Erlent
Al-Qaida á ferð um Balkanskaga Íslamskir öfgamenn, með tengsl við Al-Qaida, hafa ferðast fram og aftur yfir Balkanskagann í meira en fimmtán ár. Þessu er haldið fram í nýrri skýrslu um grunaða íslamska hryðjuverkamenn í Bosníu. Erlent 19.4.2006 06:48
Hrávöruverð í hæstu hæðum Verð á góðmálmum á borð við gull, kopar og silfur heldur áfram að hækka eins og olían. Únsan af gulli fór í 618 dali í gær og af silfri í 13,5 dali. Verð á gulli hefur ekki verið hærra á hrávörumarkaði í New York síðan árið 1980 og leita þarf aftur til ársins 1983 til að finna jafn hátt verð á silfri. Viðskipti erlent 18.4.2006 22:37
Hótanir gegn Írönum halda olíuverði uppi Olíuverð lækkar á ný ef vesturveldin hætta harðlínutali sínu gagnvart Írönum segir Edmund Daukoru, forseti OPEC, samtaka olíuframleiðsluríkja, í dag. Hann sagði að spennan milli Ísraela og Palestínumanna bætti ekki heldur úr skák. Erlent 18.4.2006 16:07
Segja heimastjórn Palestínumanna bera ábyrgðina Ísraelar segja heimastjórn Palestínumanna, undir forystu Hamas-samtakanna, bera ábyrgð á sjálfsvígsárás sem varð níu manns að bana í Tel Aviv í gær. Herforingjar vilja svara með árás á heimastjórnarsvæðið. Hamas-liðar hafa ekki viljað fordæma árásina í gær og segja hana réttmæta sjálfsvörn. Innlent 18.4.2006 14:47
Sandstormur í Peking Um það bil þrjú hundruð og þrjátíu þúsund tonn af sandi skullu á Peking, höfuðborg Kína, í gær en mikill sandstormur geisaði þar í sólarhring. Íbúar vöknuðu því upp við vondan draum í gær þegar þeir áttuðu sig á því að bílar þeirra voru þaktir sandi auk þess sem hann huldi götur Peking. Erlent 18.4.2006 14:09
Nestlé mögulegur kaupandi McCartneys Líkur eru sagðar á að svissneska matvælafyrirtækið Nestlé kaupi matvörufyrirtæki Lindu McCartney, sem fyrrum eiginkona bítilsins Pauls McCartneys stofnaði árið 1991. Fyrirtækið McCartney er nú í eigu bandaríska matvörufyrirtækisins Heinz. Viðskipti erlent 18.4.2006 13:50
Ný frímerki með myndum af Bretadrottningu Breska póstþjónustan gaf í morgun út átta ný frímerki með myndum af Elísabetu II Bretlandsdrottningu. Frímerkin eru gefin út í tilefni af áttatíu ára afmæli hennar næsta föstudag. Erlent 18.4.2006 11:32
Olíuverð hækkar enn Olíuverð sveiflaðist nokkuð á mörkuðum í dag. Verðið stóð til skamms tíma í 70,85 dollurum á mörkuðum í New York í Bandaríkjunum en lækkaði nokkuð og stendur nú í 70,75 sentum, sem er 35 sentum meira en í gær. Norðursjávarolía, sem afhent verður í júní, hækkaði um 5 sent í kauphöll Lundúna í Bretlandi. Til skamms tíma fór tunnan í 72,20 dollara, sem er metverð. Hún stendur nú í 71,51 dal. Viðskipti erlent 18.4.2006 11:39
Flóðin í Dóná virðast í rénun Flóðin í Dóná virðast í rénun en þau hafa valdið miklum skemmdum á heimilum og ræktarlandi í Búlgaríu, Rúmeníu og Serbíu. Þar hefur áin flætt yfir bakka sína síðustu viku og er yfirborð Dónár enn hátt, en um helgina mældist yfirborð hennar það hæsta í hundrað og ellefu ár. Erlent 18.4.2006 11:16
Hagnaður Pepsi minnkar á milli ára Bandaríska gosdrykkjafyrirtækið Pepsi Bottling Group Inc. skilaði 34 milljóna dollara hagnaði á fyrsta ársfjórðungi 2006. Þetta er 5 milljónum minna en á sama tíma á síðasta ári. Gengi hlutabréfa í fyrirtækinu hækkaði um 14 sent eftir að greint var frá afkomu fyrirtækisins. Viðskipti erlent 18.4.2006 11:17
