Innlent
Neikvætt fyrir lögregluna Innlent 17.10.2005 23:47 Áfall fyrir ákæranda Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður og formaður vinstri grænna segir það áfall eftir víðtæka og harkalega aðgerð af hálfu lögreglu og ákæranda að uppskeran skuli ekki vera meiri en raun ber vitni í Baugsmálinu. "Það er ekki hægt annað en að líta á þetta sem stóráfall fyrir ákæruvaldið." Innlent 17.10.2005 23:47 Vilja samkomulag um flutninga Stjórn Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga og heilbrigðisráðuneytið til að gera með sér samkomulag um framkvæmd sjúkraflutninga á landsvísu og leggur til frekari sameiningu á sjúkraflutningaþjónustu við slökkvilið landsins. Innlent 17.10.2005 23:47 Styður framboð til öryggisráðs Stjórn Kjördæmasambands Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður leggur áherslu á að Ísland standi við framboð sitt til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna í tilkynningu sem sambandið sendi frá sér í dag. Er það mat stjórnar sambandsins að Ísland eigi fullt erindi í öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna og hafnar hún málflutningi þess efnis að Ísland hafi ekki burði til að sitja í ráðinu. Innlent 17.10.2005 23:47 Ítrekaði framboð Íslands Davíð Oddsson utanríkisráðherra ítrekaði framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í ávarpi sem hann hélt á allsherjarþingi samtakanna í gærkvöldi. Hann tók þó vægar til orða en Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gerði í síðustu viku og sagði aðeins að Ísland hefði áður lýst áhuga á að taka virkan þátt í starfi öryggisráðsins. Innlent 17.10.2005 23:46 « ‹ ›
Steinbítur friðaður við hrygningar Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um friðun steinbíts á hrygningartíma á Látragrunni, þ.e. frá og með 24. september næstkomandi til loka marsmánaðar 2006. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að reglugerðin sé gefin út að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar og í samráði við Landssamband íslenskra útvegsmanna. Innlent 17.10.2005 23:47
Ásakanir án innistæðu "Mér finnst þetta mjög alvarleg tíðindi fyrir íslenskt réttarkerfi vegna þess að ákæra hefur í för með sér slíka röskun á högum fólks að það verður að gera kröfu til ákæruvaldsins um að skýrt komi fram í hverju brot er falið og gegn hverju og hverjum," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. Innlent 17.10.2005 23:47
Hafi verið numin á brott Lögreglan í Reykjavík rannsakar hvort átta ára gömul stúlka hafi verið numin á brott skammt frá Laugardalslauginni. Innlent 17.10.2005 23:47
Portus Group með vinningstillögu Portus Group, sem er í eigu Landsafls hf., Nýsis hf. og Íslenskra aðalverktaka hf., er með vænlegasta tilboðið í hönnun, byggingu og rekstur tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels við Austurhöfnina í Reykjavík samkvæmt niðurstöðu matsnefndar og sérfræðinga Austurhafnar-TR. Þetta var kynnt við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag sem og sú ákvörðun stjórnar Austurhafnar-TR að ganga til samninga um verkefnið við Portus Group. Innlent 17.10.2005 23:47
Eldri borgarar á fimleikamót Fjöldi íslenskra eldri borgara hyggur á þátttöku í fimleikasýningunni Gullnu árin 2005 sem Fimleikasamband Evrópu efnir til á Kanaríeyjum í nóvember. Sýningin er nú haldin í fyrsta sinn en stefnt er að því að hún fari fram fjórða hvert ár í framtíðinni. Innlent 17.10.2005 23:47
Skortur á verkamönnum í Póllandi Byggingaframkvæmdir í Póllandi eru að stöðvast vegna þess að pólskir byggingaverkamenn eru annaðhvort að vinna við Kárahnjúka eða einhverjar aðrar framkvæmdir á Vesturlöndum. Erlent 17.10.2005 23:46
Frávísun máls felld úr gildi Hæstiréttur hefur fellt úr gildi frávísun héraðsdóms í máli Auðar Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni. Auður sakar Hannes um ritstuld í bók hans <em>Halldór</em>. Málið fer nú aftur fyrir héraðsdóm sem mun taka efnislega afstöðu til þess. Þegar Héraðsdómur vísaði málinu frá var það á þeirri forsendu að það væri ekki nógu vel reifað. Innlent 17.10.2005 23:46
