Erlent

Fréttamynd

Snarpur skjálfti í Afganistan

Snarpur jarðskjálfti sem mældist 6,7 ár Richter skók Hindu Kush héraðið í Afganistan fyrir stundu, þar sem nú er árla dags, en engar fregnir hafa borist af mann- eða eignatjóni.

Erlent
Fréttamynd

Schwarzenegger náðar ekki dauðadæmdan mann

Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, ákvað í dag að náða ekki Stanley "Tookie" Williams, fyrrverandi foringja í glæpagengi, sem taka á af lífi í fyrramálið að íslenskum tíma. Williams var dæmdur til dauða fyrir morð á fjórum mönnum árið 1979 en hann hefur staðfastlega haldið fram sakleysi sínu og hefur í fangelsi unnið ötullega gegn gengjamenningu í Bandaríkjunum.

Erlent
Fréttamynd

Líbanska ríkisstjórnin hangir á bláþræði

Líf líbönsku ríkisstjórnarinnar hangir á bláþræði. Fimm ráðherrar úr röðum Hizbollah sem eru hallir undir sýrlensk stjórnvöld sögðust í kvöld vera hættir þátttöku í ríkisstjórninni. Þetta sögðu þeir eftir neyðarfund í ríkisstjórninni vegna morðsins á blaðaútgefandanum Gebran Tueni í bílsprengjuárás í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Flýja öfund út í meint auðæfi

Foreldrar barns númer áttatíu og eitt, sem bjargaðist á undraverðan hátt úr flóðbylgjunni miklu á Srí Lanka, eiga erfitt, því að fólk heldur að þeir séu svo ríkir.

Erlent
Fréttamynd

Enn leitað að Karadic

Hersveitir NATO, í Bosníu, gerðu í dag húsleit hjá einum stuðningsmanna Radovans Karadic, leiðtoga Serba í Bosníustríðinu. Talsmaður NATO sagði við fréttamenn að þetta hefði verið gert til að fá frekari upplýsingar um net stuðningsmanna sem hafa gert Radovan Karadic kleift að vera í felum í tíu ár.

Erlent
Fréttamynd

Hættu slökkvistarfi vegna sprengihættu

Breskir slökkviliðsmenn við olíuhreinsunarstöðina norðan við Lundúnir, drógu sig í hlé síðdegis, af ótta við enn eina sprenginguna. Búið er að slökkva elda í tólf eldsneytisgeymum af tuttugu og þykir slökkvistarfið hafa gengið vel.

Erlent
Fréttamynd

Fundu annað leynifangelsi í Írak

Írakskir og bandarískir embættismenn hafa fundið nýtt fangelsi á vegum innanríkisráðuneytis Íraks í Bagdad þar sem útlit er fyrir að fangar hafi verið pyntaðir. Eftir því sem yfirvöld greina frá voru 625 fangar í haldi í miklum þrengslum í fangelsinu en þrettán þeirra þurftu á læknisaðstoð að halda, af því er talið er vegna pyntinga.

Erlent
Fréttamynd

Vill lengri tíma til að rannsaka morðið á Hariri

Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna sem rannsakar morðið á Rafiq Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, hefur farið fram á það að rannsóknartíminn verði lengdur um hálft ár vegna samstarfstregðu sýrlenskra yfirvalda í málinu.

Erlent
Fréttamynd

Vill að öryggisráð SÞ rannsaki morðið á Tueni

Fouad Siniora, forsætisráðherra Líbanons, hyggst biðja öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að rannsaka morðið á líbanska þingmanninum Gebran Tueni sem ráðinn var af dögum í Beirút í morgun. Tueni lést ásamt þremur öðrum þegar sprengja sprakk nærri bifreið hans en auk þess slösuðust tíu manns í tilræðinu.

Erlent
Fréttamynd

Elsta manneskja í heimi 116 ára

Elsta manneskja í heimi er Ekvadori. Það er Maria Esther Capovilla en hún er fædd 14. september árið 1889 og er því 116 ára og tæpum þremur mánuðum betur. Heimsmetabók Guinnes hefur staðfest að hún sé elst jarðarbúa eftir að hafa fengið fæðingar- og giftingarvottorð hennar.

