Innlent

Fréttamynd

Hafa áhyggjur af hrefnuveiðum

Sendiherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands sendu í dag frá sér yfirlýsingu um hvalveiðar Íslendinga til utanríkisráðuneytisins. Segir þar að sendiherrarnir lýsi yfir áhyggjum sínum vegna tillögu Hafrannsóknarstofnunar til ríkisstjórnar Íslands um veiðar á 39 hrefnum á þessu ári í vísindaskyni.

Innlent
Fréttamynd

Aflaverðmæti eykst um 14 prósent

Á fyrstu tveimur mánuðum ársins nam aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum 12,6 milljörðum króna samanborið við 11 milljarða á sama tímabili 2004. Aflaverðmætið hefur því aukist um 14 prósent á milli ára eða um nærri 1,6 milljarða króna. Athygli vekur að verðmæti skel- og krabbadýraafla var aðeins 12 milljónir króna en á sama tímabili í fyrra var það tæpar 177 milljónir króna.

Innlent
Fréttamynd

Vikulegt leiguflug til Köben

Ferðaskrifstofan Trans-Atlantic á Akureyri hóf í kvöld vikulegt leiguflug milli Kaupmannahafnar og Egilsstaða, en flugvélin fer aftur til Kaupmannahafnar klukkan 7.30 í fyrramálið.

Innlent
Fréttamynd

Segir samfélagið framleiða öryrkja

Góð menntun, há laun, glæsilegt útlit og lífsgæði. Þetta eru kröfur samfélagsins í dag. Þeir sem ekki standa undir þeim lenda utan garðs og enda sem öryrkjar. Úrræði skortir og yfiriðjuþjálfi á geðsviði Landspítalans segir starfsfólkið vera að gefast upp. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Ræddi bara við suma umsækjenda

Ættleiðingarnefnd ræðir við suma umsækjendur í málum sem koma fyrir nefndina, aðra ekki. Hún er ekki í samvinnu við viðkomandi barnaverndarnefnd, að sögn Margrétar Hauksdóttur formanns ættleiðingarnefndar. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Flensa berist varla með farfuglum

Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir, telur hverfandi líkur á að fuglaflensa berist hingað til lands með farfuglum. Hann segir að berist fregnir af því að flensan sé farin að smitast manna á milli, verði viðbragðsáætlun strax sett í gang.

Innlent
Fréttamynd

Slapp ótrúlega vel í ljótu slysi

Maðurinn sem slapp ótrúlega vel eftir að vörubíll hans valt á Þjórsárdalsvegi á sunnudag hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Þetta er í annað skiptið á ævinni sem hann sleppur svona vel frá alvarlegu slysi.

Innlent
Fréttamynd

Krafist bankaábyrgðar

Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ kröfðu þá sem sóttu um byggingalóðir í Tröllateigshverfi árið 2003 um bankaábyrgð. Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri segir ánægju hafa ríkt um þessa ákvörðun.

Innlent
Fréttamynd

Lífslíkur íslenskra karla batna

Lífslíkur íslenskra karla hafa batnað mun meira en kvenna á síðustu áratugum, en þeir verða nú karla elstir í heiminum. Konurnar eru hins vegar dottnar niður í sjötta sæti.

Innlent
Fréttamynd

Gunnar tekur við bæjarstjórastarfi

Gunnar Einarsson tók nú klukkan ellefu við starfi bæjarstjóra Garðabæjar af Ásdísi Höllu Bragadóttur. Ásdís Halla er sem kunnugt er að taka við forstjórastarfi BYKO. Gunnar var áður íþrótta- og tómstundafulltrúi Garðabæjar. Fyrsta verk Gunnars sem bæjarstjóra verður að tilkynna um samþykkt bæjarstjórnar í morgun um umtalsverðar breytingar á gjaldskrám vegna þjónustu dagforeldra og einkarekinna leik- og grunnskóla.

Innlent
Fréttamynd

Skjálftahrinu ekki alveg lokið

Skjálftahrinunni suður af landinu er ekki alveg lokið þótt verulega hafi dregið úr henni. Á sjöunda tímanum í morgun urðu tveir skjálftar suður af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg, sá öflugri mældist 2,8 á Richter. Um tugur skjálfta hefur mælst frá miðnætti, flestir norður af landinu en einnig á hálendinu.

