Erlent

Fréttamynd

Bush tilnefndi Alito sem hæstaréttardómara

George Bush, forseti Bandaríkjanna, tilnefndi fyrir stundu nýjan hæstarréttadómara. Það er alríkisdómarinn og íhaldsmaðurinn Samuel Alito sem varð fyrir valinu en hann var talinn líklegastur ásamt öðrum til.

Erlent
Fréttamynd

Kona greinist með fuglaflensu í Tælandi

Tælensk heilbrigðisyfirvöld greindu frá því í dag að 50 ára gömul tælensk kona hefði greinst með fuglaflensu. Hún er tuttugasti einstaklingurinn sem greinist með fuglaflensu í Tælandi, frá því að fuglaflensan kom upp þar fyrir tveimur árum.

Erlent
Fréttamynd

Selur bítur nef af konu

Selur beit nefið af konu í dag við strendur Suður-Afríku þegar hún var að reyna að hjálpa honum aftur út í sjóinn. Selurinn hafði legið á sama stað síðan fyrir helgi en konan reyndi ásamt fleira fólki að koma selnum aftur út í sjóinn.

Erlent
Fréttamynd

25 látnir og 70 þúsund flúnir

Að minnsta kosti tuttugu og fimm hafa látist í flóðum og aurskriðum í Víetnam undanfarna daga eftir að fellibylur gekk yfir landið. Tæplega sjötíu þúsund manns hafa flúið heimili sín vegna hamfaranna.

Erlent
Fréttamynd

Ríkisstjórn mynduð í Póllandi

Búið er að mynda nýja ríkisstjórn í Póllandi. Það er minnihlutastjórn flokksins Laga og réttar sem fékk flest atkvæði í þingkosningum í september.

Erlent
Fréttamynd

Ekki fuglaflensa á Chios

Talsmenn Evrópuráðsins greindu frá því í morgun að grunur um fuglaflensu á grísku eyjunni Chios hafi ekki átt við rök að styðjast.

Innlent
Fréttamynd

Sjö létust í troðningi í Mekka

Sjö létust í troðningi og um fjörutíu til viðbótar særðust þegar ringulreið myndaðist við úthlutun ölmusu í hinni helgu borg Mekka í Sádí-Arabíu á laugardag. Mekka er helgasti staður múslíma og var laugardagurinn síðasti dagur Ramadan, föstumánaðar og helgustu hátíðar múslíma og þess tímabils þar sem ölumusugjafir þykja hvað göfugastar.

Erlent
Fréttamynd

Erfingi fæddur í spænsku konungsfjölskyldunni

Krónprins og krónprinsessa Spánar eignuðust sitt fyrsta barn í nótt, stúlku, þremur vikum fyrr en áætlað var. Sú staðreynd að hinn nýfæddi erfingi sé stúlka vekur upp pólitískar deilur sem áður hafa blossað upp á Spáni þar sem lög um erfingja krúnunnar kveða á um að drengir hafi forgang fram yfir stúlkur.

Erlent
Fréttamynd

8000 manns flúðu Betu

Yfir átta þúsund manns flúðu heimili sín í Hondúras í gær vegna fellibylsins Betu sem reið þar yfir með mikilli úrkomu og roki. Fellibylurinn mælist nú sem fellibylur af annarri gráðu á kvarða Saffír-Simpson um stærð fellibylja.

Erlent
Fréttamynd

Berlusconi styður yfirmann leyniþjónustunnar

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur gefið út stuðningsyfirlýsingu til handa Nicolo Pollari, yfirmanni ítölsku leyniþjónustunnar, sem er sagður hafa komið fölsuðum skjölum til bandarískra stjórnvalda.

Erlent
Fréttamynd

Eiturlyfjabarón handtekinn í Kólumbíu

Kólumbíska lögreglan hefur handtekið John Eildelber Cano sem talinn er vera einn af æðstu mönnum stærsta eiturlyfjasmyglshrings landsins. Hringurinn, sem kallast Norte del Valle, er talinn standa að baki helmings þess magns eiturlyfja sem flutt hafa verið frá Kólumbíu til Bandaríkjanna síðastliðin tíu ár.

