Innlent

Fréttamynd

Átökin um Austurvöll

Forseta Alþingis er í nöp við árvissa ljósmyndasýningu á Austurvelli. Flestir aðrir nábúar Austurvallar eru ánægðir með sýningarnar. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Hálft ár fyrir að smygla Kínverjum

Maður frá Singapúr var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa smyglað fólki ólöglega á milli landa. Fjórir Kínverjar voru með honum í för og um tíma var talið að stúlkurnar, sem eru þrjár, væru 15 til 17 ára gamlar. Nú hefur hins vegar verið staðfest að fólkið er á aldrinum 19 til 24 ára.

Innlent
Fréttamynd

Mildaði dóm yfir bankaræningja

Hæstiréttur mildaði í dag dóm yfir manni sem framdi vopnað rán í útbúi Búnaðarbankans við Vesturgötu í nóvember árið 2003. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt manninn í tveggja ára fangelsi en Hæstiréttur lækkaði refsinguna í fimmtán mánaða fangelsi. Ránið framdi maðurinn í slagtogi við annan mann sem ók flóttabílnum.

Innlent
Fréttamynd

Íslensk olíumiðlun hefur starfsemi

Núna er verið að dæla fyrstu olíunni á vegum hins nýja olíufélags, Íslenskrar olíumiðlunar, í Neskaupstað. Það er hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson sem er að taka þar um 140 tonn af olíu. Íslensk olíumiðlun átti besta tilboðið þegar þjónusta við við skip Hafrannsóknarstofnunarinnar og Landhelgisgæslunnar við austanvert landið var boðin út.

Innlent
Fréttamynd

Fékk hálfs árs fangelsi

Kínverskur karlmaður var í gær dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að reyna að smygla ungum Kínverjum um Ísland til Bandaríkjanna.

Innlent
Fréttamynd

Tveir teknir á ofsahraða

Lögreglan í Keflavík stöðvaði ökumann á 167 kílómetra hraða á Garðvegi í gærkvöldi þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar. Ökumaðurinn missir skírteinið og fær sekt. Þá var annar ökumaður tekinn á 142 kílómetra hraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi, sá er grunaður um ölvun.

Innlent
Fréttamynd

Halldór skoðar skoska þingið

Halldór Blöndal, forseti Alþingis, er nú í heimsókn í Skotlandi í boði skoska þingforsetans til að kynna sér starfshætti skoska þingsins. Með þingforseta í för eru þrír þingmenn og forstöðumaður þingfundasviðs skrifstofu Alþingis. Sendinefndin mun eiga fundi með George Reid, forseta skoska þingsins, hitta fulltrúa frumkvöðla- og menningarnefndar þingsins og umhverfis- og landsbyggðarmálanefndar þess.

Innlent
Fréttamynd

Tveir vinna áfram að tónlistarhúsi

Austurhöfn hefur valið tvo af þremur þátttakendum í tillagna- og tilboðsgerð vegna byggingar tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar við höfnina í Reykjavík til áframhaldandi vinnu. Fyrirtækin sem um ræðir eru Fasteign og Klasi annars vegar og Portus Group hins vegar en þau fá nú tækifæri til að endurbæta og þróa tillögur sínar að uppbyggingu við höfnina m.a. með því að taka mið af þeim ábendingum sem ráðgjafar á vegum Austurhafnar hafa sett fram.

Innlent
Fréttamynd

Actavis setur tvö lyf á markað

Actavis Group hefur sett tvö ný samheitalyf á markað í níu Evrópulöndum í gegnum dótturfyrirtæki sitt, Medis. Um er að ræða taugalyfið Lamotrigine í tveimur lyfjaformum sem ætlað er til meðferðar við flogaveiki og til að fyrirbyggja geðsveiflur hjá sjúklingum með geðhvarfasjúkdóm.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Uppsagnirnar reiðarslag

Jóni Páli Jakobssyni sjómanni og eiginkonu hans var sagt upp störfum um mánaðamótin en þau starfa bæði hjá fiskvinnslufyrirtækinu Bílddælingi á Bíldudal. Hjónin eiga fjögur ung börn og hafa ekki í hyggju að yfirgefa Bíldudal.</font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Eyjamenn hafa tapað milljarði

Þegar dagbátar voru settir undir krókaaflamark og Alþingi samþykkti línuívilnun voru aflaheimildir að andvirði um eins milljarðs króna færðar með handafli frá Vestmannaeyjum. Sindri Viðarsson útskriftarnemi bendir á þetta í lokaritgerð sinni frá sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir brot í starfi

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjón í sex mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til tvegggja ára, fyrir að hafa notað bíl í eigu lögreglunnar í eigin þágu og fyrir að hafa ráðstafað öðrum lögreglubíl til sambýliskonu sinnar án þess að borga nokkuð fyrir hann.

Innlent
Fréttamynd

ÍAV semur um jarðboranir

Íslenskir aðalverktakar og Hitaveita Suðurnesja hafa undirritað samning um borun á tíu sjótökuholum vegna Reykjanesvirkjunar. Þetta verður fyrsta verkefni ÍAV á sviði jarðborana en fyrirtækið Jarðboranir hf. hefur fram til þessa setið nánast eitt að þessum markaði hérlendis. Fyrirtækin tvö kepptu í útboði um verkið en það felst í borun á holum til öflunar kælivatns vegna virkjunarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Selur ríkisfyrirtækjum olíu

Nýjasta íslenska olíufélagið seldi sína fyrstu olíu í morgun. Það er fyrirtækið Íslensk olíumiðlun, sem er í eigu Íslendinga og dansks fyrirtækis, sem hefur sérhæft sig í þjónustu við skip á hafi úti. Íslensk olíumiðlun er með birgðastöð í Neskakupstað og er eingöngu í sölu olíu á skip. Fyrir nokkrum dögum voru tankar fyrirtækisins í Neskaupstað fylltir og fyrsti viðskiptavinurinn var afgreiddur í dag en það var hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Höskuldur hættir hjá ÁTVR

Höskuldur Jónsson, forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, hefur óskað eftir lausn frá embætti frá og með fyrsta september næstkomandi og hefur fjármálaráðherra fallist á það. Höskuldur hefur verið forstjóri ÁTVR í tæplega 20 ár, eða frá 1. apríl 1986. Þar áður var hann ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu um 11 ára skeið.

