Innlent
Þrefalt meiri líkur eru á að ökumaður velti eða keyri jeppa út af en fólksbíl. Þrefalt meiri líkur eru á að ökumaður velti eða keyri jeppa út af en fólksbíl. Innlent 20.12.2005 12:36
Þorsteinn hættir við að rita sögu þingræðis Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi sendiherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur hætt við að rita sögu þingræðisins. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins í hádeginu. Innlent 20.12.2005 12:32
Ríkisstjórnin skipar nýja fjölmiðlanefnd Ríkisstjórnin ákvað í morgun að skipa nýja fjölmiðlanefnd til að leggja grunninn að nýju frumvarpi um íslenska fjölmiðla. Nefndin verður skipuð sjö manneskjum úr öllum stjórnmálaflokkum. Innlent 20.12.2005 12:09
Sjálfstæðiflokkurinn með mikinn meirihluta samkvæmt könnun Sjálfstæðisflokkurinn er með mikinn meirihluta í Reykjavík samkvæmt nýrri skoðanakönnun frá Gallup. Framsóknarflokkurinn næði ekki inn manni en um þrjátíu prósent borgarbúa treysta Birni Inga Hrafnssyni, sem stefnir á efsta sæti á lista framsóknarmanna, til að gegna starfi borgarstjóra. Innlent 20.12.2005 12:05
Sambönd iðnaðarmanna á Norðurlöndum sameinast Eitt norrænt iðnaðarmannasamband verður til um áramótin en þá sameinast Samband málmiðnaðarmanna og Samband starfsfólks í efna-, pappírs- og textíliðnaði. Samkvæmt frétt á heimasíðu Samiðnar verða félagsmenn yfir 1,2 milljónir í 22 samböndum. Innlent 20.12.2005 10:47
Ríflega helmingur Suðurnesjamanna hefur hamborgarhrygg Rösklega helmingur Suðurnesjamanna, eða 55 prósent, ætlar að hafa hamborgarhrygg í jólamatinn, samkvæmt skoðanakönnun Víkurfrétta. Næst kemur kalkún, en fimm prósent ætla að hafa hann, fjögur prósent rjúpu, tvö prósent önd en rúmlega þirðjungur er enn óákveðinn. Innlent 20.12.2005 07:52
Launavísitala hækkaði um 0,6 prósent í nóvember Launavísitala var 272,3 stig í síðasta mánuði og hækkaði um 0,6 prósent frá fyrra mánuði. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,3 prósent. Innlent 20.12.2005 09:28
Grjóthrun á þjóðveginn í Hvalnesskriðum Grjót hrundi niður á þjóðveginn í Hvalnesskriðum á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs á fjórða tímanum í nótt og áttu flutningabílar í erfiðleikum með að komast leiðar sinnar. Vegurinn var þó jeppafær. Innlent 20.12.2005 07:38
Fartölvum stolið á tveimur stöðum Þjófar brutust inn í íbúð við Hringbraut í Reykjavík í gærkvöldi og stálu þaðan meðal annars nýrri fartölvu. Þá barst tilkynning um innbrot í tölvuverslun við Suðurlandsbraut á fimmta tímanum í nótt. Þar náðu þjófar að stela þremur nýjum fartölvum og komast undan áður en lögregla kom á vettvang. Innlent 20.12.2005 07:31
Jafnt kynjahlutfall á framboðslista sjálfstæðismanna Jafnt hlutfall er á milli karla og kvenna á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, en fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í borginni gekk frá listanum í gær. Í efstu tíu sætum eru fimm karlar og fimm konur. Innlent 20.12.2005 07:29
Ekið á hross á Eyrarbakkavegi í nótt Maður ók bíl sínum á hross á Eyrarbakkavegi í myrkri og hálku í nótt og meiddist hesturinn svo mikið að lögregla aflífaði hann á staðnum. Fleiri hestar höfðu sloppið út úr girðingu og hafði bóndinn orðið þess var og var að leita að þeim þegar slysið varð. Bíllinn stórskemmdist og var óökufær eftir. Innlent 20.12.2005 07:25