Erlent
Fréttamynd

Glæpir gegn mannkyni framdir í Darfúr?

Bandarísku mannréttindasamtökin Human Rights Watch krefjast þess að rannsókn verði gerð á því hvort háttsettir menn innan stjórnarinnar í Súdan, þar á meðal forseti landsins, hafi gerst sekir um glæpi gegn mannkyni í Darfúr-héraði.

Erlent
Fréttamynd

Teknir til við að slökkva eldana

Breskir slökkviliðsmenn byrjuðu í dag að dæla milljónum lítra af kvoðu og vatni á eldana sem enn loga í olíubirgðastöðinni norðan við Lundúnir.

Erlent
Fréttamynd

Tólf handteknir í kynþáttaóeirðum

Tólf unglingar voru handteknir í miklum kynþáttaóeirðum í Sidney í Ástralíu í gær. Þúsundir hvítra unglinga söfnuðust saman í strandhverfum borgarinnar og gerðu aðsúg að hópi ungmenna af arabískum uppruna og létu öllum illum látum.

Erlent
Fréttamynd

Atkvæðagreiðslan hafin

Atkvæðagreiðsla í sögulegum þingkosningum í Írak hefst í dag. Stjórnvöld í Írak hafa gripið til víðtækra öryggisaðgerða í aðdraganda kosninganna, þar sem óttast er að uppreisnarmenn geri fjölmargar árásir.

Erlent
Fréttamynd

Pólverjar rannsaka leynifangelsi

Pólsk stjórnvöld hafa ákveðið að hefja formlega rannsókn á því hvort leynifangelsi á vegum CIA hafi verið rekin í landinu. Stjórnvöld í Póllandi hafa alltaf harðneitað sögusögnum um leynifangelsin, en segja að málið verði að rannsaka, því annars gæti það skaðað orðstýr landsins.

Innlent
Fréttamynd

Þingmaður myrtur

Líbanskur þingmaður var ráðinn af dögum í Beirút í morgun. Aðrir þingmenn ásaka Sýrlendinga um að bera ábyrgð á morðinu. Þingmaðurinn Gebran tueni lést ásamt þrem öðrum þegar bílsprengja sprakk nærri bifreið hans. Tíu manns slösuðust í sprengingunni, sem var mjög öflug og skemmdi nærliggjandi byggingar töluvert.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðverjar fá einir þjóða að reka herstöð í Úsbekistan

Þjóðverjar fá að halda áfram rekstri herstöðvar sinnar í Úsbekistan, ólíkt öðrum NATO-þjóðum. Á dögunum lýstu stjórnvöld í Úsbekistan því yfir við fjölmörg þeirra ríkja sem eru með hersveitir í landinu að þau fengju ekki áframhaldandi leyfi fyrir slíku, en Úsbekistan hefur meðal annars landamæri að Afganistan.

Erlent
Fréttamynd

Sjónhimnuígræðslur í heila Parkinsons-sjúklinga lofa góðu

Sex sjúklingar sem þjást af Parkinsons sjúkdómnum hafa sýnt miklar framfarir eftir að skurðlæknar græddu frumur úr innra lagi sjónhimna í heila þeirra. Ári eftir ígræðslunar mældust sjúklingarnir 48% hærra á prófum sem mæla hreyfingu þeirra og samhæfingu og tveimur árum síðar höfðu þeir ekki glatað þeirri getu.

Erlent
Fréttamynd

Öflug sprengja í pósthúsi í Aþenu

Öflug sprengja varð í pósthúsi í miðborg Aþenu í Grikklandi í morgun. Töluverðar skemmdir urðu á byggingunni og gler úr rúðum dreifðist yfir stórt svæði. Ekki liggur enn fyrir hvort fólk hafi slasast í sprengingunni.

Erlent
Fréttamynd

Töluverður eldur logar enn

Töluverður eldur logar enn í einni stærstu olíubirgðastöð í Bretlandi þar sem miklar sprengingar urðu í gær. Reykmökkurinn frá stöðinni nær mörg hundruð metra upp í loftið. Talið er að erfitt verði að komast að orsökum sprenginganna þar sem flestallar vísbendingar hafi brunnið.

