstaklega var tekið fram að mikil ánægja ríkir með áherslur á náttúru Íslands, menningu þjóðarinnar og að stefnt skuli að umhverfisvænni ferðaþjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Hreyfing á máli Arons Pálma

Hreyfing virðist vera komin á tilraunir til að fá Aron Pálma Ágústsson lausan úr bandarísku fangelsi en hann var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn dreng þegar hann var sjálfur ellefu ára. Aron afplánaði sjö ár af dómnum í rammgerðu fangelsi en situr nú í stofufangelsi í Texas.

Innlent
Fréttamynd

Gölluð vegrið kosta mannslíf

Vegrið við Breiðholtsbraut, þar sem ung stúlka lést í bílslysi í gær, er gallað og of stutt að mati framkvæmdastjóra rannsóknarnefndar umferðarslysa. Nefndin telur vegrið almennt of stutt hérlendis og sendi Vegagerðinni nýlega athugasemd þess efnis í kjölfar banaslyss í Eyjafirði fyrir sex vikum.

Innlent
Fréttamynd

Dreginn úr brennandi bíl

Ökumaður lést eftir að hafa fengið hjartaáfall þegar hann ók um Breiðholtsbraut í Víðidal í gærmorgun. Þrír ungir vegfarendur sáu bílinn aka út af veginum og fóru að athuga með ökumanninn. Hann var meðvitundarlaus þegar þeir komu að.

Innlent
Fréttamynd

Kosningar í október

Ákveðið hefur verið að gengið verði til kosninga um sameiningu sveitarfélaga við Eyjafjörð þann áttunda október næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Samkeppni um byggingu Háskólatorgs

Fimm fyrirtæki hafa verið valin til að keppa um hönnun og byggingu Háskólatorgs Háskóla Íslands. Ef allt gengur samkvæmt áætlun verður torgið tekið í notkun í árslok 2007.

Innlent
Fréttamynd

Spáð góðu laxveiðisumri

Sérfræðingur Veiðimálastofnunar spáir bæði góðu laxveiðisumri um land allt og auknum stórlaxagöngum í ám fyrir norðan og austan. 

Innlent
Fréttamynd

Ofbeldi mótmælt á Ingólfstorgi

Talið er að á þriðja hundrað manns hafi haldið rauðu spjaldi hátt á lofti á útifundi á Ingólfstorgi nú síðdegis sem haldinn var til höfuðs ofbeldi. Það er Birting, samtök ungs fólks gegn ofbeldi, sem stóð fyrir fundinum á Ingólfstorgi í samstarfi við Reykjavíkurborg.

Innlent
Fréttamynd

Hópakstur fornbíla um borgina

Þeir verða gamlir bílarnir sem verða í skoðunarstöð Frumherja á Hesthálsi á morgun en þar verða um eitt hundrað fornbílar skoðaðir. Að lokinni skoðun mun bílalestin keyra um borgina.

Innlent
Fréttamynd

Fimm aðilar keppast um háskólatorg

Hús Háskóla Íslands verða tengd saman í sérstakt háskólatorg sem fimm útvalin fyrirtæki keppast um að hanna. Kynningarfundur með þeim hófst í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Töfravatn leitt á sundlaugarsvæði

Orkuveita Húsavíkur hefur ákveðið að leiða 95 gráðu heitt vatn úr borholu á Húsavíkurhöfða í pott sem komið verður fyrir við Sundlaug Húsavíkur. Veitustjóri segir vatnið hafa góða virkni gegn psoriasis-sjúkdómnum auk þess sem breyting á efnainnihaldi þess getur sagt til um yfirvofandi jarðhræringar á Norðurlandi.

Innlent
Fréttamynd

Slegnir yfir rítalínnotkun barna

Landlæknir hætti að fylgjast með ávísunum á rítalín til barna og unglinga árið 2001. Þingmenn voru slegnir á Alþingi í dag yfir upplýsingum um umdeilt heimsmet íslenskra barna í notkun rítalíns. 

Innlent
Fréttamynd

Sótti um án samráðs við stjórn

Fyrrverandi alþingismaðurinn Guðjón Guðmundsson, sem ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri dvalarheimilisins Höfða á Akranesi, segist hafa sótt um stöðuna einfaldlega vegna þess að hann taldi sig uppfylla þær hæfniskröfur sem fram komu þegar staðan var auglýst.

Innlent
Fréttamynd

Landsbankinn styrkir Selmu

Landsbankinn hefur ákveðið að styrkja Selmu Björnsdóttur til þátttöku í Evróvisjón söngvakeppninni. Í fréttatilkynningu frá Landsbankanum segir að með samningnum fái Selma aukið fjárhagslegt svigrúm til að helga sig þátttöku í keppninni.

Innlent
Fréttamynd

Samgönguráðuneytið dregur í land

Samgönguráðuneytið dregur í land með frumvarp sitt um að varðveita skuli fjarskiptaupplýsingar í heilt ár vegna hugsanlegra lögreglurannsókna. Ráðuneytið hefur fallist á athugasemdir Persónuverndar.

Innlent
Fréttamynd

459 milljóna hagnaður

Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hagnaðist um 459 milljónir á fyrsta ársfjórðungi ársins og eykst hagnaður fyrirtækisins um tæp 70 prósent frá sama tímabili í fyrra. Tekjur félagsins námu 1,7 milljörðum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Upplýsingaskrifstofa ESB opnuð

Í ungmennahúsi Ísafjarðarbæjar, sem kallast Gamla apótekið, verður rekin upplýsingaskrifstofa Evrópusambandsins fyrir íslensk ungmenni. Ísafjarðarbær og skrifstofa í málefnum ungs fólks í Evrópu skrifuðu undir samstarfssamning þessa efnis á dögunum.

Innlent
Fréttamynd

Dantas drukknaði

Dánarorsök Brasilímannsins Ricardo Correia Dantas liggja nú fyrir eftir að réttarkrufning hefur farið fram og leitt í ljós að hann drukknaði.

Innlent
Fréttamynd

Óráðsía og blekkingar fyrir austan

"Þeim er að einhverju leyti vorkunn vegna þeirrar þenslu sem hér hefur verið en það átti ekki að koma þeim á óvart," segir Magni Kristjánsson, sem sæti á í bæjarstjórn Fjarðabyggðar. Allur minnihlutinn í bæjarstjórn sat hjá við afgreiðslu ársreiknings í vikunni vegna þess sem Magni kallar óráðsíu og blekkingarleik.

Innlent
Fréttamynd

Líffærabiðlistar lengjast hratt

Aðstandendur látinna verða sífellt tregari til að leyfa að líffæri þeirra séu tekin til ígræðslu samkvæmt íslenskri rannsókn. Biðlistar eftir líffærum í heiminum lengjast hratt og fleiri látast meðan þeir bíða en hinir sem fá ígræðslu.

Innlent
Fréttamynd

Ólögleg litarefni í matvörum

Vegna aðvörunar í tíma frá framleiðslufyrirtækinu General Mills í Bandaríkjunum fóru ekki á markað hérlendis vörur sem innihéldu krabbameinsvaldandi litarefni sem eru stranglega bönnuð erlendis.

Innlent
Fréttamynd

Hans Markús áfrýjar

Séra Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur í Garðasókn, hefur kært úrskurð úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar til áfrýjunarnefndar.

Innlent
Fréttamynd

Vilja segja þingmönnum upp

Unnið er að stofnun þverpólitískra samtaka til varnar Vestfjörðum og hvetur frumkvöðullinn að stofnun þeirra til þess að kjörnum fulltrúum Vestfjarða verði sagt upp störfum. 

Innlent