Innlent
Reynt að smygla 380 kartonum Tollgæslan og lögreglan í Borgarnesi fundu 380 karton af sígarettum um borð í flutningaskipinu Sunnu í Grundartangahöfn í gær. Sex skipverjar játuðu á sig að eiga smyglvarninginn. Innlent 10.3.2006 07:15
Skóflustunga tekin án byggingarleyfis Borgastjóri tók í gær fyrstu skóflustunguna að stórbyggingu sem á að rísa við Egilshöll í Grafarvogi, án þess að búið væri að sækja um byggingarleyfi hjá byggingafulltrúa. Innlent 10.3.2006 07:51
Miklar breytingar framundan Miklar breytingar eru framundan á nafni og ásýnd Íslandsbanka. Athygli hefur vakið að á undanförnum dögum hefur merki bankans verið fjarlægt af allflestum útibúum hans. Innlent 10.3.2006 07:10
Hraðfrystistöðvarhúsið við Mýrargötu horfið Gamla Hraðfrystistöðvarhúsið við Mýrargötu er nú endanlega horfið, þremur vikum eftir að byrjað var að rífa það. Framhlið hússins var felld í gærkvöld. Innlent 10.3.2006 07:44
Áhrif jarðakaupa könnuð Búnaðarþing samþykkti í gær tillögu um að kannað verði hvaða áhrif uppkaup auðmanna á jörðum vítt og breitt um landið kunni að hafa á stöðu landbúnaðarins. Innlent 10.3.2006 07:06
15 ára og réttindalaus á bifhjóli 15 ára réttindalaus piltur á óskráðu bifhjóli, slasaðist þegar hann lenti í árekstri við bíl innanbæjar á Húsavík í gær og var hann fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. Innlent 10.3.2006 06:59
Tillögur starfshóps ekki studdar lögum Sigurður Líndal, prófessor í lögfræði, segir skorta lagalegan grundvöll fyrir hugmyndum starfhóps um hugsanleg áföll í efnahagslífinu. Guðjón Rúnarsson fagnar gerð viðbragðsáætlunar en segir mikilvægt að hún sé alþjóðamiðuð. Innlent 9.3.2006 19:27
Reynt að slá á efasemdir Mikill áhugi Dana á íslensku efnahagslífi kom berlega í ljós í gær þegar þúsund manns mættu til að hlýða á erindi fimm frammámanna úr íslensku viðskiptalífi í Kaupmannahöfn. En töluverð umfjöllun hefur verið um fjárfestingar íslenskra fyrirtækja í Danmörku síðastliðið ár og um stöðu íslensks efnahagskerfisins. Innlent 9.3.2006 21:19
Íslandspóstur hagnast vel Íslandspóstur hagnaðist um 237 milljónir króna á síðasta ári og var afkoman betri en stjórnendur félagsins reiknuðu með. Heildartekjur félagsins námu fimm milljörðum króna sem er um 400 milljóna króna aukning á milli ára. Viðskipti innlent 10.3.2006 00:20
Styðja þarf bankana í kynningu á aðstæðum hér Mikilvægt er að lagst sé á árar með bönkunum í kynningarstarfi í útlöndum. Sérfræðingar segja lítinn mun á íslenskum bönkum og erlendum og undrast álit Merrill Lynch enda hafi matsstofnanir nýverið staðfest lánshæfismat sitt á bönkunum. Viðskipti innlent 10.3.2006 00:20
Krefst 940 milljóna auk dráttarvaxta Atorka Group, næststærsti hluthafinn í Hampiðjunni, telur að stærsti hluthafinn, Eignarhaldsfélagið Vogun, hafi gerst yfirtökuskyldur í Hampiðjunni og hefur stefnt Vogun. Viðskipti innlent 10.3.2006 00:20
Uppsagnir hjá Össuri í Ameríku Össur hf. ætlar að endurskipuleggja hluta af starfsemi félagsins í Norður-Ameríku, að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins til Kauphallar Íslands í dag. Viðskipti innlent 10.3.2006 00:20