Innlent
Fréttamynd

Bjallað eftir bununni

Nú vinna starfsmenn Reykjavíkurborgar að því hörðum höndum að koma fyrir nýjum gosbrunni í tjörninni. Þessi nýji gosbrunnur er þýsk gæðasmíði að sögn Arnar Sigurðssonar staðgengils sviðsstjóra umhverfissviðs.

Innlent
Fréttamynd

Aukinn stuðningur geri bæinn betri

Fyrsta verk Gunnars Einarssonar, nýs bæjarstjóra í Garðabæ, var að tilkynna um auknar niðurgreiðslur með börnum hjá dagforeldrum og í einkareknum leikskólum. Tímamótaskref til að gera bæinn betri, segir Gunnar.

Innlent
Fréttamynd

Verðsamanburður ómarktækur

"Innlendar kannanir hafa sýnt að verð á fatnaði og skóm hefur að mestu staðið í stað eða lækkað undanfarin ár og því kemur þessi niðurstaða á óvart," segir Jón Þór Sturluson, forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar að Viðskiptaháskólanum við Bifröst.

Innlent
Fréttamynd

Flutt á sjúkrahús eftir bílveltu

Tvær konur og tvö börn sluppu vel þegar bifreið sem þau voru farþegar í valt við Sólheimaveg um klukkan þrjú í gær. Önnur konan var send til aðhlynningar á sjúkrahúsinu á Selfossi en aðrir sluppu ómeiddir.

Innlent
Fréttamynd

Hagnaður Símans þrefaldast

Hagnaður Símans á fyrsta ársfjórðungi þrefaldaðist á milli áranna 2004 og 2005. Hann var rúmir 1,2 milljarðar króna í ár en var á sama tímabili í fyrra 409 milljónir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum. Þar segir einnig að Síminn hafi á tímabilinu selt öll hlutabréf sín í Straumi fjárfestingabanka hf. og nam hagnaður af sölunni eftir skatta 576 milljónum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sendiherrar mótmæla hvalveiðum

Sendiherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands sendu utanríkisráðuneytinu yfirlýsingu í gær þar sem þeir lýsa andstöðu sinni við tillögur Hafrannsóknarstofnunar um veiðar á 39 hrefnum í vísindaskyni á þessu ári.

Innlent
Fréttamynd

Varar við ofnhitnun í efnahagslífi

Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, segir efnahagslífið á Íslandi vera að ofhitna. Ríkið verði að draga úr útgjöldum og vextir að hækka til að koma í veg fyrir að verðbólgan fari úr böndunum. Annars sé hætta á kreppuástandi þegar gengi krónunnar fer að lækka og dregur úr áhrifum stóriðjuframkvæmda.

Innlent
Fréttamynd

Hækka niðurgreiðslur með börnum

Gunnar Einarsson hefur tekið við starfi bæjarstjóra í Garðabæ. Ásdís Halla Bragadóttir, fráfarandi bæjarstjóri og forstjóri BYKO, afhenti Gunnari lyklana við hátíðlega athöfn á bæjarstjórnarskrifstofunum klukkan ellefu í morgun. Fyrsta verk nýs bæjarstjóra var að tilkynna nýja samþykkt bæjarráðs sem felur í sér mikla hækkun niðurgreiðslna með börnum hjá dagforeldrum og á einkareknum leikskólum.

Innlent
Fréttamynd

Nýr forstjóri Samskipa frá Mærsk

Fyrrverandi forstjóri Mærsk-skipafélagsins, Michael F. Hassing, verður næsti forstjóri Samskipa við hlið Ásbjörns Gíslasonar sem flytur sig um set til Íslands. Núverandi forstjóri, Knútur G. Hauksson, tekur við forstjórastarfi hjá Heklu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rauði krossinn safnar erlendu fé

Þeir sem eiga afgangsklínk og seðla frá útlöndum í krukkum geta nú komið því frá sér og stutt hjálparstarf í leiðinni. Næstu daga safna Sparisjóðurinn og Íslandspóstur erlendri mynt og seðlum fyrir Rauða krossinn. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra og Selma Björnsdóttir söngkona sýndu gott fordæmi þegar söfnunin var kynnt í dag og færðu Rauða krossinum afgangsmynt frá Kína og Úkraínu. Söfnunarumslögum verður dreift í hús á næstu dögum.

