Innlent

Fréttamynd

Fengu leyfi fyrir tjaldbúðunum

Skipuleggjendur mótmælabúða við Kárahnjúka hafa nú fengið leyfi heilbrigðiseftirlits Austurlands fyrir tjaldbúðunum að sögn Ólafs Páls Sigurðssonar, helsta hvatamanns aðgerðanna. Þá segist hann búast við að fá leyfi landeigenda í kvöld eða fyrrramálið en landið tilheyrir prestsjörðinni Valþjófsstað.

Innlent
Fréttamynd

Blað brotið í skipulagsumræðu

Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri segir marka tímamót að bæjarstjórnin á Seltjarnarnesi skuli hafa verið reiðubúin að leggja tvo skulbindandi kosti í skipulagsmálum í hendur bæjarbúa. Hann er sáttur við kjörsóknina um helgina.

Innlent
Fréttamynd

Tveir kærðir fyrir hraðakstur

Lögreglan í Keflavík kærði tvo ökumenn í nótt fyrir hraðakstur. Annar þeirra var mældur á 146 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar. Þá var ökumaður stöðvaður á 95 kílómetra hraða innanbæjar í Keflavík þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar.

Innlent
Fréttamynd

Össur á Evrópuráðsþinginu

Atlantshafsbandalagið hefur átt í viðræðum við bæði Ísraelsmenn og Palestínumenn um þá málaleitan Palestínumanna að bandalagið komi að sáttaumleitan fyrir botni Miðjarðarhafs.

Innlent
Fréttamynd

Samúð um allan heim

Samúðin með fórnarlömbum hamfaranna greip um sig um allan heim og fólk sameinaðist í að styðja við þá sem stóðu eftir án heimils, lifibrauðs og ástvina. Framlög almennings á Íslandi námu 231 milljón króna.

Innlent
Fréttamynd

Björk syngur á Live 8

Björk Guðmundssdóttir mun vera á meðal þeirra sem syngur á Live 8 tónleikunum í Tókýó í Japan þann 2. júlí næstkomandi. Tónleikarnir eru einir af mörgum sem haldnir verða samtímis víða um heim til að vekja athygli á aðstæðum bágstaddra í Afríku.

Lífið
Fréttamynd

Sjálfstæðisflokkur bætir við sig

Sjálfstæðisflokkurinn bætir verulega við sig fylgi í suðvesturkjördæmi samkvæmt könnun Gallup frá því byrjun mánaðarins. Hann hefur samkvæmt könnuninni 44 prósenta fylgi í kjördæminu en hlaut 38,5 prósent fylgi í kosningunum 2003.

Innlent
Fréttamynd

Segir lögreglu hafa beitt harðræði

Lögreglan í Reykjavík handtók í fyrrinótt þrjá pilta á aldrinum fimmtán til sextán ára við verslun Select í Breiðholti grunaða um að hafa unnið skemmdarverk á húsum í nágrenninu. Samkvæmt upplýsingum lögreglu voru piltarnir ölvaðir og einn þeirra með hamar innanklæða.

Innlent
Fréttamynd

Gróðursett í tilefni afmælis SÍ

75 trjáplöntur verða gróðursettar nú fyrir hádegi í Vinaskógi í Þingvallasveit í tilefni 75 ára afmælis Skógræktarfélag Íslands. Athöfnin hófst klukkan 10.15 og lýkur laust fyrir klukkan tólf. Þangað er boðið ýmsum ráðamönnum þjóðarinnar er tengjast félaginu, aðilum er starfað hafa í skógræktarfélögunum eða veitt skógræktarfélögunum liðveislu á einn eða annan hátt.

Innlent
Fréttamynd

Handteknir eftir slagsmál

Tveir menn voru vistaðir í fangaklefum lögreglunnar í Keflavík eftir átök við lögreglumenn utan við skemmtistað í bænum í nótt. Í Hafnarfirði voru þrír ökumenn teknir grunaðir um ölvun við akstur en að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglunni þar í bæ. Sömu sögu er að segja frá Akureyri þar sem nóttin var róleg. Þó var einn ökumaður stöðvaður grunaður um ölvun við akstur.

Innlent
Fréttamynd

Segir Ólínu leggja sig í einelti

"Engar kvartanir höfðu borist, svo þetta er bara einelti sem heldur áfram," segir Ingibjörg Ingadóttir, enskukennari við Menntaskólann á Ísafirði, um þá ákvörðun Ólínu Þorvarðardóttur skólameistara að fá óháðan aðila til að fara yfir vorpróf hennar. 

