Innlent
Fleiri taka þátt í setuverkfalli Starfsfólk á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi og á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum, hafa bæst í hóp þeirra starfsmanna sem ætla að mótmæla lélegum kjörum með setuverkfalli á morgun og á föstudag. Hópur þessa starfsfólks mun koma saman í Alþingishúsinu á morgun klukkan eitt, til að afhenda fjármálaráðherra undirskriftarlista, þar sem skorað er á stjórnvöld að bregðast við ástandinu á dvalar- og hjúkrunarheimilum landsins. Innlent 5.4.2006 16:58
Ljóðasafn Sigurðar Pálssonar er komið út á búlgörsku Ljóðasafn Sigurðar Pálssonar er komið út á búlgörsku og er það bókaútgáfan Nov Zlatorog sem gefur ljóðasafnið út. Nov Zlatorog tók til starfa 1990 og er eitt virtasta útgáfufyrirtæki Búlgaríu. Henni var upphaflega komið á fót á sovéttímanum sem neðanjarðarfyrirtæki Kiril Kadiiski sem er eitt fremsta skáld Búlgaríu en hann fékk nýlega frönsku Max Jacob verðlaunin fyrir höfundarverk sitt. Innlent 5.4.2006 16:46
Markaðurinn á fleygiferð Úrvalsvísitalan hækkaði um tæp tvö prósent í dag eftir miklar lækkanir að undanförnu. Mest hækkuðu bréf Flögu eða um 24 prósent og er óhætt að segja að hlutabréfamarkaðurinn hafi verið á fleygiferð að undanförnu, aðallega þó niður á við eftir neikvæða umræðu erlendra banka um íslenskt efnahagslíf. Í gær sendi matsfyrirtækið Moody's síðan frá sér tvær skýrslur þar sem lánshæfismat ríkisins annars vegar, og stóru bankanna þriggja hins vegar, er staðfest. Innlent 5.4.2006 16:40
Björgunarskip í viðbragðsstöðu Björgunarskip Landsbjargar á Ísafirði og á Patreksfirði voru sett í viðbragðsstöðu eftir hádegið í dag, að beiðni Vaktstöðvar siglinga, eftir að 3 bátar lentu í miklum sjó út af Arnarfirði. Mjög slæmt veður var á þessum slóðum. Bátarnir komust í var inn á Dýrafjörð heilu og höldnu og beiðnin afturkölluð skömmu síðar. Innlent 5.4.2006 16:53
Málsókn gegn Norðmönnum eina leiðin Málsókn gegn Norðmönnum virðist eina leiðin til að binda endi á ofríki þeirra við Svalbarða sagði utanríkisráðherra á Alþingi í dag. Ekki er þó ljóst hvenær af málsókn verður. Innlent 5.4.2006 16:50
Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,96 prósent Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hækkaði um 1,96 prósent í viðskiptum dagsins eftir lækkanir síðustu tvo viðskiptadaga. Mest hækkuðu bréf í Flögu, Actavis, FL Group og Glitni. Gengi bréfa í Flögu lækkaði mest í gær, eða um rúm 20 prósent. Eina félagið sem lækkaði í viðskiptum dagsins var Dagsbrún. Viðskipti innlent 5.4.2006 16:48
Framboðslisti Samfylkingar og óháðra í Ölfusi Samfylkingin og óháðir í Ölfusi hafa sent frá sér framboðslista vegna komandi sveitarstjórnarkosninga sem fram fara 27. maí næstkomandi. Fyrsta sætið skipar Dagbjört Hannesdóttir, viðskiptafræðingur, í öðru sæti er Hróðmar Bjarnason, framkvæmdarstjóri og í því þriðja er Elín Björg Jónsdóttir. Innlent 5.4.2006 16:34
Vilja endurskoðun á verkferlum á Kárahnjúkum Rafiðnaðarsamband Íslands, Starfsgreinasamband Íslands, Samiðn og Alþýðusamband Íslands segja aukna tíðni slysa og veikinda við Kárahnjúka á undanförnum mánuðum kalla á endurskoðun á öllum verkferlum hvað varðar framkvæmd eftirlits með öryggismálum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem landsamböndin hafa sent frá sér. Innlent 5.4.2006 16:00
Hart deilt á utanríkisráðherra Stjórnarandstæðingar deildu á utanríkisráðherra við upphaf þingfundar í dag fyrir að hafa ekki nægilegt samráð um gang mála í varnarviðræðum við Bandaríkin. Utanríkisráðherra sagði að það mætti ef til vill saka sig um margt en ekki þó það að hafa ekki nægilegt samráð við þingnefndir. Innlent 5.4.2006 15:58
