Erlent

Fréttamynd

Bandaríkjamenn styðja Fogh Rasmussen

Bandaríks stjórnvöld ætla að styðja Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, í embætti framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Þetta fullyrðir Pulitzer verðlaunaður dálkahöfundur á vef bandaríska blaðsins Washington Post í dag.

Erlent
Fréttamynd

Khamenei krefst aðgerða

Khamenei æðstiklerkur í Íran segist ekki sjá neina breytingu á afstöðu Bandaríkjamanna gagnvart Íran. Hann vill þó ræða málin. Obama Bandaríkjaforseti bauð fyrir helgi nýtt upphaf í samskiptum Bandaríkjanna og Írans.

Erlent
Fréttamynd

Fall á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum

Gengi hlutabréfa hefur fallið víða um heim það sem af er dags. Lélegar uppgjörstölur fyrirtækja, sem hafa verið að skila sér í hús síðustu daga, skýra fallið að mestu leyti, að sögn Bloomberg-fréttastofunnar.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Starfsfólki skókeðju JJB Sports sagt upp

438 starfsmönnum tveggja fyrirtækja í eigu bresku íþróttavörukeðjunnar JJB Sports hefur verið sagt upp, að kröfu KPMG í Bretlandi, sem fer með greiðslustöðvun verslananna. Íslenska ríkið er einn stærsti hluthafi JJB Sports eftir að Kaupþing leysti til sín tæpan þriðjungshlut Exista og Chris Ronnie með veðkalli.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Bara helmingur í hús

Allt stefnir í að Borse Dubai, sem rekur kauphöllina í Dúbaí, nái aðeins að endurfjármagna helming þess láns sem tekið var vegna yfirtöku á sænsku kauphallarsamstæðunni OMX síðla árs 2007.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Svartur dagur í Bandaríkjunum

Talsvert verðfall varð á bandarískum hlutabréfamarkaði kvöld en fjárfestar hafa efasemdir um að björgunaraðgerðir stjórnvalda dugi til að spyrna fótum við kreppunni.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Írland er ekki Ísland

Írland væri í sporum Íslands ef ekki væri fyrir aðild að evrunni. Þetta segir José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í samtali við Irish Times.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Kreppa í Bretlandi

Kreppa er nú í Bretlandi, samkvæmt nýjustu gögnum hagstofunnar þar í landi sem benda til að samdráttar hafi gætt í hagkerfinu þar í landi í tvö ársfjórðunga í röð.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Sony tapar í fyrsta sinn í 14 ár

Japanski hátækniframleiðandinn Sony gerir ráð fyrir að skila tapi upp á 150 milljjarða jena, jafnvirði 216 milljarða íslenskar króna, vegna síðasta árs. Gangi það eftir verður þetta í fyrsta sinn í fjórtán ár sem mínus færist í bækur fyrirtækisins.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Bankarisi í algjörum mínus

Bank of America, langstærsti banki Bandaríkjanna, tæpaði 1,8 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði 230 milljarða króna, á fjórða og síðasta ársfjórðungi nýliðins árs. Þetta er fyrsta tap bankans í um átján ár.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Evrópski seðlabankinn lækkar stýrivexti

Evrópski seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 50 punkta fyrir stundu og standa þeir nú í sléttum 2,0 prósentum. Þetta er í samræmi við væntingar. Stýrivextir á evrusvæðinu hafa ekki verið lægri síðan í jólamánuðinum 2005.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Hækkun á evrópskum hlutabréfamörkuðum

Hlutabréfamarkaðir hafa tekið ágætlega við sér víða um heim á nýju ári í kjölfar afleitrar tíðar. Slíkt var fallið á bandarískum hlutabréfamörkuðum á síðasta ári, að annað eins hefur ekki sést síðan í kreppunni miklu á þriðja áratug síðustu aldar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hráolíuverð rauk upp á Gamlársdag

Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði um rúm fjórtán prósent á bandarískum fjármálamörkuðum í gær, Gamlársdag. Rússneska ríkisorkufyrirtækið Gazprom á nokkurn þátt í þróun mála en verðið rauk upp eftir að það skrúfaði fyrir gasleiðslur til Úkraínu. Hætt er við að það geti valdið gasskorti í Evrópu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Slóvakar taka upp evru

Slóvakar tóku upp evru í dag og varð landið þar með sextánda aðildarríki myntbandalags Evrópusambandsins. Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, var einn af fyrstu landsmanna til að meðhöndla nýja gjaldmiðilinn þegar hann tók hundrað evrur út úr hraðbanka í þinghúsinu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Indverjum ráðið frá að ferðast til Pakistans

Yfirvöld á Indlandi ráða Indverjum frá því að ferðast til nágrannaríksins Pakistans. Spenna hefur magnast milli kjarnorkuveldanna frá morðárásinni í Múmbaí á Indlandi í síðasta mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Forseti Gíneu borinn til grafar

Lansana Conté, fyrrverandi forseti Vestur-Afríkuríkisins Gíneu, var borinn til grafar með viðhöfn í höfuðborginni Conakry í dag. Conté, sem var forseti Gíneu í nær aldarfjórðung lést á mánudaginn eftir langvinn veikindi. Herforingjar hrifsuðu þegar til sín völd í landinu.

Erlent
Fréttamynd

Palestínskar stúlkur féllu í flugskeytaárás

Tvær palestínskar stúlkur týndu lífi þegar flugskeyti herskárra Palestínumanna skall fyrir mistök á húsi þeirra á Gaza-svæðinu í dag. Stúlkurnar voru 5 og 13 ára. Flugskeytin áttu að springa handan landamæranna í Ísrael.

Erlent