Erlent Yfirtökuviðræðum slitið í Low & Bonar Formlegum yfirtökuviðræðum í Low & Bonar hefur verið slitið eftir margra vikna viðræður stjórnar félagsins og þriðja aðila. Nafn Atorku Group var nefnt í því sambandi en félagið er stærsti hluthafinn í Low & Bonar með um þriggja milljarða eignarhlut að marksvirði. Viðskipti erlent 28.2.2006 22:55 Köttur smitaður af fuglaflensu Þýsk yfirvöld hafa fundið dauðan kött sem var smitaður af H5N1 stofni fuglaflensunnar. Ekki er enn vitað hvort kötturinn dó af völdum fuglaflensunnar eða af öðrum orsökum en verið er að rannsaka hræið. Kötturinn fannst á sömu slóðum og fuglarnir sem fundust í Þýskalandi fyrr í mánuðinum. Ekki er enn vitað til þess að menn geti smitast af fuglaflensunni af köttum en fundurinn vekur óneitanlega ugg hjá mönnum um að fuglaflensan geti borist í aðrar dýrategundir. Erlent 28.2.2006 15:47 Viðbúnaður hugsanlega í áhættustig tvö Hættulegt afbrigði fuglaflensunnar hefur fundist í villtum andfuglum í suðurhluta Svíþjóðar. Samkvæmt leiðbeiningum Landbúnaðarstofnunar um áhættustig þýðir þetta að viðbúnaður vegna flensunnar verði færður á stig tvö hér á landi. Veiran greindist í tveimur skúföndum við Oskarshamn. Erlent 28.2.2006 13:58 Áframhaldandi óöld í Írak Gjáin milli súnnía og sjía í Írak gæti breikkað enn eftir sprengjuárás við legstein föðurs Saddams Hússein í morgun. Minnst þrjátíu og tveir hafa fallið í fimm sprengjuárásum fyrir hádegið. Erlent 28.2.2006 12:13 Fuglaflensa greinist í Svíþjóð Hið hættulega afbrigði fuglaflensunnar, af stofni H5N1, hefur greinst í suðurhluta Svíþjóðar. Erlent 28.2.2006 12:05 Maóistar drápu fimmtíu manns Uppreisnarmenn úr röðum maóista drápu fimmtíu manns með fjarstýrðri sprengju í morgun. Sprengjan sprakk undir sendibifreið sem í var hópur fólks sem unnið hefur gegn maóistum. Þá slösuðust margir í sprengingunni, en ekki liggur fyrir hvort einhverjir þeirra séu í lífshættu. Erlent 28.2.2006 09:55 Vinna harðar að auðgun úrans Íranar vinna nú harðar en nokkru sinni að auðgun úrans, og halda áfram að hundsa fyrirspurnir kjarnorkueftirlitsmanna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. Aðeins tæpar tvær vikur eru síðan Íranar hófu notkun á tíu nýjum skilvindum í því augnaamiði að auðga úran. Með tilliti til þess hve lítinn samstarfsvija Íransstjórn hafi sýnt, sé alls ekki hægt að fullyrða að tilgangurinn sé með öllu friðsamlegur. Erlent 28.2.2006 09:47 Flugmenn SAS með áfangasigur Erlent 28.2.2006 09:17
Yfirtökuviðræðum slitið í Low & Bonar Formlegum yfirtökuviðræðum í Low & Bonar hefur verið slitið eftir margra vikna viðræður stjórnar félagsins og þriðja aðila. Nafn Atorku Group var nefnt í því sambandi en félagið er stærsti hluthafinn í Low & Bonar með um þriggja milljarða eignarhlut að marksvirði. Viðskipti erlent 28.2.2006 22:55
Köttur smitaður af fuglaflensu Þýsk yfirvöld hafa fundið dauðan kött sem var smitaður af H5N1 stofni fuglaflensunnar. Ekki er enn vitað hvort kötturinn dó af völdum fuglaflensunnar eða af öðrum orsökum en verið er að rannsaka hræið. Kötturinn fannst á sömu slóðum og fuglarnir sem fundust í Þýskalandi fyrr í mánuðinum. Ekki er enn vitað til þess að menn geti smitast af fuglaflensunni af köttum en fundurinn vekur óneitanlega ugg hjá mönnum um að fuglaflensan geti borist í aðrar dýrategundir. Erlent 28.2.2006 15:47
Viðbúnaður hugsanlega í áhættustig tvö Hættulegt afbrigði fuglaflensunnar hefur fundist í villtum andfuglum í suðurhluta Svíþjóðar. Samkvæmt leiðbeiningum Landbúnaðarstofnunar um áhættustig þýðir þetta að viðbúnaður vegna flensunnar verði færður á stig tvö hér á landi. Veiran greindist í tveimur skúföndum við Oskarshamn. Erlent 28.2.2006 13:58
Áframhaldandi óöld í Írak Gjáin milli súnnía og sjía í Írak gæti breikkað enn eftir sprengjuárás við legstein föðurs Saddams Hússein í morgun. Minnst þrjátíu og tveir hafa fallið í fimm sprengjuárásum fyrir hádegið. Erlent 28.2.2006 12:13
