Erlent
Vopnahlé Ísraels og Paletínu í uppnámi Minnst fimm týndu lífi og um þrjátíu særðust í sjálfsmorðsprengjuárás í strandbænum Hadera í Ísrael í dag. Íslömsku samtökin Jíhad hafa lýst verknaðinum á hendur sér. Erlent 26.10.2005 18:44
Undirstrika sterk tengsl þjóðanna Norska konungsfjölskyldan kom í sína fyrstu opinberu heimsókn til Bretlands í gær. Elísabet Bretlandsdrottning segir heimsóknina undirstrika sterk tengsl þjóðanna. Erlent 26.10.2005 19:08
Annan skorar á þjóðir heims til aðstoðar Hundruð þúsunda þeirra sem þegar eiga um sárt að binda eftir hamfarirnar í Pakistan, kunna að farast á næstu vikum, ef frekari aðstoð berst ekki áður en harður vetur skellur á. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, skorar á þjóðir heims að láta ekki sitt eftir liggja. Innlent 26.10.2005 19:07
Eldur kviknaði og hjólbarði sprakk í lendingu Rúmlega tvö hundruð og fimmtíu farþegum um borð í vél tælenska flugfélagsins Thai Airways brá heldur betur í brún þegar vélin lenti á flugvellinum í Melbourne í Ástralíu í morgun. Vélin lenti svo harkalega að einn hjólbarði sprakk og annar búnaður laskaðist, með þeim afleiðingum að eldur kviknaði á nokkrum stöðum í vélinni. Erlent 26.10.2005 18:42
Hafa engin samskipti við dómstólinn Lögmenn Saddams Husseins segjast ekki munu hafa nein samskipti við dómstólinn sem réttar í máli hans þar til réttarhöldunum verður framhaldið í lok nóvember. Þeir vilji nefnilega ekki tefla lífi sínu í hættu en í síðustu viku var lögmaður eins af fyrrverandi samverkamönnum Saddams myrtur eftir að hafa verið rænt af skrifstofu sinni. Erlent 26.10.2005 17:22
Fylkingar súnníta saman í framboð Nú þegar ný stjórnarskrá hefur verið samþykkt í Írak hafa þrjár stjórnmálafylkingar súnníta tekið höndum saman og ætla að bjóða fram undir sömu merkjum í þingkosningum í landinu í desember. Í tilkynningu frá fylkingunum þremur eru súnnítar hvattir til að taka þátt í kosningunum, en þátttaka þeirra í kosningunum í janúar var afar dræm. Erlent 26.10.2005 13:03
Ná ekki samkomulagi um reykingabann Breska ríkisstjórnin nær ekki að koma sér saman um lög gegn reykingum, sem átti að kynna í gær. Nokkra ráðherra greinir á um hvort bannið eigi að ná til allra opinberra staða eða hvort undanskilja eigi veitingastaði sem ekki selja mat. Erlent 26.10.2005 12:29
Tvö þúsund Bandaríkjamenn fallnir í Írak Tvö þúsund Bandaríkjamenn hafa fallið í Írak síðan innrásin í landið hófst í mars 2003. Erlent 26.10.2005 12:25
Banvænn stofn flensu greinist í Króatíu H5N1-stofninn af fuglaflensu hefur greinst í Króatíu. Þetta var staðfest í morgun. Fuglaflensa hefur enn á ný greinst í Kína, að þessu sinni í rúmlega fimm hundruð öndum og kjúklingum í Hunan-héraði. Erlent 26.10.2005 12:13
Sýrlendingar vilja rannsaka morðið á Hariri Sýrlensk stjórnvöld segjast reiðubúin að hefja eigin rannsókn á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Hins vegar hafna þau rannsókn Sameinuðu þjóðanna á morðinu og segja hana ekki hlutlausa. Erlent 26.10.2005 11:05
Skera upp herör gegn grimmilegri meðferð á dýrum Yfirvöld í Róm á Ítalíu hafa skorið upp herör gegn kærulausum gæludýraeigendum og -seljendum og hafa sett margs konar reglur til þess að koma í veg fyrir grimmilega meðferð á dýrum. Erlent 26.10.2005 09:01
Segir margar ríkar þjóðir hafa brugðist Margar af ríkustu þjóðum heims hafa brugðist þegar kemur að því að aðstoða fórnarlömb jarðskjálftans í Suður-Asíu sem varð fyrir tæpum þremur vikum. Þetta segja bresku hjálparsamtökin Oxfam og benda á að einungis hafi fengist loforð fyrir þriðjungi þess fjár sem Sameinuðu þjóðirnar hafa farið fram á vegna hamfaranna. Erlent 26.10.2005 07:44
Vinsældir Bush minnka Fimmtíu og fimm prósent Bandaríkjamanna myndu kjósa Demókrata ef gengið yrði til kosinga nú. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar Gallup, CNN og dagblaðsins USA Today. Erlent 26.10.2005 07:42
Grunur um fuglaflensu á Indlandi Yfirvöld á Indlandi hafa sent blóðsýni úr farfuglum sem fundist hafa dauðir í vesturhluta Bengal-skóganna síðustu vikuna til rannsókna vegna gruns um fuglaflensu. Erlent 26.10.2005 07:36
Segja tengsl milli messusóknar og auðæfa Það að sækja trúarlegar athafnir getur ekki aðeins göfgað sálina heldur einnig stuðlað að ríkidæmi. Erlent 26.10.2005 07:23
Norðmenn græða á fuglaflensu Fuglaflensa leiðir ekki aðeins til útgjalda fyrir ríki heims. Norðmenn hafa komist að raun um að það er líka hægt að græða á óttanum við fuglaflensu. Erlent 26.10.2005 06:51