Innlent
Fréttamynd

Yfirheyrðir vegna auðgunarbrota

Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur yfirheyrt sakborninga og vitni í Baugsmálinu svokallaða að undanförnu að því er fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

Sjö þúsund nýir bílar

Aldrei hafa jafn margir bílar selst á jafn stuttum tíma hér á landi og í maímánuði. Þá voru nýskráðir 2.012 nýir fólksbílar og þá hafa selst meira en 7.000 nýir bílar það sem af er ári. Metið í nýskráningu bíla á ári síðustu ár eru rúmlega 15 þúsund bílar árið 1999. Ef fram heldur sem horfir fellur það met í ár.

Innlent
Fréttamynd

Oddur vaknar klukkan sex

"Það hefur verið blíða á Kárahnjúkum síðustu daga," segir Oddur Friðriksson, sem vinnur að virkjunarfræmkvæmdunum þar efra.

Innlent
Fréttamynd

Einn lax á fyrsta degi Norðurár

Laxveiðin á landinu hófst í gær með opnun Norðurár. Framan af leit út fyrir að ekki tækist að ná laxi á land en um níuleytið í gærkvöldi veiddist átta punda hrygna.

Innlent
Fréttamynd

Kvöld í Hveró - Hjálmar

Hjálmar efna til tónleika í Hveragerðiskirkju föstudaginn 3. júní. Tónleikarnir eru lokakonsert tónleikaraðarinnar Kvöld í Hveró sem fram hefur farið í kirkjunni nú á vormánuðum. Helgi Valur Ásgeirsson trúbador frá Hveragerði hitar upp fyrir Hjálma og flytur lög af nýútkominni sólóplötu sinni.

Lífið
Fréttamynd

Kalt en þurrt í maí

Veður í maí var heldur óvenjulegt. Það var óvenjuþurrt og sólríkt um meginhluta landsins og lengst af fremur svalt og næturfrost viðloðandi. Meðalhiti í Reykjavík var 5,7 stig og er það 0,6 stigum undir meðallagi.

Innlent
Fréttamynd

Vá vegna fjölónæmra baktería

Fjölónæmum baketríum fjölgar með ógnandi hætti á Íslandi. Sérfræðingar á Norðulöndum biðla til stjórnvalda að grípa til samstillts átaks til að koma í veg fyrir að þær nái fótfestu. Þeir segja bakteríurnar eina mestu ógn við sjúklinga og heilbrigðiskerfi heimsins.

Innlent
Fréttamynd

Vilja fjármuni til varnar MÓSU

Sýkingum af völdum fjölónæmrar bakteríu, MÓSA, hefur farið hratt fjölgandi á Norðurlöndunum á síðari árum. Í öðrum Evrópulöndum er þessi veira orðin landlæg. Sérfræðingar á Norðurlöndum vilja skera upp herör gegn henni, ella sé vá fyrir dyrum. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Skrifa ríkisstjóra vegna Arons

RJF-hópurinn hefur skrifað ríkisstjóranum í Texas bréf til að knýja á um lausn Arons Pálma Ágústssonar úr haldi í Texas. Bréfinu til Ricks Perrys ríkisstjóra fylgir bænabréf frá biskupi Íslands þar sem fram kemur að velferð og frelsi Arons Pálma hafi verið bænarefni í kirkjum landsins og verði þar til hann verður látinn laus.

Innlent
Fréttamynd

Stunduðu veggjakrot fyrr á öldum

Skólapiltar í Skálholti stunduðu veggjakrot fyrr á öldum og biskupar voru vel haldnir miðað við almúgann, samkvæmt því sem fornleifauppgröftur í Skálholti hefur leitt í ljós.

Innlent
Fréttamynd

Of gamall fyrir heyrnartæki

Reykvískur ellilífeyrisþegi fékk þau svör hjá stéttarfélaginu sínu, þegar hann bað um styrk til kaupa á heyrnartæki, að hann væri orðinn of gamall. Hann kveðst hafa greitt í félagið alla tíð og er sár vegna synjunarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Bílddælingar slegnir en vongóðir

Allir starfsmenn fiskvinnslufyrirtækisins Bílddælings fengu uppsagnarbréf í lok vinnudags á þriðjudag og er uppsagnarfresturinn einn mánuður. Búist er við að fyrirtækið haldi áfram að starfa en endurskipuleggja á reksturinn meðan uppsagnarfresturinn rennur út.

Innlent
Fréttamynd

Samtök fámennra skóla álykta

Samtök fámennra skóla hafa áhyggjur af "þeirri tilhneigingu sem nú virðist vera ríkjandi í landinu að sameina og leggja niður hvern skólann af öðrum í nafni fjárhagslegrar hagræðingar" eins og segir í ályktun samtakanna.

Innlent
Fréttamynd

Virkjanarétturinn hjá heimamönnum

Skagfirðingar ætla að taka fullan þátt í álverskapphlaupinu og stofnuðu sérstakt félag í því skyni á Sauðárkróki í gærkvöldi. Þar var ákveðið að vinna að því að virkjanaréttur skagfirskra fallvatna yrði í höndum heimamanna.

Innlent