Skyrtuframleiðandi keyptur Hlunnur ehf., sem er í eigu feðganna Þórarins Elmars Jensen og Markúsar og Gests Þórarinssona, sem áður ráku 66°Norður, hefur keypt skyrtuframleiðandann AB Vilkma í Litháen. AB Vilkma framleiðir hágæðaskyrtur fyrir þekkt vörumerki í Vestur-Evrópu, eins og Eton, Marks & Spencer og Faconnable, og markaðssetur einnig sín eigin vörumerki í Litháen. Viðskipti innlent 10.3.2006 00:20
Verk og vit í Laugardal Um 120 fyrirtæki í byggingariðnaði og mannvirkjagerð, sveitarfélög, hönnuðir og ráðgjafar munu kynna starfsemi sína á stórsýningunni Verk og vit 2006 sem verður haldin 16. til 19. mars í nýju íþrótta- og sýningahöllinni í Laugardal. Í tengslum við sýninguna, sem er bæði fyrir fagaðila og almenning, verða haldnar ráðstefnur, kynningarfundir og fleiri viðburðir. Viðskipti innlent 10.3.2006 00:20
Jóhannes og Gerður leiða listann Bæjarfulltrúarinri Jóhannes Gunnar Bjarnason og Gerður Jónsdóttir skipa tvö efstu sætin á lista Framsóknarflokksins á Akureyri fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Jakob Björnsson, leiðtogi flokksins til margra ára, skipar heiðurssæti listans, það síðasta, en hann hafði áður tilkynnt að hann væri á útleið úr bæjarmálum. Innlent 9.3.2006 22:13
Breytingar á ásýnd Íslandsbanka Miklar breytingar eru fram undan á nafni og ásýnd Íslandsbanka. Athygli hefur vakið að á undanförnum dögum hefur merki bankans verið fjarlægt af allflestum útibúum hans. Forráðamenn bankans fara mjög leynt með þessar fyrirhuguðu breytingar og verjast allra fregna þegar innt er eftir þeim. Innlent 9.3.2006 22:24
Gamla Hraðfrystistöðvarhússið horfið Gamla Hraðfrystistöðvarhúsið við Mýrargötu er nú endanlega horfið, þremur vikum eftir að byrjað var að rífa það. Andlit hússins féll í kvöld. Innlent 9.3.2006 22:16
Mótmæla vinnubrögðum ríkisins Blindrafélagið mótmælir vinnubrögðum ríkisins við undirbúning frumvarps um sameiningu Sjónstöðvar Íslands og Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar. Félagsmenn eru afar óhressir með að ekki var haft samráð við hagsmunafélög sem málið varðar. Í kvöld hélt Blindrafélagið félagsfund sem var sá fjölsóttasti í áraraðir. Umræðuefnið var frumvarp ríkisstjórnarinnar um sameiningu Sjónstöðvar Íslands og Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands og sat heilbrigðisráðherra fundinnn. Innlent 9.3.2006 22:09
Páfagaukur talinn hafa sýkt hjón Mögulegt er að sýking úr páfagauki hafi orðið til þess að hjón frá Akureyri veiktust alvarlega. Páfagaukaveiki er þekktur sjúkdómur sem hefur valdið fólki bana. Innlent 9.3.2006 22:29
Öryrki eftir störf á sjúkrahúsi Flestir fara á sjúkrahús til að fá bót meina sinna, en í tilfelli Hildar Stefánsdóttur, var það á sjúkrahúsi sem veikindi hennar hófust. Landspítalinn verður að greiða Hildi Stefánsdóttur tæpar sjö milljónir króna í bætur vegna heilsutjóns sem hún varð fyrir vegna meðhöndlunar skaðlegra efna þegar hún vann á spítalanum. Innlent 9.3.2006 21:53
Mikill viðbúnaður en lítil hætta Slökkvibílar frá öllum stöðvum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru kallaðar að Engihjalla 17 þar sem reykur stóð af svölum á fimmtu hæð fjölbýlishúss. Ekki reyndist þó mikil hætta á ferð því reykurinn var frá grilli sem stóð á svölunum. Innlent 9.3.2006 21:23
Innbrotum snarfækkar í Kópavogi Innbrotum í Kópavogsumdæmi fækkaði um 36% milli áranna 2005 og 2006, þjófnuðum fækkaði um 21% og eignaspjöllum um 28,5%, samkvæmt skýrslu sem Lögreglan í Kópavogi hefur gefið út. Smáralindin er vinsælasta skotmark búðarþjófa. Innlent 9.3.2006 20:18
Ísland er fimmta skuldugasta ríki í heimi Bankamenn fullyrða að skýrsla verðbréfafyrirtækisins Merrill Lynch sé óvönduð og full af rangfærslum, en skýrslan, ásamt uggvænlegum tölum um viðskiptahalla, hafa þrýst gengi krónunnar niður. Einungis fjögur ríki í heiminum, þar af þrjú í Afríku, skulda nú meira en Íslendingar. Innlent 9.3.2006 19:29
Deilt um vatnalög Frumvarp um vatnalög er meingallað og hefur þegar sett störf þingsins úr skorðum, segir forysta stjórnarandstöðunnar, en frumvarpið hefur verið rætt í 25 klukkustundir samtals. Þingmenn stjórnarandstöðu eru æfir vegna ákvörðunar þingforseta um að kalla þingið saman á morgun og laugardag til að ljúka umræðunni. Innlent 9.3.2006 19:09
Evran á alþingi Ekki er einhugur innan ríkisstjórnarinnar um hvort skoða eigi aðild að Myntbandalagi Evrópu eins og viðskiptaráðherra vill. Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vakti máls á evrunni á alþingi í dag en hann segir viðskiptaráðherra hafa bilað á taugum vegna sviptinga í fjármálalífinu. Innlent 9.3.2006 19:04
Átta mánaða fangelsi fyrir rán Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann á þrítugsaldri í átta mánaða fangelsi fyrir rán sem hann framdi í félagi við annan mann í verslun tíu-ellefu í Kópavogi í apríl í fyrra. Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa ógnað starfsstúlku verslunarinnar með skrúfjárni og skipað henni að opna peningakassanna en hann hafði 35 þúsund krónur upp úr krafsinu. Innlent 9.3.2006 18:32
Harður árekstur á Húsavík Harður árekstur á gatnamótum við hafnarsvæðið á Húsavík í dag þar sem ungur maður á svokölluðu mótorkrosshjóli ók framan á pallbíl. Að sögn lögreglunnar á Húsavík virðist sem ökumanni bifhjólsins hafi fipast á gatnamótunum og hann farið yfir á rangan vegarhelming, en hann ók að sögn lögreglu yfir hámarkshraða á svæðinu. Innlent 9.3.2006 18:30
Stærsta átak til eflingar eldvarnareftirlits í áratugi Mikil þörf hefur verið fyrir búnað hjá slökkviliðinu undanfarin ár, sérstaklega hvað varðar viðbrögð við mengunarslysum. Úr þessu var bætt í dag með stærsta einstaka átaki til að efla eldvarnir í landinu um áratugaskeið. Innlent 9.3.2006 17:05
Ungmenni mótmæla í höfuðstöðvum Landsvirkjunar Nokkrir tugir ungmenna hafa safnast saman í höfuðstöðvum Landsvirkjunar í Austurveri þar sem þeir mótmæla stóriðjustefnu stjórnvalda. Mótmælin eru á vegum sama hóps og stóð fyrir mótmælum í síðustu viku á skrifstofum Alcoa við Suðurlandsbraut, en lögregla var þá kölluð á vettvang og fjarlægði ungmennin. Innlent 9.3.2006 16:55
Hagnaður Granda minnkar Hagnaður HB Granda hf. nam 547 milljónum króna á síðasta ári. Þetta er samdráttur um 447 milljónir króna frá 2004 þegar hagnaðurinn nam 994 milljónum króna. Viðskipti innlent 9.3.2006 16:29