Sex slösuðust í þremur umferðarslysum Sex voru fluttir á sjúkrahús eftir þrjú umferðarslys í gærkvöldi en engin meiddist lífshættulega. Fyrst þrír eftir harðan árekstur á Akureyri undir kvöld, aíðan tveir eftir harðan árekstur í Hafnarfirði á níunda tímanum og skömmu síðar einn eftir að bíll valt á Þorlákshafnarvegi. Innlent 20.12.2005 07:19
Falsaði lyfseðla og rauf skilorð Maður sem framvísaði fölsuðum lyfseðli í verslun Lyfju við Smáratorg í Kópavogi í vor var í gær dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness. Dómurinn er skilorðsbundinn í tvö ár. Með broti sínu nú rauf maðurinn skilorð fyrri dóms, en þá var hann dæmdur fyrir að hafa brotist inn í átta bíla og stolið úr þremur þeirra. Innlent 19.12.2005 21:33
Útblástur koltvísýrings aukist um 14,5% í Reykjavík Magn svifryks í Reykjavík hefur minnkað frá árinu 1995, en séu einungis skoðuð síðastliðin þrjú ár kemur í ljós að svifrykið hefur aukist. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. Innlent 19.12.2005 23:17
Félagsmálaráðherra segir það aldrei hafa hvarflað að sér af segja af sér embætti Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir aldrei hafa hvarflað að sér að segja af sér embætti vegna hæstaréttardóms í máli fyrrverandi jafnréttisstýru. Þingflokkur Framsóknarflokksins kom saman til fundar í dag og ræddi í fyrsta sinn málið og viðbrögð ráðherrans. Fundurinn tók þó enga afstöðu. Hvorki var lýst yfir stuðningi eða vantrausti á ráðherra. Innlent 19.12.2005 22:24
Langstærsta verkefni austfirskra verktaka Tugir manna þramma nú um fjöll og firnindi Austfjarða. Þetta eru þó ekki jólasveinar heldur starfsmenn Héraðsverks að steypa undirstöður háspennulínu vegna álversins í Reyðarfirði. Þetta er langstærsta verkefni sem austfirskur verktaki hefur tekið að sér. Innlent 19.12.2005 22:04
Erlendar og íslenskar jólahefðir blandast á mörgum heimilum á Íslandi um jólin Pólskir krakkar fá sælgæti í jólapakkanna og í Venesúela eru jólagjafirnar opnaðar á jóladag. Þessar hefðir eru meðal þeirra erlendu jólahefða sem blandast þeim íslensku þegar jólin ganga í garð. Innlent 19.12.2005 21:49
Náttúruverndarsinnar vilja vekja fólk til umhugsunar um náttúru landsins Tónlistar- og hugvekjustundin "Ljós í myrkri" verður haldin í Hallgrímskirkju við vetrarsólstöður næstkomandi miðvikudagskvöld. Náttúruvaktin skipuleggur atburðinn sem haldinn er til stuðnings íslenskri náttúru. Innlent 19.12.2005 21:41
Tveir fluttir á slysadeild eftir árekstur Tveir voru fluttir á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús eftir árekstur tveggja fólksbíla á Reykjavíkurvegi klukkan hálf níu í kvöld, meiðsl þeirra eru þó ekki alvarleg. Bílarnir tveir lentu saman á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði á móts við Stakkahraun og valt annar bíllinn. Að sögn slökkviliðsins á Höfuðborgarsvæðinu, sem kvatt var á vettvang, var rigning og dimmt þegar slysið átti sér stað. Innlent 19.12.2005 21:34
Actavis eitt af fimm stærstu samheitafyrirtækjum heims Actavis er orðið eitt af fimm stærstu samheitalyfjafyrirtækjum heims eftir að fyrirtækið gekk frá kaupum á Alpharma lyfjafyrirtækinu. Actavis Group tilkynnti í dag að kaupum á samheitalyfjastarfsemi alþjóðlega lyfjafyrirtækisins Alpharma væri formlega lokið. Innlent 19.12.2005 21:25