Fuglaflensa í Þýskalandi Fuglaflensusmit greindist í dauðum gæsum í Þýskalandi í gær. Flensan sem greindist í gæsunum er talin af H5N1 stofn veirunnar. Innlent 25.10.2005 21:05
Sagður hafa logið að þingnefnd Breski þingmaðurinn George Galloway þverneitar að hafa borið ljúgvitni fyrir bandarískri þingnefnd síðastliðið vor, eins og nýjar upplýsingar eru sagðar benda til að hann hafi gert. Erlent 26.10.2005 07:39
Greinist á enn fleiri stöðum Enn á ný hefur fuglaflensa greinst í Kína, að þessu sinni í rúmlega fimm hundruð öndum og kjúklingum í Hunan-héraði. Yfirvöld þar hafa fargað tvö þúsund og fimm hundruð fuglum í varúðarskyni. Erlent 26.10.2005 07:28
Ísraelsher skýtur á Gasa Ísraelski herinn skaut í morgun úr flugvélum og af jörðu niðri á svæði á norðanverðri Gasaströndinni, þaðan sem herskáir Palestínumenn skutu í nótt flugskeytum að borginni Sderot í Ísrael. Ekki er vitað til þess að neinn hafi fallið í valinn. Erlent 26.10.2005 07:11
Áfengissýki norskra ungmenna eykst Norsk ungmenni hafa tvöfaldað áfengisneyslu sína síðustu árin og fjórðungi fleiri ungmenni eiga við áfengisvandamál að stríða nú en fyrir fimm árum. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem norska heilbrigðisráðuneytið hefur tekið saman og norska Ríkisútvarpið greinir frá. Erlent 26.10.2005 06:50
Lægstu framlögin frá Íslandi Carsten Hansen, þingmaður danskra jafnaðarmanna, gagnrýndi íslensk stjórnvöld í upphafi umræðna á þingi Norðurlandaráðs fyrir lítil framlög til þróunaraðstoðar. Hann spurði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hvort og þá hvenær þróunaraðstoð Íslendinga yrði viðlíka mikil hlutfallslega og hjá öðrum Norðurlandaþjóðum. Erlent 26.10.2005 00:05
Konan sem hleypti lífi í réttindabaráttu blökkumanna Rosa Parks, konan sem hleypti lífi í réttindabaráttu blökkumanna með því að neita að standa upp fyrir hvítum manni í strætisvagni í Montgomery í Alabama, lést í hárri elli í fyrrakvöld. Erlent 26.10.2005 03:04
Geta valdið heyrnarskaða Að mati danskra sérfræðinga veldur mikil notkun mp3- spilara heyrnarskaða. Telja þeir að of margir séu með spilarana of hátt stillta og hlusti of lengi í einu. Þetta kemur fram í dagblaðinu Politiken í gær. Er talið að fjöldi heyrnarskertra í Danmörku muni tvöfaldast á næstu 15 til 20 árum. Innlent 26.10.2005 02:39
Heilagt stríð hótar hefndum Ísraelskar hersveitir skutu Luay Saadi, yfirmann hernaðararms samtakanna Heilagt stríð, og náinn samstarfsmann hans til bana í flóttamannabúðum í Tulkarem á Vesturbakkanum um helgina. Yfirmaður Ísraelshers á svæðinu sagði að Saadi hefði staðið fyrir nokkrum árásum undanfarna mánuði sem tólf Ísraelar hefðu látið lífið í og hann væri auk þess grunaður um að hyggja á frekari tilræði. Talsmaður Heilags stríðs hótaði grimmilegum hefndum vegna drápsins. Erlent 26.10.2005 01:17
Íslenskar konur í fréttum í Katar Fjölmiðlar í löndum jafn fjarri okkur og Ástralíu og Katar við Persaflóa sögðu fréttir af kvennafrídeginum á Íslandi. Gulf Times í Katar og The Australian, stærsta dagblað Ástralíu, sögðu frá því að tugþúsundir íslenskra kvenna hefðu yfirgefið störf sín til þess að mótmæla kynbundnum launamuni í landinu. Erlent 26.10.2005 00:47
Galloway fékk fé frá Írökum Bandarísk þingnefnd hefur sakað breska þingmanninn George Galloway um að hafa logið að sér þegar hann staðhæfði eiðsvarinn fyrr á þessu ári að hann hefði engar greiðslur fengið í tengslum við olíusöluáætlun Sameinuðu þjóðanna í Írak. Erlent 26.10.2005 03:18
Gruna friðargæsluliða um nauðganir Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna í Pristina í Kosovo sæta nú rannsókn vegna ásakana um nauðganir, spillingu og mútuþægni. Íslenskir hermenn sáu um rekstur flugvallarins í Pristina og enn eru vopnaðir Íslendingar þar að störfum. Erlent 25.10.2005 23:59
Tvíburar með töglin og hagldirnar Stjórnarmyndunarviðræður eru hafnar á ný í Póllandi eftir að Lech Kaczynski var kjörinn forseti um helgina. Sigur Kaczynskis styrkir mjög stöðu flokks hans í viðræðunum. Endanleg niðurstaða kosninganna liggur fyrir og hlaut Kaczynski 54 prósent atkvæða en Donald Tusk, keppinautur hans, 46 prósent. Erlent 26.10.2005 00:52
Rússnesk skip gripin á ný Norska strandgæslan stöðvaði um helgina umskipun afla úr rússneskum togara yfir í flutningaskip nærri Bjarnarey í Barentshafi. Norðmenn gera tilkall til hafsvæðisins sem skipin voru á enda þótt það sé utan efnahagslögsögu þeirra. Erlent 26.10.2005 02:10