Fuglaflensa greinist í Svíþjóð Hið hættulega afbrigði fuglaflensunnar, af stofni H5N1, hefur greinst í suðurhluta Svíþjóðar. Erlent 28.2.2006 12:05
Maóistar drápu fimmtíu manns Uppreisnarmenn úr röðum maóista drápu fimmtíu manns með fjarstýrðri sprengju í morgun. Sprengjan sprakk undir sendibifreið sem í var hópur fólks sem unnið hefur gegn maóistum. Þá slösuðust margir í sprengingunni, en ekki liggur fyrir hvort einhverjir þeirra séu í lífshættu. Erlent 28.2.2006 09:55
Vinna harðar að auðgun úrans Íranar vinna nú harðar en nokkru sinni að auðgun úrans, og halda áfram að hundsa fyrirspurnir kjarnorkueftirlitsmanna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. Aðeins tæpar tvær vikur eru síðan Íranar hófu notkun á tíu nýjum skilvindum í því augnaamiði að auðga úran. Með tilliti til þess hve lítinn samstarfsvija Íransstjórn hafi sýnt, sé alls ekki hægt að fullyrða að tilgangurinn sé með öllu friðsamlegur. Erlent 28.2.2006 09:47
Súkkulaðiát hin hollasta iðja Ný, bandarísk rannsókn bendir afdráttarlaust til þess að súkkúlaðiát sé hin hollasta iðja. Rannsakendur skoðuðu hóp eldri karlmanna frá Hollandi í meira en áratug og í ljós kom að blóðþrýstingur þeirra sem borðuðu súkkúlaði á hverjum degi var mun lægri en þeirra sem ekki voru fyrir súkkúlaðið, auk þess sem lífslíkur þeirra voru hreinlega meiri en hinna. Erlent 28.2.2006 07:36
Danskir læknar lokkaðir til Noregs Þúsundir danskra lækna nýta frítíma sinni til að vinna í Noregi þar sem þeir fá að minnsta kosti tvöfalt hærri laun. Þetta leiðir til verri þjónustu á dönskum spítölum þar sem ekki er hægt að manna alla vaktir þar eftir því sem fram kemur í Jótlandspóstinum. Erlent 28.2.2006 07:23
Bin Laden sagður besta skinn Osama bin Laden er kurteis, hógvær og feiminn maður. Þetta segir ástralskur maður sem var í gær dæmdur fyrir að þiggja styrki frá al-Qaida. Hann starfaði undir handleiðslu bin Laden aðeins nokkrum mánuðum áður en al-Qaida gerðu hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum 11. september 2001. Erlent 28.2.2006 07:16
Sprengja sprakk við legstein föður Husseins Níu sundurskotin lík fundust á víðavangi nærri borginni Bakúba í Írak í morgun. Ekki liggur fyrir hve langt er síðan fólkið var skotið, en líklega var það myrt í óöldinni í Írak í síðustu viku þegar meira en tvö hundruð manns féllu í landinu eftir sprengjuárás á eina helgustu mosku sjía. Og nú í morgunsárið sprakk svo sprengja við legstein föður Saddams Hussein í borginni Tíkrit. Erlent 28.2.2006 07:01
ESB bjargar Palestínumönnum frá gjaldþroti Evrópusambandið ætlar að bjarga Palestínumönnum frá gjaldþroti. Framkvæmdastjórn sambandsins samþykkti í morgun að styrkja heimastjórnina um tæpa tíu milljarða króna. Erlent 27.2.2006 14:05
Bono og Geldof tilnefndir til friðarverðlauna Nóbels Rokksöngvararnir eru Bono og Bob Geldof eru meðal þeirra sem tilnefndir eru til friðarverðlauna Nóbels í ár. Þeir eru í hópi 191 einstaklings og hóps sem tilnefndir eru en báðir hafa látið sig málefni þriðja heimsins varða. Erlent 27.2.2006 13:55
Málaferli vegna Da Vinci lykilsins hefjast í Lundúnum Tveir breskir rithöfundar saka höfund bókarinnar Da Vinci lykillinn um að hafa stolið hugmyndinni að bókinni. Kvikmynd sem byggð er á bókinni gæti seinkað vegna málaferla. Erlent 27.2.2006 12:27
Fólk enn hrætt í Bagdad þrátt fyrir kyrrð í morgun Þriggja daga samfelldu útgöngubanni var aflétt í Bagdad í morgun. Hræðsla er þó enn ofarlega í huga fólks og margir óttast að kyrrðin í morgun sé bara lognið á undan storminum. Erlent 27.2.2006 12:08
Danir skipta oftast Evrópuþjóða um vinnu Danir skipta oftast Evrópuþjóða um vinnu samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð var á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Frá þessu er greint á fréttavef danska ríkisútvarpsns. Erlent 27.2.2006 07:49