Innlent
Fréttamynd

75 ára afmæli Skógræktarfélagsins

Skógræktarfélag Íslands fagnaði 75 ára afmæli sínu í Þingvallasveit í dag. Afmælishátíðin var haldin í Vinaskógi í Kárastaðalandi þar sem 75 birkitré voru gróðursett til hátíðabrigða.

Lífið
Fréttamynd

Skorti skilning á fjármálum HÍ

Páll Skúlason, fráfarandi rektor Háskóla Íslands, sakaði fjármálaráðuneytið um skilningsskort á fjármálum Háskóla Íslands í síðustu brautskráningarræðu sinni í Egilshöll í dag. Páll sagði viðbrögð embættismanna ráðuneytisins við nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar um háskólann benda til þess að þeir skildu ekki hvernig standa þyrfti að uppbygginu öflugs rannsóknarháskóla.

Innlent
Fréttamynd

Samkvæmistjald við Kárahnjúka

Samkvæmistjald hefur nú verið sett upp í tjaldbúðum mótmælenda við Kárahnjúka. Þar eru auk þess komin upp þrjú svefntjöld. Allt hefur verið með friði og spekt og hafa tjaldbúar engar tilraunir gert til að fara inn á vinnusvæðið eða trufla verktaka, samkvæmt upplýsingum frá eftirlitsaðila með framkvæmdunum. Á heimasíðu mótmælenda voru síðustu fréttir þær að tólf manns væru í tjaldbúðunum.

Innlent
Fréttamynd

Maður sem leitað var að fundinn

Maðurinn sem lýst var eftir á Austurlandi í gær er kominn fram. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Eskifirði fór hann ranga leið á leið frá Djúpavogi til Egilsstaða í fyrradag og lenti á torfærum vegslóða og festi bíl sinn.

Innlent
Fréttamynd

Minni velta á húsnæðismarkaði

Velta á húsnæðismarkaði á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var rétt rúmlega 2,5 milljarðar og hefur ekki verið minni frá því í ágúst á síðasta ári. Meðalupphæð á hvern kaupsamning var 19,7 milljónir króna. Veltan dróst saman um meira en helming frá vikunni á undan en þá velti húsnæðismarkaður höfuðborgarsvæðisins um 5,6 milljörðum. Þetta kemur fram á vefsíðu Fasteignamats ríkisins.

Innlent
Fréttamynd

Hringferð Japananna lokið

Tveggja vikna hringferð japanska Vetnislundans um Ísland er lokið og eru Japanarnir ánægðir með hvernig til tókst. Vetnislundinn er nokkurskonar þríhjól sem fimm japanskir áhugamenn um nýtingu hreinnar orku fluttu til landsins til hringferðarinnar.

Lífið
Fréttamynd

Pítsusendill rændur í austurborg

Pítsusendill var rændur í austurborg Reykjavíkur um sexleytið í morgun. Maður ógnaði sendlinum með hnífi og rændi af honum farsíma og tösku með lítilræði af peningum. Málið er í rannsókn og er ræningjans leitað. Þá voru sex ökumenn stöðvaðir í miðborginni grunaðir um ölvun við akstur og einn aðili var tekinn með lítilræði af amfetamíni á sér á Laugaveginum í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Kannar vísbendingar eftir rán

Pítsusendill var rændur í austurborg Reykjavíkur um sexleytið í morgun. Hann hafði verið pantaður að fjölbýlishúsi við Hvassaleiti. Í anddyri þess réðst maður vopnaður hnífi að sendlinum og rændi af honum farsíma og tösku með lítilræði af peningum. Ræningjans er leitað en lögreglan telur sig hafa ákveðnar vísbendingar sem verið er að kanna.

Innlent
Fréttamynd

Vísar fullyrðingunum á bug

Forstjóri Útlendingastofnunar vísar algerlega á bug fullyrðingum átta hælisleitenda sem saka íslensk stjórnvöld um seinagang í þeirra málum. Hún segir vinnslu mála af þessu tagi oft flókna og taka langan tíma þar sem rangar upplýsingar séu oft gefnar.

