Innlent
Marga dreymir um að eiga sumarhús á Spáni Hundruð manna leituðu skjóls úr rigningunni í Reykjavík í dag og fóru inn í Perluna til að leita sér upplýsinga um sumarhús á Spáni. Það eru líklega margir orðnir þreyttir á umhleypingunum undanfarið og dreymir nú um sól og sumaryl. Innlent 5.2.2006 16:07
Vandræði á símkerfi fréttastofu NFS Vandræði hafa verið á símkerfi fréttastofu NFS í dag. Unnið er að viðgerðum. Áskrftarsími 365 miðla er hins vegar í lagi. Innlent 5.2.2006 13:48
Kom, sá og sigraði Silvía Nótt nótt kom, sá og sigraði í undankeppni Eurovision gærkvöldi með laginu Til hamingju Ísland en annar lagahöfundur í keppninni, Kristján Hreinsson lagði í gær fram stjórnsýslukæru til að fá lagið dæmt úr keppni. Innlent 5.2.2006 12:58
Björgunarsveitir af Suðurnesjum og Hafnarfirði voru kallaður út í nótt Björgunarsveitir af Suðurnesjum og Hafnarfirði voru kallaður út klukkan 03:17 í nótt vegna ungs manns sem saknað var. Í fréttatilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg kemur fram að 35 björgunarsveitamenn á 9 ökutækjum og tveimur sexhjólum hafi tekið þátt í leitinni. Innlent 5.2.2006 13:13
Mikilvægt að fólk hamstri ekki lyf gegn fulgaflensu Þrátt fyrir að lyfið Tamiflu sé lyfseðilskylt, hafa bæði einstaklingar og fyrirtæki orðið sér út um það í stórum stíl. Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir segir mikilvægt að fólk hamstri ekki lyfið. Nóg verði að vera til því aðeins sé tímaspursmál hvenær veiran breiðist út. Innlent 5.2.2006 12:16
Mikið álag á forsetafrúnni Mikið álag hefur verið á forsetafrúnni undanfarið og er það líklega skýringin á aðsvifinu sem hún fékk við upphaf afhendingar Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Dorrit gat ekki tekið þátt í opinberum störfum forsetans á Akureyri í dag. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir þó að líðan hennar sé með ágætum en hún hefur verið í rannsóknum í gær og í dag. Innlent 4.2.2006 20:32
Stjórnsýslukæra vegna flutnings Sílvíu Nætur Kristján Hreinsson einn lagahöfunda í undankeppni Evróvisjónkeppninnar hefur ákveðið að leggja inn stjórnsýslukæru vegna ákvörðunar Ríkisútvarpsins um að leyfa lagi sem lak út á Netið að halda áfram í keppninni. Þúsundir manna hafa hlustað á lagið á Netinu en lagið er flutt af Silvíu Nótt. Innlent 4.2.2006 20:28
Ólga meðal kennara Kennarasambandið segist ekki hafa gengist inn á hugmyndir menntamálaráðherra um styttingu námstíma til stúdentsprófs. Málið sé einfaldlega ekki á umræðugrundvelli. Mikil ólga er meðal menntaskólakennara vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar. Innlent 4.2.2006 20:26
Dagur Kári og Baltasar Kormákur verðlaunaðir Mynd Dags Kára Kristjánssonar Voksne mennesker var valin besta myndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Gautaborg í dag. Mynd Baltasars Kormáks Little Trip to Heaven var valin besta mynd hátíðarinnar að mati alþjólegra samtaka kvikmyndagagnrýnanda. Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Gautaborg á sér áralanga sögu og fjöldi fólks sækir hátíðina. Innlent 4.2.2006 20:10
Konur eru aðeins um 10% af stjórnarmönnum fyrirtækja Konur eru aðeins um tíu prósent af stjórnarmönnum fyrirtækja. Formaður Félags kvenna í endurskoðun segir engan skort á hæfum konum í störfin og að um vannýtan mannauð sé að ræða. Innlent 4.2.2006 12:59
