Viðskipti erlent

Bankatap veldur titringi í Bandaríkjunum

Miðlarar velta fyrir sér hægstæðustu kostakjörunum á bandarískum hlutabréfamarkaði.
Miðlarar velta fyrir sér hægstæðustu kostakjörunum á bandarískum hlutabréfamarkaði. Mynd/AP

Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í Bandaríkjunum í dag. Helstu vísitölur vestanhafs ruku upp í gær eftir stýrivaxtalækkun bandaríska seðlabankans.

Helsta ástæðan fyrir lækkuninni nú er hagnaðartaka fjárfesta auk þess sem tap umfram væntingar hjá bandaríska bankanum Morgan Stanley gerði einhverja svartsýna á stöðu efnahagsmála.

Morgan Stanley tapaði 2,37 milljörðum dala á fjórða ársfjórðungi sem er talsvert meira en menn gerðu ráð fyrir. Þetta er annar dagurinn í röð sem bandarískt risafjármálafyrirtæki skilar slæmu uppgjöri en í gær greindi Goldman Sachs frá því að bankinn hefði tapað 2,12 milljörðum dala á sama tímabili. Þetta er fyrsta tap bankans síðan hann varð að skráðu almenningshlutafélagi fyrir ellefu árum.

S&P 500-hlutabréfavísitalan lækkaði um 0,96 prósent í dag en Dow Jones-vísitalan um 1,12 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×