Innlent

Fréttamynd

Sama konan í tveimur ránum?

Flest bendir til að ein og sama unga og ljóshærða konan hafi staðið að tveimur ránum á höfuðborgarsvæinu seint í gærkvöldi. Fyrst ógnaði hún starfsstúlku á American Style í Kópavogi með steikarhnífi á tólfta tímanum í gærkvöldi og heimtaði peninga.

Innlent
Fréttamynd

Ráðningar gagnrýndar

Ungir Jafnaðarmenn harma hvernig staðið er að skipun í opinber embætti á Íslandi. Þetta kemur fram í ályktun framkvæmdastjórnar UJ, þar sem nýafstaðin skipun sendiherra Íslands er gagnrýnd.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir fjölda brota

Maður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir fjölmörg brot, m.a. fyrir tilraun til ráns á Péturspöbb á Höfðabakka, hann var tekinn próflaus og undir áhrifum fíkniefna við akstur, braut vopnalög og sveik vörur út úr verslunum með skjalafalsi.

Innlent
Fréttamynd

Ungar konur reyna oftar sjálfsvíg

Af þeim hundruðum sem reyna að fremja sjálfsvíg á ári hverju eru tveir þriðju ungar konur. Sjálfsvígum hjá ungum mönnum hefur fækkað verulega á undanförnum þremur árum. Þunglyndi og námsörðugleikar fara oft saman

Innlent
Fréttamynd

Eldur kviknaði í rútu

Eldur kviknaði í rútubíl upp úr klukkan fjögur í nótt þar sem hann stóð á athafnasvæði skammt frá Helguvíkurhöfn á Reykjanesi. Slökkviliðið í Keflavík var kallað á vettvang til að slökkva eldinn og gekk það vel. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í bílnum en ekki er vitað hverjir brennuvargarnir kunna að vera.

Innlent
Fréttamynd

Fjárlög: Alvarlegir misbrestir

Alvarlegir misbrestir eru við framkvæmd fjárlaga samkvæmt greinargerð Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga árið 2004. Í greinargerðinni segir að margir fjárlagaliðir fari oft langt fram úr fjárheimildum án þess að forstöðumenn og ráðuneyti bregðist við með tilskildum hætti.

Innlent
Fréttamynd

GPRS-þjónusta hjá Og Vodafone

Og Vodafone hefur gert samning við Landssíma Íslands um GPRS-reikiþjónustu. GPRS er gagnflutningsþjónusta fyrir farsíma og gerir notendum kleift að miðla myndum, hreyfimyndum og gögnum. Einnig er hægt að vafra um á Netinu og sýsla með tölvupóst.

Innlent
Fréttamynd

Íslenskir bændur styrktir mest

Bændur á Íslandi fá hlutfallslega hæstan ríkisstyrk allra þjóða innan OECD, eða 69 prósent allra tekna sinna. Það er þrefalt hærra hlutfall en bændur í OECD ríkjunum þrjátíu fá að meðaltali. Stofnunin hvetur til endurskoðunar styrkjakerfisins. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Grasspretta stutt á veg komin

Grasspretta á túnum bænda er víða tveimur til þremur vikum skemur á veg komin en verið hefur undanfarinn áratug og dæmi eru um að bændur hafi orðið heylausir í vor þar sem þeir þurftu að hafa fé lengur á húsum en undanfarin ár.

Innlent
Fréttamynd

Kom ekki að samrunaheimild

Gylfi Magnússon, formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins, vísar á bug yfirlýsingum framkvæmdastjóra Iceland Express um meint vanhæfi samkeppnisyfirvalda til að taka á deilum tengdum Flugleiðum.

Innlent
Fréttamynd

Vandræði vegna gjaldtöku

Vandræðaástand hefur skapast við Leifsstöð vegna þeirrar ákvörðunar flugvallarstjórnar að taka gjald af öllum er nýta sér skammtímastæði við stöðina.

Innlent
Fréttamynd

60 skjálftar síðan í nótt

Jarðskjálftahrina hófst rétt vestan við Kleifarvatn á fjórða tímanum í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá skjálftavakt Veðurstofu Íslands hafa alls um sextíu skjálftar mælst á svæðinu síðan klukkan þrjú í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Standa við auglýsingar sínar

Byggingavörufyrirtækið Byko hefur lagt fram kvörtun til Samkeppnisstofnunnar vegna auglýsinga Múrbúðarinnar sem birst hafa í fjölmiðlum að undanförnu. Í þeim kemur fram verðsamanburður á vörum hjá Múrbúðinni annars vegar og þremur samkeppnisaðilum hins vegar og er samkeppninni verulega í óhag.

Innlent
Fréttamynd

Bændur fá 70% tekna frá ríkinu

Íslenskir bændur fá hærra hlutfall tekna sinna frá hinu opinbera en bændur í öðrum löndum OECD. Nærri sjötíu prósent tekna íslenskra bænda koma frá hinu opinbera og aðeins bændur í Sviss og Noregi fá viðlíka hátt hlutfall tekna sinna frá ríkinu.

Innlent
Fréttamynd

Rotaðist í Brynjudal í Hvalfirði

Maður var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss eftir vinnuslys í Brynjudal í Hvalfirði nokkru fyrir hádegi í gær. Maðurinn fékk högg á höfuðið og missti við það meðvitund þegar hann var að losa slyskju sem rann til og skall á hann.