Kjörsókn hefur farið rólega af stað Kjörsókn hefur farið rólega af stað í prófkjöri Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í Kópavogi og á Seltjarnarnesi. Á Seltjarnarnesi er gerð atlaga að oddvitanum. Innlent 4.2.2006 12:49
Ólga meðal kennara vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar Mikil ólga er meðal kennara í menntaskólum landsins vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar sem undirritað var í fyrradag. Samkvæmt því verður höfð samvinna um endurskoðun á námi í tenslum við styttingu námstíma til stúdentsprófs. Félag kennara Menntaskólans í Reykjavík hefur ályktað gegn samkomulaginu og kennarar í öðrum menntaskóla hafa jafnvel rætt úrsögn úr Kennarasambandinu. Innlent 4.2.2006 10:56
Ekið á ungan mann Ekið var á ungan mann við Glaumbar í Tryggvagötu í nótt. Að sögn lögreglu virðist sem að maðurinn hafi hlaupið fyrir bílinn og var hann fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús til aðhlynningar. Meiðsl hans voru þó ekki alvarleg og hefur hann verið útskrifaður. Mikill erill var hjá lögreglunni í nótt og á slysadeild. Innlent 4.2.2006 10:02
Komið í veg fyrir pólitískt stórslys Þingmaður Samfylkingarinnar fagnar frestun menntamálaráðherra á styttingu námstíma til stúdentsprófs og segir að komið hafi verið í veg fyrir pólitískt stórslys. Félag kennara í Menntaskólanum í Reykjavík lítur svo á að forysta kennarafélaganna hafi ekki haft umboð til að undirrita samkomulag við menntamálaráherra. Innlent 3.2.2006 23:17
Stærsta bryggja landsins vígð við Grundartanga Stærsta bryggja landsins var tekin í notkun á Grundartanga í dag. Henni er ekki aðeins ætlað að þjóna vaxandi stóriðju heldur einnig höfuðborgarsvæðinu. Innlent 3.2.2006 23:16
Bygging hátæknisjúkrahúss vitleysa Fyrrverandi yfirlæknir á Landspítalanum segir byggingu hátæknisjúkrahúss við Hringbraut gamla og vitlausa stefnu sem kosti of mikið. Hann segir nær að nýta betur þann góða spítala sem Landspítalinn í Fossvogi er. Innlent 3.2.2006 23:10
Dorrit komin heim á Bessastaði Dorrit Mussajef, forsetafrú, gekkst undir rannsóknir á sjúkrahúsi í morgun en hún fékk aðsvif á Bessastöðum í gær, skömmu fyrir athöfn vegna íslensku bókmenntaverðlaunanna. Forsetafrúin var undir læknishendi mestan fyrrihluta dagsins en hvílir sig nú á Bessastöðum. Innlent 3.2.2006 23:09
Aukið magn eiturefna Þreföldun hefur orðið á eiturefnum á Austurlandi. Þar vega Kárahnjúkaframkvæmdir þyngst. Eiturefni eru flutt á milli landshluta í stórum stíl en líkur á umhverfisslysi eru þó taldar minniháttar. Innlent 3.2.2006 23:07
Múslimar á Íslandi eru áhyggjufullir yfir stöðu mála Múslímar hér á landi hafa miklar áhyggjur af því hvernig mál hafa þróast og óttast að almenn reiði gegn múslímum muni snúast gegn sér. Þórir Guðmundsson var viðstaddur bænastund í mosku múslíma í Reykjavík í dag. Innlent 3.2.2006 22:58
Íslensk leyniþjónusta í bígerð? Sérstök deild sem rannsakar hryðjuverk og skipulagða glæpastarfsemi verður starfrækt hjá embætti Ríkislögreglustjóra verði frumvarp dómsmálaráðherra til breytingar á lögreglulögum samþykkt á Alþingi. Þingmaður Samfylkingar óttast að verið sé að stofna eins konar leyniþjónustu. Innlent 3.2.2006 22:57