Aukið eftirlit í New York Lögreglan í New York í Bandaríkjunum hefur enn aukið eftirlit til að herða á baráttunni gegn glæpum og hryðjuverkum í borginni. Búið er að koma fyrir eftirlitsmyndavélum með aðdráttarlinsum á fjölmörgum ljósastaurum. Lögregla í borginni segir að hægt verði að koma fyrir mörg hundruð vélum til viðbótar ef aukafjárveiting að jafnvirði rúmra sex milljarða íslenskra króna fáist frá ríkinu. Erlent 18.4.2006 08:30
Fjölmargra saknað eftir að ferja sökk Fjölmargra er saknað eftir að farþegaferja með allt að hundrað farþega sökk undan austurströnd Indónesíu í gærkvöld. Slæmt var í sjóinn á svæðinu. Í febrúar fórust 40 manns þegar ferja sökk á þeim stað þar sem slysið varð í gær. Erlent 18.4.2006 08:08
Stuðningmenn forseta Tsjad láta í sér heyra Stuðningsmenn Idriss Deby, forseta Tsjad, söfnuðust saman á götum höfuðborgar landsins í gær en rétt um hálfur mánuður eru í kosningar þar í landi. Uppreisnarmenn reyndu í síðustu viku að velta forsetanum úr sessi en hann hefur verið við völd í 16 ár. Erlent 18.4.2006 08:00
57 létust í rútuslysi í Mexíkó 57 manns biðu bana þegar rúta ók út af fjallvegi í Mexíkó í gær. 60 farþegar voru í rútunni sem var aðeins með sæti fyrir 46 manns. Allir hinna látnu voru mexíkóskir ríkisborgarar á leið heim úr páskafríi í vesturhluta landsins. Erlent 18.4.2006 07:51
Hamas-liðar varaðir við að verja hryðjuverk Bandarísk stjórnvöld hafa varað Hamas-hreyfinguna við því að verja hryðjuverk. Formælandi samtakanna sagði í gær að sjálfsvígsárás í Tel Aviv í Ísrael í gær hefði verið lögmæt sjálfsvörn. Erlent 18.4.2006 08:25
15 lík finnast í úthverfum Bagdad 15 lík fundust á tveimur stöðum í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. 12 líkanna fundust í í suður hluta borgarinnar og þrjú í hverfi sjía-múslima. Að sögn lögreglu var fólkið handjárnað og síðan skotið til bana. Mörg hundruð múslimar hafa fallið eða særst í átökum í Írak síðustu vikur en upp úr sauð þegar einn mesti helgidómur sjía var sprengdur í loft upp í Samarra-borg í febrúar. Erlent 18.4.2006 07:48
Olíuverð í sögulegu hámarki Heimsmarkaðsverð á olíu náði sögulegu hámarki í gær og var rúmir 70 dalir á tunnu. Ástæðan er sögð meðal annars kjarnorkudeila vesturveldanna við Írana. Erlent 18.4.2006 07:45
Flugskeytaárás á Gaza-borg 17 ára Palestínumaður beið bana þegar Ísraelsher gerði flugskeytaárás á bæinn Beit Lahiya í gærkvöldi. Herinn gerði einnig árás á meintar bækistöðvar palestínskra vígamanna í Gaza-borg, en að sögn talsmanns palestínskra yfirvalda féll enginn í þeirri árás. Erlent 18.4.2006 07:39
Flóðin hvergi í rénun Vatnsborð Dónár hélt áfram að hækka í dag, íbúum á vatnasvæði hennar til enn frekara angurs og ama. Þá varð að rýma fjölda húsa í Georgíu vegna flóða. Erlent 17.4.2006 19:07
Hvalveiðisinnar í meirihluta? Ríki sem eru hlynnt hvalveiðum hafa náð undirtökunum í Alþjóðahvalveiðiráðinu að mati breska blaðsins Independent. Sjávarútvegsráðherra segist fagna tíðindunum en kveðst þó vonlítill um að Íslendingar muni sækja gull í greipar ráðsins á ársfundi þess í sumar. Erlent 17.4.2006 19:04
