Innlent
Mótmæli við Alþingishúsið Ungir jafnaðarmenn og ungliðahreyfingar úr öllum flokkum hafa boðað til mótmæla við Alþingishúsið klukkan 17.45 í dag. Ástæðan er ákvörðun forseta þingsins að hleypa ekki í gegnum þingið frumvarpi um afnám fyrningarfrests í kynferðisafbrotum gegn börnum. Innlent 13.10.2005 19:11
Krafa á ríkið vegna þjóðlendumála Fjöldi hreppa á Suðurlandi krefur ríkið um milljónir króna í kostnað vegna þjóðlendumála. Þrátt fyrir að þeir hafi sýnt fram á tiltekinn kostnað vegna lögfræðiaðstoðar úrskurðaði óbyggðanefnd að sá kostnaður væri mun lægri. Innlent 13.10.2005 19:11
Sjálfstæðisflokkur fagnar Gunnari Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins fagnar inngöngu Gunnars Örlygssonar þingmanns í þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Gunnar sagði sig úr Frjálslynda flokknum í kvöld. Innlent 13.10.2005 19:12
Engin gosvirkni á skjálftasvæðinu Engin gosvirkni virðist vera á skjálftasvæðinu suður af landinu, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Skjálftahrinan hóst um miðjan dag í gær en frá miðnætti hafa mælst hátt í hundrað skjálftar. Innlent 13.10.2005 19:11
Ölvun og lyfjaneysla vega þungt Ástæður endurkröfu tryggingafélaganna á hendur tjónvöldum í umferðinni eru langoftast ölvun tjónvalds, þá ökuréttindaleysi, lyfjaneysla og glæfraakstur. Um 74% krafnanna eru vegna ölvunaraksturs. Innlent 13.10.2005 19:12
Skuldir heimilanna aukist um 87% Útlán innlánsstofnanna til heimila námu alls um 369 milljörðum í lok marsmánaðar. Frá því að bankarnir hófu að bjóða ný íbúðalán til almennings hafa heimilin alls aukið skuldbindingar sínar við innlánsstofnanir um 172 milljarða króna, eða 87%. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:11
42 milljónir takk Bílasalan Sparibíll býður nú til sölu bíl af gerðinni Rolls Royce Phantom árgerð 2005. Bíllinn sem um ræðir er í Bandaríkjunum og kostar hingað kominn litlar 42 milljónir. Innlent 13.10.2005 19:11
Spæna í gegnum mosagrónar hlíðar Torfæruhjólamenn eru sagðir hafa unnið mikil skemmdarverk á landi á Reykjanesi með akstri utan vega. Í nýrri reglugerð umhverfisráðuneytisins er kveðið á um að brot af þessu tagi varði sektum eða allt að tveggja ára fangelsi. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:11
Netbankinn fellur frá skilyrðum vegna íbúðalána Netbankinn býður nú íbúðalán með 4,15% föstum vöxtum án nokkurra skilyrða um önnur bankaviðskipti. Lánin eru til kaupa á íbúðarhúsnæði eða til endurfjármögnunar á eldri lánum. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:11
Íslandsmeistari í kassaklifri Íslandsmeistarinn í kassaklifri kemur frá Súgandafirði en Íslandsmót í greininni var haldið í KA-heimilinu á Akureyri á dögunum. Kristín Ósk Jónsdóttir keppti í flokki stúlkna 16-18 ára og náði hún að koma undir sig 34 ölkössum á tíu mínútum. Innlent 13.10.2005 19:11
Þingmenn ekki óþekktarlýður Halldór Blöndal, forseti Alþingis, stýrði sínum síðasta þingfundi í kvöld. Aðspurður hvernig honum væri innanbrjósts fyrir lokasprettinn í starfinu sagði hann það vera mikinn létti yfir því að vorið væri að koma. Hann stefnir á að fara norður í sveitina strax á föstudag þar sem hann ætlar m.a. að ganga um bakka Laxár. Innlent 13.10.2005 19:12