Ókeypis hádegismatur ella verði stéttaskipting Bjóða þarf grunnskólabörnum upp á ókeypis hádegismat til að koma í veg fyrir stéttaskiptingu að mati leiðtoga Vinstri grænna í borgarstjórnarkosningunum í vor. Innlent 3.2.2006 22:52
Svarar ekki ásökunum um blekkingar Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra kýs að svara ekki ásökunum um að ráðuneyti hans hafi farið vísvitandi með blekkingar í fréttatilkynningu um skattalækkanir. Hagfræðingur Landssambands eldri borgara sagði í fréttum NFS í gær að framsetning fjármálaráðuneytisins á tölum væri fyrir neðan allar hellur. Þau svör fengust frá ráðherranum í dag að hann hygðist ekki svara þessu. Innlent 3.2.2006 22:36
Svifryksmengun fækkar lífdögum fólks Svifryksmengun fækkar lífdögum fólks meira en umferðarslys samkvæmt sænskri rannsókn sem gerð hefur verið. Innlent 3.2.2006 22:23
Birgðir af hrefnukjöt búnar í bili Hrefnukjöt kláraðist í byrjun janúar hjá félagi hrefnuveiðimanna sem sér um sölu og dreifingu á hrefnukjöti af þeim 39 dýrum sem veidd voru í vísindaskini á síðasta ári. Framkvæmdarstjóri félagsins segir eftirspurn eftir hrefnukjöti mun meira en framboðið. Innlent 3.2.2006 22:13
Ólga meðal menntaskólakennara Mikil ólga er meðal kennara í menntaskólum landsins vegna samkomulags menntamálaráðherra og kennaraforystunnar sem undirritað var í gær. Þar er meðal annars náð sátt um samstarf við endurskoðun á námi í tengslum við styttingu á námstíma til stúdentsprófs. Félag kennara Menntaskólans í Reykjavík hefur ályktað gegn samkomulaginu og kennarar í öðrum menntaskóla hafa jafnvel rætt úrsögn úr Kennarasambandinu. Innlent 3.2.2006 22:11
Íslendingar greiði milljarða kostnað verði þotur áfram Íslendingar bjóðast til að taka á sig milljarða kostnað við rekstur Keflavíkurflugvallar og þyrlubjörgunarsveitar í varnarmálaviðræðum við Bandaríkjamenn, sem er framhaldið í dag. Stíft er þó haldið í þá kröfu að hér verði áfram herþotur. Innlent 3.2.2006 22:10
Flippaður föstudagur á Hárstofunni Gel Svokallaður Flippaður föstudagur eða Freaky Friday var haldinn í fyrsta skipti á hárstofunni Gel í dag. Viðskiptavinir dagsins réðu engu um klippingu sína eða hárlit en allir fóru ánægðir heim. Innlent 3.2.2006 22:07
Söfnuðurinn vildi séra Sigurð Safnaðarnefnd Íslenska safnaðarins í London segir þá ákvörðun að velja séra Sigurð Arnarson í embætti sendiráðsprests hafa verið rétta og í samræmi við vilja og þarfir safnaðarins. Nefndin sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis í kjölfar dómsúrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur og fjölmiðlaumfjöllunar um að við skipun séra Sigurðar Arnarsonar, tengdasonar biskups, í embætti sendiráðsprests í London hafi stjórnsýslu- og jafnréttislög verið brotin. Innlent 3.2.2006 18:47
Deild gegn hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi Sérstök greiningardeild sem rannsakar landráð og brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum verður starfrækt við embætti ríkislögreglustjóra ef frumvarp dómsmálaráðherra til breytinga á lögreglulögum verður samþykkt á Alþingi. Innlent 3.2.2006 17:37
Ný hesthúsabyggð í Almannadal Hestamannafélagið Fákur gerir ráð fyrir að um sextánhundruð hross munu komast í hús á nýju svæði þeirra í Almannadal. Borgarstjóri mun gefa formleg fyrirheit fyrir úthlutun byggingarréttar á svæðinu síðar í dag. Innlent 3.2.2006 12:24