Hagnaður Sparisjóðs Vestmannaeyja rúmar 180 milljónir Hagnaður Sparisjóðs Vestmannaeyja nam 180,4 milljónum króna á síðasta ári. Heildarrekstrartekjur námu 789,2 milljónum króna og gjöld námu 570,6 milljónum króna að meðtöldum afskriftum. Reksturinn gekk vel á árinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sparisjóði Vestmannaeyja. Viðskipti innlent 5.4.2006 15:30
Óshlíðarvegur og Súðarvíkurvegur lokaðir Slæmt ferðaveður er víða um land. Á Hellisheiði og í Þrengslum eru hálkublettir og éljagangur og það er strekkingsvindur á heiðinni. Þá er óveður á Fróðárheiði og á norðanverðum Vestfjörðum er ekkert ferðaveður. Búið er að loka veginum um Óshlíð og Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu en fólk er jafnframt beðið að vera ekki á ferð milli bæjarkjarnanna í Ísafjarðarbæ, þ.e. Þingeyrar, Flateyrar og Suðureyrar. Innlent 5.4.2006 15:22
Bílvelta við Landakot Bílvelta varð við Landakotstún nú rétt fyrir klukkan þrjú. Að sögn lögreglu var sjúkrabíll sendur á staðinn og lögreglan er á vettvangi. Ekki er vitað að svo stöddu hvort slys urðu á fólki eða hver tildrög slyssins eru. Við segjum nánar slysinu síðar í dag. Innlent 5.4.2006 14:59
Hagnaður Nýsis 1,6 milljarðar króna Hagnaður Nýsis hf. nam rúmum 1,6 milljörðum króna á síðasta ári. Fastafjármunir voru 15.285 milljónir króna og veltufjármunir 1.064 milljónir kr. Eignir námu 16.349 milljónum króna. Þá námu skuldir og skuldbindingar Nýsis hf. og dótturfélaga 12.464 milljónum kr. en eigið fé var í árslok 3.885 milljónir króna að meðtaldri hlutdeild minnihluta. Viðskipti innlent 5.4.2006 14:34
Eldur kviknaði í íbúðarhúsi á Stokkseyri Eldur kom upp í herbergi í íbúðarhúsi á Stokkseyri rétt fyrir klukkan tvö. Búið er að slökkva eldinn en Brunavarnir Árnessýslu komu á staðinn stuttu eftir útkall. Húsráðendur lokuðu herbergishuðinni þegar eldsins varð vart og komu þar með í veg fyrir að eldurinn næði að breiðast út áður en slökkvilið kom á staðinn. Innlent 5.4.2006 14:02
Útlendingum í starfaleit þarf ekki að fjölga Fólki frá Austur-Evrópu sem kemur hingað til lands að leita sér vinnu þarf ekki að fjölga þrátt fyrir að takmarkanir við för þeirra falla niður 1. maí. Þetta er mat félagsmálaráðherra og aðstoðarframkvæmdastjóra Alþýðusambands Íslands. Innlent 5.4.2006 13:06
FL Group kaupir Dreamliner farþegaþotur FL Group hefur samið um kaup á tveimur Boeing 787-8 Dreamliner farþegarþotum fyrir hönd Icelandair Group. Flugvélarnar verða afhentar vorið 2012, en tveimur árum fyrr, eða á árinu 2010 fær Icelandair afhentar tvær fyrstu Boeing 787 breiðþoturnar sem pantaðar voru fyrir rúmu ári. Viðskipti innlent 5.4.2006 13:43
Þjóðverjar áhugasamir um stangveiði Nýtt útgerðarmynstur leit dagsins ljós á Tálknafirði í gær. Það byggir á því að skipstjórarnir sitja heima í stofu og horfa á þýska ferðamenn veiða fyrir sig og borga ferðamennirnir meira að segja fyrir það. Innlent 5.4.2006 11:35
Dómarar ósáttir um röðun umsækjenda Meirihluti Hæstaréttar telur að Páll Hreinsson prófessor sé hæfastur þeirra fjögurra, sem sóttu um stöðu Hæstaréttardómara, en dómarar eru ekki á eitt sáttir um að raða upp umsækjendum. Innlent 5.4.2006 11:31
Hagnaður FL Group um 12 milljarðar króna FL Group hefur selt tæplega 17 prósenta hlut sinn í lággjaldaflugfélaginu easyJet fyrir um það bil þrjátíu milljarða króna. Félagið hagnast um 12 milljarða miðað við kaupverð bréfanna á sínum tíma. Innlent 5.4.2006 11:28
Bresk skattayfirvöld viðurkenna Kauphöll Íslands Sameinað embætti ríkisskattstjóra og tollstjóra á Bretlandi (HM Revenue and Customs, HMRC) veitti Kauphöll Íslands viðurkenningu 31. mars síðastliðinn sem kauphöll skv. kafla 841(1)(b) í lögum um tekju- og fyrirtækjaskatt frá 1988 (The Income and Corporation Taxes Act 1988, ICTA). Viðskipti innlent 5.4.2006 12:14