Deila um val á fulltrúum á þing Núverandi og fyrrverandi valdhafar í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, eru komnir í hár saman vegna vals á fulltrúum á þing Sambands ungra sjálfstæðismanna. Þrjátíu og einn fyrrverandi trúnaðarmaður félagsins hefur undirritað yfirlýsingu þar sem stjórn Heimdallar er sökuð um valdníðslu og ólýðræðislegar tilraunir til að tryggja frambjóðendum sér þóknanlegum kjör í embætti formanns og varaformanns Sambands ungra sjálfstæðismanna. Innlent 17.10.2005 23:47
Fálka sleppt úr Húsdýragarði Fyrr í dag var grænlandsfálka, sem dvalið hafði í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá því sumar, sleppt við Hengil. Í tilkynningu frá garðinum segir að fálkinn, sem er kvenfugl, hafi komið í garðinn eftir að hafa fundist grútarblautur á Snæfellsnesi. Grúturinn var þveginn af henni en til þess þurfti tvo þvotta. Innlent 17.10.2005 23:47
Leituðu neyðarsendis á Reykjanesi Varðskip, björgunarskipið frá Sandgerði og björgunarsveitarmenn á landi leituðu í allan gærdag að neyðarsendi sem gaf til kynna að að einhver vá væri við Reykjanes. Gervihnöttur nam sendingarnar og bárust upplýsingar um þær frá Noregi. Eftir mikla leit fundu björgunarsveitarmenn sendinn í fjörunni á bak við sjoppu í Sandgerði klukkan hálftíu í gærkvöldi. Innlent 17.10.2005 23:46
273 þúsund GSM-símar í noktun hér Nær 273 þúsund GSM-farsímar eru í notkun hér á landi samkvæmt nýrri samantekt Póst- og fjarskiptastofnunar. Síminn er með 64,5 prósent allra farsímaáskrifenda og 66,4 prósent þeirra sem eru með fyrirfram greidd símkort. 20.564 langdrægir NMT-farsímar eru í notkun og eru þeir allir í áskrift hjá Landsímanum að því er fram kemur í tölum Póst- og fjarskiptastofnunar. Innlent 17.10.2005 23:46
Starfsmenn Kópavogsbæjar semja Starfsmannafélag Kópavogs hefur undirritað nýjan kjarasamning við launanefnd sveitarfélaga vegna starfsmanna Kópavogsbæjar. Þetta er í annað skiptið í ár sem starfsmannafélagið og launanefndin ná samkomulagi en fyrri samningur þeirra var felldur í atkvæðagreiðslu félagsmanna. Innlent 17.10.2005 23:46
Les fræðingum pistilinn "Ég ætla sko að láta þá heyra það," segir Sigurður Ragnar Kristjánsson en hann býr á sambýli á vegum Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra. Á morgun ætlar hann að halda fyrirlestur á ráðstefnu sem Svæðisskrifstofan stendur fyrir í Gullinhömrum og hefst hún í dag en þar verða fjölmargir fyrirlesarar sem segja frá niðurstöðum rannsókna og miðla af reynslu sinni í málefnum fatlaðra. Innlent 17.10.2005 23:47
Vilja samning um sjúkraflutninga Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga og heilbrigðisráðuneytið til að semja um framkvæmd sjúkraflutninga á stöðum þar sem slökkvilið sveitarfélaganna sjá ekki um þá nú þegar. Innlent 17.10.2005 23:47
Vill verndaða vinnustaði burt Verndaða vinnustaði fyrir fatlaða ætti að leggja niður í núverandi mynd. Þetta segir írskur iðjuþjálfi sem hélt fyrirlestur um atvinnumál fatlaðra hér á landi. Höfuðáherslu á að leggja á að skapa fötluðum tækifæri til að komast út á almennan vinnumarkað. Innlent 17.10.2005 23:47
Konur leggi niður störf 24. okt. Aðstandendur baráttuhátíðar kvenna, sem haldin verður í tilefni að því að 30 ár eru liðin frá kvennafríinu, hvetja konur til leggja niður störf á kvennafrídeginum 24. október. Innlent 17.10.2005 23:47
Kona fékk felldan niður kostnað Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í vor þar sem fellt var úr gildi fjárnám á hendur konu vegna sakarkostnaðar sem hún hafði ekki burði til að greiða. Hún hafði greitt sekt sem henni var gerð í opinberu máli, en ekki sakarkostnað sem hún átti einnig að greiða. Innlent 17.10.2005 23:47
Börn vantar varanlegt fóstur Íslensk börn vantar varanlegt fóstur - en á sama tíma velja barnlaus pör frekar tæknifrjóvgun eða að ættleiða börn að utan. Innlent 17.10.2005 23:47