Svik við þúsundir <font face="Helv">Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar mótmælir harðlega ákvörðun um að fresta afgreiðslu frumvarps um afnám fyrninarfrests í kynferðisafbrotamálum. Hann kvaddi sér hljóðs í upphafi þingfundar í gær og vísaði til samkomulags frá því á mánudag þar sem formenn þingflokkanna og forseti alþingis sömdu um þau mál sem skyldi taka af dagskrá.</font> Innlent 13.10.2005 19:12
Ný samkeppnislög Lög um samkeppnismál voru afgreidd frá Alþingi í fyrradag. Lúðvík Bergvinsson, Samfylkingunni, sagði í umræðum um atkvæðagreiðsluna að lagabreytingarnar snerust fyrst og fremst um aðferðir stjórnarflokkanna til að ná pólítískum tökum á sjálfstæðum og óþægilegum stofnunum. Viðskiptaráðherra sagði að stjórnarandstaðan snéri umræðunni á haus. Innlent 13.10.2005 19:12
Óvenju gestkvæmt á Hverfisgötunni Óvenju gestkvæmt var í fangageymslum lögreglunnar í Reykjavík í nótt, eða ellefu manns. Tveir þeirra sem þar dvelja nú voru teknir fyrir bílþjófnað og verða yfirheyrðir með morgninum og tveir, svokallaðir góðkunningjar, voru teknir þegar þeir komu sér inn í þvottahús í Norðurmýri þar sem þeir ætluðu að gista við lítinn fögnuð húseigenda. Innlent 13.10.2005 19:11
Fjölgað um fjóra á Akureyri Þann 1. júlí næstkomandi verður lögreglumönnum á Akureyri fjölgað um fjóra en 30 lögreglumenn eru nú starfandi á Akureyri. Á sama tíma verða fjórir sérsveitarmenn, sem starfa hjá lögreglunni á Akureyri, leystir undan föstum vöktum og munu þess í stað sinna löggæslu og sérstökum löggæsluverkefnum á Norður- og Austurlandi. Innlent 13.10.2005 19:12
Rúmlega 80 skjálftar frá miðnætti Gríðarleg skjálftavirkni hefur verið suður af Reykjanesi og má sem dæmi nefna að frá miðnætti hafa mælst þar á níunda tug skjálfta. Þeir öflugustu hafa mælst þrír til fjórir á Richter. Upptök þeirra langflestra eru við Eldeyjarboða. Innlent 13.10.2005 19:11
Í mál við ríkið vegna eignaupptöku Lögmaður hóps manna sem eiga og reka fasteignasölur undirbýr nú málshöfðun á hendur ríkinu. Þeir telja að í nýjum lögum um fasteigasölur felist brot á ákvæðum stjórnarskrárinnar um eignarrétt og atvinnufrelsi. Innlent 13.10.2005 19:11
Óþverralögum var ekki breytt Ögmundur Jónasson þingmaður Vinstri grænna segir slæmt að geta ekki afgreitt lög um meðferð vörsluskatta á því þingi sem nú er lokið. "Flutningsmenn eru úr öllum flokkum. Þetta er blettur á löggjöfinni sem verður að þvo af," sagði Ögmundur í upphafi þingfundar á alþingi í gær. Innlent 13.10.2005 19:12
Þingforseti kveður Halldór Blöndal stýrði sínum síðasta fundi í gær, þegar þingi var slitið, sem forseti Alþingis. Í haust sest Sólveig Pétursdóttir í stól forseta.Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra lagði í gær fram þingsályktunartillögu um frestun þings, svo sem venja er þegar þinghaldinu lýkur, og lauk atkvæðagreiðslum seint í gærkvöldi. Innlent 13.10.2005 19:12
Arnarvarp truflað í Breiðafirði Gasbyssu var stillt upp við arnarhreiður í hólma á Breiðafirði og fældu hvellirnir ernina og aðra fugla frá varpi í hólmanum. Vitað er hver var að verki, en samkvæmt lögum er stranglega bannað að hrófla við arnarhreiðrum. Innlent 13.10.2005 19:11