Vandinn liggur í slakri upplýsingagjöf Vandi íslenskra fyrirtækja er miklu frekar fólginn í slakri upplýsingagjöf en slökum stjórnarháttum, segir fjármálastjóri Danske Bank. Hann segir þann vanda engum nema stjórnendum sjálfum að kenna. Innlent 5.4.2006 11:54
Lagt til að öryggi borgarbúa verði eflt Miðborgargæsla um helgar og efling öryggis í hverfum borgarinnar er meðal þess sem viðræðurhópur um löggæslumálefni í Reykjavík hefur lagt til. Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, skipaði hópinn í ágúst árið 2003 sem hefur síðan þá verið samstarfsvettvangur dóms og krikjumálaráðuneytis, lögreglu og borgaryfirvalda um löggæslumál í Reykjavík. Innlent 5.4.2006 11:20
Aðeins níu karlmenn skráðir atvinnulausir á Vestfjörðum Aðeins níu karlmenn eru skráðir atvinnulausir á Vestfjörðum en hvergi á landinu eru eins fáir karlmenn skráðir atvinnulausir. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá því að í byrjun árs hafi 20 karlmenn verið skráðir en þeim hafi fækkað jafnt og þétt. Innlent 5.4.2006 10:43
Skógræktarfélagið ekki markaðshindrandi Samkeppniseftirlitið hefur úrskurðað að þrátt fyrir að viss mismunum felist í starfi Skógræktarfélags Íslands þá sé það ekki markaðshindrun þegar nýir aðilar vilja starfa við grisjun sumarhúsalóða og skipulagsvinnu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Starfi félagið ekki á samkeppnismarkaði og vinni það eingöngu að grisjun eða ráðgjöf vegna skógarreita aðildarfélaga Skógræktarfélagsins. Viðskipti innlent 5.4.2006 10:14
Gistinóttum á hótelum fjölgar um 5,5% í febrúar Gistinóttum á hótelum í febrúar fjölgaði um 5,5% milli ára samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar yfir gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinætur fóru úr 3.300 í 5.600 milli ára eða um 68%. Innlent 5.4.2006 10:11
Hálka og hálkublettir eru víða á þjóðvegum landsins. Hálka og hálkublettir eru víða á þjóðvegum landsins. Á Hellisheiði eru hálkublettir og éljagangur. Hálkublettir eru í uppsveitum Árnessýslu og á stöku stað á Vesturlandi. Þá er hálka og hálkublettir á Vestfjörðum. Á Norður,- Norðaustur- og Austurlandi er víðast hvar hálka, hálkublettir, éljagangur eða skafrenningur. Innlent 5.4.2006 09:32
Leki kom að bát í Ólafsvíkurhöfn Slökkvilið Snæfellsbæjar var kallað út að höfninni í Ólafsvík á áttunda tímaum í morgun en leki hafði komið að bát í höfninni. Báturinn var kominn því sem næst á hliðina þegar hafnarstarfsmenn tóku eftir honum við eftirlit og kölluðu á slökkvilið. Innlent 5.4.2006 09:13
Icelandair styrkir Listahátíð Reykjavíkur Forsvarsmenn Listahátíðar og Icelandair fögnuðu í gær 25 ára starfsafmæli með undirritun nýs samstarfssamnings. Stjórnandi Listahátíðar fullyrðir að hátíðin hefði ekki komist á laggirnar ef ekki væri fyrir samstarfið. Innlent 5.4.2006 07:26
Hiti yfir meðallagi fimmta mánuðinn í röð Meðalhiti í Reykjavík í mars mánuði var tæplega eitt stig, sem er tæpu hálfu stigi yfir meðallagi, samkvæmt samantekt Veðurstofunnar og var mars fimmti mánuðurinn í röð, sem hitinn var yfir meðallagi. Óvenju skörp veðraskil voru í mánuðinum, þar skiptust á kuldakaflar og óvenju hlýr hlákukafli, Í heild var mánuðurinn þurrviðrasamur. Innlent 5.4.2006 07:24
Efnt til hönnunarsamkeppni á þjónustumiðstöð Snæfellsbær og Umhverfisstofnun hafa ákveðið að efna til samkeppni um hönnun þjónustumiðstöðvar Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls á Hellissandi og fer samkeppnin fram samkvæmt reglum Arkitektafélags Íslands. Innlent 5.4.2006 07:16