Vill að æðstu menn segi af sér Jóhannes Jónsson í Bónus vill að dómsmálaráðherra, ríkislögreglustjóri og yfirmaður efnahagsbrotadeildar segi af sér eftir að héraðsdómur vísaði Baugsmálinu frá. Össur Skarphéðinsson alþingismaður tekur í sama streng. Dómsmálaráðherra segir að réttarkerfið verði að fá tóm til að vinna sína vinnu. Innlent 17.10.2005 23:47
Embætti sé í höndum óhæfra manna Össur Skarphéðinsson alþingismaður vill að æðstu menn Ríkislögreglustjóra verði settir af vegna slælegrar frammistöðu í Baugsmálinu og málverkafölsunarmálinu. Innlent 17.10.2005 23:46
Dylgjur stjórnmálamanna óþolandi Embætti Ríkislögreglustjóra hafnar því alfarið að lagt hafi verið upp í rannsóknina á Baugi á öðrum forsendum en faglegum. "Lög og reglur gilda um hvernig rannsóknir byrja og eftir þeim hefur verið farið nákvæmlega," segir Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra. Innlent 17.10.2005 23:47
Þrír slasaðir eftir árekstur Laust eftir klukkan sex í gærdag var fólksbifreið ekið aftan á flutningabifreið við hraðahindrun sem nýbúið er að setja upp á Njarðarbraut í Reykjanesbæ. Þrír voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir slysið, ökumaður og farþegi fólksbílsins, auk ökumanns flutningabifreiðarinnar. Innlent 17.10.2005 23:47
Segist eiga inni sjö vikna hvíld Unglæknir telur sig eiga inni yfir 300 klukkustundir í hvíldartíma hjá Landspítala háskólasjúkarhúsi. Málaferli eru nú í gangi vegna ágreinings um hvíldartíma á annað hundrað unglækna, sem vinna eða hafa unnið hjá spítalanum.</font /></b /> Innlent 17.10.2005 23:47
Kynna tillögu um tónlistarhús Í dag verður ljóst hvernig tónlistarhúsið og ráðstefnumiðstöðin sem byggð verður í Reykjavíkurhöfn lítur út. Austurhöfn TR, fyrirtækið sem sér um bygginguna, hefur boðað til fundar þar sem vinningstillagan úr samkeppni um hönnun hússins verður kynnt og sýnd ásamt öðrum tillögum sem bárust í samkeppnina. Innlent 17.10.2005 23:46
Segir gott að fá efnislegan dóm Hannes Hómsteinn Gissurarson háskólaprófessor segist ekkert hafa við úrskurð Hæstaréttar í máli Auðar Laxenss á hendur honum að athuga og segir gott að fá efnilegan dóm í málinu. Hæstirrétur felldi í gær úr gildi frávísun héraðsdóms á málinu, en Auður stefndi Hannesi fyrir meintan ritstuld úr verkum Halldórs Laxness í bók hans <em>Halldór</em>. Innlent 17.10.2005 23:47
Áfall fyrir ákæranda Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður og formaður vinstri grænna segir það áfall eftir víðtæka og harkalega aðgerð af hálfu lögreglu og ákæranda að uppskeran skuli ekki vera meiri en raun ber vitni í Baugsmálinu. "Það er ekki hægt annað en að líta á þetta sem stóráfall fyrir ákæruvaldið." Innlent 17.10.2005 23:47
Vilja samkomulag um flutninga Stjórn Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga og heilbrigðisráðuneytið til að gera með sér samkomulag um framkvæmd sjúkraflutninga á landsvísu og leggur til frekari sameiningu á sjúkraflutningaþjónustu við slökkvilið landsins. Innlent 17.10.2005 23:47
Styður framboð til öryggisráðs Stjórn Kjördæmasambands Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður leggur áherslu á að Ísland standi við framboð sitt til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna í tilkynningu sem sambandið sendi frá sér í dag. Er það mat stjórnar sambandsins að Ísland eigi fullt erindi í öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna og hafnar hún málflutningi þess efnis að Ísland hafi ekki burði til að sitja í ráðinu. Innlent 17.10.2005 23:47
Ítrekaði framboð Íslands Davíð Oddsson utanríkisráðherra ítrekaði framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í ávarpi sem hann hélt á allsherjarþingi samtakanna í gærkvöldi. Hann tók þó vægar til orða en Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gerði í síðustu viku og sagði aðeins að Ísland hefði áður lýst áhuga á að taka virkan þátt í starfi öryggisráðsins. Innlent 17.10.2005 23:46