Innlent
Fréttamynd

Engir stofnfjárhlutir SPH seldir

Engir stofnfjárhlutir í Sparisjóði Hafnarfjarðar hafa verið seldir. Þetta fullyrða innanbúðarmenn hjá sjóðnum á sama tíma og Fjármálaeftirlitið sér ástæðu til að kanna hvort viðskipti með stofnfé hafi farið fram

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kínverskar konur á völturunum

Kínversku valtarakonurnar hafa vakið óskipta athygli á Kárahnjúkum, enda eru konur innan við tíundi hluti starfsmanna. Einn æðsti stjórnandi á svæðinu er þó kona; verkfræðingur sem jafnframt er verðlaunaður barnabókahöfundur.

Innlent
Fréttamynd

Leitað vegna meintrar nauðgunar

Karlmanns um fimmtugt er nú leitað eftir að kona um þrítugt kom á lögreglustöð í dag og kærði hann fyrir nauðgun. Atburðurinn á að hafa gerst í heimahúsi nálægt miðborg Reykjavíkur milli klukkan eitt og tvö í nótt en karlmaðurinn og konan þekktust.

Innlent
Fréttamynd

Ólafur Ragnar í Utah

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands er nú í opinberri heimsókn í Utah-fylki í Bandaríkjunum. Í gær var hann við athöfn í bænum Spanish Fork til heiðurs 16 Íslendingum sem settust þar að fyrir um 150 árum síðan. Í bænum er minnismerki sem ber nöfn landnámsmannana og 410 afkomenda þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Kuldakasti lokið fyrir norðan

Langvarandi kuldakasti á Norður- og Austurlandi virðist vera lokið. Nú er komin sunnanátt með rigningu sunnan heiða en hlýindum og þurrviðri norðanladns og austan. Klukkan níu í morgun var hitinn kominn í þrettán stig á Akureyri, fjórtán á Hallormsstað en hlýjast var á Miðfjarðarnesi við Bakkaflóa, fimmtán gráður.

Innlent
Fréttamynd

Seltirningar völdu S-tillögu

Meirihluti Seltirninga veitti í gær svokallaðri S-tillögu brautargengi í almennum kosningum um skipulag í bænum. Kosið var milli tveggja tillaga um framtíðaruppbyggingu á Hrófskálamel þar sem frystihúsið Ísbjörninn stóð áður og við Suðurströnd. Deilt var um hvort gervigrasvöllur ætti að vera austan eða vestan við íþróttamiðstöð bæjarins.

Innlent
Fréttamynd

4000 manns á Kirkjudögum

Skólavörðuholtið iðaði af lífi í dag í tengslum við Kirkjudaga sem Þjóðkirkjan stendur fyrir. Talið er að um fjögur þúsund manns hafi tekið þátt í dagskránni í dag. Boðið var upp á málstofur, listsýningar og götuleikhús svo fátt eitt sé nefnt.

Innlent
Fréttamynd

Aldrei fleiri brautskráðir frá HÍ

Fjölmennasta brautskráning í sögu Háskóla Íslands fer fram í Egilshöll í dag og hefst hún klukkan eitt. Þetta er jafnframt 24. og síðasta brautskráning í rektorstíð Páls Skúlasonar. 801 kandídat verður útskrifaður og en sá elsti verður áttræður í haust. Það er Magnús Sigurðsson sem útskrifast með B.A.-próf í íslensku. Þá má geta þess að fyrstu nemendur ljúka nú meistaranámi í fötlunarfræðum og í upplýsinga- og bókasafnsfræðum.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert stofnfé hafi verið selt

Stjórnarformaður Sparisjóðs Hafnarfjarðar, Páll Pálsson, segir að enginn stofnfjáreigandi hafi selt hlut sinn. Í yfirlýsingu sem hann sendi í gærkvöldi, fyrir hönd stjórnar sparisjóðsins, kemur fram að viðskipti með bréf séu háð samþykki stjórnar og að engin beiðni hafi borist stjórninni frá stofnfjáraðilum um að framselja bréf sín.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kosið um skipulagsmál á Nesinu

Seltirningar kjósa í dag um skipulagsmál á Hrólfskálamel og Suðurströnd. Valið stendur á milli tveggja tillagna sem nefndar eru tillögur H og S. Samkvæmt tillögu H er gert ráð fyrir gervigrasvelli og blandaðri byggð á Hrólfskálamel, þar sem fyrirtæki er nú, en íbúðabyggð á Suðurströnd fyrir neðan Valhúsaskóla fyrir um 350 íbúa. Í tillögu S er þessu öfugt farið, þ.e. gert er ráð fyrir að gervigrasvelli fyrir neðan Valhúsaskóla en byggð á Hrólfskálamel fyrir um 240 íbúa.

Innlent