Mannskæðasta sjálfsmorðsárásin í rúmt ár Sextán ára gamall liðsmaður palestínsku samtakanna Heilagt stríð varð í dag níu manns að bana í Tel Aviv í Ísrael. Formælandi Hamas-hreyfingarinnar segir árásina, sem er sú mannskæðasta í rúmt ár, lögmæta sjálfsvörn. Erlent 17.4.2006 19:01
Dagsbrún fær 730 milljóna endurgreiðslu frá danska ríkinu Dagsbrún, sem hyggur á útgáfu fríblaðs í Danmörku, fær um 730 milljónir íslenskra króna endurgreiðslu frá danska ríkinu þar sem notast verður við dönsku póstþjónustuna við að dreifa blaðinu. Ritstjórar þeirra dagblaða sem nú eru á markaði segja ljóst að þeir munu þurfa að gera breytingar á blöðunum til að standa af sér íslenskættuðu samkeppnina. Innlent 17.4.2006 12:32
Sex látnir eftir sjálfsmorðsprengjuárás í Tel Aviv Í það minnsta sex manns létust og þrjátíu særðust í sjálfsmorðsprengjuárás í Tel Aviv í Ísrael í morgun. Að því er Reuters-fréttastofan hermir sprengdi meðlimur í palenstínsku Al-Aksa-herdeildunum sprengjuna við skyndibitastað nærri fjölfarinni umferðarmiðstöð. Erlent 17.4.2006 12:28
Hvalveiðisinnar í meirihluta Alþjóðahvalveiðiráðsins Hvalveiðisinnar eru komnir í meirihluta Alþjóðahvalveiðiráðsins að mati breska blaðsins Independent. Þessi breytta staða er árangur margra ára starfs Japana en Íslendingar og Norðmenn hafa einnig komið þar við sögu. Innlent 17.4.2006 12:23
Heimsmarkaðsverð á olíu komið upp í 70 dali Heimsmarkaðsverð á olíufatinu er komið upp í sjötíu dali og hefur ekki verið hærra í átta mánuði. Ófriðurinn í Írak og óvissan um framleiðslu í Íran vegna kjarnorkuáætlunar klerkastjórnarinnar eru á meðal ástæðna fyrir hækkuninni. Erlent 17.4.2006 10:32
30 særðust í sprengingu í Istanbúl Þrjátíu manns særðust, þar af tveir alvarlega, í sprengingu í úthverfi Istanbúl í Tyrklandi í gær. Lögregla telur að öflugri handsprengju hafi verið komið fyrir í ruslafötu og hún sprungið með þessum afleiðingum. Erlent 17.4.2006 10:03
Hafa órækar sannanir fyrir fjöldamorðum Saddams Írakskir saksóknarar segjast hafa órækar sannanir fyrir því að Saddam Hussein hafi undirritað skjöl sem tengjast fjöldamorðum á sjíum. Réttarhöld yfir einræðisherranum fyrrverandi hófust á ný í morgun. Erlent 17.4.2006 09:54
Íranar styðja heimastjórnina Stjórnvöld í Íran hafa ákveðið að styrkja heimastjórn Palestínu um tæpa fjóra milljarða króna. Íranar feta þar með í fótspor Rússa, sem tilkynntu í gær að þeir myndu veita heimastjórninni rekstrarfé. Erlent 16.4.2006 18:05
Blóðbað í Írak Tugir létust og enn fleiri slösuðust í fjölmörgum árásum í Írak á páskadag. Hinn kristni minnihluti íröksku þjóðarinnar gerði þó sitt besta til að halda daginn hátíðlegan. Erlent 16.4.2006 18:03
30 slösuðust í sprengjuárás í Istanbúl Þrjátíu slösuðust í sprengjuárás í úthverfi Istanbúl í Tyrklandi í dag. Sprengju hafð verið komið fyrir í ruslatunnu fyrir framan verslunarhverfi nærri alþjóðaflugvellinum. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á tilræðinu. Erlent 16.4.2006 18:06
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent