Erlent

Fréttamynd

Wiesenthal látinn

Simon Wiesenthal, sem helgaði líf sitt því að draga stríðsglæpamenn nasista fyrir rétt eftir síðari heimstyrjöldina, er látinn, 96 ára að aldri.

Erlent
Fréttamynd

Joschka Fischer hættir

Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands og leiðtogi Græningja, lýsti því yfir síðdegis að hann ætlaði sér að draga sig í hlé í framlínu þýskra stjórnmála. „Stórum hluta af lífi mínu síðustu tuttugu árin er nú að ljúka,“ sagði Fischer á blaðamannafundi.

Erlent
Fréttamynd

Áfrýjunarréttarhaldi frestað

Dómstóll í Moskvu féllst í gær á beiðni Mikhaíls Khodorkovskís um að fresta réttarhaldi um áfrýjun dómsins yfir honum fram á fimmtudag, í því skyni að gera aðalverjanda hans fært að mæta í réttinn. Hann er á sjúkrahúsi.

Erlent
Fréttamynd

Sharon notaði ólöglegar aðferðir

Ísraelsk sjónvarpsstöð greindi frá því í gærkvöldi að Ariel Sharon, forsætisráðherra landsins, hefði notað ólöglegar aðferðir við að fjármagna kosningabaráttu sína í nýlegri heimsókn til New York. Á boðsmiða á samkomuna með Sharon sagði að gert væri ráð fyrir að þeir sem á hana kæmu gæfu minnst tíu þúsund dollara í kosningasjóði Sharons.

Erlent
Fréttamynd

Londonárás: Æfðu aðgerðirnar

Mennirnir sem frömdu hryðjuverkin í London sjöunda júlí æfðu aðgerðirnar í neðanjarðarlestum rétt rúmri viku fyrir árásirnar. Breska lögreglan telur mögulegt að þær upplýsingar varpi ljósi á hver var höfuðpaurinn á bak við árásirnar sem kostuðu fimmtíu og tvo lífið.

Erlent
Fréttamynd

Sex látnir eftir flóð í Eþíópíu

Sex létust þegar á flæddi yfir bakka sína í austurhuta Eþíópíu fyrir helgi, að því er Reuters-fréttastofan greindi frá síðdegis. Um 4000 manns neyddust til að yfirgefa heimili sín í kjölfar flóðsins.

Erlent
Fréttamynd

Fallast ekki á kröfur Norður-Kóreu

Norður Kóreumenn ætla ekki að láta af kjarnorkuáætlun sinni, nema þeim verði heitið kjarnaofnum til framleiðslu raforku. Þetta stingur í stúf við samkomulag frá því í gær, þar sem Norður Kóreumenn hétu því að hætta þróun kjarnavopna, gegn efnahagslegri aðstoð og stjórnmálasambandi.

Erlent
Fréttamynd

Simon Wiesenthal syrgður

Stjórnmálaleiðtogar, mannréttindafrömuðir og talsmenn samtaka gyðinga um allan heim lýstu í gær sorg sinni yfir fráfalli Simons Wiesenthal og báru lof á hugrekki hans og staðfestu við að hafa uppi á stríðsglæpamönnum nasista og draga þá fyrir dóm. Nasistaveiðarinn heimskunni andaðist á heimili sínu í Vínarborg í fyrrinótt, 96 ára að aldri.

Erlent
Fréttamynd

Olíuverð rauk upp

Heimsmarkaðsverð á hráolíutunnu rauk upp í gær vegna ótta spákaupmanna við að tíðindi frá fundi OPEC-ríkjanna síðar í dag verði óhliðholl olíumarkaðnum. Verðið hækkaði um heil sjö prósent í gær, úr 63 Bandaríkjadölum upp í rúma 67 Bandaríkjadali, og er þetta mesta hækkun á einum degi síðan í desember 2001.

Erlent
Fréttamynd

Sprenging á hóteli í Ísrael

Sprenging varð á hóteli í borginni Bat Yam í Ísrael fyrir stundu. Ekki er vitað á þessari stundu hvort manntjón hafi orðið í sprengingunni. Samkvæmt fyrstu upplýsingum frá sjúkraliðsmönnum á vettvangi logar eldur á níundu hæð hótelsins.