Innlent
Fréttamynd

Selma og Sigríður Anna gáfu klink

Selma Björnsdóttir söngkona og Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra gáfu í gær Rauða krossi Íslands afgangsklink og seðla frá ferðum sínum til Úkraínu og Kína.

Innlent
Fréttamynd

Unnið að leiðréttingum á umfjöllun

Bláa lónið er meðal ofmetnustu ferðamannastaða heims, segir blaðamaður breska stórblaðsins <em>Sunday Times</em> eftir heimsókn í lónið. Honum fannst það skítugt, alltof troðið af fólki og óaðlaðandi á allan hátt. Framkvæmdastjóri lónsins er mjög ósáttur við umfjöllunina og segir unnið að leiðréttingum.

Innlent
Fréttamynd

Bláa lóninu úthúðað í The Times

Bláa lónið fær harkalega útreið í breska stórblaðinu <em>The Times</em>. Þar segir að í ótal auglýsingum sé því lýst sem sælustað fyrir líkama og sál en veruleikinn sé allur annar. Blaðamaður blaðsins byrjar á því að lýsa búningsklefunum. Þar hafi verið mikil þrengsli og táfýla og álíka viðkunnalegt og í líkamsræktarstöð.

Innlent
Fréttamynd

Ekki þörf á frekari aðgerðum

Samkvæmt nýju snjóflóðahættumati sem unnið hefur verið vegna byggðar í Súðavík er ekki þörf á frekari aðgerðum til að tryggja öryggi íbúa á hættusvæðum. Þetta kemur fram á vef <em>Bæjarins besta</em>. Samkvæmt matinu eru öll hús í nýju byggðinni nema tvö utan hættusvæða.

Innlent
Fréttamynd

Fjórir eða fimm kærðir vegna slyss

Fjórir eða fimm menn hafa verið ákærðir af ríkissaksóknara vegna banaslyss sem varð við Kárahnjúkastíflu í mars á síðasta ári. Mennirnir eru starfsmenn Impregilo, Arnarfells og VIJV sem sér um eftirlit með svæðinu sem slysið varð á.

Innlent
Fréttamynd

Morgunganga á vegum FÍ alla vikuna

Ferðafélag Íslands stendur þessa vikuna fyrir morgungöngum alla daga vikunnar. Gengið er alla morgna klukkan 6 á fjöll í nágrenni Reykjavíkur. Í gær var gengið á Helgafell, í morgun á Vífilsfell og í fyrramálið verður gengið á Trölladyngju. Síðan eru það Úlfarsfell á fimmtudagsmorgun og að lokum Esjuganga á föstudag. Öllum morgunhönum sem treysta sér í fremur létta göngu er heimil þátttaka.

Innlent
Fréttamynd

Yfirdráttarlán aftur í sama horf

Frá lokum febrúar hafa heimilin aukið yfirdráttarlán sín um rúma tvo milljarða króna. Aukningin kom að mestu leyti fram í mars enda jukust yfirdráttarlán heimilanna aðeins lítillega í apríl eða um rúmar 350 milljónir króna. Í lok apríl skulduðu heimilin 60,5 milljarða króna í yfirdráttarlán og eru yfirdráttarlánin því orðin jafn há og þau voru fyrir skipulagsbreytinguna á íbúðalánamarkaði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segir rangfærslur í grein um lónið

Framkvæmdastjóri Bláa lónsins er afar ósáttur við umfjöllun blaðakonunnar Susan d'Arcy í The Sunday Times um helgina, sem segir lónið meðal ofmetnustu ferðamannastaða heims. Hann segir hana vera með hreinar rangfærslur í greininni.

Innlent
Fréttamynd

Guðmundur elstur íslenskra karla

Íslenskir karlmenn verða karla elstir í heiminum. Meðalaldur þeirra er nú kominn upp í 79 ár. Aldursforsetinn er Guðmundur Daðason en hann verður 105 ára síðar á árinu.

Innlent