Erlent
Fréttamynd

Hundruð minntust Rosu Parks

Hundruð manna voru viðstödd minningarathöfn vegna Rosu Parks, sem vakti aðdáun blökkumanna þegar hún neitaði að víkja fyrir hvítum manni í strætisvangi í Alabama árið 1955. Parks lést á dögunum 92 ára að aldri. Var hún talin hafa átt stóran þátt í baráttunni fyrir jafnrétti í Bandaríkjunum.

Erlent
Fréttamynd

Ákærður fyrir ritstuld

Dan Brown, höfundi metsölubókarinnar Da Vinci lykillinn, sem selst hefur í tuttugu og fimm milljónum eintaka um allan heim, stendur nú frammi fyrir ákæru um ritstuld. Er það í annað sinn sem hann er borinn slíkum sökum.

Innlent
Fréttamynd

Hrakandi siðferðisþrek í stjórnartíð Bush

Meirihluti aðspurðra Bandaríkjamann segja ákærurnar á Lewis Libby gefa til kynna mun víðtækari siðferðisbrest og spillingu innan stjórnar Bush en þá óraði fyrir. Kemur þetta fram í nýrri könnun sem gerð var á dögunum og þá sagði meira en helmingur aðspurðra að siðferðisþreki og heiðarleika meðal ráðamanna hafi hrakað verulega í stjórnartíð Bush. Niðurstöður könnunarinnar eru skellur fyrir stjórn Bush sem enn sætir hörðum ásökunum vegna slælegra viðbragða við fellibylnum Katrínu.

Innlent
Fréttamynd

Fagna opnun landamæra

Sameinuðu þjóðirnar fagna þeirri ákvöðrun Indlands og Pakistan að opna samliggjandi landamæri þeirra í Kasmír fyrir fórnarlömbum jarðskjálftans sem og birgðaflutningum. Á sama tíma segja Sameinuðu þjóðirnar að hjálparstarf til þeirra milljóna sem enn eru í nauðum sé gríðarlegum vandkvæðum bundið og þarfnist mikillar skipulagningar sem seint sjáist fyrir endann á.

Erlent
Fréttamynd

Auknar líkur á lækningu þunglyndis

Þunglyndissjúklingar eiga nú betri möguleika á lækningu í framtíðinni. Danskir vísindamenn eru bjartsýnir á að rannsóknir undanfarinna ára og nú tækni verði til þess að hægt sé að greina þunglyndi fyrr og meðhöndla.

Erlent
Fréttamynd

Indverjar á verði

Indverjar eru vel á verði í kjölfar þess að þrjár öflugar sprengjur sprungu í miðborg Nýju Delhi í gær. Ekki færri en sextíu og einn féll, flestir óbreyttir borgarar sem voru að kaupa gjafir fyrir mikilvægar trúarhátíðir hindúa og múslíma.

Erlent
Fréttamynd

Þrjár milljónir heimilislausar

Þrjár milljónir manna eru enn á húsaskjóls og nauðþurfta á skjálftasvæðinu í Kasmír. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja þörf á tvöhundruð og fimmtíu milljónum dollara þegar í stað eigi fólkið ekki að deyja úr kulda og vosbúð á næstu vikum.

Innlent
Fréttamynd

Allar líkur meiri styrkleika

Fellibylurinn Beta leikur Nikaragva grátt sem stendur en bylnum hefur vaxið mjög ásmeginn og er hann nú af stærðargráðu þrjú. Veðurfræðingar segja allar líkur á að Beta verði enn sterkari þegar bylurinn skellur á skóglendi við ströndina eftir fáeinar klukkustundir.

Innlent
Fréttamynd

26 þúsund Írakar fallið frá stríðsbyrjun

Tuttugu og sex þúsund Írakar hafa verið drepnir eða særðir í árásum uppreisnar- og hryðjuverkamanna í Írak frá því í byrjun árs 2004, að mati sérfræðinga bandaríska varnarmálaráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Öflugar sprengingar á Indlandi

Þrjátíu eru látnir eftir röð sprenginga í miðborg Nýju Delhi, höfuðborgar Indlands, rétt upp úr hádegi. Fyrsta sprengingin mun hafa orðið á fjölsóttum markaði skammt frá meginjárnbrautarstöðinni ekki langt frá þekktum hótelum. Skömmu síðar sprakk önnur sprengja á öðrum markaði. Þriðja sprengjan sprakk í iðnaðarhverfi í suðurhluta borgarinnar.

