Viðskipti erlent

Hráolíuverð rauk upp á Gamlársdag

Dælt á bílinn með viðeigandi höfuðbúnað.
Dælt á bílinn með viðeigandi höfuðbúnað. Mynd/AFP

Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði um rúm fjórtán prósent á bandarískum fjármálamörkuðum í gær, Gamlársdag. Rússneska ríkisorkufyrirtækið Gazprom á nokkurn þátt í þróun mála en verðið rauk upp eftir að það skrúfaði fyrir gasleiðslur til Úkraínu. Hætt er við að það geti valdið gasskorti í Evrópu.

Verð á hráolíu, sem afhent verður í næsta mánuði, hækkaði við þetta um 5,57 dali á tunnu, sem jafngildir 14,2 prósenta hækkun. Við það fór olíutunnan í 44,6 dali.

Fjármálamarkaðir vestanhafs eru lokaðir í dag, Nýársdag.

Hráolíu verðið sveiflaðist nokkuð á nýliðnum ári. Það rauk 100 dala múrinn í fyrsta sinn í áraraðir í febrúar og sló rúma 147 dali á tunnu í júlí. Eftir það lækkaði verðið nokkuð hratt samfara þrengingum á fjármagnsmörkuðum og samdrætti í einkaneyslu.

Skýringin liggur ekki síst í því að margir spöruðu bensíndropann, sem var orðið geysihár víða um heim, þar á meðal hér.

Verðið fór lægst í rúma 35 dali á tunnu nú skömmu fyrir áramótin.

Sérfræðingar segja erfitt að spá fyrir um þróun mála á nýju ári. Bandaríska fréttastofan CNN hefur eftir greinanda, að þess megi vænta, að verðið muni hækka nokkuð eftir verðfallið.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×