Sjá sóknarfæri vegna fuglaflensu Norskir laxeldismenn sjá mikið sóknarfæri inn á Evrópumarkaðinn vegna fuglaflensunnar. Intra Fish greinir til dæmis frá því að kjúklinganeysla hafi dregist saman um 70 prósent á Ítalíu vegna ótta fólks við flensusmit úr alifuglum og þess í stað aukist meðal annars fiskneysla. Erlent 27.2.2006 07:47
Húsnæðisverð langhæst í Kaupmannahöfn Húsnæðisverð í Kapmannahöfn er orðið hið langhæsta á Norðurlöndum og er meðalverð á fermetra komið upp í um það bil 300 þúsund íslenskar krónur. Það er því orðið hærra en í Stokkhólmi sem lengi hefur státað af titlinum dýrasta borg í Skandinavíu. Erlent 27.2.2006 07:44
Bang og Olufsen flytur hluta starfseminnar frá Danmörku Danski raftækjaframleiðandinn Bang og Olufsen, sem FL Group keypti nýverið hlut í, hefur ákveðið að flytja hluta starfsemi sinnar frá Danmörku bæði vegna skorts á verkfræðingum og til að draga úr launakostnaðil. Erlent 27.2.2006 07:42
Fimm uppreisnarmenn drepnir í Sádi-Arabíu Fimm uppreisnarmenn týndu lífi eftir tveggja klukkustunda samfellda skotbardaga við lögreglu í Sádi-Arabíu í nótt. Erlent 27.2.2006 09:19
Þrjátíu þúsund mótmæltu gyðingahatri Meira en þrjátíu þúsund manns gengu fylktu liði um götur Parísar í gær til að mótmæla morði á gyðingi, sem kynþáttahatarar pyntuðu í þrjár vikur. Erlent 27.2.2006 07:30
Lögregla í Sádi-Arabíu berst við uppreisnarmenn Skotbardagar milli lögreglu og uppreisnarmanna í Sádi-Arabíu hafa staðið í alla nótt. Uppreisnarmennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að sprengja stærsta olíuhreinsunarfyrirtæki heims og lögregla hefur verið á hælunum á þeim um nokkurt skeið. Erlent 27.2.2006 07:27
Útgöngubanni aflétt í Bagdad Útgöngubanni var í morgun aflétt í Bagdad, höfuðborg Íraks, eftir hrinu árása í kjölfar sprengingar við al-Askari moskuna, einn heilagasta stað sjía, í síðustu viku. Erlent 27.2.2006 07:19
Fuglaflensa finnst í Sviss Fuglaflensan er komin til Sviss. Þarlend yfirvöld greindu frá því í gær að veira af H5 stofninum hefði greinst í dauðri önd í Genf. Veiran hefur ekki áður greinst í Sviss, en ekki liggur enn fyrir hvort um mannskæða stofninn H5N1 er að ræða. Erlent 27.2.2006 07:14
Samningsdrög á borðinu Íranar og Rússar hafa gert grundvallarsamkomulagi um samvinnu ríkjanna um auðgun úrans. Fulltrúar ríkjanna funduðu í Íran í dag. Rússar hafa boðist til að taka að sér auðgun úrans fyrir Írana. Erlent 26.2.2006 19:36
Fangar taka yfir rammgirt fangelsi Mörg hundruð fangar hafa tekið völdin í tveimur álmum í einu rammgirtasta fangelsi Afganistans. Þar eru tæplega tvö þúsund fangar í haldi nú og stefnt að því að flytja um hundrað meinta hryðjuverkamenn þangað úr Guantanamo-fangelsinu á Kúbu. Erlent 26.2.2006 18:17
Arroyo ekki hólpin enn Öryggissveitir á Filippseyjum hafa girt af höfuðstöðvar landgönguliðs hersins yfirmanni þess hefur verið vikið úr embætti. Hann hvatt í dag Filippseyinga til að hafa að engu bann við fjöldasamkomum í landinu og styðja meinta landráðamenn. Erlent 26.2.2006 18:10
Hamas-liðar vilja vinna með Abbas Líkur eru á að Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, segi af sér takist honum ekki fá Hamas-samtökin, sigurvegara þingkosninganna í síðasta mánuði, til að fara að kröfum alþjóðsamfélagsins. Ismail Haniey, forsætisráðherraefni Hamas-samtakanna, sagði í dag Hamas-liðar vildu vinna með Abbas. Erlent 26.2.2006 18:00
Sharon 78 ára í dag Engin breyting virðist á líðan Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, en hann er 78 ára í dag. Hann liggur enn í dái á sjúkarhúsi í Jerúsalem eftir að hann fékk alvarlegt heilablóðfall snemma í síðasta mánuði. Erlent 26.2.2006 16:49
Uppgjörið: Skotland - Ísland 1-3 | Fyrsti sigur Arnars Bergmanns við stjörnvölinn hjá íslenska liðinu Fótbolti