Erlent
Fréttamynd

Tvær handtökur til viðbótar í Danmörku

Tveir í viðbót hafa verið úrskurðaðir í varðhald í Danmörku grunaðir um þátttöku í skipulagningu hryðjuverkaárásar í Evrópu. Danska lögreglan útilokar ekki að hópurinn hafi ætlað að láta til skarar skríða í Danmörku.

Innlent
Fréttamynd

Olíurisar með methagnað

Á sama tíma og olíuverð hefur verið í nánd við sögulegt hámark er hagnaður alþjóðlegra olíufyrirtækja einnig í hámarki. Árið stefnir í að vera það besta í sögu olíuiðnaðarins. Olíurisinn Exxon tilkynnti um hagnað sinn á þriðja ársfjórðungi í gær og hann er sá mesti í sögunni - tíu milljarðar dollara eða ríflega sexhundruð milljarðar króna.

Innlent
Fréttamynd

Big Ben þagnar um stund

Big Ben er þagnaður. Klukkan í turninum, sem er eitt einkennismerka Lundúnaborgar, er þögnuð um sinn og mun ekkert heyrast í bjöllunum næsta sólarhringinn eða svo. Ástæðan eru sú að stilla þarf bjöllurnar og sinna viðhaldi. Það eru liðnir tveir áratugir frá því að Big Ben þagnaði síðast jafnlengi en sérfræðingarnir sem sinna viðhaldinu segja klukkuna í besta lagi, en viðhaldið sé reglubundið og hjá því verði ekki komist.

Innlent
Fréttamynd

Lestarslys á Indlandi

Óttast er að allt að hundrað og fimmtíu manns hafi farist þegar lest fór út af sporinu í Andhra Pradesh í suðurhluta Indlands í morgun. Ástæðan er sú að brú gaf sig þegar áin sem hún þveraði breyttist úr sprænu í straumharða á. Úthellisrigning og vonskuveður er á svæðinu og hefur það valdið skyndiflóðum víða.

Innlent
Fréttamynd

Rannsókn ekki lokið

Rannsókn á leka frá CIA, bandarísku leyniþjónustunni, þar sem upplýsingum um njósnara þjónustunnar var lekið til fjölmiðla, er ekki lokið, þrátt fyrir að starfsmaður Hvíta hússins, Lewis Libby, hafi verið ákærður. Patrick Fitzgerald, yfirmaður rannsóknarinnar upplýsti þó í gær að stærstum hluta rannsóknarinnar væri lokið.

Erlent
Fréttamynd

Lá í líkhúsi í rúm tvö ár

Bresk yfirvöld rannsaka nú hvernig á því standi að lík ungs manns lá í líkhúsi í tvö ár án þess að reynt væri að bera á það kennsl. Á meðan beið fjölskylda hans á milli vonar og ótta um hvað orðið hefði um ástvin þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Lokkar ekki til sín ferðamenn

Tvö hundruð ár eru liðin á þessu ári frá fæðingu rithöfundarins H.C. Andersen og af því tilefni hafa verið settar upp margvíslegar sýningar í Danmörku. Alþjóðlegri auglýsingaherferð var hrundið af stað til að fá erlenda ferðamenn til landsins.

Erlent
Fréttamynd

Álpaðist til Frakklands

Þegar læðan Emily týndist í heimabæ sínum, Appleton í Wisconsin, fyrir rúmum mánuði bjuggust eigendur hennar við að hana væri að finna í kattageymslum bæjarins. Þeim varð því hverft við þegar fréttist af henni í Nancy í Frakklandi. Talið er að Emily hafi álpast upp í vörugám við pappírsverksmiðju sem síðan var fluttur sjóleiðis yfir Atlantshafið.

Erlent
Fréttamynd

Skattayfirvöld íhuga lögsókn

Ítalskur dómari íhugar nú hvort ákæra eigi Silvio Berlusconi, forsætisráðherra landsins, fyrir skattsvik og aðra glæpi. Verði Berlusconi ákærður fara réttarhöldin að líkindum fram í vor, eða á svipuðum tíma og kosningar verða haldnar í landinu.

Erlent