Hugsanlega um lögbrot að ræða Fyrrverandi framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri segir eigendur félagsins ekki hafa gert tilraun til að bjarga því frá gjaldþroti. Hann telur margt óljóst varðandi eignatilfærslur frá Slippstöðinni skömmu fyrir gjaldþrot félagsins og segir hugsanlegt að lög hafi verið brotin. Innlent 19.12.2005 20:55
Líkur á hvítum jólum á höfuðborgarsvæðinu jukust í dag Líkurnar á hvítum jólum á höfuðborgarsvæðinu jukust skyndilega í dag. En undanfarna tvo áratugi hefur aðeins verið frost í Reykjavík á aðfangadag og jóladag í helmingi tilvika. Hitinn hefur verið allt upp í átta stig. Haukur Holm horfði um öxl til jólaveðurs í dag. Innlent 19.12.2005 20:28
Engin tímamót Formenn Samfylkingarinnar og Vinstri-grænna segja samkomulagið á ráðherrafundi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar sem lauk í Hong Kong í gær hvorki marka tímamót hér á landi né erlendis. Samþykkt var að fella niður útflutningsstyrki fyrir búvörur fyrir árið 2013 en þeir voru afnumdir hérlendis árið 1990. Þá hefur Ísland þegar fellt niður tolla og kvóta á fjölmörgum vörum frá fátækustu ríkjunum. Innlent 19.12.2005 20:22
Staðgreiðsluprósentan lækkar um áramótin Staðgreiðsluprósentan lækkar um 1,01% nú um áramótin. Samtímis fellur niður bæði hátekjuskattur og eignaskattur en brottfall eignaskatts markar söguleg tímamót því hann hefur verið við lýði hérlendis frá því á 11. öld. Innlent 19.12.2005 20:20
Fjárfest í bönkum í Noregi fyrir 40 milljarða króna á rúmu ári Íslandsbanki hefur fjárfest í bönkum í Noregi fyrir 40 milljarða króna á rúmu ári. Þetta kom fram á blaðamannafundi bankans í Sendiráði Íslands í Osló í liðinni viku. Innlent 19.12.2005 20:35
Jóhannes í Bónus hlýtur verðlaun ísfirsku alþýðunnar Jóhannes Jónsson sem kenndur er við Bónus hefur hlotið verðlaun ísfirsku alþýðunnar fyrstur manna, að því fram kemur á vef Bæjarins besta. Til verðlaunanna var stofnað í haust á ársafmæli Heimastjórnarhátíðar alþýðunnar á Ísafirði. Innlent 19.12.2005 18:43
Þrettán efstu sætin í samræmi við niðurstöðu prófkjörsins Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor var kynntur nú fyrir stundu. Þrettán efstu sætin eru í samræmi við niðurstöðu prófkjörsins sem fram fór í nóvember. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson leiðir listann og Birgir Ísleifur Gunnarsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri, skipar heiðursætið á listanum. Innlent 19.12.2005 18:18
Tveir vilja brauðið Tveir umsækjendur eru um embætti sóknarprests í Hallgrímsprestakalli Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Umsækjendurnir eru séra Jón Dalbú Hróbjartsson og séra Pjetur Þorsteinn Maack. Innlent 19.12.2005 17:44
Krónan veiktist Krónan veiktist í dag um 1,33% í viðskiptum upp á á 18 milljarða króna. Í hálf fimm fréttum KB banka segir að um sé að ræða óvenju mikla hreyfingu á einum degi í ljósi þess að engar nýjar fréttir hafi borist sem gætu réttlætt veikinguna. Innlent 19.12.2005 17:39
Skoða möguleika á kaupum í Orkla Media Dagsbrún hf. hefur verið að skoða möguleika á kaupum á norska fjölmiðla fyrirtækinu Orkla Media. Orkla Media á meðal annars danska dagblaðið Berlingske Tidende. Innlent 19.12.2005 17:31