Farið eftir vinnureglum "Það var farið eftir öllum vinnureglum hér í öllu tilliti," sagði Halldóra Ólafsdóttir yfirlæknir á bráðamóttöku geðdeildar Landspítala háskólasjúkrahúss vegna máls mannsins sem tók tvo bíla ófrjálsri hendi eftir að hafa verið útskrifaður af geðdeild og stofnaði eigin lífi og annarra í hættu. Innlent 13.10.2005 19:11
Annað en fyrningarafnám mögulegt Bjarni Benediktsson alþingismaður sem ekki hefur viljað samþykkja frumvarp um afnám fyrningar kynferðisbrota óbreytt, segir aðra leið mögulega, það er að breyta refsiramma þannig að alvarlegustu brotin varði lífstíðarfangelsi. Innlent 13.10.2005 19:11
Geta útskrifast án samræmds prófs Menntamálaráðherra hefur breytt reglugerð tímabundið um samræmd stúdentspróf þannig að nemendur geti útskrifast stúdentar í vor án þess að hafa þreytt samræmd próf. Nemendur sem tóku samræmdu prófin eru ekki ánægðir með lausn ráðherrans. Innlent 13.10.2005 19:11
Braust inn og barði konu Ríflega fertugur maður var í gær dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að brjótast síðastliðið sumar inn til fyrrverandi sambýliskonu sinnar og lemja hana í andlitið. Maðurinn var þegar á skilorði og varð það til að þyngja dóminn. Innlent 13.10.2005 19:11
Skotið á erni með loftdælu Ólöglegum aðferðum var beitt til að verja æðavarp á norðanverðum Breiðafirði þegar skotið var á haferni með loftdælu. Upp komst um málið í eftirlitsflugi Náttúrufræðistofnunnar sem hefur eftirlit með arnarsetrum á varptíma. Innlent 13.10.2005 19:11
Pöddurnar vakna til lífsins Þegar hlýnar í veðri fara pöddurnar á stjá. Kóngulær spinna vefi, mýflugur suða í eyrum og járnsmiðir tölta um blómabeð. En hvar var allur þessi fjöldi í vetur? Hvert fór hann og hvaðan kom hann? Innlent 13.10.2005 19:11
Mikið um lúsasmit í skólum Mikið hefur verið um lúsasmit í skólum landsins að undanförnu ef marka má fjölda fyrirspurna og frétta af lús hjá Sóttvarnarlækni. Fjöldi smita liggur þó ekki fyrir þrátt fyrir að lúsasmit hafi orðið tilkynningaskyld árið 1999. Allir geta smitast en lúsin greinist helst hjá þriggja til tólf ára börnum. Mikilvægt er að nota kamb og lúsdrepandi efni til að ráð niðurlögum smitsins. Innlent 13.10.2005 19:11
Gervigreindarsetur stofnað Tölvukerfi sem læra af reynslunni, bregðast við ófyrirséðum uppákomum og taka sjálfstæðar ákvarðanir, eru hluti af því sem nýstofnað Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík vinnur að. Yngvi Björnsson og Kristinn R. Þórisson, forstöðumenn setursins eru báðir doktorsmenntaðir í gervigreind. Innlent 13.10.2005 19:11
Síðasta dreifing fyrir Landgræðslu Landgræðsluflugvélin Páll Sveinsson hóf í gær sína síðustu áburðardreifingu á vegum Landgræðslunnar og lýkur fluginu í næstu viku. Í næsta mánuði verður þessi fornfræga flugvél afhent Þristavinafélaginu sem vonast til geta haldið henni áfram flughæfri. Innlent 13.10.2005 19:11
Skilorðsdómur fyrir ýmis brot Nítján ára piltur var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnabrot, þjófnaði og eignarspjöll. Pilturinn braut skilorð með brotum sínum. Hann braust inn á heimili, inn í bíla og stal úr verslunum auk þess sem hann var tekinn í tvígang með fíkniefni í fórum sínum. Pilturinn segir brot sín hafa tengst fíkniefnavanda en hann hafi farið í meðferð síðan. Innlent 13.10.2005 19:11