Erlent
Fréttamynd

Krefjast kjarnaofna að gjöf

Ráðamenn í Norður-Kóreu sögðu í gær að þeir myndu ekki hætta við kjarnorkuáætlun sína nema fá léttvatns-kjarnaofna til friðsamlegrar raforkuframleiðslu. Þessar nýju kröfur virtust stefna í uppnám samkomulagi sem náðist í Peking á mánudag um að Norður-Kóreumenn hyrfu frá kjarnavopnaáformum sínum í skiptum fyrir efnahagsaðstoð og öryggistryggingar.

Erlent
Fréttamynd

Naumur sigur Clark á Nýja Sjálandi

Helen Clark, fráfarandi forsætisráðherra Nýja Sjálands, hóf í gær viðræður við fulltrúa smáflokka um myndun nýs stjórnarmeirihluta sem gæti gert henni kleift að stjórna landinu þriðja kjörtímabilið í röð.

Erlent
Fréttamynd

Kjarnorkubjörninn ekki unninn

Loforði Norður-Kóreu um að hætta við kjarnorkuvopnaáætlun sína hefur verið fagnað, en menn óttast þó að björninn sé ekki endanlega unninn.

Erlent
Fréttamynd

Ferðamenn flýja Flórída

Fjölmargir ferðamenn hafa yfirgefið strendur Flórída af ótta við hitabeltisstorminn Rítu sem myndaðist við Bahamas-eyjar í gær. Hugsanlegt er að Ríta verði orðin að fellibyl síðdegis í dag þegar hún fer yfir svæðið á milli Flórída og Kúbu.

Erlent
Fréttamynd

Ringulreið í Þýskalandi

Tveir gera tilkall til kanslaraembættisins í Þýskalandi en hvorugur virðist geta myndað starfhæfa stjórn. Ringulreið er í landinu kjölfar þingkosninganna í gær sem skiluðu í raun engri ákveðinni niðurstöðu.

Innlent
Fréttamynd

50% Afgana kusu

Um það bil helmingur afgönsku þjóðarinnar neytti kosningaréttar síns í fyrstu þingkosningum sem þar hafa farið fram í áratugi um helgina. Þetta gerðist þrátt fyrir hótanir talíbana um að drepa þá sem mættu til þess að kjósa.

Erlent
Fréttamynd

Merkel segist hafa skýrt umboð

Angela Merkel, leiðtogi kristilegra demókrata í Þýskalandi, hefur í dag minnt Gerhard Schröder, kanslara og leiðtoga sósíaldemókrata, á það að hún hafi skýrt umboð til að mynda stjórn. Schröder hefur í dag reynt að fá frjálslynda demókrata til liðs með sósíaldemókrötum og græningjum.

Erlent
Fréttamynd

Sprenging í sendiráði Breta

Einn slasaðist lítillega þegar sprengja sprakk í sendiráði Bretlands í Króatíu núna í morgunsárið. Lögreglumenn vakta nú svæðið í kringum sendiráðið. Ekki er enn vitað hver stóð að sprengingunni.

Erlent
Fréttamynd

Mannað geimfar til Mars?

NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna, tilkynnti í dag nýja gerð geimfars sem til stendur að smíða. Með geimfarinu er ætlunin að koma mönnum til tunglsins fyrir árið 2020. Hið nýja geimfar verður einnig útbúið með lengri geimferðir í huga og ætti einhverntíma á næstu áratugum að geta borið allt að sex áhafnarmeðlimi alla leið til Mars.

Erlent
Fréttamynd

Vilja skuldbundna friðhelgi

Norður-Kóreumenn eru nú sagðir vilja hverfa frá áformum sínum um kjarnorkutilraunir og leyfa eftirlitsferðir alþjóðlegra eftirlitsmanna, fái þeir í staðinn vilyrði um vernd og fjárhagslegan stuðning Kínverja og Bandaríkjamanna. Bandaríkjamenn sagðir vilja skuldbinda friðhelgi við stjórnina í Pyongyang.