Innlent
Fréttamynd

Kynferðisbrotum fækkaði um 25%

Tilkynningum um kynferðisbrot í Reykjavík fækkaði um fjórðung í fyrra, innbrotum fækkaði um 12%, en fíkniefnabrotum fjölgaði um 3%. Karlar voru rúm áttatíu prósent þeirra sem handteknir voru. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu lögreglustjórans í Reykjavík fyrir árið 2004.

Innlent
Fréttamynd

Í forsæti Eystrasaltsráðsins

Ísland tekur við formennsku í Eystrasaltsráðinu í fyrsta sinn þann 1. júlí næstkomandi og mun gegna formennskunni í eitt ár. Helstu áhersluatriðin í formennskutíð Íslands verða samvinna aðildarríkja á sviði orku- og umhverfismála, samvinna Eystrasaltsráðsins við önnur svæðisbundin samtök og efling á starfi nefnda um efnahagssamvinnu og um málefni barna.

Innlent
Fréttamynd

1000 dagar frá síðasta vinnuslysi

Starfsmenn Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga fagna því í dag að 1000 dagar eru liðnir frá því að síðast varð vinnuslys sem leiddi til fjarveru starfsmanns félagsins. Margþætt starf hefur stuðlað að þessum árangri.

Innlent
Fréttamynd

Slógust tveir við lögreglu

Tveir menn um tvítugt voru handteknir snemma í gærmorgun eftir tilraun til að brjótast inn í söluturninn Sunnutorg við Langholtsveg um nóttina. Til mannanna sást þar sem þeir voru að reyna að komast inn um klukkan hálf fimm um nóttina, en að sögn lögreglu virtist sem styggð hafi komið að þeim þegar þjófavarnarkerfi fór í gang.

Innlent
Fréttamynd

Hætt að prenta Lögbirtingablaðið

Hætt verður að prenta Lögbirtingablaðið í núverandi formi frá 1. júlí. Útgáfan verður rafræn frá þeim degi og réttaráhrif auglýsinga í blaðinu verða bundin við hina rafrænu útgáfu. Áfram verður þó hægt að vera áskrifandi að vikulegri prentaðri útgáfu blaðsins en þá þarf að greiða tólf þúsund krónur fyrir prentun og póstburð.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfsvígum fækkar

Sjálfsvígum 24 ára og yngri karla hefur fækkað um rúmlega helming frá árabilinu 1999 til 2001.

Innlent
Fréttamynd

Varaformannskosning í lagi

Sérstök athugun á framkvæmd landsfundar Samfylkingarinnar í maí síðastliðnum leiddi meðal annars í ljós að ekki var reynt að kjósa fyrir aðra í varaformannskjöri flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Engin tjöld enn á Kárahnjúkum

Enn virðast engin tjöld mótmælenda farin að rísa á Kárahnjúkasvæðinu. Lögreglan á Egilsstöðum fór í eftirlitsferð um svæðið í morgun og ætlar að vera þar fram eftir degi.

Innlent
Fréttamynd

Hægðu á þér

„Hægðu á þér – tökum slysin úr umferð“ er yfirskrift þjóðarátaks Vátryggingafélags Íslands gegn umferðarslysum sem félagið stendur nú fyrir fimmta sumarið í röð. Að þessu sinni er athyglinni beint að þeirri staðreynd að beint samhengi er á milli of mikils hraða og alvarlegra afleiðinga umferðarslysa.

Innlent
Fréttamynd

Óbreyttur heildarkvóti

Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra heldur sig við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar og heimilar veiðar á 198 þúsund tonnum af þorski og 105 þúsund tonnum af ýsu á næsta fiskveiðiári.

Innlent
Fréttamynd

Karlar leita sér frekar hjálpar

Meginástæða þess að sjálfsvígum karla hefur fækkað á undanförnum árum er að þeir eru frekar tilbúnir að ræða vandamál sín og leita sér hjálpar en áður. Þetta segir landlæknir.

Innlent
Fréttamynd

Hugsanleg tollalækkun

Tollar á landbúnaðarvörum munu hugsanlega lækka um 50 til 70 prósent á næsta ári í kjölfar nýs samnings við alþjóðaviðskiptastofnunina WTO sem unnið er að. Þetta segir Ólafur Friðriksson skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu en í nýrri skýrslu efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD kemur fram að opinberir styrkir til bænda séu hlutfallslega hæstir á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Óvandaðar umsagnir Eflingar

Vinnumálastofnun hefur sent frá sér athugasemd vegna yfirlýsingar stéttarfélagsins Eflingar um málefni Pólverjanna tólf sem kvörtuðu til stéttarfélagsins undan bágum kjörum og slæmum aðbúnaði. Í athugasemdinni segir m.a. að Efling hafi þann háttinn á að hafna nánast öllum umsóknum á grundvelli atvinnuástandsins í landinu. Því sé ekki um að ræða vandaðar og ígrundaðar umsagnir.

Innlent
Fréttamynd

Fengu sprengiefnistunnu í nótina

Skipstjórinn á Aðalbjörgu RE-5 hafði samband við Landhelgisgæsluna í morgun og óskaði eftir aðstoð vegna torkennilegs hlutar sem hann hafði fengið í dragnót. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar fengu far með björgunarbát út í skipið sem var statt út af Þorlákshöfn.

Innlent
Fréttamynd

Byggingum frestað á Austurlandi

Fólksflutningar til Austurlands hafa gengið hægar en búist var við og hafa verktakar frestað íbúðabyggingum. Talsmenn Alcoa eru þó sannfærðir um að ekki þurfi að leita út fyrir landsteinana til að manna störf í álverinu.

Innlent