Erlent
Fréttamynd

Brottfluttir eru kosningabærir

Fjölmargir Írakar sem eru búsettir utan heimalands síns fá á þriðjudag að kjósa í þingkosningum landsins. Kosningarnar fara fram í Írak á fimmtudag en atkvæði verða greidd erlendis á þriðjudag og miðvikudag.

Erlent
Fréttamynd

Genginn til liðs við Sharon

Shaul Mofaz, varnarmálaráðherra Ísraels, hefur sagt skilið við Likud-flokkinn og gengið til liðs við miðflokk Ariels Sharon forsætisráðherra. Mofaz segir að hægri öfgamenn hafi rænt Likud-flokknum og því hefði hann ekki getað unað. Mofaz var einn öflugasti leiðtogi Likud-flokksins.

Erlent
Fréttamynd

Kynjakvóti í stjórnum

Lög sem skylda skráð hlutafélög til að hafa að minnsta kosti fjóra af hverjum tíu stjórnarmönnum konur ganga í gildi um áramótin í Noregi. Félögin fá tvö ár til að auka hlutfallið þannig að í ársbyrjun 2008 eiga konur að sitja í öðru hverju stjórnarsæti, annars geta félögin misst starfsleyfi.

Erlent
Fréttamynd

Tólf handteknir

Þúsundir hvítra ungmenna efndu til mótmæla í Sydney í Ástralíu í gær og þurfti lögreglan að hafa hendur í hári þó nokkurra ólátabelga. Mótmælin áttu sér stað á ströndinni Cronulla og höfðu mótmælendurnir flestir áfengi um hönd.

Erlent
Fréttamynd

Ekkert vitað um afdrif gísla

Yfirvöld í Írak segjast ekki hafa neinar upplýsingar um þá sjö vestrænu gísla sem hafa verið í haldi í landinu undanfarið. Í síðasta mánuði var þýskum fornleifafræðingi rænt í Bagdad og nokkrum dögum síðar var fjórum kristnum friðarsinnum rænt í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Pyntingar verði bannaðar

Öldungadeild Bandaríkjaþings og Hvíta húsið munu á næstunni samþykkja tillögu um að banna pyntingar til að fá mikilvægar upplýsingar hjá grunuðum hryðjuverkamönnum. Þessu heldur Bill Frist, leiðtogi repúblikana í öldungadeildinni, fram.

Erlent
Fréttamynd

Feitum börnum fjölgar ört

Brussel Yfir 400 þúsund börn á aldrinum fimm til ellefu ára bætast í hóp offitusjúklinga í Evrópu á ári hverju, samkvæmt nýjum tölum Evrópusambandsins. Um fjórtán milljónir barna innan sambandsins eru talin vera vel yfir kjörþyngd. Þar af eru þrjár milljónir taldar þjást af offitu.

Erlent
Fréttamynd

Sigur Bræðralags múslima

Bráðabirgðaniðurstöður egypsku þingkosninganna benda til að Bræðralag múslima hafi hlotið fimmtung atkvæða.

Erlent
Fréttamynd

Tveimur vísað úr landi

Stjórnvöld á Ítalíu vísuðu tveimur Norður-Afríkubúum sem þau töldu hættulega úr landi um helgina. Þar á meðal var einn sem tvisvar hefur verið sýknaður af ákærum um hryðjuverk, Marokkóbúinn Mohamed Daki.

Erlent
Fréttamynd

Bandaríkjamenn eru velkomnir

Utanríkisráðuneyti Írans bauð Bandaríkjamönnum að taka þátt í byggingu kjarnorkuvers, til að slá á andstöðu við umdeilda kjarnorkuáætlun sína. "Bandaríkjamenn geta tekið þátt í alþjóðlegu útboði á byggingu nýs kjarnorkuvers, fari þeir eftir eðlilegum stöðlum og gæðaeftirliti," sagði talsmaður Íransstjórnar.

Erlent