Innlent
Fréttamynd

Skortur hreinsunarstöðva skýringin

Samtök olíuframleiðsluríkja segja að það sé ekki skortur á olíu sem valdi háu bensínverði heldur skortur á hreinsunarstöðvum. OPEC ríkin eru nú á fundi í Austurríki um hvað þau geti gert til þess að ná eldsneytisverði niður í einhver þolanleg mörk.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Nota bökunarolíu í stað bensíns

Nokkrir ökumenn í Kaliforníu hafa gripið til heldur nýstárlegra leiða til að mæta háu eldsneytisverði í Bandaríkjunum. Í stað þess að fylla bílinn af bensíni og tæma um leið budduna hefur hópur manna um nokkurt skeið notað bökunarolíu á tankinn með góðum árangri.

Erlent
Fréttamynd

Blaðamaður NY Times myrtur

Írakskur blaðamaður, sem vann fyrir bandaríska stórblaðið <em>The New York Times</em>, fannst myrtur í borginni Basra í dag. Grímuklæddir menn höfðu rænt honum um helgina.

Erlent
Fréttamynd

440 uppreisnarmenn handsamaðir

Fjögur hundruð og fjörutíu uppreisnarmenn hafa nú verið handsamaðir í borginni Tal Afar í norðurhluta Íraks. Átta þúsund og fimm hundruð írakskir og bandarískir hermenn hafa undanfarna tíu daga ráðist á öll vígi uppreisnarmanna í borginni og alls hafa nærri hundrað og áttatíu manns fallið í valinn, þar af fimmtán hermenn.

Erlent
Fréttamynd

Talar við leiðtoga allra flokka

Angela Merkel lýsti því yfir fyrir stundu að hún ætlaði sér að tala við leiðtoga allra stjórnmálaflokka landsins um stjórnarmyndun í Þýskalandi. Ingólfur Bjarni Sigufússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, er í Berlín.

Innlent
Fréttamynd

Enginn lýst ábyrgð á sprengingunni

Sprengjan sem sprakk í breska sendiráðinu í Zagreb í Króatíu í morgun var bréfasprengja, að því er greinir frá á vef BBC. Einn starfsmaður sendiráðsins meiddist lítillega á fæti við sprenginguna. Enginn hefur enn lýst ábyrgð á verknaðinum.

Erlent
Fréttamynd

Pattstaða í Berlín

Í fyrsta sinn í sögu þýzka Sambandslýðveldisins er engan veginn ljóst hvernig stjórnarmynstur tekur við að kosningum loknum. Pattstaða er komin upp í þýzkum stjórnmálum og ljóst að erfitt mun reynast að mynda starfshæfan stjórnarmeirihluta.

Erlent
Fréttamynd

Vilja leyfa erfðabreytt matvæli

Danir munu greiða atkvæði með því að leyfa innflutning á erfðabreyttum matvælum, þegar landbúnaðarráðherrar Evrópusambandsins fjalla um málið, á morgun. Danska blaðið <em>Politiken</em> segir að þetta sé til komið vegna kúvendingar hjá dönskum jafnaðarmönnum.

Erlent
Fréttamynd

N-Kóreumenn hætta kjarnavopnaþróun

Norður-Kóreumenn hétu því í morgun að hætta þróun kjarnavopna og gangast undir alþjóðasáttmála um vopnaþróun. Á sex þjóða fundi í Peking í morgun var skrifað undir samkomulag þessa efnis og að sama skapi hétu Bandaríkjamenn því að engar áætlanir væru uppi um að ráðast inn í Norður-Kóreu.

Erlent
Fréttamynd

Íbúar New Orleans tínast heim

Íbúar New Orleans eru nú farnir að hlýða kalli borgarstjórans og tínast heim aftur, þrátt fyrir andstöðu alríkisstjórnarinnar. Alríkisstjórnin í Washington er á móti þessu og segir að borgin sé ennþá hættusvæði.

Erlent